Morgunblaðið - 16.09.1962, Blaðsíða 22
22
MO RGVNBL AÐIÐ
Sunnudagur 16. sept. 1962
Samtal vib Gabor i Belgrad:
Það þurfti heppni að fylgja
- en hún sveik íslendinga
Jón Olafsson varð 15. með
2 metra. Valbjórn
hafnaði í 10. sæti með
6800 stig
UNDANKEPPNI í hástökki
fór fram í Belgrad í gær. —
Aðeins 7 menn stukku yfir
2.03 m sem sett hafði verið
sem lágmark til úrslita. —
Dómnefnd ákvað því að taka
þá 7 menn sem stokkið
höfðu 2 metra í fyrstu til-
raun með í úrslitin. Þegar
lína var þarna dregin, stóð
Jón Þ. Ólafsson næstur ut-
an úrslitadyranna. Hann varð
15.—16. í röðinni með 2.00. —
14 komust í úrslitin.
Fréttamaður Mbl. í Belgrad
simaði í gær að Jón Þ. Ólafs-
son hafi stokkið vel, en hon-
um tókst ekki að fara 2 metr
ana fyrr en I 3. tilraun. Það
réði baggamuninn og útilok-
aði hann frá úrslitum. Hafa
þá íslenðingar lokið keppni á
mótinu.
★ Björn ánægður
Fréttamaður Mbl. hafði samtal
við Björn Vilmundarson farar-
stjóra ísl. iiðsins í Belgad. Það
fer hér á eftii.
— Hvað finnst þér um árangur
ísl. piltanna?
— Ég vænti þess að Vilhjálmur
yrði meðal 6 fyrstu og það varð
hann. Það hefði verið kraftaverk,
af honum hefði tekizt að komast
á pallinn við þær aðstæður sem
keppt var við. Ef aðstæðurnar
hefðu verið honum hagstæðari,
hefði hann án efa getað orðið 4
eða 5. í röðinni.
Valbjörn gerði mjög vel, þó
ekki bætti hann met sitt. Að ná
6800 stigum í fyrstu stóru tug-
þrautarkeppninni sem hann tek-
ur þátt í er mjög gott, ekki sízt
þegar þess er minnst að keppnin
stendur 12 tíma hvorn dag, auk
þess tíma sem hann þurfti að
verja tíma til undirbúning í þátt-
töku í stangarstökkskeppninni. Ég
held að það hafi verið mistök að
láta hann taka þátt í stangar-
stökkskeppninni líka. Ég hlakka
til að fylgjast með Valbirni á
Norðurlandamótinu næsta ár.
Kristleifur virðist ekki í góðri
æfingu nú, sagði Björn Um Krist-
leif. Hann var miklu betri fyrr
í sumar. Hann var mjög þungur
í keppninni nú. En hann er ennþá
ungur og á framtíðina fyrir sér.
Gabor sagði að Valbjörn hefði
einnig getað náð lengra. Hann
átti einnig í stríði við dómara
vegna stuttrar atrennubrautar í
stangarstökkinu. Valbjörn var
yfir 4.40 m en stöng hans felldi
rána.
Gabor sagðist vona að hann
fengi tækifæri til að lagfæxa það
hjá ísl. piltunum sem hann hefði
lært af dvöl með þeim á þessu
móti. — Þeix verða áreiðanlega
betri á næsta móti.
★ ★ ★
Jón Ólafsson virðist í góðri
þjáltfun og það gladdi mig að
hann fór 2 metra.
Bjöm hafði orð á ómetanlegri
aðstoð Gabors. Hann hefur verið
liðinu ómetanlegur styrkur,
sagði Björn, og ég vona að við
fáum hann aftur til íslands
næsta ár.
Bjöm lék miklu lofsorði á alla
framkvær.-d iúgóslava á mótinu
og skipulag, einkum bó aðbúnað
allan sem íþróttafólkið býr við.
★ Skoðun Gabors
Fréttamaður Mbi. hafði einnig
tal af Gabor og hann sagði:
— Enginn isl. piltanna var
heppinn í keppninni hér. í
slíkri keppni sem hér hefur
verið, verða menn að vera
svolítið heppnir. Þjálfun og
æfing ein duga ekki. En bátt-
taka þeirra nú ætti að sann-
færa leiðtoga ísl. frjálsiþrótta
um það, að það er ekki nóg
að eiga menn búna miklum
hæfileikum, það verður ,.ð
æfa og æfa vel og æfa rétt.
Piltarnir hafa sýnt — og
vakið athygli hjá eriendum
þjálfurum — fyrir hvaða
hæfileikum þeir eru búnir, en
það hefur líka komið í ljós
að þeir eru ekki í nógu góðri
þjálfun.
Vilhjálmur hefði getað orðið
nr. 3 eða 4. En hann átti í sínu
stríði við dómara og mótvind.
Gaibor lauk einnig lofsorði á
framkvæmd mótsins. Svona stór
mót verða aldrei framkvæmd al-
veg gallalaust, sagði hann.
í fréttum í gær varð enn mis-
sögn í afrekum Valbjarnar. Sagt
var að hann hefði kastað spjóti
56.01 m en hann kastaði 56.60 m.
í 1500 m hlaupi var sagt að hann
hefði hlaupið á 4.54.0, en hann
hljóp á 4.54.8 mín. Þessar breyt-
ingar gera það að verkum að
heildarstigatala Valbjörns er
6.800 stig og hann hlaut 10. sæti
í greininni.
Röðin var þessi: s
EV-meistari stig:
Kutnetzov Rússlandi 8026
2. Moitke Þýakalandi 8022
3. Bock Þýzkalandi 7835
4. Kamerbeek Holland 7724
5. Holdorf Þýzikalandi 7526
6. Diatsjov Rússlandi 7400
7. Kolnjk Jugóslavíu 7348
8. Brodnik Jugóslavíu 7183
9. Khama Finnland 7052
10. Valbjörn Þorláksson 6800
11. Maurice Fraikkland 6496
12. Klipcov Rússlandi 6323
Samkoxnur
Fíladelfía, Hútúni 2.
Allmenn samkoma í kvöld kL
8.30.
Daníel Glad og Guðmundur
Markússon tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
Yfir 500 erlend
blöð og tímarit
VERÐA TIL SÝNIS í \ k ,
Bókaverzl. Sigfús Eymundssonar
ÞESSA V I K U .
Tímaritunum hefur verið raðað niður í flokka eftir efni, og er
þar m. a. að finna: Tízkublöð, Ljósmyndablöð, Vísindi, Tækni,
Verkfræði, Iðnað, Rafmagnsfræði, Bókmenntir, Listir, Stjórn-
mál, Læknisfræði o. s. frv.
Leitast hefur verið við að hafa allt fyrir alla, og verður tekið á
móti áskriftum, sem greiðast m^ga í íslenzkri mynt.
Bókaverzl. Sígfús Eymundssonar
Austurstræti 18 — Sími 13135.
1
ÞAK JÁRIM
Þakjárnið er nú komið og er til afgreiðslu strax,
stærðir: 8 —9 og 10 feta plötur. 7 — 8 og 9 plötur
í buntinu um 100 kg.
JÓN HEIÐBERG
Laufásvegi 2 A — Sími 13585.