Morgunblaðið - 22.09.1962, Side 3

Morgunblaðið - 22.09.1962, Side 3
Laugardagur 22. sept. 1962 MORCVNBLAÐIÐ 3 -K i ! ÞAÐ var kuldagjóstur a£ norðri er við ókum snemma morguns frá Húsavík fram í Köldukinn. Regnið buldi á rúðunum, í verstu hryðj unum var ekki laust við slyddu. Það var haustlegt yfir að líta þótt enn væri ekki nema rúm vika af september. Þurrkurnar höfðu vart undan að skófla burt regninu. Ferðinni var heitið að Ó- feigsstöðum í Kinn. Sækja átti 'heim heiðurshjónin Bald ur Baldvinsson oddvita Ljósa vatnshrepps og húsfreyju hans Sigurbjörgu Jónsdóttur. Séð heim að Ófeigsstöðum. Ætlir þú að mynda mig, Morgunblaðið grætur á Ófeigsstöðum í Kinn iGamanstund Baldur er þjóðkunnur vísna smiður og gamansamur með afbrigðum og kona hans gáf uð og skemmtileg. Baldur hef ir lengi haft forystu í héraði sínu og gegnt trúnaðarstörf- um fyrir bsendur, átt t.d. um langt skeið sæti á búnaðar- þingi. Mér varð að orði, er ég frétti það fyrir skemmstu að hann hefði ekki verið kosinn til setu á búnaðarþingi hinu næsta, að nú væri verið að reiba þær fláu skrautfjaðrir er prýtt hafa búnaðarþing, sem auðvitað er fremur leiðinleg samtooma eins og öll önnur stéttarþing. Baldur er einn hinna fáu sem lyft hafa bing Mér kom tii hugar, er við Ókum yfir brúna á Skjálfanda fljóti og Ófeigsstaðir blöstu við gegnum regnskúrirnar, þegar ég kom í fyrsta og eina skiptið að Ófeigsstöðum fyrir sjö árum. Eg ók þangað hópi af fólki, sem var að fara til berja, en Kinnin er víðfræg fyrir gott berjaland. Eg hef löngum verið latur við berja- tínslu og 'hélt mig því heima við bæ. Hitti ég þá Baldur bónda þar sem hann var að hirða hey. Tókum við tal sam an og leyzt mér maðurinn skemmtilegur. Fór ér að dunda við að 'hirða með honum en Hjónln Sigurbjörg og Baldur Baldvinsson. inu upp fyrir deyfð og drunga hversdagslegra samþykkta um rollur kýr og hesta, súrhey, skurðgröfur og vélanotkun. Glettni hans og hagmælska hefir kryddað samiþykktirnar svo menn hafa unað yfirset- unni betur. Framsóknarmað- ur mim Baldur lengi hafa verið, samivinnumaður mikill og einn af fláum Jónasarsinn- um, sem eftir eru, að því er mér hefir verið tjáð. mun sjálfsagt hafa tafið fyrir honum sem svanði 'því liði er ég lagði til verksins. Meðan Baldur brá sér heim með eitt heyhlassið, gekk ég niður túnið í áttina að nýjum bólstri Á leiðinni mætti ég bola- kálfi, sem mér sýndist heldur illilegur, enda lagði hann koll húfur og bölvaði. Mér leyzt ekki á blikuna. Eg sá að tæki ég til fótanna myndi tuddi ná mér en i höndunum hafði ég ekkert til varnar. En nú kom kauði í áttina til mán og í fátinu raufc ég úr jafckanum og hugðist nota hann fyrir bar efli og stökk síðan á móti tudda. f>að skipti engum tog- um. Hann lagði á flótta og mér létti stórum. Heima við bæ hafði Baldur borft á að- farirnar og vissi hann að kálf urinn gerði engurn mein, sem sýndi honum fulla alvöru. Aft ur á móti lagði hann í þá sem flúði hann. Baldur hafði gam an af viðureigninni, en hann. sagðist hafa óttast að ég tæki til fótanna, taldi mig Reykja vikurbarn, sem ekki hefði van izt umgengni við dýr að neinu marki. Kona ein, sem ég sagði þessa sögu var ekki lengi að koma með skýringuna. — Þetta er auðskilið. Kálf urfnn hefir auðvitað orfðið hræddur við hitt nautið, sagði hún. ★ En nú vorum við komin í hlaðið á Ófeigsstöðum og hér stóð ég öðru sinni og gætti vel að hvort nokkur boli væri nálægt. Seinna frétti ég að búið væri að lóga honum fyr- ir löngu. Fyrst hitti ég frú Sigur- björgu er ég hafði hvatt dyra. Sagði hún bónda sinn vera í fjósinu en hann myndi koma von bráðar. — Komdu blessaður og fyr- irgefðu að ég lét þig bíða. Eg var nefnilega að moka flór- inn. — Hver skollinn, segi ég, — og ég sem ætlaði einmitt að ná þér það snemma að ég gæti hjálpað þér við fjósverk in. — Ja ég er nú einmitt bú- inn, en gjörið þið svo vel að ganga í bæinn. — Hvernig er það, er ekki öll skáldskaparnáttúra frosin úr ykkur hér nyrðra í þessum kulda, segi ég um leið og ég fer úr yfirhöfninni. — Nei, ekki aldeilis, svarar Baldur samstundis. — Hefurðu ort nokkuð um Viðreisnarstjórnina spyr ég. — Nei. — Og þarftu þá ekkert að skaTnmast um pólitík við mig? — Nei, nei. En segðu mér að sunnan. Hvernig hefir Ól- afur Thors það?, spyr Baldur. — Ég veit ekki annað en hann hafi það gott. En varst það ekki þú Baldur, sem vild ir fá hann fyrir hreppsnefnd- armann hér norður í Ljósa- vatnshrepp. ★ — Jú. Það var fyrir mörg- um árum að við búnaðarþings fulltrúar sátum veizlu ríkis- etjómarinnar í ráðherrabú- staðnum. Ólafur var þá for- sætisráðherra eins og nú. Við tókum tal saman og ég segi við Ólaf. „Þú srt svo bráð- skemmtilegur að ég vildi að þú værir orðinn hreppsnefnd- armaður norður í Ljósavatns hreppi.“ En hann svarar strax hlæjandi: „Já, en þá er ekki víst að þú yrðir lengi oddviti." Mér varð fátt um svör. Eg vissi efcki til að hann þekkti mig fyrir annan og allra síst að hann vissi mig oddvita í hreppnum. Þeir eru oft gam- ansamir þessir ráðherrar og fljótir að svara. Meðan við Baldur sitjum og röbbum er lítil'l hnokki, 8 mánaða gamall, að bjástra hjá ömmu sinni. Er það dótt ursonur þeirra hjóna, og heit ir Baldur Ófeigur. Hann studd ist við hné ömmu sinnar og var að reyna að ganga. Eg heyri að frú Sigurbjörg taut ar vísupart og hrvái eftir henni. — Þeir gerðu þessa vísu í félagi Egill á Húsavik og Bald ur. Þeir komu heim sem oft- ar og voru í léttu skapi. I á var elzta dótturdóttir okkar á svipuðu reki og drengurinn hérna og var að byrja að ganga. Baldur tekur telpuna og segir: „Mærin er hæst í huga mínum hamingju stóra veitir mér.“ Egill botnar án þess Baldur flái lokið vísunni: Ætlar að líkjast afa sínum, er nú farin að sleppa sér.“ ★ Talið berst að nýjum og fallegum rofck, sem stendur í stofunni. — Já, rokkurinn. Hann er nú raunar fremur húsprýði en 'húsgagn nú orðið. Annars ætt irðu að taka af mér mynd með rokkinn og segja að risinn sé upp nýr Gandlhi norður í Þingeyjarsýslu. — Varstu dugleg að spinna hér áður, spyrjum við. — Nei. Bg hefði þótzt hafa unnið stórsigur ef ég hefði getað látið rokkhjólið snúast heilan hring. í æsku var ég lát in kemba og bótti mér það vond vinna. Sdðan var mér kennt að prjóna og þótti það ennþá verri vinna. Móðir mín og amma sögðu mér að það væri öllum nauðsynlegt að kunna að prjóna, ef svo færi að þeir yrðu blindir á gamals aldri. Mér gekfc bölvanlega að læra snúningslykkju og þó tók steininn úr þegar ég átti að fara að fella af. Eg mun þó hafa komizt yfir að prjóna Framh. á bls 15. STAKSTEIAIAR Sjónarmið breytast Þegar byrjað var að halda fegurðarsýningar hér á landi voru skoðanir manna skiptar um það, hvort þar væri um að ræða heppilegt eða skemmtilegt framferði. Eitt „íslenzkt“ blað, kommúnistamálgagnið barðist hart gegn slikri samkeppni og virtist sú barátta vera stefnu- skráratriði kommúnista. Fyrir nokkru breyttist þessi afstaða algjörlega og „Þjóðviljinn" tók að skýra frá fegurðarsýningum og virtist ekki líka þær verr en öðrum. I gær birti blaðið svo skýringuna á því að fegurðar- sýningar eru allt í einu orðnar ágætar, og auðvitað er skýring- in sú að þær hafa nú verið teknar upp í löndum húsbænd- anna austan járntjalds. Undir meðfylgjandi mynd úr „Þjóð- viljanum" stendur m. a.: „Fegurðarsýningar voru til skamms tíma taldar ósæmilegar í löndum Austur-Evrópu, en nú hefur þetta vesturlenzka tízku- fyrirbæri borizt þangað. Blekkingameistari Framsóknarmenn virðast um þessar mundir hafa mesta dá- læti á samkeppni um það hver geti komizt lengst í öfgum og öfugmælum, þegar rætt er um efnahagsþróun landsins og lífs- afkomu borgaranna. Höfundur móðuharðindatalsins hafði lengi metið, en annar þingmaður Framsóknarflokksins er nú að reyna að skáka honum, enda hampar Tíminn þeim manni mjög. Hann hefur nýlega haldið þvi fram að svo mjög sverfi að bændastéttinni að enginn hafi lengur áhuga á búskap og jarð- ir séu allar verðlausar. Til að sanna þessa fullyrðingu sína hélt hann því fram í þingræðu í vor, að þótt miklar almennar hækkanir hefðu orðið síðan 1958 hefðu sauðfjárafurðir að- Ieins hækkað um 4% og mjólk um 20%. Veit hann þó áreiðan- lega vel að meðalhækkun Iand- búnaðarafurða var 26%. Tíman- um hefur líkað svo vel iðja þessa manns, sem miðar að því að rýra trú manna á Iandbún- aðinum, að skoðunum hans er hampað annan hvern dag. Efnalegt sjálfstæði Framsóknarmenn eru teknir til við að skrifa mikið um það að þeir vilji sem flesta borgara efnalega sjálfstæða og lýsa því jafnframt yfir að leiðin til að ná þessu marki sé sú að styrkja kommúnista til valda í verka- lýðshreyfingunni. Nú vita það allir menn að ekkert er meira eitur í beinum kommúnista en einmitt það að borgararnir séu fjárhagslega sjálfstæðir, því að þá hrynur fylgið af þeim eina og raunin er að verða hérlendis. En hitt er sjálfsagt rétt að ábugi Framsóknarmanna fyrir efna- legu sjálfstæði borgaranna sé álíka einlægur og kommúnista.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.