Morgunblaðið - 22.09.1962, Side 6
6
MORCUNRL4Ð1B
Laugardaftur 22. sept. 1962
★ KVIKMYNDIR
PS
★ KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR *
* KVIKMYNDIR ★ SKRIFAR UM: * KVIKMYNDIR *
Nýja Bíó:
EIGUM VIÐ AÐ ELSKAST?
ÞESSI sænska gamanmynd, sem
byggð er á skáldsögu eftir John
Einar Oberg, segir frá ungum
iðjuleysingja, Jan Froman, sem
við lestur bókarinnar „Auðnu-
vegurinn" kemst í það það furðu-
lega ástand að hann sækir um
aðstoðarmannsstöðu hjá banka-
þjóninum Hagson í Landsbank-
anum. — Froman kemst þegar
í kynni við unga og fallega starfs-
stúlku í bankanum, Margareta
Gúnter, aðmírálsdóttur og verður
ákaflega hrifinn af henni. Ákveð-
ur hann þegar að hún skuli verða
konan sín, enda þótt hann viti
að hún sé heitbundin öðrum.
Hann hefst þegar handa með
þrautseigju og þolinmæði, að
vinna ástir Margaretu, en það
er þó aðeins önnur hliðin á at-
hafnasemi hans og dugnaði, því
að jafnframt snýr hann sér að
fjármálastarfsemi og sýnir á því
sviði þá sniliigáfu að hann snýr
á hina þauireyndustu fjármála-
menn og verður auðugur maður
á skömmum tíma. Froman er geð
ugur og skemmtilegur maður og
ekki spillir það að hann er nú
orðin ríkur maður í þokkabót.
Margareta, sem frá því fyrsta
hefur litist vel á Froman hikar
því ekki við að segja upp sínum
gamla unnusta og trúlofast Fro-
man. En þegar hún segir föður
sínum, aðmírálnum það, verður
hann ókvæða við og hleypur á
dyr til þess að finna Froman og
koma honum í skilning um, með
hnúum og hnefum ef í það fer,
að hann hafi síður en svo áhuga
á að gerast tengdafaðir hans.
Þessi reikningsskil aðmírálsins
og tengdasonarins tilvonandi eru
bráðskemmtileg og býsna átaka-
mikil, — en ekki er vert að rekja
þau hér.
Orð hefur farið af því að ástar-
atriðin í þessari mynd séu ærið
djörf eða öllu heldur „nakin“,
og hefur það vissulega ekki orðið
til þess að draga úr aðsókninni
að myndinni. Svíar hafa í þessu
efni tekið Frakka sér til fyrir-
myndar, en kunna ekki með það
að fara, enda hafa slíkar „sýn-
ingar“ því aðeins rétt á sér að
þær séu efnisleg eða listræn nauð
syn, en um það er ekki að ræða
í þessari mynd. Annars er mynd-
in prýðilega gerð og bráðskemmti
leg og borin uppi af snjöllum
leik. Aðalhlutverkið, Froman,
leikur einn af fremstu leikurum
Svía, Jarl Kulle er lék próf.
Higgins í My Fair Lady við geysi
hrifningu áhorfenda og Marga-
reta Gúnter Jeikur hin unga og
laglega leikkona Christina
Schollin og Edvin Adolphson leik
ur föður hennar, aðmírálinn. Allt
eru þetta afbragðsleikarar og
margir aðrir góðir leikarar fara
þarna með hlutverk.
Austurbæjarbíó:
KÁTIR VORU KARLAR
ÞETTA er ein af hinum þraut-
fyrri betri. — Austurbæjabíó,
leiðinlegu þýzku gljámyndum
með vellulegum söngvum og
sveita-rómantík og uppgerðar-
gázka. Slíkar myndir sjást hér
alltaf öðru hvoru og eru í fáu
frábrugðnar hver annari, jafn-
vel efnið sami grautur í sömu
skál. — Ég skal játa að ég sá
ekki mynd þessa til enda, en þó
nóg af henni til þess að ég stóðst
ekki mátið og gekk út, enda
liltar líkur væru til að seinni
mátti af söguþræðinum ráða að
hluti myndarinnar yrði hinum
sem oft sýnir ágætar myndir, ætti
að sneyða sem mest hjá mynd-
um af þessari tegund. Þær eru
að vísu meinlaust léttmeti en
vantar flesta kosti góðra gaman-
Stoinuð
fulltrúaráð
í Strandasýslu
ÞANN 8. júlí s.l. var haldinn
stofnfundur Fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Strandasýslu.
Fundurinn var haldinn á Hólma-
vík.
Fundarstjóri var séra Andrés
Ólafsson, Hoímavík og fundar-
ritari Jörundur Gestsson, bóndi,
Hellu, Kaldrananeshreppi.
Axel Jónsson, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins flutti erindi um skipulags-
mál Sjálfstæðisflokksins og lagði
fram uppkast að lögum fyrir
fulltrúaráðið, sem síðan var
samþykkt.
Stjórn Fulltrúaráðsins skipa:
Vígþór Jörundsson, skólastjóri,
Hólmavík, formaður, séra Andrés
Ólafsson, Hólmavík, Maris Björns
son, bóndi, Felli, Árneshrepp,
Guðjón Jónsson, bóndi, Gestsstöð
um, Kirkjubólshreppi og Jörund-
ur Gestsson, bóndi, Hellu.
Fundurinn kaus fulltrúa í kjör
dæmisráð Sjálfstæðisflokksins í
Vestfj arðakj ördæmi.
Sigurður Bjarnason, ritstjóri,
ávarpaði fundinn og árnaði hinu
nýstofnaða fulltrúaráði heilla í
framtíðinni.
Akureyri, 14. sept. þar nokkurra tíma viðdvöl.
KVIKMYNDALEIKKONAN Leikkonan lét vel yfir kom-
Mai Zetterling kom til Akur- unni til Norðurlandsins og
eyrar í gær, og fór þá til Mý- hefur áhuga á að kynnast,
vatnssveitar. einkum Þingeyingum.
Myndirnar eru teknar á
í dag fór hún með sjúkra- Aknreyrarflugvelli, er leik-
flugvél Tryggva Helgasonar ko' in var að leggja upp til
til Grímseyjar, og mun hafa Gr^nseyjar. — St.E.Sig.
Sýntng á bókhaldsvélum
SÍÐASTL. þriðjudag var opnuð á
vegum Véladeildar Sambands ís-
lenzkra Samvinnufélaga sýning
ing á bókhaldsvélum í svo-
nefndu Taylorix bókhaldskerfi.
Er sýning þessi haidin í sýningar
skálanum, Kirkjustræti 10.
Taylori bókhaldskerfi býður
upp á mjög fjölbreytt úr-
val ýmiskonar tækja til þess að
færa bókhald með, allt frá hand-
skriftartækj um fyrir skóla til
stórra bókhaldsautomata, og voru
blaðam. sýnd tæki þessi fyrir
nokkru. A sýningunni er tvær
gerðir handskriftartækja, þar
sem bókhaldið er fært á laus
spjöld með gegnumskrift á dag-
bók. Auk handskriftartækjanna
eru á sýmngunni ýmsar gerðir
bókhaldsvél3, sem skipta má í
tvo meginhópa, reiknandi og
ekki reiknandi vélar. En aðal-
nýjung Taylorix á sviði bókhalds
ins er hin nýja bókhaldsvél Fixo
mat, sem einnig er á sýningunni,
bæði með bókstafatexta og án
hans. f vélinni má og vinna ýmsa
aðra vinnu og sjálft bókhaldið
svo sem lagerbókhald, launabók-
hald, reikningsyfirlit og reiknings
útskrift. Her á landi mun þessi
vél nú í notkun í nærri 30 fyrir-
tækjum. Gestur Sambandsins í
sýningu þessari er Jung, skipu-
lagsráðunautur frá Taylorix, og
dvelzt hann nér meðan sýningin
stendur yfir. Mun hann vera þeim
aðilum sem þess óska til ráð-
legginga um bókhald þeirra og
annað í þvi sambandi.
Sýningin verður opin þessa
viku frá kl. 10 — 12 og 13.30 —
19.00.
Bréf sent Mbl.:
Loftleiðir
og S.A.S.
Herra ritstjóri.
HINGAÐ hafa borizt fréttir i
blöðum um að flugfélagið SAS
hyggist nú að beita öllum ráð-
um til þess að ganga á milli bols
og höfuðs á Loftleiðum. Þetta
er ekki í fyrsta sinni, sem SAS
leggur stein í götu hins íslenzka
flugfélags.
Eins og kunnugt er, væri SAS
löngu dottið upp fyrir, ef ríkis-
stjórnir Svíþjóðar, Danmerkur
og Noregs hefðu ekki lagt fram
hundruð milljónir króna oftar
en einu sinni til að forða þvi
frá öngþveiti.
Loftleiðir hafa hins vegar rek-
ið starfsemi sína á þann hátt,
að félagið hefur aldrei þurft á
opinberu fé að halda. Samtímis
þessu hefur það verið ómetan-
leg landkynning fyrir ísland og
íslendinga bæði vestan hafs og
austan. Sennilega er það hin
bezta landkynning, sem við höf-
um nokkurn tíma fengið.
Af þeim ástæðum getur ekki
neinum íslendingi staðið á sama
um hversu fer fyrir þessu fé-
lagi. Líf þess og velgengni snert-
ir okkur öll.
Ef nokkur hugur fylgir máli
um norræna samvinnu af hálfu
ríkisstjórnar Svíþjóðar, Dan-
merkur og Noregs þannig að
þær óski að halda tengslum við
íslendinga, ættu þær að láta
rannsaka framferði SAS í þessu
máli. Þær hafa líf SAS alger-
lega í hendi sér, og geta þvi
sagt félagsstjórninni fyrir verk-
um. Heimurinn ætti að vera svo
stór akur fyrir SAS, að félagið
þyrfti .ekki að traðka á minnsta
bróðurnum.
Fari svo að Loftleiðir verði
að láta í minni pokann fyrir
ágengni SAS, hlýtur vinátta ís-
lendinga til frænda sinna á
Norðurlöndum að kólna mjög
um fjölda ára.
Ég vil biðja sendiherra við-
komandi ríkja að vekja athygli
ríkisstjórna sinna á þessu at-
riði. Ekki veldur sá er varar.
Reykjavík, 21. sept. 1962 I
Hákon Bjarnason.
• Skvísa í skýjum
Þegar ég tók upp úr um-
slagi úrklippu úr amerísku
blaði með yfirskriftinni
„Sweetie Pie in the Sky“, var
staddur hjá mér orðheppinn
maður. — Ef ég ætlaði að nota
þessa úrklippu, mundi ég ekki
einu sinni vita hvernig ætti
að þýða fyrirsögnina, sagði ég.
— Dugar ekki „Skvísa í skýj-
um“, svaraði hann um hæl.
Og úr því fyrirsögnin er
komin og ísland kemur svo-
lítið við sögu í frásögninni,
ætla ég að segja ykkur inni-
haldið.
• Langt í matinn
Bandaríkjamaður að nafni
Wallace Phillips elskar kon-
una sína og á 20 ára hjúskap-
arafmæli þeirra hjóna, ákvað
hann að sanna henni það — en
á dálítið óvenjulegan hátt.
Þau búa í Ohio og hann sagð-
•ist ætla að bjóða henni til
New YorR, og þar skyldu þau
borða veizlumáltíðina. Þegar
þau stigu þar út úr flugvél-
inni, fór hann með hana beint
að afgreiðslu Loftleiða og sagði
henni að hann hefði skipt um
skoðun, hann mundi bjóða
henni út að borða í Reykjavík
í staðinn. Sjónvarpsmenn voru
með honum í leiknum. Þeir
höfðu viðtal við hjónin sitt í
hvoru lagi og spurðu um ferð-
ina. Þar sagði Phillips, að á
leiðinni til íslands ætlaði hann
að segja konu sinni, að hann
hefði enn skipt um skoðun og
að máltíðin umtalaða skyldi
verða í Luxemborg. En þaðan
ætlar hann að fara með hana
beint í 5 tíma lestarferð til
Parísar, þar sem hún fær
loksins hátíðarmatinn í tilefni
af 20 ára hjúskaparafmælinu.
Phillips kveðst hafa átt i
mestu vandræðum með að
komast af stað í ferðina, án
þess að konu hans grunaði
nokkuð. Hann þurfti að fá
lengt fríið hennar í vinnunni,
láta dótturina sníkja út úr
henni mynd, til að nota á pass-
ann, kaupa handa henni auka-
kjól til ferðarinnar og loks að
aka henni í hárlagningu til
næsta bæjar, þar eð hann var
hræddur um að ef fréttin væri
farin að síast út, þá mundi
hún fá veður af þessu þar.
Þau hjónin komu svo við á
íslandi, og í Loftleiðaflugvél-
inni á leiðinni var borin fram
sérstök brúðkaupskaka.
• Dálítið dýrt spaug
Já, ýmislegt gerir fólk sér
til gamans. — Hún er búin að
vera fjári góð eiginkona, seg-
ir Phillips, og hefur allt af tek-
ið öllu vel hjá mér. Svo ég vil
koma henni svolítið á óvart.
Ég er viss um að henni þykir
gaman að því.
Bara svolítið dýrt spaug —
í dollurum.