Morgunblaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 3
Sunnudagur 23. sept. 19 M O R G U N B L 'A Ð l Ð 3 Langaði til þess að kanna nýja stigu Á SAUÐÁRKRÓKI munu vera óvenjulega margir fag- lærðir iðnaðarmenn starfandi, ef miðað er við tölu íbúa á staðnum. Það tekur heldur ekki langan tíma að ganga um götur bæjarins og komast að raun um, að þar eru blómleg verkstæði flestra iðngreina. Og ef gengið er næstum því alla leið niður að sjó utarlega í bænum, verður fyrir véla- verkstæði Inga Sveinssonar, en þangað varð blaðamanni Mbl. gengið af tilviljun nú fyrir sköminu, er hann litaðist um á staðnum. Fyrir utan vélsmiðju Inga stendur bátur í smíðum og reynist Ingi sjálfur vera „um borð“. Fyrir framan bátinn stendur vörubíll, grár að lit, vel málaður, en á að gizka 40 ára gamall. — Átt þú þennan bíl, er fyrsta spurning blaðamanns- ins, er Ingi hefur góðlátlega tekið kveðju hans. — Já, og þetta er frægur bíll, hann hefur þjónað svo mörgum hlutverkum um dag- ana. Hann byrjaði áætlunar- bill milli Borgarness og Akur- eyrar og síðar var hann póst- bíll á sömu leið. Einhvern tíma seinna var hann svo notaður sem slökkviliðsbíll á Akureyri og stigabil! hjá Rafveitunni þar. — Stigabíll? ■i,- —Já, þegar ég keypti hann, var á honum 7 metra hár stigi, sem ég tók auðvitað af, og síðan nef ég notað bílinn fyrir verkstæðisbíl. — Er þetta ekki elzti bíll- inn hér á Króknum? — Jú, alveg áreiðanleg, hann er Ford, model 1929. — Jæja, ekki eldri, en mik- ið hlýtur bílaviðgerðarmönn- unum hér annars að vera hlýtt til þín. — Ekki skaltu nú vera of viss um það. Þegar ég fór með bílinn í skoðun vorið 1961, en þá hafði ég nýlega keypt hann, létu þair sér ekki nægja að segja, að hann væri ígóðu lagi, eins og venja er heldur gáfu þeir honum þann vitniðburð í skoðunarvottorðið, að hann væri í „mjög“ góðu lagi. Síð- an hefur hann líka alltaf verið í toppstandi. — Hvað er þetta stór bátur, sem þú ert að smíða? — Hann er 17 tonna, 13% m á lengd og tæpir 3 m á dýpt. —- Byggður úr stáli? — Já, með alúminium yfir- byggingu. — Fiskibátur? — Já, nann verður gerður út á línu og net, og einnig ætlum við að setja í hann kraftblökk og reyna að nota hana við ufsa- og síldveiðar. — Hverskonar kerfi verður í bátnum’ — í hann verður sett há- þrýstikerfi, sem knýr línuspil, snurpuspil og kraftblökk. Ég hygg, að þetta verði fyrsti ís- lenzki báturinn, sem aðeins verður n rð háþrýstikerfi einn, en slíkt kerfi var síðastliðið Ingl „um borð“ í skipi sínu. Fyrir framan stendur elzti bi'l- inn á staðnum. vor sett í færeyskt skip í Reykjavík. — Hvað verða margir menn um borð í bátnum? — Lúkarinn er ætlaður fyrir sex menn, og þér er vel- komið að líta á hann, ef þú kærir þig um. Hann er nærri fullgerður. Boð Inga var auðvitað þeg- ið með þökkum og kom í ljós, að lúkarinn er sérlega vist- legur á að líta. Þar eru 6 kojur, góðir fataskápar og í einu horninu verða matföng og eldatæki. Sagði Ingi, að eldað yrði á kosangasi. — Hvernig hitið þið bát- inn upp? — Með miðstöðvarhitun s frá aðalvélinni, em verður Volvo Penta, 100 hesta. Síðan svndi Ingi blaðamann- inum fiskilestina, sem hann sagði, að gæti rúmað allt upp í 20 tonn af fiski. Þá virtist stýrishúsið nærri tilbúið, en eftir var að setja upp ýmis nauðsynleg tæki er báturinn verður útbúinn með, svo sem dýptartæki, fiskileitartæki og senditæki. — Hvernig eru aðstæður hér til bátasmíða? — Hér er enginn slippur og okkur vantar tilfinnanlega dráttarbraut. Báturinn hefur aðallega verði smíðaður hérna inni á verkstæðinu, en ég byrjaði á honum í febrúar í fyrra, og er hann nú nýkom- inn út. Það er þó heppilegt, hvað verkstæðið er nærri sjón um. — Ekki er bátasmíði þitt aðalstarf? — Nei, nei, hér er einkum gert við vélar. ■— Hefur þú marga menn í vinnu? — Við erum oftast 5, stund um þó færri. — Hefur þú smíðað fleiri stálbáta en þennan? — Nei, þetta er fyrsta til- raunin. Og að því, er ég bezt veit, hefur enginn svona stór stálbátur verið byggður utan Reykjavíkur. — Hvenær ætlarðu að hleypa hor.um af stokkunum? — Ég vona, að það geti orð- ið fyrir mánaðamótin næstu. — Hefurðu ákveðið, hvað hann á að heita? —Nei, ég hef ekki haft neinn tíma til þess ennþá, ég geri það bara um leið. — Af liverju smíðaðir þú þennan bát? — Ég gerði það eingöngu vegna þess, að mig langaði til þess að kanna nýja stigu. Frarah. á bls 23 Ingi Sveinsson lengst til hægr i og tveir aðstoðarmenn hans. Sr. Jon Gíslason: Enginn var sem hann 12. sunnud. e. trinitatis: GUÐ ER GUÐ „l»eir kölluðu þá í annað sinn á manninn, sem haíði verið blind- ur, og sögðu við hann: Gef þú Guði dýrðina. Vér vitum, að mað- ur þessi er syndari. I*á svaraði hann: Hvort hann er syndari, veit ég ekki. Eitt veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi. I»á sögðu þeir við hann: Hvað gjörði hann við þig? Hvernig lauk hann upp augum þínum? Hann svaraði þeim: Ég var rétt áðan að segja yður það, og þér hlustuðuð ekki á það. Hvers vegna viljið þér nú heyra það aftur? Ætlið þér lika að verða lærisveinar hans? Og þeir atyrtu hann og sögðu: Þú ert læri- sveinn hans, en vér erum læri- sveinar Móse. Vér vitum, að Guð hefur ta«lað við Móse, en um þenn- an mann vitum vér ekkert. hvað- an hann er. Maðurinn svaraði og sagði við þá: Þetta er þó undar- legt, að þér vitið ekki, hvaðan hann er, oð hann lauk þó upp aug um nínum. Vér vitum þó, að Guð hænheyrir ekki syndara, en ef ein- hver er guðrækinn og gjörir vilja hans, þann mann bænheyrir hann. Frá alda öðli hefur það ekki heyrzt, að nokkur hafi opnað augu þess, er var fæddur blindur. Væri þessi maður ekki frá Guði, þá gæti hann ekkert gjört. Þeir svör- uðu og sögðu við hann: Allur ert þú í syndum fæddur, og þú ætlar að fara að kenna oss! Og þeir ráku hann út. — Jesús frétti, að þeir hefðu rekið hann út, og er hann fann hann, sagði hann: Trúir þú á mannssoninn? Hann svaraði og sagði: Og hver er sá, herra, að ég I geti trúað á hann? Jesús sagði I við hann: Þú hefur þegar séð hann og það er hann. sem við þig talar. En hann sagði: Ég trúi, herra! Og hann féll fram fyrir honum. ' Og Jesús sagði: Til dóms er ég ] kominn í þennan heim, til þess að þeir* sem ekki sjá, verði sjá- andi, og þeir, sem sjáandi eru, verði blindir. Þetta heyrðu þeir af faríseunum, sem hjá honum voru, og sögðu við hann: Hvort erum vér þá líka blindir? Jesús sagði við þá: Ef þér væruð blind- ir, væri ekki um synd að ræða hjá yður, en nú segið þér: Vér erum sjáandi. Synd yðar helzt við.“ Jóh. 9, 24-36. I. Ég hef valið þriðja guðspjall dagsins til íhugunar í dag, en öll guðspjöllin segja frá lækn- ingaundrum Jesú. Enginn var sem hann. Margir komu til hans, sumir af löngun til lækn- ingar, aðrir af forvitni. Jesús var ætíð fús til að lækna og líkna. Hann þjáðist með þjáðum. Þó var hann ekki kominn í heiminn til að gjöra það eitt. Hann kom til að frelsa okkur undan valdi syndarinnar, ■ lækna andans meinin. Hann kom til að opinbera Guð. Er hann leit yfir mannfjöld- ann, horfði hann á hjörtun. Hann sá marga þjáða líkamleg- um krankleika. Hinir voru i færri, sem þráðu náð og misk- unn Guðs. Hinir líkamlega sjúku vissu um krankleika sinn • og leituðu allra ráða til að fá i bata. En flestir virtust sér ó- meðvitandi um þörf sína á náð og kærleika Guðs. Þess vegna fann Jesús oft fáa í öllum mann- fjöldanum, sem voru reiðubúnir að veita orði hans viðtöku. , Og í mannfjöldanum voru einnig margir óvinir Jesú. Guð- , spjallið segir frá því, er óvinir hans fóru að yfirheyra mann, sem hann hafði gefið sjónina. Máttarverk hans lauk þó ekki upp augum þeirra fyrir dýrð Guðs. Þvert á móti. Um leið og hinn blindi varð sjáandi, urðu hinir sjáandi blindir, blindir á dýrð Guðs. Vantrúin fyllti hjörtu þeirra. Þeir sneru baki við Guði. Farísearnir þóttust trúa á Guð í orði, en þeir afneituðu honum í verki. Þeir þóttust þjóna Guði í lífi sínu, en öll kenning þeirra sýnir, að þeir trúðu í rauninni aðeins á sjálfa i sig og sitt eigið ágæti. Þótt þeir t bæru orð Guðs á vörunum, | voru þeir guðsafneitarar í lífi sínu og breytni. Þetta. er undarlegt, en slík hefur afstaða fjölda manna ver- ið allt frá upphafi. Fjöldi manna finnur enga þörf hjá sér á Guði. Þótt þeir tali um Guð, þá eiga þeir aðeins við eigin hugmynd- ir sínar um hann, en alls ekki þann Guð, sem Jesús Kristur hefur opinberað okkur. Og það er næsta lítill munur á þeirri afstöðu og hreinni guðsafneit- un, því að hvorttveggja er af- neitun hins eina sanna Guðs. Nú þegar það þykir ekki lengur neitt sérstakt, að menn fljúgi kringum jörðina á nokkr- um mínútum, og menn eru í al- vöru farnir að tala um að leggja undir sig himingeiminn, fyllast.. margir hofmóði. Við höfum les- ið í blöðum og heyrt í útvarpi hrokafullar yfirlýsingar manna um, að þeir hafi afskrifað Guð á barnsárunum, því að enginn Guð sé til. Og var það ekki geimfarinn Gagarín, sem hló að þeirri barnalegu forheimsk- an, að þörf væri á að biðja til Guðs um vernd og varðveizlu? f dag sjáum við stóra ’nlut* heims lúta valdi þeirra, sem hafa afskrifað Jesúm Krist. Heil heimspekikerfi, sem hafa meiri eða minni áhrif á líf megin- þorra allra jarðarbarna, tilbiðja aðeins orkuna og- efnið. í dag hlæja milljónir manna að meg- inatriðum kristinnar trúar og bera ekki einu sinni lengur & sér ytra skin guðshræðslunnar. Og þessir menn halda, að þeir séu eitthvað frumlegir, hafi fundið upp eitthvað nýtt og áð- ur óþekkt. En það er mikill mis- skilningur. f afstöðu sinni til Jesú Krists eru þeir I rauninni aðeins skoðana- og jábræður faríseanna, sem guðspjöllin greina frá. Hið nýja í guðleysi nútímans sér oft aðeins eftir- líking þess, sem andstæðingar Jesú á öllum öldum hafa sagt. ^fútímaguðleysinginn er nefni- lega miklu meira „gamaldags** en hann sjálfur heldur. Ef guðsafneitunin hefði á réttu að standa, væri búið aS setja Guð frá völdum fyrir löngu, eins og afdankaðan kon- ung, sem rekinn hefur verið f útlegð. Þá væri kominn tími til að leggja niður kirkju og krist- indóm, læsa Biblíuna niðri á kistubotni og hætta að hugsa um Guð. Þá væri kominn tími til að reisa að nýju goð á stall, eins og gjört var í upphafi fs- landsbyggðar, arftaka ásanna fornu, hvaða nöfn sem menn vildu velja þeim í dag. En það er mikill misskilning- ur að halda, að tími Guðs sé liðinn í þessum heimi. Engin bylting í mannheimi getur sett Guð frá völdum. Ekkert heiðið mannlegt hagkerfi getur sett sig í stað kristinnar trúar. Guð er Guð, hvað sem mennirnir segja. Guð er Guð, hvað sem samþykkt er á mannlegum málþingum. Tign og vald Guðs er að engu leyti komið undir manninum eða ákvörðunum hans. Það var Guð, sem skapaði manninn, en ekki maðurinn, sem skapaði Guð. Hvers vegna er þá ástandið 1 nútímanum eins og raún ber vitni? Svarið er ósköp einfalt. Við stöndum í sömu sporum og farísearnir í guðspjallinu. Við erum blind gagnvart Guði, heyrnarlaus gagnvart boðskap hans. Enn hafa of fáir tileinkað sér þá náð, sem Guð vill gefa í Jesú Kristi. Enn hafa of fáir skilið gildi þess, að Jesús hefur frelsað okkur. Jesús þarf að fá að komast að og vinna krafta- verk sitt á okkur, ljúka upp augum okkar, opinbera okkur dýrð Guðs. Hann þarf að gefa okkur þá sjón, sem sér dýrð og mátt Guðs. Drögum lærdóm af guðspjall- inu. Leyfum Guði að fá að kom- ast að í lífi okkar til að vinna á okkur miskunnarverkið. Hann getur skapað trúna. Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.