Morgunblaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 8
8 MORGVWBLAÐIÐ Sunnudagur 23. sept. 1962 Arngrímur frv. ritstjóri Fr. Bjarnason — Minningarorð X. O. G. T. St. Víkingrur nr. 104. Fundur mánudag kl. 8.30. Rætt um vetrarstarfið. Erindi: Sigurður Gunnarsson, skólastjóri. Mætið vel. Á MORGUN verður borinn til grafar á ísafirði Arngrímur Fr. Bjarnason. Með honum er til ínoldar hniginn einn af merk- ustu borgurum ísafjarðarkaup- Staðar, fjölhæfur athafnamaður, ritstjóri og rithöfundur. Arngrímur Fr. Bjarnason var Um margt sérstæður og stórbrot- inn persónuleiki. Lífsferill hans var óvenju fjölbreytilegur, mót- aður miklu þreki og góðum Jiæfileikum. Arngrímur Friðrik Bjarnason var fæddur 2. október 1886 að Hafrafelli í Skutulsfirði. Hann lézt á Sjúkrahúsi ísafjarðar 17. þ.m. og var því tæplega 76 ára að aldri. Foreldrar hans voru Bjarni Helgason sjómaður og Mikkelína Friðriksdóttir, bónda að Breiðabóli í Hólshreppi og Hafrafelli í Skutulsfirði. Hann nam ungur prentiðn á ísafirði og stundaði hana um nokkurt skeið. Kom kunnátta hans í þrentiðn honum m.a. að gagni er hann löngu síðar gerðist rit- Stjóri. Henti það bá oft að hann stóð sjálfur við leturkassana og handsetti greinar sínar í prent- Smiðjunni á ísafirði. Enda þótt Arngrímur Bjarna- son starfaði lengstum á ísafirði var hann einnig um skeið bú- Settur annars staðar, m.a. í Bol- Ungarvík þar sem hann var odd- viti árin 1924—1928. Einnig var hann bóndi að Mýrum í Dýra- firði árin 1930—1935. Á ísafirði stundaði Arngrímur Verzlun og útgerð í mörg ár. Var hann þar mjög riðinn við stjórn margra atvinnufyrirtækja, Svo sem útgerðarfélagsins Hug- ins hf., Vélsmiðjunnar Þórs hf. Og Fiskimjöls hf. í öllum þess- Um atvinnufyrirtækjum var hann meðeigandi og hafði mikil áhrif á stjórn þeirra. Arngrímur Bjarnason tók mik- jnn þátt í margs konar félags- lífi á ísafirði og á Vestfjörðum. Hann var forseti fjórðungsdeild- ar Fiskifélags Vestfjarða á ár- Unum 1918—1958. Varaforseti Fiskifélags íslands var hann ár- in 1922—1930, Formaður Iðnráðs fsafjarðar var hann í mörg ár. Lét hann sig iðnaðarmál miklu skipta. Hann starfaði einnig mikið í Slysavarnafélagi íslands Og í Búnaðarsambandi Vest- fjarða. ★ Á ísafirði var Arngrímur einn af forystumönnum Sjálf- Stæðisflokksins. Var hann for- maður Sjálfstæðisfélags ísfirð- inga í mörg ár. Bæjarfulltrúi á fsafirði var hann-árin 1912—1917 og 1934—1942. Ritstjóri viku- blaðsins „Vesturlands" á fsa- firði var hann árin 1933—1942. Arngrímur var ágætlega greindur, mælskumaður mikill og baráttumaður á stjórnmála- sviðinu. Stóðu oft um hann harð ar deilur eins og um aðra þá, sem til forystu veljast. En hann barðist hart og hlífði sér hvergi. Brann honum oft eldur í brjósti er hann barðist fyrir áhugamál- um sínum, sem voru mörg og fjölþætt. Hann tók virkan þátt í ung- mennafélagshreyfingunni á æsku árum sínum. Var hann m.a. for- maður ungmennafélags á ísa- firði um árabil. Bindindismál lét hann einnig til sín taka. Arngrímur Bjarnason var af- kastamikill rithöfundur. Auk fjölda blaða- og tímaritsgreina safnaði hann og gaf út vestfirzk- ar þjóðsögur og sagnir. Hann unni þjóðlegum fróðleik, hafði yndi af honum og lagði mikla vinnu í að safna þjóðsögum og sögnum. Arngrímur Bjarnason var tví- kvæntur. Átti hann 19 börn og eru 16 þeirra á lífi, mannvæn- legt og dugmikið fólk. Fyrri^ kona hans var Guðríður Jóns- dóttir frá Stóra-Laugardal á Skógarströnd. Áttu þau 8 börn, en 5 þeirra eru á lífi. Eru þau þessi: Jón, togarasjómaður á Ak- ureyri; Lína, frú á Svarfhóli í Svínadal, Borgarfjarðarsýslu; Inga, frú, Reykjavík; Bjarni, matsveinn í Stykkishólmi, og Hannes, garðyrkjumaður í Hvera gerði. Frú Guðríður lézt árið 1921. Árið 1923 kvæntist Arn- grímur Ástu Eggertsdóttur Fjeld- sted frá Skálavík. Lifir hún Trésmáðavélar frá Stenbergs Maskinbyra AB. Stuttur afgreiðslufrestur. GÆÐIN HEIMSKUNN Einkaumboð fyrir ísland: Jónsson & Julíusson Tryggvagötu 8 — Sími 19803. mann sinn. Áttu þau saman 11 börn sem öll eru á lífi. Eru þau: Guðmundur, sjómaður í Reykja- vík; Jón, skrifstofustjóri, Rvík; Helga, frú, Reykjavík; Hrefna, frú, Reykjavík; Kristján, verzl- unarstjóri, Reykjavík; Pálmi, garðyrkjufræðingur; Sigurður, stýrimaður, Reykjavík; Jósafat, framkvæmdastjóri, Njarðvíkum; Ástríður, búsett á ísafirði, Guð- ríður, frú, Reykjavík, og Arn- grímur, skrifstofumaður, Reykja vík. ★ Ég þekkti ekki heimili Arn- gríms Bjarnasonar og fyrri konu hans, er mér hefur verið sagt að hún hafi verið dugmikil og myndarleg manneskja. En á heimili hans og frú Ástu Egg- ertsdóttur hefi ég oft komið og notið þar gestrisni og skemmt- unar hjá greindu og fjölfróðu fólki. Frú Ásta hefur staðið við hlið manns síns í blíðu og stríðu af frábærum dugnaði og kjarki, enda hin mesta mannkostakona, prýðilega greind, atorkusöm og dugmikil. Hafa þau hjón komið sínum fjölmenna barnahópi með sæmd til manndóms og þroska. Með Arngrími Bjarnasyni er horfinn svipmikill og sérstæður persónuleiki, þjóðkunnur mað- ur, sem brauzt frá fátækt til bjargálna af dugnaði og fyrir- hyggju. Ég flyt eftirlifandi konu hans, börnum, vinum og venzla- fólki innilegar samúðarkveðjur við fráfall hans. S. Bj. Stúkan Framtíðin nr. 173 tilkynnir, hér með, að á fundi hennar annað kvöld, mánudag, fer fram kosning embættismanna og að minnzt verður afmæla nokkurra félaga, undir kaffi- drykkju. Æt. Somkonrar Fíladelfía, Hátúni 2. Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. Daniel Glad og Guðmundur Markússon tala. Allir hjartanlega velkomnir. Bræðraborgarstígur 34. Samkoma í kvöld kl. 8.30. Allir velkomnir. Hjálpræðisiherinn. Sunnudaginn kl. 11: Helgunar- samkoma. — Flokksforingjarnir stjórna. Kl. 2: Sunnudagaskóli. Kl. 4: Útisamkoma. Kl. 8.30: Hjálpræðissamkoma. Cand. teol. Auður Eir Vilhjálms- dóttir talar. Majór Svava Gísla- dóttir stjórnar. Ofursti Janssón og fleiri taka þátt í samkomum dagsins. — Velkomni. Mánudaginn kl. 4: Heimilasam- Kaup — Salo Schannongs minnisvarðar Biðjið um ókeypis verðskrá. 0. Farimagsgade 42, Kþbenhavn 0. Miðstöðvardælur BELL AND GOSSETT miðstöðvardælur 1V4” og 1V2” kr. 2.460.— SATSHWELL hitastillitæki fyrir hitaveitu kr. 2.900.— settið. PARAGON klukkurofar kr. 743.30. Byggiiigarvóruverzlun ísleifs Jónssonar Bolholti 4 — Sími 14280. Framrúbur 1 flestar gerðir amerískra bdla jafnan fyrirliggjandi Hverfisgötu 50. — Sími 12242. Fasteignir til sölu (S) 5 herb. risíbúð við Hraunteig. 5 herb. íbúð á 1. hæð við Kaplaskjólsveg. 5 herb. íbúð á 4. hæð við Kleppsveg. 5 herb. íbúð á 1. hæð við Skipholt. Fasteigna- og skipasala Konráðs Ó. Sævaldssonar Hamarshúsinu 5. hæð (lyfta). Símar 20465, 24034 og 15965. Sölumaður heima: 23174. Bifreiðaeigendu Klæðum allar tegundir bíla. Vönduð vinna. Vanir menn. Höfum tilbúin áklæði úr góðu efni á Volkswagen og Mosk- witch. Tækifærisverð. Bjarg 3 Nesveg VERÐ AÐEINS KR. 478.oo Afgreiðslustúlka óskast hálfan daginn. Uppl. gefnar á mánudag og þriðju- dag milli kl. 5 og 7. HVERFISKJÖTBÚÐIN Hverfisgötu 50. Sími 12744. 1500,- kr. afsláttur Nýir svefnsófar frá kr. 2200,- Úrvalssvampur. Úrvals tízku- áklæði — Spring. Stálkollar — Stálstólar á heildsöluverði. Sófaverkstæðið Grettisgötu 69. Opið kl. Z—9.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.