Morgunblaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 7
Sunri'údagur 23. sept. 1962 7 MORCVIS BLAÐIÐ — Ben-Gurion <^ •s® <*$ <S39 <íS9 <§ ^> <!$ <^ <í5> <$> <^ <^ Í5> <$> $9 ^9 Alltaf fjölgar VOLKSWAGEN ÁRGERÐ VOLKSWAGEN K O S T A R UM KR : 120 ÞUSUND Volkswagen er með miðstöð, sprautu á framrúðu, leðurlíkingu á sætum og í toppi, synkroniseruðum gírkassa. Heildverziunin HEKL/V hf. Hverfisgötu 103 — Sími 11275. Félag skólastjóra gagn fræðastigsins stofnað Framih. aí bls. 3 ýmis náttúruauðaufi. Hin mestu þeirra er að finna við Dauðahafið, lægsta stað jarð- ar, 1300 fet undir sjávarmáli. Það býr yfir gífurlegu magni ýmissa efna og salts, u.þ.b. 20000 milljónum lesta af pott- ösku, 980 milljón lesta af megnsiumbromid, 22.000 millj ónum lesta af magnesium- klorid, 6000 milljónum lesta af kalsiumklorid og mörgu fleira. Á þessu svæði eru margar heilsulindir, sem taka fram lindunum í Tiberias. Auðæfi Dauðahafsins höfðum við nýtt í 25 ár. í Negev finnast einnig járn og kopar, eins og Biblían greinir frá — „land, þar sem steinarnir eru járn og þar sem þú getur grafið kopar úr fjöll- unum“. (5. Móseb. 8, 9.) Enn- þá hefur ekki verið gengið úr skugga um, hvort unnt er að nýta járnið í Negev, en í suð- urhluta Negev hefur verið unn ið í koparnámunuom í Timna árum saman. Þá höfum við allt frá því að ríkið var sett á stofn nytjað fosfatforðann í Negev til framleiðslu tilbú- ins áburðar, bæði til eigin nota og útflutnings. Fyrir skömmu fannst fosfat lí'ka á Arad-svæðinu. Þar er einnig gips, kaolin. marmari, verð- mætir steinar og granít. Allt verður þetta nýtt smám sam- an; vinnslan er þegar hafin. Loks hefur fundist jarðgas í nánd við Dauðahafið. í tvö þúsund ár hefur bann færing Jéremía spámanns hvílt yfir Negev: „Bongir suð- urlandsirts eru lokaðar, og eng inn opnar“ (Jer. 13.19). Þegar ísrael reis upp að nýju sem sjálfstætt riki, var bannfærinig unni aflétt, og Negev upp- hófst til nýs lífs. Be‘erseba, sem þangað til fyrir 14 árum var aðeins lítil bedúína-þorp, er orðinn fjórða stærsta borg ísraels með yfir 50.000 íbúa. lÉilat, mikilvægasta hafnar- borgin á dögum Salamons konungs, er risin nýja og er, eftir tilkomu Sinaibrautarinn- ar, í vegasamband við Be‘érs- eba. Fyrir sjö árum lögðu mar okkskir innflytjendur grund- völlinn að bæ, sem ber biblíu nafnið Dimona (Josúa 15,22), milli Be‘ erseba og Dauða- hafsins og annar bær nýr, Mitzpeh Ramon að nafni, er að rísa við stóran gíg sam- nefndan milli Be'erseba og Eilat. Tveir bæir enn á Negev eyðimörkinni eru nú á skipu- lagsstigi: Arad í austurhlut- anum og Besor í vesturhlut- anum. Mesta vandamál Negev-eyði merkurinnar er vatnið. Úr- koman er lítil, ekki nema fáir þumlungar. þegar vel árar. Það hefur þess vegna verið aðkallandi vandamál að leiða vatn frá Yarkon í nánd við Tel Aviv til Negev, og sam- kvæmt Johnston-áætluninni sem mælir fyrir um miðlun vatns milli nágrannariikjanna Jórdaníu og ísraels — er nú í smíðum voldug vatnsleiðsla, sem beina mun nokkru af vatnsmagni árinnar Jórdan yfir á Negev. Meðan þessu fer fram, vinna vísindamenn okkar að því að rannsaka möguleikana á því að ná selt unni úr sjónum, þannig að það verði nothæft við rækt- unarframkvæmdir. í sam- vinnu við bandarískt fyrir- tæki hefur ein slík afsöltunar verksmiðja verið byggð í Eil- at. Þaðan mun áður en langt liður fást nægilegt vatnsmagn til iðnaðar og heimilisnotkun ar, og vonumst við til, að kostnaðinum megi á allra næstu árum koma svo langt niður, að einnig verði fært að nota vatnið í bágu landbúnað ar. Þýðing Negev-eyðimerkur- innar er samt ekki aðeins fólgin í viðáttu hennar og þeim miklu náttúruauðæfum, sem hún býr yfir, heldur einnig í því, að hún lýkur upp leiðinni að Indlandshafi gegn um sundin suður af Eilat og Rauðahafið. Að undanteknu Egyptalandi, er ísrael þar með eina landið fyrir botni Mið jarðarhafsins, sem aðgang hef ur að siglingaleið bæði til Evrópu, Vestur-Afriku og Ameríku um Miðjarðarhafið — og til Asíu og Austur-Af- ríku um Rauðahafið. Þessi hag stæða lega er til þess fallin að gera Negev að þýðingar- mesta iðnaðarmiðstöð ísraels og Eilat að einni mestu borg heimsviðskiptanna á þessum slóðum. Hinum skapandi mætti fsra- els mun næsta áratuginn verða einbeitt að landnámi og uppbyggingu Negev. David Ben-Gurion. DAGANA 18. og 19. september s.l. hefur staðið yfir í Hagaskóla í Reykjavík stofnfundur Félags skólastjóra gagnfræðastigsins. Hafði nefnd frá Skólastjórafélag inu í Reykjavík og félagi héraðs skólastjóra undirbúið félags- stofnunina. Fundarstjóri var Árni Þórðarson skólastjóri Haga skóla, en fundarritari Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri Flens- borgarskóla í Hafnarfirði. Félags menn í þessu nýtofnaða félagi geta verið skólastjórar héraðs- og gagnfræðastigsskóla, sem hafa setta eða skipaða kennara við gagnfræðastigið. Tilgngur félags ins er að efla viðgang þessara skóla og standa vörð um hags- muni þeirra. Félagið hyggst né þessum tilgangi með því að efla samstarf skólanna með fundar- höldum, heimisóknum og sam- vinnu um skólamál og kynningu á þeim, og einnig með þvi að vinna að bættum kjörum og starfsskilyrðum skólastjóra og annarra starfsmanna við þessa skóla. Fræðslumálastjóri sat fundinn um skeið og ræddi við skólastjór- ana um ýmis vandamál og við- fangsefni þessara skóla, svo sem húnæðismál þeirra og samræm- ingu námsefnis og prófa. Rætt var á fundinum um ný- útgefin erindisbréf fyrir kennara og skólastjóra og jafnframt um ýmis einstök atriði skólastarfs- ins. Fundurinn lagði áherzlu á nauðsyn þess, að starf kennara- stéttarinnar yrði meira metið og stéttinni skipaður hærri sess í þjóðfélaginu en gert hetur verið hingað til. Seinni fundardaginn snæddu fundarmenn miðdegisverð í Ráð herrabústaðnum við Tjörnina í boði menntamálaráðherra. Formaður félagsins var kosinn Árni Þórðarson skólastjóri Haga skóla. Aðrir í stjórn eru: Jón Á. Gissurarson skólastjóri Gagn- fræðaskólans við Lindargötu í Reykjavík, Jón R. Hjálmarsson skólastjóri Skógaskóla, Magnús Jónsson skólastjóri Gagnfræða- skóla verknáms í Reykjavík og Þórarinn Þórarinsson skólastjóri á Eiðum 26 skólastjórar héraðsskóla, gagnfræðaskóla og miðskóla víðs vegar um landið sóttu og sátu þennan stofnfund Félags skólastjóra gagnfræðastigsins, en þrír aðrir skólastjórar sendu skrif lega ósk um að gerast félags- menn. Vínarborg, 19. sept. NTB. RALPH BUNCHE, aðstoðar framkvæmdastjóri S.Þ. sagði í dag á fundi Alþjóðakjarn- orkumálaráðsins. sem nú er haldinn.i Vínarborg, að kjam- orka myndi ekki leysa af hólmi venjuleg raforkuver | náinni framtíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.