Morgunblaðið - 23.09.1962, Page 8

Morgunblaðið - 23.09.1962, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 23. seþt. 1962 Sumarheimsdkn til Eskifjarðar NOKKRU af sumarleyfi mínu eyddi ég á Eskifirði. Fimm ér eru liðin siðan ég kom þangað SÍðast og tuttugu ár síðan bú- setu minni lauk þar. Mikið hefur breytzt þar á þessum tíma, þótt fjörðurinn sé hinn sami og Hólmatindurinn í allri sinni tign gnæfi og haldi vörð um staðinn. Auðvitað byrg- ir hann oft sólina fyrir Eskfirð- ingum, en þrátt fyrir það er hann svo vinalegur að enginn Vildi af honum sjá. ' Hin gráa og gamla Austfjarð- arþoka var til staðar þegar ég kom á Hólmahálsinn og deyfði Sýn til staðarins. Undarleg til- finning greip um sig þegar ekið var inn í kaupstaðinn. Já, mikið hefur breytzt þarna. Sérstaklega tekur maður eftir hversu margar nýbyggingar prýða staðinn. En það sem ég saknaði einna mest voru hinar mörgu bryggjur og bólverk, sem voru á mínum árum þarna með- fram allri strandlengjunni. Allri segi ég! Víst er hún ekki löng, því svæði það sem Eskifjörður stendur á og tilheyrir honum er ekki stórt. Það er frá Mjóeyri og inn að Bleiksá. Um aldamótin var einn hreppur, Reyðarfjarð- arhreppur þar sem nú eru þrír hreppar, Helgustaða-, Eskifjarð- ar- og Reyðarfjarðarhreppar. — Skiptingin virðist hafa verið harla einkennileg þegar hreppn- um var skipt og oft hef ég brot- ið um það heilann hvernig hafi Staðið ’ því að þessir fáu bæir, sem eru fyrir innan Eskifjörð, skyldu ekki tilheyra honum heldur Reyðarfjarðarhreppi. En Svona var það samt. Undir slíkt urðu þeir I „Eskifjarðarkálkin- um“ að beygja sig. Kom það oft gremju í hug þeirra er þeir urðu að leita atvinnu út á Eski- fjörð þegar hún var af skornum skammti og hreppapólitíkin þá í algleymingi. Staðarmenn skyldu sitja fyrir. Það var ánægjulegt að sjá hið glæsilega félagsheimili Valhöll í hjarta bæjarins og ekki ó- prýddi hið ágæta stórhýsi pósts og síma nýreist þarna. Þá voru í byggingu prestseturshús og fleiri byggingar. En ánægjulegast var auðvitað að sjá hina starfandi hönd. Allir sem vettlingi gátu valdið höfðu nóg að gera. Eg var staddur þarna við síldarsöltun og var gaman að horfa á hversu ungl- ingarnir stóðu sig vel. Jafnvel 8 ára börn unnu þannig að verk- stjórinn taldi það óaðfinnanlegt. Og auðvitað var mikið í aðra hönd. Það var líflegt fyrir austan, alls staðar líflegt á atvinnusvið- inu. Eskfirðingar hafa nú 7 báta, sem gerðir eru út á síldveiðar auk báta sem róa daglega það- an. f hraðfrystihúsinu var nóg að gera að taka á móti fiski og síld til frystingar og allir sem gátu voru í starfi. Það er ánægjulegt að vita til þess, þegar ungir og dugandi menn geta drifið atvinnurekstur af krafti til heilla fyrir sitt byggðarlag. óneitanlega koma margar hugsanir til mín þegar mér hljóma nöfn eins og Jón Kjartansson, Guðrún Þorkels- dóttir o.s.frv. og vita svo syni þessara heiðurshjóna hafa drifið sig vel og eru stoðir atvinnulífs- ins heima. Þrír bræðurnir eru aðalstjórnarmenn hraðfrystihúss ins, sem auk þess að reka mikla fiskvinnslu hefir bátana Vattar- nes og Hólmanes og gerir þá út. Auk þess reka tveir þessara bræðra, Aðalsteinn og Kristinn, síldarverkun og eru eigendur að m.b. Guðrúnu Þorkelsdóttur, og einn þeirra Kristmann á m.b. Seley en allir framangreindir bátar eru stðrvirkir í síldveið- unum í sumar og hafa áður ver- ið það. Marga fleiri mætti nefna sem gera sitt til að setja svip á Eskifjörð en það er of langt mál í lítilli grein að nefna fleiri. Eitt er það þó sem maður á erfitt að fella sig við í fljótu bragði en það er að síldarverk- smiðjan ásamt þróm skuli vera í hjarta bæjarins. Ekki er það beint til prýði er maður ber svo saman að sjá alla hina fögru blóma- og trjágarða, sem eru fyrir framan húsin á staðnum. Þetta venst kannski og er það ekki oft svo að andstæðurnar eiga vel saman. Minnsta kosti varð mörgum ferðamanninum hér áður fyrr starsýnt á nýtt og gamalt er þeir komu af skips- fjöl og sáu „Gamla Bauk“, sem var með elztu húsum og hýsti eina fyrstu prentsmiðju Austur- lands í tíð Jóns ritstjóra ólafs- sonar og svo Bakaríið, glæsilegt hús þá. Voru myndavélar óspart teknar upp við þessa sýn. Verzlunin er í blóma á Eski- firði að mér fannst. Þar reka Kaupfélagið og Pöntunarfél. stórar og smekklegar verzlanir. Einnig eru smávöruverzlanir, vönduð vefnaðarvöruverzlun og raftækja- og húsgagnaverzlun. Er þetta í nýjum og góðum húsa kynnum. Útibú frá Landsbanka íslands er á staðnum og hefir það mikla þjónustu á hendi og nær hún um allt Austurland. Þegar ég um 1920 var að kom- ast til vits og ára, voru 5 stórir atvinnurekendur á Eskifirði, sem um leið og þeir voru það, ráku umsvifamikla verzlun og var verzlunarsvæði þeirra mjög stórt. Þessi fyrirtæki keyptu svo fisk af togurum til verkunar og atvinnubóta fyrir staðinn. Söluerfiðleikar afurða til út- landa voru miklir og stopult að treysta verðlagi, enda hver aðili samningsmaður fyrir sig í utan- ríkisviðskiptum þeirra ára. Eitt verðfallsár gerði það að verkum að lánstraustið þvair og var gengið að þessum atvinnufyrir- tækjum. Það var mikil blóðtaka fyrir lítinn bæ og erfiðleikaár fóru í hönd. Þeim mun meiri ánægja er nú að vita framfarir þær sem eiga sér stað fyrir austan nú á þessum ágætu árum. Ljósmyndastofu rekur Vilberg Guðnason í glæsilegum húsa- kynnum og hefir hann allt Aust- urland sem athafnasvæði. Er hann hinn ötulasti og smekk- maður mikill í iðn sinni. Var ánægjulegt að koma í vinnusali hans og fylgjast með störfum. Vélaverkstæði er gott á staðn- um undir stjórn eiganda þess, Karls Símonarsonar og svo rek- ur Lúther Guðnason umfangs- mikla rörsteypu. Netaverkstæði er þarna nýris- ið á vegum Jóhanns Klausen og voru þar margir menn við bætingar nóta þegar ég kom þar að. Enda ekki vanþörf þjónust- unnar meðan síldveiðin er í al- gleymingi. Málarameistarinn Guðmundur Auðbjörnsson hafði nóg fyrir stafni ásamt liði sínu. Hann var vel birgur af málaravörum og enginn vandi fyrir viðskiptavin- ina að fá þá liti sem þeim var að geði. Fjölda margt annað mætti tglja en þessi upptalning nægir í bili. Það tók því eðlilega sinn tíma að ganga milli vina og kunn- ingja, hitta þá að máli og heim- sækja; og alls staðar voru fagn- andi hendur. Margar minningar voru rifjaðar upp frá félagslíf- inu meðan ég var þar ásamt mörgum öðrum í eldinum. Ekki var spurt að hvað klukkan væri og engin takmörk fyrir úthaldi. Svavar Gests kom til Eski- fjarðar meðan ég dvaldi þarna með hljómsveit sína og á sunnu- dag kl. 3 bauð hann öllum börn- um staðarins til gleðskapar í Valhöll endurgjaldslaust. Var það vel þegið og það voru bros- mild börn sem komu út úr sam- komuhúsinu að leikslokum. Ég minntist á trjágarðana á Eskifirði. Vissulega má ekki gleyma þeim, því þeir eru marg ir fallegir. Ein ötulasta garðyrkjukonan „heima“ er óefað frú Guðrún Sigurðardóttir, sem nú er kom- in á efri ár og var unaðslegt að koma í garðinn til hennar og sjá handaverkin þar. Er þetta margra ára tómstundavinna Guð rúnar, en hún hefir gert meira, staðið oft framarlega í félags- og menningarmálum staðarins, og fyrir kirkjuna, að öðrum ó- löstuðum unnið mikið starf. Þau eru orðin mörg árin sem hún — Stóðhross Framhald af bls. 6. og þar með afmá verulegan tekju stofn bænda í Húnavatns- oig Skagafjarðarsýslum. Því er einnig haldið fram að stjórn sambandsins taki á engan hátt tillit til aðstöðu þessara manna og vilji ganga á þeirra hagsmni, því sé óhugsandi annað en eitt- hvert hagsmunastríð þurfi að ríkja milli þeirra bænda og hinna sem stunda vilja kjötfram- leiðsluna. Stefna stjórnar Hrossaræ'ktar- sambandsins í þessu efni hefur kpmið skýrt fram í umræðum um þessi miál. Því var strax lýst yfir að af hennar hálfu myndi ekkert verða amast við því þótt stóðhestar væru ekiki í vörzlu yfir aðal fengitíma hryss- anna, eða nánar til tekið frá 20. maí til 10. júlí. Yfir þann tíma telur stjórnin kleift að menn geti passað þær hryssur sem þeir ekki vilja láta fyljast, og þær hryssur sem halda á undir á'kveðna kynbótahesta, þá í hólf- um hjá þeim. Þá er komið að spurningunni: Hagsmunum hverra þjónar það að láta hest- ana ganga lausa, á öðrum tím- um og það jafnvel marga frá sama bænum? Þvi er fljótsvarað. Bkki hagsmunum hrossaræktar- manna og ekki heldur hagsimun- um kjötframleiðenda. Sem sagt það þjónar ekki hagsmunum neinna hrosseigenda að hryss- urnar séu að fá fang og kasta á öllum tímum árs, en séu stóð- hefir slaðið þar á söngpalli. og látið sína góðu söngrödd hljóma um kirkjuna á helgum og hátíð- um. Fyrir nokkrum árum hitti ég erlendan ferðamann. Barst talið að ýmsu hér á landi og meðal annars sagði hann: — Það má marka menningarástand mjög af því hvernig umhorfs er í kirkju- görðunum. Ef þetta er rétt, sem ég get vel sætt mig við, mega Eskfirðingar vel við una, því kirkjugarðurinn, sem liggur á þurrum mel fyrir innan kaup- túnið, er bæði vel hirtur og skipulagður, auk þess sem hann vekur athygli vegfarandans strax og hann mætir auganu. Margt fleira mætti minnast á en það skal geymt þar til síðar því ég veit strax að þeir sem lesa munu sjá að mikið vantar á sem kannski ekki á að liggja í þögn. Ég var heppinn með veð- ur og við hjónin og börnin höfð- um mikla ánægju af ferðinni og því skulu það vera lokaorð fá- tæklegrar greinar að biðja fyrir kæra kveðju heim og þökk til vina og kunningja. Við erum auðugri góðra minn inga eftir þessa ferð austur á land. Stykkishólmi, 15. ágúst 1962 Árni Helgason. hestarnir látnig ganga lausir allt árið, á þetta sér stað í stórum stíl, öllum til tjóns. Það er því staðreynd hvort sem mönnum líkar betur eða ver, að það er sameiginlegt hagsmunamál allra hrossaeigenda að stóðhestarnir gangi ekki lausir, og auik þess mannúðarmál ekki svo lítið. Af hálfu Hrossaræiktarsam- bandsins er þvi tekið fullt tillit til þeirra sem stunda vilja kjöt- framleiðsluna en óskað eftir að þeir fari þá leið sem þeirn sjálf- um er hagkvæmust og eyðileggi ekki ræiktunarstörfin fyrir þeim sem sýna vilja hestinum ein- hvern sóma og stunda ræktun hans. Að endingu vill stjórnin benda á þrjú atriði sem eru óvefengjan legar staðreyndir: 1. Það að hafa vald á stóð- hestahaldinu er undirstaða undir hrossaræktinni. 2. Það er hreint hagsmiunamól allra hrossaeigenda. 3. Hér er um mannúðarmál að ræða, og það ekki svo lítið. Sauðárkróki, 14 ágúst 1962. Stjórn Hrossaræktarsambandð Norðurlands. Belgrad, 19. sept. NTB. NÝTT lagafrumvarp verður verður lagt fyrir þingið í Júgó slavíu á morgun og skv. þeirn getur Tító ekki bæði genigt embætti forseta og forsætis- ráðherra. Hann mun eftir sem áður verða æðsti maður lands ins, og gegna forsetaemibætt- inu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.