Morgunblaðið - 23.09.1962, Side 9
Sunnudagur 23. sept. 1962
MORCTINBLAÐlh
Þeir eiga þakkir
f'ULLTRÚAÞING Sambands ís-
lenzkra bariiakennara sat á rök-
stólum s.l. vor. Margar ályktan-
ir munu hata verið gerðar á
þessu þingi. svo sem títt er yfir-
leitt á stéttaþingum. Vafalaust
hafa þær yfirleitt verið skynsam-
legar og vonandi allar skynsam-
legri en sú, er hér verður gerð
líullega að umræðuefni:
Mótmælt var að réttindalausir
menn séu íáðnir í kennarastöður.
Þannig hljóðaði boðskapur í
blaðafréttum og er engin ástæða
til að ætla að þar sé rangt með
farið.
Réttindalausir eru þarna nefnd
ir þeir menn er stunda barna-
kennslu, en hafa ekki Iokið
kennaraprófi. Þeim hefur fjölg-
að hlutfallslega síðustu árin,
samanborið Við hina. Þetta hefur
átt sér stað vegna þess að menn
með kennarapróf sækja hvergi
nærri um allar þær kennarastöð
ur, sem boðnar eru ár hvert.
Á fuiltrúaþingi S. í. B. 1960
létu ýmsir fulltrúar hörð orð
falla í garð fræðslumálastjórnar
og skólanefnda fyrir það að ráða
réttindalausa menn í kennarastöð
ur. Ennfremur fengu þessir menn
(próflausir kennarar) ákærur
fyrir það að taka að sér kennslu
störf. Búast má við að slíkt hið
sama hafi skeð á fulltrúaþingi
S. f. B. s.l. vor þegar nefnd sam
þykkt er höfð í huga. Virðist
þessi afstaða kennarasamtak-
anna, vægast sagt, dálítið tor-
skilin.
Það sem gerst hefur og gerist
á hverju ári er þetta:
Kennarastöður eru ' auglýstar
til umsóknar hvarvetna um land.
Enginn maður með kennaraprófi
sækir um margar þeirra. Minnsta
kosti telst það til nýlundu ef lærð
ur kennari lítur við barna-
kennslu í sveit. Ef boði kenn-
arasamtakanna væri hlýtt mundi
enginn kennari vera starfandi í
mjög mörgum sveitahéruðum og
í ýmsum smærri þorpum. Enn-
fremur mundi skerðast fylking
barnakennara í sumum kaupstöð
unum, því að nú er svo komið
að ráðnir hafa verið réttinda-
lausir menn síðustu árin til að
fylla þar í skörð vegna þess að
barnakennara með prófi hefur
vantað. Dæmi um þetta eru til-
tæk, en verður sleppt að sinni.
Auðvitað væri æskilegast að
maður með kennarapróf skipaði
hverja barnakennarastöðu í land
inu. En það er ekki sök hinna
réttindaiausu manna að á annan
veg hefur farið.
Ef kennarasamtökin ábyrgjast
að öll skólahéruð landsins gætu
fengið kennara með prófi þegar
auglýst er eftir þeim, gætu þau
gilt úr flokki talað. En hingað
til hefur helztu ráðamönnum í
kennarastétt varla komið það til
hugar, og enn síður að tilraun
hafi verið gerð af þeim til að
framfylgja þvi.
Úr minni sveit er þá sögu að
segja að fyrir 10 — 12 árum var
auglýst til umsóknar staða barna
kennara í Aðaldal. Enginn mað-
ur með kennaraprófi sótti um
starfið. Auðvitað gerði fræðslu-
stjóri og skólanefnd Aðaldæla
það eitt, sem skylt var að gera
og rétt: Ráðinn var próflaus
maður til kennslunnar, maður
sem treyst var. Og hann hefur
starfað að barnakennslu i Aðal-
dal síðan með góðum árangri.
Pulltrúaþing S. í. B. mótmælir
þessu og öðru hliðstæðu, sem ger
ist og hefur gerst hér og þar.
Þó er ekki kunnugt um að
ráðamenn i stétt barnakennara
hafi gert tilraun til þess að koma
þeim skólahéruðum til hjálpar,
sem vantar kennaralærða menn.
Þeir hafa ekki gert tilraun til
þess að útvegM þeim kennara með
prófi — ekki einu sinni þeir, sem
bæst hóa.
Ef breytt hefði verið sam-
kvæmt boðandi háttvirts fulltrúa
þings S. í. B. hefðu sum böm í
Aðaldal engrar kennslu notið um
til á þessa leið: 566 X 15/4 Rayon kr. 826,00 825 X 20/14 Nylon — 4.079,00
Öllum bei að þakka, er leyst 566 X 15/4 RHvít — 852,60 825 X 20/14 Rayon — 3.832,00
hafa vandræði með því að taka að sér barnakennslu, þegar menn 67« X 15/6 Rayon — 1.643,6« 960 X 26/14 Rayon — 4.776,00
með kennaraprófi hafa ekki feng- 600 X 16/6 Rayoii — 1.150,00 1000 X 20/14 Nylon — 5.713,00
ist til kennslustarfa. Þeir eiga vissulega þakkir, en ekki aðk-ist. þakkir allra þeirra, sem ábyrgð bera á uppeldismál- 825 X 20/14 Nylon kr. 4.003,0« 1100 X 20/14 Nylon — 6.150,00
um og áhuga hafa á þeim. S E N D U M U M A L L T L AND.
árabil, önnur alltaf lítillega
fræðslu. Að vísu var þar og er
einn kennari „með réttindum“.
En hann hefði hvergi nærri ann
að að kenna öllum börnum í Aðal
dal þessi ár.
Svipuð saga hefði átt sér stað
víðs vegar, ef réttindalausir
menn hefðu verið útilokaðir frá
kennslu.
Hvers áttu börn í Aðaldal og
víðar að gjalda, ef kennarasam-
tökin hefðu fengið þessu fram-
gengt? Átti að brjóta á þeim
rétt, skýlausan rétt, sem þeim
bar samkvæmt landslögum,
einnig foreldrum þeirra og for-
ráðamönnum. og færa því til
réttlætingar tylliástæður einar?
Nei, margir kennarar með rétt-
indum myndu ekki vera því með
mæltir að svo væri að farið, ef
til kastanna kæraL
Kennarastéttinni og fulltrúa-
þingi S. í. B. hefði verið sómi
að því að gera samþykkt að efni
Margir þeirra hafa leyst störf sín
prýðilega af hendi.
5. ágúst 1962
Þórgnýr Guðmundsson
keunari í Aðaldal.
NITTO
Údýru japönsku hjólbarðarnir
Gúmmívinnustofan hf.
Skipholti 35,
Reykjavík.
Sími 18955.
Stórauknir flutníngar
Flugfélags íslands
í SUMAR hafa flugvélar Flug-
félags íslands flutt fleiri farþega
innan lands og milli landa en
notokru sinni fyrr.
Fluigvélar félagsins fljúga tólf
sinnum á viku áætlunarflug frá
íslandi til Bretlands, Noregs,
Danmerkur og Þýzkalands og
hafa viðkomur á sex stöðum í
þessuim löndum.
Innan lands er flogið regiu-
bundið áætlunarfl-ug milli fjórt-
án staða.
Innanlandsflug
Síðastliðið vor leigði Flugfélag
íslands flugvél af Skymaster
gerð af bandarísku fyrirtæki, til
innanlandsflugs sérstaklega.
Jafnframt voru sett á sérstök
sumarfargjöld milli þeirra staða,
sem Skymasterflugvélin ,^næ-
faxi“ flýgur til. Þé setti Flug-
félag íslands upp svonefnd fram-
haldsfargjöld milli staða innan-
lands, sem ekki hafa beinar flug
samgöngur sín á milli eins og t.d.
ef farþegi þarf að ferðast frá
Vestmannaeyjum til Þórshafnar
eða frá ísafirði til Hornafjarðar.
Aukning á fa rþega f 1 utningum
innanlands frá 1. apríl til 31.
júlí í ár hefir orðið mjög góð,
eða rúmlega 84% miðað við
sama tkna í fyrra.
Þess ber þó að geta, að sökum
verkfalls, lá innanlandsflug að
mestu niðri í júní 1961.
Farþegar fluttir með flugvél-
um félagsins innanlands frá 1.
apríl til 31. júlí voru 30.663, en
voru 16,639 á sarna tíma árið áð-
ur.
Vöruflutningar nárrtu 372 lest-
ura 1962 en voru 256.5 árið 1961,
og er aukning 45%.
Innanlandsflugið hefir, eins og
þessar tölur bena með sér gengið
mjög vel það sem af er sumri.
Flugtök og lendingar á viku
hverri í innanlandeflugj eru 240.
Millilandaflug.
Með tilkomu sumaráætlunar
millilandaflugsins s.I. vor bætt-
ist nýr viðkomustaður, Björgvin
í Noregi við áningarstaði „Fax-
anna“ erlendis. Sú breyting var
einnig ákveðin að í stað tíu
ferða á viku yfir sumarið, skyldu
nú flognar tólf ferðir.
Á tímabilinu frá 1. aprfl til
31. júlí hafa flutningar aukizt
um nær 16%. f samanburði við
innanlandsflugið ber þess að
geta, að enda þótt nokikrar trufl-
anir yrðu á millilandaflugi
vegna verkfalla í júní 1961, lagð-
ist flugið ekki niður og er pró-
senttala millilandaflugs því ekki
eins há og innanlandsflugs.
Á tímabilinu frá 1. apríl til
31. júlí 1962 voru fluttir í áætl-
unarflugi milli landa 12.004 far-
þegar en 10.389 á sama tíma í
fyrra.
Vöruflutningar námu 97 lest-
um nú, en 78.5 lestum árið áður
og er aukning þeirra 23.5%.
Eins og undanfarin sumur
annast hinar vinsælu Viscount
skrúfuþotur áætlunarflugið milli
landa að mestu leyti, en ein-
stakar ferðir eru flognar með
Cloudmaster, sem að öðru leyti
er notuð til leigufiugferða.
Leiguflug.
í sumar hafa verið farnar all-
margar leiguflugferðir og fleiri
standa fyrir dyrum. Á tímabil-
inu 1. apríl til 31. júlí voru flutt-
ir 3680 farþegar í leiguferðum
en 2043 á sama tima í fyrra,
aukning er rúml. 80%. Vöru-
flutningar á þessu tímabili námu
186 lestum, en 176 lestum á sama
tima í fyrra cg er aukning 5,3%.
Heildarflutningar farþega í
áætlunarflugi og leiguflugi á of-
angreindu tímabili hafa aukizt
um 59.3% en heildarflutningar á
vörum ura 28%.
Bridge
HIÐ svonefnda Flint-sagnkerfi
hefur að undanförnu rutt sér
til rúms meðal bridgespilara víða
um Evrópu. Spilið sem hér fer
á eftir sýnir hvernig kerfi þetta
er notað, en kerfið byggist fyrst
og fremst á því að ná réttu loka-
sögninni eftir að opnað hefur
verið á 2 gröndum.
A Á K G 4
V Á K 6 3
♦ Á 6
♦ Ð 8 6
A D 9 8 7 «5
V G V D 9
4 K 9 5 4 ♦ G 10 8 3
♦ K 9 6 2 * Á G 10 7
5 3
♦ 10 6 3 2
♦ 10 8 7 5 4 2
♦ D 7 2
♦ —
Sagnir gengu þannig:
Norður Austur Suður Vestur
2 Grönd Pass 3 Tíglar Pass
3 Grönd Pass 5 Lauf Pass
6 Hjörtu Pass 6 Spaðar Allir
pass
Svar Suðurs er Flint-sagnkerf-
ið og þegar Norður segir 3 grönd
þýðir það að hann á bæði spaða
og hjaria. 5 Lauf hjá suður segja
frá eyðu í litnum og norður segir
6 Hjörtu til að suður geti valið
og ráðið hvort betra sé að spila
slemmuna í spaða eða hjarta.
Suður valdi spaðann sökum þess
að hann áleit að betra væri að
eiga lengri iitinn til að kasta
niður í, ef með þyrfti.
Til gamans skal þess getið,
að sagnhafi vann spilið með mjög
einföldu öryggisúrspili. Vestur
lét í byrjun út laufa 2, sem sagn
hafi trompaði heima. Sagnhafi
lét þvínæst út spaða 10 og Vest-
ur drap með drottningi, en sagn-
hafi gaf í borði. Nú er sama hvað
varnarspilarair gera, sögnin
Vinnst alltaf.
igrún Tobías-
dóttir
dóttir 85 ára
HINN 26. ágúst s.l. var Sigrún
Tobíasdóttir húsfreyja í Geld-
ingaholti, Skagaf. 85 ára. Fyrir
fullum 65 árum, eða nánar til-
tekið 12. febrúar 1897, giftist Sig-
rún Sigurjóni Helgasyni. Byrjuðu
þau búskap næsta vor. Fremur
munu efni þeirra hafa verið lítil
í fyrstu, en brátt blómgaðist bú
þeirra, enda skorti hvorugt þeirra
hjóna dugnað og hyggindi. —
Varð búskapur þeirra meðal
þeirra blómlegustu í hreppnum.
Sex börn eignuðust þau 5 syni
og I dóttur, sem öll eru á lííi
og mjög mætir þjóðfélagsþegnar.
Sigurjón andaðist 16. febr. 1952,
nær 85 ára.
Eftir lát manns síns hefir Sig-
rún haft umsjón innanbæjar
fyrir son sinn Þórð, þar til á
síðastliðnu vori, að hún þurfti
að leita sér læknishjálpar. Það
mun fátítt að konur séu í hús-
freyjustöðu í 65 ár, eins.og Sig-
rún. Má telja að húsfreyjustörf
hennar væru ætíð í fremstú röð,
bæði að dugnaði og öllum mynd-
arskap. Sigrún er mjög vel gefin,
baeði andlega og likamlega, sem
er ættarfylgja, langt í ættir fram.
Hún hefir verið fremur heilsu-
hraust alla ævi, þar til síðasta
missiri, að þrekið er tekið að
þverra, enda langur starfsdagur
að baki. Eigi hefir hún þurft
sjúkrahúsvista, en dvelur í sum-
ar hjá dóttur sinni á Sauðárkróki,
og hefur alltaf fótavist.
Ég óska þér, kæra frænka mín,
allrar blessunar á ævikvöldinu!
28. 8. 1962
Hjörtur Kr. Benediksson.
Elizabethville, 19. sept.
NTB.
STJÓRNIN í Katanga sakaði
í dag her Kongó fyrir að hafa
hertekið bæinn Kitola í N-
Katanga. Er því jafnframt
haldið fram, að 1 undirbún-
ingi sé stórárás á Katanga.