Morgunblaðið - 04.11.1962, Síða 1

Morgunblaðið - 04.11.1962, Síða 1
24 slítar og Lesbók 49. árgangur 247. tbl. — Sunnudagur 4. nóvember 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins „ Loftleiöir hverfi frá lagum fargjöldum “ — talsmenn bandarísku stjórnarinnar telja, að annars verði loftferðasamningum sagt upp Einkaskeyti til Morgunblaðsins i Washington, 3. nóvember. Frá Endre Merton. TALSMENN bandarísku stjórnarinnar segja, að hún vonist til þess, að íslenzka flugfélagið „LoftIeiðir“ muni hverfa frá lágum fargjöldum, þannig, að Bandaríkin neyð- ist ekki til að segja upp loft- ferðasamningnum frá 1945. Bráðabirðastjórn 1 N-Rhodesíu London Lusaka, 3. nóvember — AP. SIR Edgar Whitehead, forsætis- ráðherra S-Rhodesíu, lýsti }>ví yfir í London í dag, á leið frá Allsherjarþingi S.Þ., að hanni myndi aldrei fallast á tillögu SÞ um að fella stjórnarskrá landsins úr gihli. í fréttum frá Luskaka í N- Rhodesíu segir, að þar hafi nú verið sett á laggirnar bráða- ’birgðastjórn opinberra starfs- manna, þar til deilan um stjórnar skrána leysist. Stjórnin kom til sögunnar eftir fyrstu kosningar, sem fram hafa farið. Samningurinn rennur ekki út á neinum tilteknum tíma, en honum er hægt að segja upp af hálfu ríkisstjórna beggja landanna með 12 mán- aða fyrirvara. Viðræðum fulltrúa fslands og Bandaríkjanna um loftferðasamn inginn lauk á föstudag, án þess að nokkur ákvörðun hefði verið tekin. Utanríkisráðuneytið banda ríska sagði viðræður hafa farið fram á mjög vinsamlegan hátt. Fram kom, að á fundinum voru gerðar tillögur, sem lagðar verða afl fyrir börn og unglinga borgarinnar. Það kemur þó bezt í ljós i fyrstu frostunum, þegar Tjörnina leggur, og hægt er að fara þar á skauta eða renna sér á sleða. Myndin var tekin klukkan 3.30 í gærdag af Sveini Þor- móðssyni. Sólin var að setjast í suðvestri og aragrúi barna og unglinga naut útiverunnar á Tjörninni við ærsl og skautahlaup. fyrir ríkisstjórnir beggja land- anna. Talið er víst, að síðar verði aðrar umræður um málið. Thor Thors, ambassador, lýsti því yfir, að viðræðunum loknum, að lagðar hefðu verið fram sér- stakar tillögur, auk þess, sem báð L aðilar hefðu gert grein fyrir af stöðu sinni. Ljóst þykir, af ummælum tals- manna stjórnarinnar, að tillögurn ar feli í sér, að „Loftleiðir" hætti við núverandi fargjöld, annars muni bandaríska stjórnin segja samningum og fara fram á endurskoðun hans. L Adenauer settir drslitakostir „ Spiegel-málið" hefur valdið alvarlegri deilu stjórnarflokkanna Bonn, 3. nóvember — AP. SVO virtist í morgun, sem v- þýzka stjórnán stæði höllum fæti, eftir yfirlýsingu Frjálsa demo- krataflokksins, vegna „Spiegel- málsins“. Flokkurinn, sem er í minni- hluta í stjórn landsins, hefur sett kanzlaranum úrslitakosti. Er þess krafizt, að næst æðstu mönn um varnar- og dómsmálaráðu- Þing- og ríkisstjdrakosn- ingar í USA á þriðjudaginn \ Fregnum ber ekki saman um, hver áhrií I Kúbumálið muni hafa á afstöðu kjósenda S\ Rússar sprengja TILKYNNT var hér í morg- un, að Rússar hefðu gert nýja tilraun með kjarnorkuvopn á tilraunasvæðinu við Novaya Zemlja. Jarðskjálftamælar sýndu, að utm kl. 9,30, eftir ísl. tíma, var sprengd 4 megatonna sprengja. Þetta er 18. tilraun Riússa, síðan þeir hófu að sprengja á ný á þessu hausti New York, 3. nóvember. — NTB-Reuter — NÆSTKOMANDI þriðjudag, 6. nóvember, verður gengið tii kosninga í Bandaríkjunum. Um 50 milljónir manna eru á kjör- skrá, og verður nú kosið um sæti 39 öldungadeildarþing- manna, 435 fulltrúadeildarþing- manna, 35 ríkisstjóra, auk þess, sem kjörnir verða margir aðrir opinberir embættismenn. Hvert ríki á tvo fulltrúa í Oldungadeildinni. Þar sem ríki- in eru nú 50, vegjja- öldunga- deildarþingmennirnhlfe^OO tals- ins. Þeir eru kosnlrtn 6 ára í senn, þannig, að um þriðjungur er kosinn á tveggja ára fresti. Til Fulltrúadeildarinnar er kosið á tveggja ára fresti, allir fulltrúar í senn. Kjördæmaskipu lagið fer eftir manntali, sem tekið er 10. hvert ár. Fjölmenn- asta ríkið, New York, sem hef- ur 17 milljónir íbúa, á 41 full- trúa á þingi, en nokkur minni ríkjanna, s.s. Alaska, Delaware, Nevada, Vermont og Wyoming eiga aðeins einn fulltrúa hvert. Kosning hefst kl. 7 á þriðju- dagsmorgun og lýkur á tíman- um frá kl. 19 til kl. 21. úrslit verða fyrst kunn í austurríkjun- um, en þar er klukkan 5 tímum á undan klukkunni á vestur- ströndinni. í Öldungadeildinni hafa demó- kratar nú meirihluta, 64 á móti 36. Af þeim 39, sem nú víkja úr deildinni, eru 21 demókratar og 19 repúblikanar. Af þeim 61, sem sitja áfram eru demókratar 43 og repúblikanar 18. í Fulltrúadeildinni sitja nú 261 demókratar og 174 repúblik- anar. Þrjú sæti eru • auð. Sam- kvæmt manntalinu frá 1960 verða nú kjörnir 435 fulltrúar í þá deild. Auk þess, sem nú verður kos- ið til þings, þá verða kjörnir 35 ríkisstjórar, bæjarstjórnarmeð- limir, dómarar o. fl. Nær allir fullorðnir hafa kosn- ingarétt, bæði í þingkosningun- Framih. á bls. 2. neytisins verði vikið frá starfi, og gerð verði fuli grein fyrir því, hvað leiddi til handtöku útgef- anda og 4 ritstjóra „Der Spiegel“. Frjálsi demokrataflokkurinn heldur því fram, að gengið hafi verið fram hjá dómsmálaráð- herranum, Wolfgang Stammberg- er, er ákvörðun var tekin í mál- inu. Til að undirstrika kröfu sína, hefur Stammberger sagt af sér. Frekari handtökur áttu sér stað í gærkvöld. Detlev Becker, fram- kvæmdastjóri tímaritsins, var tek inn fastur, grunaður um landráð. Þá var einnig tekinn höndum herforingi i landhernum, en hann hefur enn ekki fengizt nafngreindur. Saksóknári ríkis- ins, Joachim Loesdau, hefur neit- að að gefa frekari upplýsingar um málið. Það sem stjórnarkreppa kann nú að vera yfirvofandi, er talið • að Adenauer hafi ákveðið að' fresta för sinni vestur um haf. Upphaflega var gert ráð fyrir, að kanzlarinn færi til viðræðna við Kennedy, forseta, næstkomandi þriðjudag. Fregnir frá Washington herma þó, að frestunin eigi rót sína að rekja til atburða í aiþjóðamálum und- anfarið, og annríkis forsetans. Hins vegar er talið í V-Þýzka- landi, að Adenauer muni ekki vilja fara úr landi, fyrr en útséð er um, hvern endi „Spiegel-mál- ið“ fær. Borgarstjóri V-Berlínar, Willy Brandt, leiðtogi Sósíal-demokrata flokksins, hefur lýst því yfir, að hann telji það vafasamt, að stjórnin falii. „Það leikur enginn vafi á því, að stjórnmálaaðstaðan er mjög erfið, en samt held ég að það leiði ekki til stjórnarskipta", sagði Brandt. ,»

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.