Morgunblaðið - 04.11.1962, Blaðsíða 22
22
M O R C V N R 7VA Ð 1Ð
, Sunnudagur 4. nóvcmber 1962
Finnar unnu yfirburðasigur
yfir Isjendingum, 100 :47
— en íslendingar sýndu mun betri leik en áður
Stokkhólmi, 3. nóv. —
ÍSL.ENZKA liðið varð að þola
mesta burst, sem orðið hefur á
þessu móti, er það tapaði fyrir
Finnum með 100 stigum gegn
47. En þrátt fyrir þetta brá þó
fyrir góðum leik hjá íslenzka
liðinu og þeir báru svolítinn svip
af því, sem þeir eru vanir að
sýna heima fyrir.
íslenzka liðið byrjaði allvel í
fyrri hálfleik, en er á leið leik-
inn, missti liðið hraðann og úf-
haldið og Finnarnir náðu algjör-
um tökum á leiknum. Nú sem
fyrr bar það mest á milli í leik
liðanna, að íslendingarnir eru
ekki eins harðir í horn að taka,
þeim er stjakað til af líkamssterk
um og hávöxnum mótherjum.
Slíkum leik eru íslenzku pilt-
arnir óvanir heima fyrir, því
þar er tekið miklu strangara
á brotum. Hér er allt slikt yfir-
leitt leyft og íslenzka liðið, og
að nokkru leyti það danska,
veróa eins og illa gerðir hlutir
á stundum í baráttunni við Finna
og Svía.
Bezti kaflinn
Finnarnir byrjuðu með þrem
fyrstu körfunum, en Guðmund-
ur Þorsteinsson minnkaði bilið
í 4:2. Þá náðu Finnarnir góðum
kafla og komust í 11 stig gegn
3, en þessu svöruðu íslendingarn
ir með sínum bezta leikkafla
og löguðu stöðuna svo, að stóð
17:11 fyrir Finna. Það var bezta
staðan í leiknum fyrir okkar
menn. Eftir það jókst bilið jafnt
og þétt, utan smásprettá, sem
íslendingarnir náðu og héldu þá
í við Finnanna.
Nokkrir leikmenn Finna, eink-
um Kuusela, höfðu svo mikinn
hraða, að íslendingarnir höfðu
ekki roð við þeim. Kuusela skor-
aði langmest fyrir Finna, eða
27 stig í allt, en þetta er óvenju-
leiga há stigatala í slíkri keppni.
Lampen skoraði 15 stig og hinn
þriðji, Oksava, skoraði 12. Á
síðustu mínútum leiksins lögðu
Finnar sig alla fram um að kom-
asf í 100 stig. Það tókst þeim
með tveimnur vítaköstum á síð
ustu sekúndum leiksins, við mik-
'inn fögnuð margra Finna, sem
hér horfðu á.
Islenzka liðið
En á köflum náðu íslending-
arnir skemmtilegu spili, og það
svo, að þeir fengu gott klapp og
var fagnað með hrópum. Voru
þetta helzt þeir Birgir Birgis og
Þorsteinn Hallgrímsson. Birgir
var eiginlega sá eini, sem sýndi
„frekju“ í leiknum á við mót-
herjana. Þorsteinn átti og góðan
leik, einkum frábæran varnar-
leik, en hann var ótrúlega óhepp
inn í körfuskotum.
Nú léku allir íslenzku piltarn-
ir, nema Davíð, Haukur og
Bjarni. Stig íslands í leiknum
skoruðu Birgir Birgis, 10 stig,
Guðmundur Þorsteinsson og
Davíð Helgason 8, Einar Matt-
híasson og Þorsteinn Hallgríms-
son 7, Hólmsteinn Sigurðsson 3
og ólafur Thorlaeius og Sigurð-
ur P. Gíslason 2 stig hvor.
En það var aldrei um veru-
lega keppni að ræða í leiknum,
til þess var munurinn í stigum
fljótt orðinn of mikill. En eigi
að síður held ég að íslenzku pilt-
arnir séu að ná sínu bezta, og
ekki mun af veita í leiknum við
Dani á sunnudaginn.
Svíar — Danir: 75-43
Dahir háðu nær jafn vonlitla
baráttu við Svía og við á móti
Finnum. Svíarnir tóku strax ör-
Vinnum
við Dani?
POLAR-CUP-keppninni lýk-
ur í dag. Leikar standa nú
þannig, að Finnar og Svíar
hafa unnið báða sína leiki
(gegn íslandi og Danmörku).
En íslendingar og Danir eru
með ekkert stig.
Svíar gera sér miklar von-
ir um sigur í mótinu — og
hafa heldur aldrei verið sterk
ari. En almenn er sú skoðun,
að Finnarnir séu ekki í veru-
legri hættu, þó allt geti skeð.
Finnarnir hafa beztu tækn-
ina, mesta hraðann og mestu
reynsluna — hún kemur ber-
ugga forystu og höfðu tögl og
hagldir í leiknum, vegna stærri
líkamsbyggingar og kraftalegrd
leiks. Unnu Svíarnir með 75 stig-
um gegn 43. í hálfleik stóð 34
gegn 17. Fór fyrir Dönum oft
sem okkur, að hrinding, sem
deila má um, hvort er lögleg,
stöðvaði gott upphlaup og kost-
aði kannski mark í eigin körfu.
Daninn Flemming Wich, var sá
eini sem eitthvað gat á móti Sví
unum. Hann skoraði 11 stig.
flest úr langskotum mjög lag-
lega. Svíar höfð, fullkomin tök
á öðrum leikmönnum Dana.
í liði Svía bar nú mest á
„stjörnuleikmanni“ þeirra Hans
Albertson. Hann er 2,01 metri á
hæð og hefur stokkið, eins og
Framh. á bls. 2.
lega í Ijós í leikjum þeirra. \
Og svo verður lokabarátt- i
an í mótinu milli íslands og
Danmerkur. Það getur án efa
orðið jafn leikur og góður,
bæði liðin eru „teknisk“ en
skortir kraft og ákveðni á við
hin liðin tvö.
Danir töpuðu með meiri
mun fyrir Svíum heldur en
við gerðum, en þar á móti
kemur að þeir töpuðu ekki
eins stórt fyrir Finnum og J
við. Það eru því möguleikar
fyrir okkur, en eins má telja
að Danir telji sig líka hafa
möguleika á að vinna fsland.
En þetta verður skemmtileg
keppni, án efa, því bæði liðin
eru skemmtilegir leikmenn.
Fyrsti leikur fslands og
Danmerkur var í Kaupmanna
höfn 1959 og þá unnu Danir
með 52 stigum gegn 49. Ann-
ar leikurinn var í Danmörku
1961 og þá unnu Danir með
49 stigum gegn 45. — A. St.
FÖIMDURVÖRLR
Veitum allt að 30% afslátt til skóla, félagssamtaka og námskeiða
,-K
Tágar kr. 210,-
pr. kg.
Bast kr. 10.—
og kr. 13.-
Brilliant bast
Leðurreimar . Töskuhöldur
Leðurbútar Nýtt húsnæði kr. 45.—
Leðurverkfæri kr. 85,—
Leðurverkefni 1 kr. 140.—
fyrir unglinga R
me.ro
vöruvol
Balsamodel 50 teg.
Plastmodel 100 teg.
Bátamodel 20 teg.
Dieselhreyflar
6 stærðir
Hvaltennur
Bein kr. 9.—
12.—, 24.—, 28.—^
Kýrhorn kr. 110.—
pr. kg.
Buffalóhorn kr.
270.— pr. kg.
betri
þjónusto
2 'mmm
Le'kíöng
o. m. fl.
Pcstsendum
Fyrir lampagrindur:
Plastborðar 12 litir,
kr. 25.— pr. rúlla
Bandborðar
kr. 27.— pr. 10 m.
Borðlampagrindur
10. teg
Loftljósagrindur
20 teg.
Gólflampagrindur
4 teg.
V egglampagr indur
5 teg.
tilh. rafmagnsvörup
x
TÓIHSTLNDABLÐIN
Sími 24026
Aðalstræti 8.
Pósthólf 822.