Morgunblaðið - 25.11.1962, Page 6

Morgunblaðið - 25.11.1962, Page 6
t MORGV1SBLAÐ1Ð Sunnudagur 25. nóv. 1962 Um sýn'ngu Valtýs Péturssonar og fle'ra Valtýr við eitt málverka sinna FYRIR noKkrum döguim sagði kunningi minn: Óaköp er hann Zópónías orðinn leiðinlegur mál- eri. Myndirnar á sýningunni hans eru allar eins — kannski ekki Ibyggðar yfir nákvæmlega sama Stefið en þó svo keimlíkar. að gleðin og þægindakenndin hverf- ur mér umsvifalaust er ég nálg- ast þær. í>á var hann nú öðru- vísi í gamla daga: Sneisafullur af skemmtilegum hugmyndum og óragur við að fitja upp á hlut- um, sem fengu brúnirnar til að lyftast og hjörtun til að skoppa í brjóstum ökkar. Þegar einhver Slkepnan var orðin spök var hann ekki lengi að korna henni af sér Og grípa aðra fjörugri í staðinn. Kunningi minn notaði ekki þessi orð en þnáðinn í málflutn- ingi hans hef ég flutt óbrenglað- an inn í þetta greinankorn. Ég hef hlustað á slíkan mál- flutning fyrr, reyndar ekki einu sinni heldur mörg hundruð sinn um. En einhvern veginn hef ég aldrei tekið mark á honum. Að minnsta kosti hefur mér aldrei dottið í hug að andmsela honum á prenti. Ég hef litið svo á, að þetta deiluefni snerti fremur hismið en kjarnann í samskipt- um fóKks við list. En nú er ég íarinn að efast um það. Líklega er bæði mér og kunningja min- um full alvara þegar við verj- um hvor sitt sjónarmið af nokkru kappi, og sennilegast er, að ég hafi gert alltof lítið úr einmitt þessari afstöðu almenns áhorf- anda. Mér finnst, að ég skuldi honum Skýringu. Myndir sama manns eiga að vera hver annrri líkar. meira segja svo nauðalíkar. að inndæl- asta fólik stanzi fyrir framan þær og hrópd gecJvonakulega: Ætl- ast maðurinn til að ég skoði sömu myndina á tveim stöð- um? Hvað veldur slíkum óSköpum? Ég skal reyna að gera grein fyrir því í örstuttu máli. Það, sem venju- lega skilur myndir að og gerir þær fjarlægar hver annarri, er alls ekki lífsneisti þeirra, sá hinn margslungni og pe rsó nubun d ni —Því að hann kemur ekki í Ijós fyrr en seinna — heldur ljót og leiðinleg yfirborðsslepja. Þegar búið er að skafa hana burt stend ur listaverkið að sönnu uppi nak ið og kaldranalegt, en alveg á- reiðanlega falslaust. Nú getum við farið að horfa inn í það, snerta taugar þess og þá upp- götvum við smán saman, að Mfið þarna er miklu fjölbreyttara en það getur nokkurntíma orðið á skrautlegu yfirborði. Enginn mað ur hefur lagt fram haldibetri gögn í þessu máli, en rúmenski mynd- höggvarinn Brancusi. Alla ævi sína gerði hann ekki annað en það að búa til snúnar súlur. fugls nef, sem standa beint upp í loft- ið og eggmyndir úr gipsi eða tréi en samt finnst manni þetta jafn raunverulegt í dag og grasið á vellinum eða töngin 1 smiðj- unni. Þetta er kynlegt upphaf að greinarkorni um myndir Valtýs Péturssonar, segir einhver rödd- in. Það er satt, kynlegt en ekiki alveg út í hött. Ég Mt nefnilega svo á, að Valtýr hafi stigið stórt skref fram á við þegar hann fór að skammta sjálfum sér við- fangsefni af mjög þröngu sviði — um leið og hann varpaði fyr- ir borð draumnum um ljósbrigði og kenjamyndir. Afleiðingin er augljós. Þetta er bezta sýning Valtýs og alveg áreiðanlega' sú, er við munum rifja upp þegar ■höfundurinn er orðinn virðuleg- ur, gamall', maður. Æarlnn að tala með skringilegum áherzlum og hættur að skrifa í Morgun- blaðið. (Ég vil Skjóta því inn á millf pnktanna, að gouache- myndasýningin, sem Valtýr efndi til í Listvinasalnum fyrir mörg- um árum var, ef til vill, jafn heil og sýningin nú en hún var bara stutt ævintýri á langri gönguf ör). Annars hafði ég ekki ætlað mér að tína fram sérstakar mynd ir til að hrósa eða skjóta á. Ég er ekki viss um, að slíkt skipti meginmáli. Þó vildi ég segja með áherzlu. að sumar myndanna eru frísklegar, sviphreinar og fágað- ar á sinn hátt en aðrar aftur á móti helzt fyrirferðamikil völ-’ undarhús. Ég held, að Valtýr mætti að ósekju sníða af þeim nokkur horn alveg eins og und- irritaður ætti að reyna að færa örMtið brot af hinu myrkva sál- arliífi sinu yfir á köldu málverk- in með beinu strikunum. Kurt Zier segir, að myndir Valtýs séu fjarlægar raunsönnu lifi margar hverjar. Hvernig geta þær verið það? Sennilega hefði ég litið á það sem slæma skrítlu, ef einhver hefði sagt fyrir nokkrum árum, að Valtýr ætti eftir að verða há- rómantískur málari. Enginn trúði þó heitara á sína geómetríu en hann. En svona skjótt breytir Framh. á bls. 23, • VANDAMÁL ÆSKUNNAR JÓN PÁLSSON, tómstunda- ráJðunautur og starfsmaður æskulýðsráðs Reykjavíkur sem öllum Xandsmönnum er kunn- ur fyrir tómstundaþætti sína í útvarpinu, ræðir í sunnudags- rabbi Velvakanda um nokkur atriði æskulýðsstarfseminnar og rekstur félagsheimila í land- inu: — Skemtanalíf æskunnar er jafnan mikið umræðuefni manna á meðal, oftar fremur til hneykslunar, heldur en reynt sé að leita leiða tii úrbóta á þeim vanda, sem fyrir liggur. Rekstur skemmtihússins Lidió fyrir ungMnga hefur að sjálf- sögðu vakið allmikla athygli, enda verður ekki annað sagt en að rekstur þess fyrirtækis hafi farið vel af stað. Húsið sjálft er vandað og þar hefur margt verið gert, sem að sjálf- sögðu kostar mikið fé. Staðir sem þessir, reknir af einstak- lingum, hljóta að verða að bera sig fjárhagslega. Verði lausn þess vandamáls sú að einstak- lingar eða fyrirtæiki reki skemmtistaði .fyrir unglinga og að þeir verði til fyrirmyndar, hiýtur að koma að því að þeir fái eftirgjöf í Skemmtana- skatti eða aðrar ívilnanir, er geri þeim léttara fyrir um reksturinn. • ALDURSTAKMARK. Annað vandamál, sem nú þrýstir á í sambandi við skemmtanalíf unglinga, er ald- urstakmark þeirra, sem heim- ild fá tii að sækja staði sem þessa. Ákvæðið um, að ungMng- ar skuli vera orðnir 16 ára, er þeir fá að sækja slíkan Skemmti stað, mun vera orðið nokkuð gamalt. Fyrir um hálfum öðr- um eða tveim tugum ára, mun það hafa verið mjög sjaldgæft, að ungMngar innan 17—18 ára aldurs sæktu samskonar skemmtanir og fullorðnir. Nú hefur þroski barna farið mjög vaxandi á síðari árum með bættum efnahag þjóðarinnar og bættri aðhlynningu ungling- anna. Nú er svo komið að ung- lingar allt niður í 14 og 15 ára aldur eru eftirsóttir á vinnu markaðnum, þegar hörguM er á fullorðnu fólki til starfa. Unglingar á þeim aldri eru taldir sízt verri heldur en þeir sem eru orðnir 16 ára. Það er því ekki óeðlilegt, að þeir geri kröfu til að fá að njóta skemmtana á borð við félaga sína, sem eru -1—2 árum eldri, þar sem af þeim er krafizt svipaðrar vinnu og þeir finna og sjá sjálfir, að þeir geta leyst sömu störf af hendi og hinir. Er þá ekki óeðlilegt að þeir geri kröfu tM að fá að sækja samskonar skemmtanir. Það er því fullkomlega athugandi, hvort ekki væri ástæða til að færa aldurstakmarkið niður, a.m.k. niður í 1S ára aldur og væri þá ástæða til að færa skemtanatímann fram þannig að hann hefðist fyrr og ungling ar næðu strætisvagnaferðum heim að lokinni skemmtun. AM- margir foreldrar hafa rætt um þetta við mig og virðist mér það vera eindregin ósk þeirra að þessu ákvæði verði breytt. Nú er svo komið, að það virðist á næsta leyti nauðsyn að breyta reglum og ákvæðum um skemmtanalíf unglinga yfir höfuð. Er þá eðlilegt að þessi tvö atriði af mörgum sem lag- færa þarf, læikkun skemmtana- skatts þeirra, sem reka vilja skemmtanir einvörðungu fyrir unglinga, þar sem fyllstu reglu semi er gætt og öllum lagaleg- um kröfum fullnægt. Svo og að aldurstakmarki unglinga, sem sækja mega skemmtanir sem þessar verði breytt. • SKIPULAGNING Á STARFI FÉLAGSHEIM- ILANNA. Þá er fulikomin ástæða til að endurskoða og skipuleggja aMa starfsemi félagsheimilanna í landinu. Um félagsheimilin gilda engin önnur ákvæði eða reglur en þau, að þeim sé komið upp, þau séu byggð. Nýt- ing þeirra er í flestum tilvik- um nær eingöngu miðuð við skemmtanir og þá mestmegnis dansleiki. í félagsheimilunum er sáralítil félagsleg starfsemi eða támstundastarfsemi, enda enginn aðili, hvorki á vegum sveitafélaga eða ríkisvalds, sem ætlað er að hafa með höndum yfirumsjón með slíkum rekstri félagsheimilanna. • HVERGI FYRIR- GREIÐSLU AÐ VÆNTA. Ég get, af því sérstaklega er um það spurt, látið þess getið, að nokkrir aðilar utan Reykja- víkur hafa snúið sér til mín og beðið um leiðbeiningar um fyrirkomulag á rekstri félags- heimila tiil tómstundastarfa. Fyrirsvarsmönnum félagsheim- ilanna er ljóst, að þeir geta hvenær sem er komið á fót dansskemmtun í húsi sínu. Þeir geta snúið sér til félagssam- taka, sem annast um fyrir- greiðslu með hljómsveitir og þeir geta snúið sér til yfir- valda og fengið hjá þeim lög- gæzlu. Vilji þeir annast íþrótta starfsemi í húsi sínu, geta þeir snúið, sér til íþróttasambands íslands eða íþróttafulltrúa rík- isins og fengið liðsinni þeirra. Vilji þeir annast leifcstarfsemi í hiúsinu geta þeir snúið sér til Bandalags íslenzkra leiikfélaga. Eigi hins vegar að koma á fót málfundum, leshringum eða ýmiskonar tómíStundavinnu, eða unglingaleifcstarfsemi, er eng- inn aðili að snúa sér tM með leiðbeiningar eða liðveizlu. Fræðslumálastjórnin telur slíkt ekki heyra sinni starfsemi til, þar sem hér er ekki um bein- an skólarekstur að ræða. Hér er þvd um að ræða mjög mik- inn vankant á rekstri félags- heimilanna, sem ef lagfærð- ur væri, gæti orðið til mikils uppeldislegs gMdis fyrir ung- linganna og einnig til mikils beins gagns fyrir heimMi þeirra byggðarlaga, sem hlut ætti að hverju félagsheimili fyrir sig. • VANTAR ÞJÁLFAÐA ÆSKULÝDSLEIÐTOGA. Það er skoðun mín að ekki ætti að leyfa byiggingu félags- heimila með opinberum styrk, nema fullnægt sé skilyrðum til aðstöðu fyrir hverskonar tóm- stundaiðju, bæði tM bóknáms og verknáms. Einnig ætti hvert félagsheimili að hafa á sínum snærum umsjónarmann eða æskulýðsleiðoga, sem innsýa hefði og þjálfun í hverskonar félagsmála- og tómstundarstarf semi unglinga. Með sarnræm- ingu slíkrar starfsemi undir einni stjórn mætti byggja upp ýmiskonar félagslega starf- semi og framkvæma leiðbein- ingar og kennslu á skipulagðan hátt, jafnvel fara með nám- skeið eða annað þess háttar frá einu félagsheimilinu til ann- ars, alit í kringum landið. Það hefur lítið raunhæft gildi að fjarviðrast út af ólifn- aði og spállingu unglinganna. Það sem gera þarf er að vinna skipulega að þvi að skapa unglingunum aðstöðu til heil- brigðra leikja og þjóðlhollra starfa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.