Morgunblaðið - 25.11.1962, Síða 12
12
MORGVISBLAÐIÐ
Sunnudagur 25. nóv. 1562
JMiNMifttMðMt'
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavflc.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjamason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakið.
JÖN STEFÁNSSON
TTfeð Jóni Stefánssyni er
hniginn í valinn einn
merkasti og eftirminnilegasti
listamaður íslenzku þjóðar-
innar; einn þeirra brautryðj-
enda, sem gert hafa garðinn
frægan og unnið bug á þröng
lyndi eybúans með þeim
órangri sem hverjmn manni
er til fyrirmyndar. Hann lét
hvorki einangrun lands síns
draga úr sér kjark né varð
hann að bráð útlendum á-
hrifum, svo hann fengi ekki
rönd við reist. Jafnframt því
sem hann færði íslandi marg-
ar góðar gjafir úr kaupstaða-
ferðum sínum til Kaup-
mannahafnar og Parísar, tók
hann einnig með sér ágætt
veganesti til framandi þjóða.
Þannig segir Politiken í
minningargrein um Jón
Stefánsson, að hann hafi ver-
ið í miðdepli norrænnar
myndlistar. „Hans verður
ekki aðeins saknað á „Grönn-
ingen“, en einnig á öllum
Norðurlöndum," segir blaðið.
Jón Stefánsson fór imgur
utan og kynnti sér málaralist
í Kaupmannahöfn, en varð
fljótt fyrir sterkum áhrifum
frá franskri hst. í París var
hann um skeið nemandi sjálfs
Matisse, sem vakti hjá hon-
um ást á verkum Cézannes.
Þau úrðu honum hvað mest-
ur aflgjafi; þau vísuðu hon-
um leiðina til persónulegrar
myndsköpunar og urðu hon-
um alla tíð ómetanlegur bak-
hjall í strangri glímu við
form og liti. Islenzk náttúra
var honum einnig góður
bandamaður, hann xmni
henni hugástum og túlkaði
fegurð hennar eins og hann
varðveitti hana í sínu eigin
brjósti. Hrá flaustursverk
voru list hans ósamboðin,
eftiröpun í andstöðu við
kröfur hans og menntun.
Hann sagði einhverju sinni,
að íslenzkt landslag væri eins
ólákt landslagi meginlandsins
eins og nakinn líkami þeim
Sem klæddur er í föt. „Ein-
mitt af því að þessi náttúra
er nakin er hún svo merki-
lega fögur,“ sagði hann. Við
þessa fegurð hélt hann trún-
að til hinztu stundar.
Eins og Gunnlaugur Schev-
ing komst að orði við Morg-
unblaðið daginn eftir lát Jóns
Stefánssonar, var hann ó-
venjulegum mannkostum bú-
inn: „Hann var umtalsgóður
í garð annarra listamanna og
alltaf Ijúfur og hlýr,“ segir
Gunnlaugur. Undir þessi orð
taka aðrir málarar, sem
Morgunblaðið sneri sér til.
Þeir sakna drengskapar-
manns og mikils listamaims.
Hlutskipti Jóns Stefánsson-
ar var ekki ólíkt því sem ís-
lenzk hirðskáld kusu sér á
söguöld; hann var í senn að-
sópsmikill listamaður með
stórþjóðum og háttprúður
fulltrúi þess bezta í erfðum
okkar og menningu.
KOMMÚNISTAR
ÞINGA
T dag hefst þing „Samein-
*■ ingarflokks alþýðu, Sósíal-
istaflokksins,“ en því hefur
tvívegis verið frestað eins og
skýrt hefur verið frá hér í
blaðinu, vegna hatrammra
deilna innan flokksins, en þar
hefur ríkt mesta upplausnar-
ástand eins og kunnugt er.
Deilur þessar hafa fyrst og
fremst byggzt á persónulegri
valdastreitu, þar sem Lúðvík
Jósefsson hefur verið að
reyna að grafa undan Einari
Olgeirssyni og ná sjálfur for-
ystu í flokknum. Hafði hon-
um orðið verulega ágengt, en
Einar gat fengið því ráðið, að
flokksþingi var frestað, með-
an hann var að bæta vig-
stöðu sína.
Kunnugir telja, að Einar
hafi nú náð undirtökunum og
þurfi ekki að óttast um for-
mennsku flokksins, hann
muni verða endurkjörinn af
þinginu. Lúðvík er aftur á
móti sagður hinn skapversti
þessa daga og finnst hann
hafa verið illa svikinn.
Ekki er búizt við, að neitt
merkilegt gerist á þessu
kommúnistaþingi. Þar mun
verða þráttað eitthvað um
lagabreytingar og skipulag
Alþýðubandalagsins svokall-
aða.
,ÞJÓDFYLKINGIN'
TJ'enn ræða að vonum mjög
hið hörmulega hlutskipti
Framsóknarflokksins að hafa
gerzt ber að lögbrotum til að
þóknast bandamönnum sín-
um í kommúnistaflokknum.
Það er vissulega alvarlegt
mál, að heildarsamtök alþýð-
unnar skuli nú vera orðin að
löglausum félagsskap, sem
ekkert mark er á takandi, en
hitt er þó verra, að Fram-
sóknarflokkurinn skuli vera
fastur í „þjóðfylkingarnet-
inu“.
Aðfarir Framsóknarmanna
nú eru nákvæmlega á sama
veg og þeirra ógæfumanna,
sem í löndum þeim, sem nú
nefnast leppríkin, tóku upp
samvinnu við kommúnista og
byrjuðu að láta ofbeldisað-
IITAN UR HEIMI
Bu5u
marihuana
sígarettur
Fátt er nú um meira rætt í
dönsku hlöðunum síðustu dagana,
en handtaka tveggja manna, Nick
frá Chicago og John frá Eng-
landi. Þeir bjuggu á einu af betri
hótelum borgarinnar og við leit
í hergergi þeirra fannst hvorki
meira né minna en 5 kíló af
marihuana, sem geymt var í
tveim plastpokum, vandlega
vöfðum inn í handklæði.
Tvær norskar stúlkur drógust
a± tilviíjun inn í málið og áttu
þátt í að mennirnir tveir voru
handteknir. Þær voru þjónustu-
stúlkur á hótelinu, önnur heitir
Inger-Marie Inghelm frá Osló
og hin Sölvi Hansen frá Sande-
fjord. Mennirnir buðu stúlkun-
um sígarettur, sem þær þágu.
Þeim þótti það undarlegt að
mennirnir vöfðu sígaretturnar á
staðnum, og önnur þeirra hafði
orð á því við dyravörðinn, en
meira var ekki gert 1 málinu að
sinni. Þeir fóru með þær á
skemmtistaði, sem einkanlega
voru sóttir af kornungu fólki -
og leikur grunur á að þeir hafi
ætlað að nota þær fyrir milli-
göngumenn í framtíðinni.
sporið, með fyrrnefndum afleið--
ingum.
Eiturlyfjafundurinn hefur ver-
ið mjög til umræðu í blöð-
unum og segja sum þeirra, að
það sé jafn auðvelt að fá keypt
Það var hinn stöðugi straumur eiturlyf á tilteknum veitinga--
ungs fólks upp á umrætt her- stöðum og að afhenda yfirhafn-
bergi, sem leiddi lögregluna á I irnar í fatageymslunum.
Plöntuáburður getur
verið hættuiegur
Kostir og gallar við notkun á
plöntuáburði í landbúnaði hafa
verið til umræðu á fjölmennri
alþjóðaráðstefnu í Róm, sem stóð
yfir 12.—17. nóvember. Án þess-
ara efna mundi ekki svara kostn-
aði að framleiða ákveðin mat-
væli. Til dæmis hefur mönnum
reiknazt til, að ræktun á kartöfl-
um, eplum og sítrusávöxtum í
Bandaríkjunum mundi minnka
um 50 af hundraði án þeirra. En
þar sem þessi áburður inniheld-
ur eiturefni, hefur það í för með
sér hættu bæði fyrir menn og
dýr.
— Þeir sem vinna að landbún-
aði verða að gera sér ljóst, að
röng notkun plöntuáburðar getur
haft skaðleg áhrif á heilsufar
okkar, segir einn af sérfræðing-
um Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar S. Þ. (FAO), dr. C.
Lógóþetis. Hættan er mest fyrir
þá sem nota þessi efni, flytja þau
eða dreifa þeim. Láti þeir undir
höfuð leggjast að bera vamar-
grímur eða vanræki aðrar til-
skildar varúðarráðstafani, getur
bein snerting við þessi efni haft
skaðleg áhrif.
Að skoðun sérfræðings er
minni hætta á, að þau eiturefni,
sem eftir verða í plöntum oggræn
meti, komi fram í matvælunum.
Sé þessa vandlega gætt að fylgja
reglum um tíma og magn, þegar
plöntuáburður er notaður, er
engin hætta á skaðlegum áhrif-
um. En sé reglunum ekki fylgt
getur verið hætta á ferðum.
Á Rómar-ráðstefnunni, sem er
kvödd saman af FAO í samráði
við Alþjóða-heilbrigðismálastofn-
unina (WHO) og fleiri sérstofn-
anir Sameinuðu þjóðanna, er ætl
unin að semja áætlun um fram-
tíðartilhögun á þessum málum,
bæði að því er snertir vísindalega
og lögfræðilega hlið á notkun
plöntuáburðar.
Hve mikið eitur þolir maður-
inn? — í sambandi við ráðstefn-
una fara einnig fram umræður
sérfræðinga um möguleika manns
líkamans til að þola eiturefni.
FAO og WHO leitast við að
ákvarða, hve mikið magn af eitri
á hvert kílógramm maðurinn geti
tekið inn án skaðvænna afleið-
inga. Slík skilgreining gæti orðið
til mikils hægræðis fyrir ríki,
sem setja vilja reglur um há-
marksmagn eiturefna í matvæl-
um.
— Það felur að sjálfsögðu ekki
í sér, að hámarksmagn eituréfna
í matvælum eigi að svara til þess
hvað mannslíkaminn þolir, sagði
dr. Lógóþetis. í ýmsum löndum er
leyfilegt hámarksmagn eiturefna
í matvælum aðeins einn hundraðs
hluti af því sem á að vera b—-
laust fyrir mannslíkamann.
I stutu máli
60 milljónir barna og mæðra
um heim allan fá fæði og læknis-
hjálp hjá Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna (UNICEF). Þessa starf-
semi er m. a. hægt að styrkja
með því að kaupa UNICEF-kort-
in sem seld eru í öllum löndum,
einnig á íslandi. Síðan salan á
þessum kortum hófst árið 1950
hafa komið inn fyrir þau 5 millj-
ónir dollara. í fyrra seldust 21
milljón kort, og í ár vonast menn
til að 25 milljón kort seljist.
Milljónir bama um heim allan
hafa nú knýjandi þörf fyrir
barnaleikvelli og frístunda-
heimili, eftir því sem tala þeirra
kvenna, sem vinna úti, vex. í
mörgum löndum eru konur nú
orðnar þriðjungur af samanlögðu
vinnuafli. f löndum, þar sem efna
hagsþróunin er ör, og í mörgum
hinna nýju ríkja er meira en
helmingur allra vinnufærra
kvenna starfandi utan heimilis-
ins, Sameinuðu þjóðirnar og
Alþj óðaheilbrigðismálastof nunin
(WHo) hafa nýlega efnt til ráð-
stefnu í Genf um vandamálin
sem skapazt hafa af þessu
ástandi.
gerðir óátaldar eða jafnvel
verja þær. Vegna framferðis
slíkra manna misstu þjóðir
þessar frelsi, en ekki vegna
þess að kommúnistar gætu
af eigin rammleik undirokað
þær.
Tíminn þyrlar upp enda-
lausu moldryki til þess að
reyna að rugla dómgreind
almennings. Þannig var líka
farið að í leppríkjunum. Þeg-
ar lögbrot voru þar framin
var reynt að réttlæta þau, og
þannig varð gata kommún-
ista greið til valdatöku.
Nýjasta útgáfa Framsókn-
arblaðsins í blekkingarher-
ferðinni birtist á forsíðu þess
í gær og er svohljóðandi:
„Andstæðingar sambands-
stjórnar ASÍ, þeir sem nú
keppast við að telja þingið
„ólöglegt", vegna þess að það
samþykkti kjörbréf LÍV með
athugasemdum," o.s.frv.
Þarna er sem sagt blákalt
sagt, að þingið „samþykkti
kjörbréf LÍV með athuga-
semdum". í lögbrotatillög-
xmni, sem Framsóknarmenn
stóðu að, stóð hins vegar orð-
rétt:
„vísar þingið þessum gögn-
um til væntanlegrar sam-
bandsstjórnar til rannsókn-
ar“.
Kjörbréfin voru því alls
ekki afgreidd á þinginu eins
og skylt var og tímaskorti
borið við.
Þessi blekkingariðja Tím-
ans gerir hlut Framsóknar-
manna ennþá verri en hann
var — og var þó ekki á bæt-
andi. Og því miður bendir
hún til þess, að Framsóknar-
menn séu staðákveðnir í að
halda lengra og lengra á
„þjóðfylkingarbrautinni“. -t