Morgunblaðið - 04.12.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.1962, Blaðsíða 2
2 MURGUIS BLAÐIÐ Þriðjudagur 4. des. 1962 Kozlov deilir á Al- bani og Kínveria Hann situi nú Lenti niðri c skurði Á SJÖTTA tímanum á sunnu- dagskvöld lenti þessi Buick- tóll úti í skurði á móts við gatnamót Fossvogsvegar og Hafnarfjarðarvegar. Bíllinn var á leið til Reykjavíkur, og á undan honum ók biifreið ut- an malbiks. Þegar sú bif- reið nálgaðist Fossvogsveginn, sveigði hún inn á Hafnarfjarð- arveg og gaf merki með stefnuljósum. Bifreiðastjórinn á Buick-bílnum mun hafa haldið, að fyrri bíllinn ætlaði einungis að færa sig ..,nar á veginn og sá ekki fyrr en um seinan, að hann ætlaði að beygja inn á Fossvogsveg. Buick-bíllinn gat ekki stanzað í tæka tíð og endaði úti í skurði, eins og myndin sýnir. Talið er, að hemlar hafi ekki verið í fullkomnu lagi. Ekkert slys varð á mönnum. ( Ljósm. Sv. Þ.). Leiðrétting í REYKJAVÍKURBRÉFl sl. sunnudag varð sú villa, að tölu- etaifurinn 1 fél'l út á einum stað. Rétt er málsgreiniin þannig: „í öðru orðinu segir Eysteinn Jónsson réttilega að enginn eðl- ismunur sé á slíkum tengslum og takmarkaðri aukaaðild, enda er játað að aukaaðild getur náð yfir 1 til 99% af ákvæðum Rómar- samningsins.“ Hermenn með al- væpni í Algeirsborg ■ Akveðið að lækka laun embættismanna Algeirsborg, 3. des. AP-NTB. 1 gær, sunnuðag, tóku um 200 vopnaðir hermenn sér stöðu við opinberar byggingar í Algeirs- borg. Engin skýring var gefin af opinberri hálfu um það, hver væri orsökin til þessarar ráðstöf unar. Óstaðfestar fréttir herma þó, að andstaða Þjóðbyltingarflokks- ins við stjóm Ben Bella búi að haki. Einn helzti forsprakki flokksins var handtekinn í gær. Er það Omar Harr, er gegnt hefur háttsettu embætti innan lögregl- unnar. í nótt settu hermenn upp um- ferðatálmanir á helztu vegum, er liggja til borgarinnar. Bústaður Ben Bella, en þar hefur stjórnmálanefnd hans að- setur, var einnig víggirtur í gær. Stjórnmálafréttaritarar telja ekki ólíklegt, að Ben Bella ætli sér að reyna að ganga milii bols og höfuðs á helztu meðlimum og ráðamönnum Þjóðbyltingarflokks ins. Flokkurinn hefur haldið uppi miklum andróðri gegn áætlunum stjórnmálanefndarinnar í land- búnaðarmálum, en nefndin ræður Ný umferöarkönnun í strætisvögnum SVO SEM mönnum mun í fersku minni, fór fram víðtæk umferðar könnun í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni, dagana 12. og 13. september sl. Könnunin tókst ágætlega vegna góðrar þátt töku almennings og velvilja. Er nú verið að vinna úr þeim upp- lýsingum, sem þá fengust, en það tekur talsverðan tíma. Einn þáttur þessarar könnunar fór fram í öllum strætisvögnum á könnunarsvæðinu, til þess að leiða í ljós hve margir ferðast með þeim að jafnaði, hvaðan og hvert farþegamir fara og á hvaða tíma dagsins. Á þeim tíma sem könnunin fór fram, var nokkur hluti bæjar búa staddur annars staðar á land imi, böm voru í sveit og skólar aðeins að litlu leyti teknir til starfa, nokkuð af fólki var í or- lofi eða við vinnu úti á landi, svo sem á síld. Þetta var Ijóst, þegar könnunin var í undirbúningi og þá þegar ráðgert að viðbótar- könnun skyldi fara fram í strætis vögnunum síðar á árinu til sam- anburðar, þegar skólar væru tekn ir til starfa og vertíðarvinna kom in í gang á Suðurlandi. Nú hefur verið ákveðið, að þessi könnun í strætisvögnunum fari fram næstkomandi miðviku- dag eða fimmtudag — eftir því sem veðri verður háttað — og á hún að standa aðeins einn dag að þessu sinni. Könnunin fer fram á sama hátt og áður. Þegar farþegi kemur inn í strætisvagn, fær hann afhentan miða, sem hann á að geyma með an hann er í vagninum, en þegar hann fer aftur úr vagninum af- hendir hann miðann eftirlits- manni, sem er við útgöngudyrnar. Ef farþeginn er að fara ferð, sem hann fer daglega, þ.e.a.s. sömu leið og á sama tíma, þá á hann í það skiptið að rífa eitt hornið af miðanum. Þetta er gert, svo að sjá megi hve margt fólk notar strætisvagnana að staðaldri t.d. til þess að fara á sama tíma til eða frá vinnu eða skóla. Hins- vegar á ekki að rífa hornið af miðanum, ef farþeginn er að fara ferð, sem ekki er farin daglega á sama tima, enda þótt hann noti annars strætisvagnana daglega. Þess er óskað, að foreldrar skýri þetta fyrir bömum sínum, Framhald á bls. 23. mestu um stjórnarathafnir í land inu. Þykir stefna Þjóðbyltingar- flokksins minna mjög á stefnu Kommúnistaflokksins, sem bann aður var í vikunni, sem leið. Ben Bella hefur átt í miklum örðugleikum undanfarið, vegna þess, hve efnahagur landsins stendur illa. Síðasta ráðstöfun stjórnarinnar í þeim málum var tilkynnt í dag, en þar segir, að laun háttsettra embættismanna verði lækkuð, og mismuninum varið til að hjálpa atvinnulausu fólki í landinu, en það er nú um 5 milljónir tals- ins. Skv. nýju launaskránni munu embættismenn ekki fá hærri laun en sem nemur 16.000 ísl. kr. á mánuði. Siðustu fréttir: — í gærkvöldi hermdu síðustu fréttir frá Al- geirsborg, að hermenn með al- væpni færu nú um götur borgar- innar. Jafnframt hafði talsmaður stjórnarinnar sagt í gærkvöldi, að auka þyrfti eftirlit með ýmsum háttsettum embættismönnum, sem hefðu beitt sér gegn því að áform stjórnarinnar kæmust í framkvæmd. Kvað hann eftirlit á því sviði nú verða hert og mætti búast við handtökum. Kommúnista Róm, 3. desember. (AP) ÞAÐ hefur komið greinilega í ljós þá tvo daga, sem fund- ur ítalska kommúnistaflokks- ins hefur staðið, hve mikil á- tök ríkja innan kommúnista- ríkjanna, þ. e. milli Kínverja og Albana annars vegar og Rússa og þeirra, sem þeim fylgja að málum, hins vegar. Frol Kozlov, aðstoðarfor- sætisráðherra Sovétríkjanna, sem situr fundinn, sagði í dag í ræðu, er hann ræddi um á- tök Kínverja og Indverja: „Átökin geta aðeins leitt til þess, að aðstaða heimsvalda- sinna styrkist, svo og aðstaða andkommúnista • á Indlandi" Hann lýsti því enn fremur yfir, að Sovétríkin vildu leiða deiluna til lykta á frið- samlegan hátt. í ræðu sinni vék hann einnig að þeirri ákvörðun Sovétríkj- d fundi ítalskia Róm að fjarlægja 121 þús. tunna komin á land AÐFARANÓTT sunnudags veidd ust 21 þúsund tunnur af 39 bát- um. Tæpar sex þúsund tunnur komu þá til Reykjavíkur. Alls var þá heildarsíldaraflinn orðinn sl. laugardag, frá því að fyrstu bátarnir fóru út 14. nóv., 121.289 tunnur. Þar af komu 40.838 Ul Reykjavíkur, 39.836 til Akraness og 18.124 til Keflavík- ur. 90 bátar eru nú skráðir á síld- veiðar sunnan og vestan lands. í nótt var gott veiðiútlit. árásarvopn í A(A /5 hnúfar | / SV50hnúhr X Snjókoma t Qii - 7 Skúrir K Þrumur Ws KuUoskil H/fttM H fiml I L Lrnai 1 Á HÁDEGI í gær var hæg- viðri og víða léttskýjað norð anlandis og austan, en SA kaldi og víða rigning sunnan- lands og vestan. Hiti var nær aiLs staðar yfir frostmarki, hlýjast í Reykjavík. Lægðin fyrir SA Hvarf var heldiur að grynnast, en hreyfðist lítt. Önnur lægð kemur vestan frá Labrador. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land til Breiðafjarðar og miðin: Austan eða SA kaldi, stinningskaldi á miðunum, víða dálítil rigning eða súld. Vestfirðir og miðin: Austan kaldi, stinningskaldi norðan til dálítil rigning. Norðurland, NA-land og mið in: Austan gola, sums staðar léttskýjað í innsveitium, ann- ars víða þoka. Austfirðir og miðin: Austan kaldi, síðar kaldi, dálítil þoku súld. SA-land og miðin: Austan kaldi, síðar stinningskaldi, rigning og þokusúld. Horfur á miðvikudag. Suðlæg átt, rigning sunnan lands en hægari og þurrt veð ur fyrir norðan, víðast frost- laust. anna að frá Kúbu. Ekki nefndi hann þá Kínverja a nafn, en réðst á Albani, sem túlkað hafa sjónarmið Kínverja. Kvað hann Albani tala um frið í heiminum „í einskisnýtum orða tiltækjum". Lagði hann mikla áherzlu á þá nauðsyn, sem bæri til að sameina kommúnistaríki heimsins. Kozlov lagði mikla áherzlu á það, hve skynsamlega Sovétríkin hef^p brugðizt við því, er „banda rískir ráðamenn hefðu leitt heiminn fram að barmi tortím- ingar". Það vakti mikla athygli, að I hvert skipti, sem Kozlov vék að þætti Sovétríkjanna í því að forða kjarnorkustyrjöld vegna Kúbudeilunnar, sátu kínvetsku fulltrúarnir þögulir, þótt flestir þingmenn klöppuðu þá ákaft. Sama sagan gerðist á fyrsta degi ráðstefnunnar, sunnudag, er Togliatti, foringi ítalskra komm- únista ræddi heimsmálin. Ræddi hann m. a. afstöðu Sovétríkjanna til Kúbu, og bar mikið lof á vizku ráðamanna þar. — Gagnrýni á stefnu Kínverja og Albana kom einnig fram hjá honum, og sagði hann í því sambandi: „Það er fjarstæða að halda því fram, að heimsvaldasinnar séu einhvers konar pappírstlgrisdýr, er leggja muni niður rófuna, komist það 1 klípu“. Sá klofningur, sem nú ríkir innan kommúnistaríkjanna, duld ist engum, er ráðstefnuna sat, og kommúnistamálgagnið „Paese Sera“ sagði í gær, um fyrsta dag fundarins, í fyrirsögninni: „Kín- verjar mótmæla með þögn á- kvörðun í Kúbumálinu“ — síðan sagði: „Það, sem fyrst og fremst vakti athygli á fyrsta degi fund- arins var, að Kínverjar sátu þög- ulir og þungbúnir, er fagnað var ákvörðun Sovétríkjanna í mál- efnum Kúbu“. Óháð blað, „Messaggero“, sagði það hafa vakið mikla athygli, að er fulltrúar erlendra kommún- istaríkja óku til fundarins, hefðu þeir komið í gljáfægðum bifreið- um, „í fötum, saumuðum hjá dýr ustu klæðskerum Rómaborgar". — „Það er augljóst", sagði bl%ðið ennfremur, „að kommúnistaríkin hafa ekki farið varhluta af efna- hagslegri velferð". Kópavogur AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfélaga Kópavogs verður haldinn í kvöld í Sjálfstæðishúsinu Kópavogi og hefst kl. 20,30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. Bæjarmál. Framsögumaður: Axel Jónsson, bæjarfulltrúi. ADALFUNDUR Sjálfstæðis- kvennfélagsins Eddu í Kópavogi verður haldinn í Sjálfstæðishús- inu, Borgarholtsbraut 6, fimmtu- daginn 6. des. kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kjörnir fuiltrúar í fulltrúaráð. Kjörnir fulltrúar í kjördæmisráð. Konur athugið, að Guðrún Júl- íusdóttir, handavinnukennari mætir á fundinum og annast handavinnukennslu miUi dag- skráratriða. Kaffidrykkja. — Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.