Morgunblaðið - 04.12.1962, Page 17
Þriðjudagur 4. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17
— Velferðarmál
Framih. aif bls. 6.
öst vel með öllu í sínu þjóð-
íélagi. í þeirra landi hefir
idryk'kj uskapur kvenna tvöfald-
Bst á s.l. fimm árum. Telja þeir
að jafnrétti í drybkjusýki karla
Og kvenna (alkoholism) muni
náð í Svíaríki eftir 10 ár. Fyrir
nokkru var hlutfallið í Banda-
tríkjunum á þá leið að einn af
(hverjum sex drykkjusjúklingum
Var kona (Heimildir hér um eru
íiorsk og sænsk blöð frá apríl
þ. á og byggðu þaiu á hagskýrsl-
(im og þjóðhagfræðilegum áætl-
\inura).
Hinn aukni drykkjuskapur
kvenna
Ihefir mjög fljótt áihrif á velferð
barnanna. Nágrannaþjóðunum er
þetta ljóst og þær gera þegar
Bínar ráðstafanir. Fyrrum voru
mæðurnar hinar mestu bjarg-
■vættir gegn drykkjuskap feðr-
anna, unz drengirnir voru orðn-
ir „nógu stórir“ til að taka þátt í
tirykkjuskap fullorðinna. Nú fá
börn whisky á pelann mjög ung.
Vera má að enn fleiri konur en
Ikarlar verði drykkjusýkinni að
bráð eins og nú stefnir í sum-
>um löndurn, því breytingin frá
því sem var, gerist óðfluga ein-
mitt á þessum árum,' en hún
Isézt ekki nema þar sem sócial-
vísindin fylgjast vel með sínum
eigin þjóðfélögum.
Mvað er barn ?
Spurningin kann að virðast
tfurðuleg, en lagalega séð er skil
greining hugtaksins mjög nauð-
synleg. Eins og málum er háttað
hjá oss, getur sami einstakling-
"urinn verið „fullorðinn“ t.d. í
langferðabíl eða strætisvagni og
„barn“ sama dag fyrir framan
kvikmyndahús — eða í samskipt
«m við lögregluna. Þetta ósam-
ræmi þjóðfélagsins í afstöðunni
til einstaklingsins gerir meira
tjón en oss er ljóst. í Finnlandi
eru ákvæðin skýr í lögum.
Persóna er þar barn til 16 ára
aldurs og ungmenni á 17. og 18.
eldursári. í Noregi er persóna
barn í lagamáli til 18 ára aldurs.
f velferðarstarfinu er börnum
skipt eftir aldursflokkum og and
legri heilsu. Barnaverndarnefnd-
ir hafa þar víðtæka heimild til
jþess að gera ráðstafanir um vel
ferð barna, ef þau eru afrækt,
veikluð, vangefin, skortir aðlög-
unarhæfileika eða sæta slæmri
meðferð, andlega eða Mkamlega,
Stofnanir flokkast sem hér
segir:
a) Smábarnaheimili fyrir 1—
2 ára börn.
b) Alrnenn barnaheimili fyr-
ir börn til 18 ára aldurs.
c) Drengjaheimili fyrir 14—15
ára drengi, meðan á skóla
göngu stendur.
d) Mæðraheimili f. mæður
með lítil börn.
e) Dagstofnanir: Barnagarðar,
dagheimili, fríheimili.
f) „Barnanýlendur“: 'Ársbúðir,
sumarbúðir, sumardvalar-
staðir.
g) Sérskólar fyrir böm með
aðlögunarerfiðleika.
b) Verndarskólar f. böm með
mikla aðlögunarerfiðleika.
I) Rannsóknarstofur f. börn
með aðlögunarerfiðleika.
J) Lækningahæli (psykiatr-
iske) fyrir taugaveikluð
börn.
Flestar stofnanir í flokknum a
m f eru einkafyrirtæki, en verða
að hafa viðurkenningu félags-
inálaráðuneytis. Flestar hinar,
nema þær sem eru i j-flokki, eru
reknar af ríkinu. Framfarir virð-
ast hafa orðið hraðari í Noregi
en í flestum öðrum löndum s.l.
áratug i velferðarmálum barna
og unglinga. E. t. v. hafa þó Danir
enn traustara skipulag á þessum
málum en aðrar þjóðir og barna-
verndarlög þeirra sennilega þau
beztu, sem völ er á. Sérlega at-
hyglisverðar eru lagagreinarnar
12ö—127, um stofnanir, sem gerð-
er «u til að koma í veg fyrir að
þeir, sem búa við erfiðar aðstæð-
wr, lendi í vandræðum á upp-
yaxtarárunum. Enda geta Danir
á síðari árum sýnt að sumum
flokkum vandræðaunglinga fer
heldur fækkandi hjá þeim og
vera má að það sé hinum fyrir-
byggjandi aðgerðum að þakka.
Á norskri löggjöf er sá galli að
dómstólar hafa heimild til að
dæma harðvítuga glæpamenn til
vistar í vinnuskóla fyrir drengi,
ef glæpamenn eru nógu ungir,
t. d. 19 ára. Nýlega kom það fyrir
að þessi heimild var notuð af
norskum dómstólum og leiddi til
þess að kunnir þjóðarleiðtogar,
Hambro o. fl. tóku að deila harð-
lega á þetta fyrirkomulag og
vilja láta fella heimildina úr
lögum.
Hér er komið að einni við-
kvæmustu hlið velferðarmála.
Fáeinir vandræðamenn geta eyði
lagt blómlegar stofnanir. Afbrota
menn eiga ekki heima innan um
venjulega munaðarlausa drengi
eða fatlaða, svo dæmi sé nefnt.
Ein helzta orsök að hnignum
klaustranna, sem voru menning-
arstofnanir bæði í Austur- og
Vesturlöndum, var sú að þar var
komið fyrir vandræðamönnum af
yfirstéttum, sem spilltu út frá sér.
Kirkjan spilltist á svipaðan hátt á
síðmiðöldum af vandræðamönn-
um í embættum.
Ríkisvöld nú á dögum — og
reyndar einkastofnanir líka —
geta eyðilagt sitt eigið velferðar-
starf með því að láta óhæfa menn
stjórna því, en einnig með því að
taka að sér vandræðamenn, sem
ekki eiga samleið með öðrum inn
á stofnanir,er hæfa öðrum, sem
þurfa á hjálp að halda, t. d. veikl
uðum eða munarlausum. Þess
vegna þarf svo margar sérgreind
ar stofnanir í velferðarríki nú á
dögum, bæði fyrir börn og full-
orðna. Og þeir sem að velferðar-
málum vinna, þurfa bæði góða
almenna undirstöðumenntun og
sérmenntun.
Nágrönnum vorum á Norður-
löndum er það fyllilega ljóst að
velferð barna og unglinga er
grundvöllur að velferð framtíðar-
þjóðfélagsins. Ýmislegt höfum
vér af þeim lært og sumt hafa
þeir beinlínis hjálpað oss af stað
með. Það er gleðilegt að ein ís-
lenzk ágætiskona hefir unnið vel-
ferðarstarf, sem ekki gleymist á
Norðurlöndum, Ólafía Jóhanns-
dóttir. önnur íslenzk kona er að
góðu kunn fyriir skerf sinn til
sérstæðrar velferðarstarfsemi,
Ingibjörgu Ólafsson, sem er ný-
látin og vann erlendis mikinn
hluta ævi sinnar. Þannig hafa ís-
lenzkar konur goldið nokkuð af
skuld vorri við aðrar þjóðir, auk
þeirrar dýrmætu fyrirmyndar,
sem þær hafa oss eftir látið.
Heildarsögu hinnar íslenzku
velferðarstarfsémi þyrfti að rita
í handhægu yfirliti, því að sá fróð
leikur er ómissandi til þess að
ala upp félagslega gáfað fólk
meðal æskulýðsins — og það er
dýrmætur þáttur þjóðarsögunnar,
sem ekki má gleymast. Kynslóð
þarf að taka við af kynslóð —
og í sumum félagslega gáfuðum
fjölskyldum gerist þetta, til
mikilla heilla fyrir land og lýð,
bæði hér og í öðrum löndum. En
fleiri þurfa að bætast við aðstað-
an að batna til mikilla muna frá
því sem nú er.
Jóhann Hannesson.
ILMA vörur
í jólabaksturinn
íMii
Bútasala
Verður í dag og á morgun.
Seld verða allskonar
kjóla, blússu, náttfata og buxnaefni.
ATH.: AÐEINS ÞESSA 2 DAGA.
GERIÐ GÓÐ KAUP.
^ckkalníðih
Laugavegi 11 — Sími 12707.
Brúnkökukrydd
Hunangskrydd
Allrahanda
Engifer
Kardimommur
Paprika
Múskat
Negull
Pipar
Matarsódi
Hjartasalt
Eggjagult
Súkkat
Möndlur
Hnetukjarnar
Bökunarhnetur
Kókósmjöl
Skrautsykur
Vanillusykur
Lyftiduft
Matarlím
Jarðaberjasulta
Hafið listann með yður þegar þér kaupið í
JÓLABAKSTURINN.
Efnagerðin ILMA
Lokað vegna jorðorfaiar
eftir hádegi í dag.
Bílamálun Halldórs Nikulássonar
hennar
stolt
er
Husqvarna
Rnsqvarna eldavélin er ómissandi í hverju nútíma
eldhúsi — þar fer saman nýtízkulegt útlit og allt það sem
tækni nútímans getur gert til þess að matargerðin verði hús-
móðurinni auðveld og ánægjuleg. Husqvarna eldavélar fást
bæði sambyggðar og með sérbyggðum bökunarofni.
MM VMSCJV5>IT W ® automatic hin fullkomna saumavél með
öllum hugsanlegum möguleikum og tæknilegum nýjungum
— en þó svo einföld í notkun að hvert fermingarbarn getur
lært á hana. Husqvarna-vörur eru sænsk framleiðsla.