Morgunblaðið - 04.12.1962, Qupperneq 23
Þriðjudagur 4. des. 1962
MORGUTSBLAÐIÐ
23
Listafpagnrýnandmn KrúséSf:
eins og asni
sletti halanum
— og listamenn samþykkja
í
Masikva, 3. desemlber — NTB
Moskvublöðin héldu í gær uppi
mikilli gagnrýni á nýtízku stefn-
ur innan máiaralistarinnar. Voru
þau skrif framhald ummxla
Krúséffs, forsætisráðherra, dag-
inn áður, og hefðu öll getað fall-
ið undir fyrirsögn „Pravda,“ sem
sagði: „Takmark listarinnar í
Sovétríkjunum skal vera að
þjóna almenningi og framgangi
konunúnismans.“
Sagt er í greininni í „Pravda"
að Krúséff hafi ráðizt gegn ab-
strakt málaralist, vegna þess, að
ekki sé hægt að sjá, hvort mál-
verkin séu „gerð af mannahönd-
um, eða asni hafi slett halanum
á léreftið."
Orð sin hafði Krúséff látið
falla, er honum var sýnd mál-
verkasýning, sem Moskvudeild
IL-28 nú
fluttar
frá Kúbu
New York, 3. desemiber (NTB).
BANDARÍSKA landvama-
ráðuneytið skýrði frá því í
dag, að ljóst væri nú, að haf-
inn væri brottflutningur sov-
ézku sprengjuþotanna frá
Kúbu.
Þá var einnig tilkynnt, að
nú myndu á nýjan leik hefj-
ast viðræður bandarískra og
rússneskra fulltrúa um endan
lega lausn deilunnar. Þær um
ræður hafa legið niðri um
nokkurra daga skeið, þótt
Anastas Mikoyan, varafor-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
hafi á þeim tíma rætt málið
við Kennedy, Bandaríkjafor-
seta.
Talið hefur verið, að Sovétrík-
in hafi sent a.m.k. 30 sprengjú-
þotur af gerðinni Ilyushin-28 til
Kúíbu. Fyrsta sendingin af þess-
um flugvélum er nú á leið frá
Kúbu. Sagði varalandivarnarráð-
herra Bandaríkjanna, Artihur
Sylvester, við fréttamenn í dag,
að teknar hefðu verið löftmynd-
ir, sem sýndu það. Hefðu mynd-
irnar verið teknar af skipinu
„Okihotsk“, skömimu eftir að það
lagði úr höfn á norðurströnd
Kúbu á laugardag.
Aðrar myndir, sem teknar
hafa verið yfir Kúbu, sýna, að
verið er að taka sundur þær
flugvélar, sem settar höfðu verið
saman á flugvelli nærri San
Julian.
Nototouð er nú liðið á aðra viku
frá því Krúsjeff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, lýsti því
yfir, að sprengj uþoturnar yrðu
íluttar á brott frá Kúbu. Kvað
hann þeim brottflutningi mundu
verða lokið innan f jögurra vikna
frá þeim tíma.
Fulltrúar Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna hittust aftur i
New York í dag. Eitt meginverk-
efni þeirra er talið að komast
að samkomulagi um eftirlit með
því, að ekki verði á nýjan leik
toomið fyrir árásarvopnuim. á
Kiúbu,
sovézka listasambandsins stóð að
Segir enn fremur í greininni,
að listaimenn þeir, er gengu um
salina með forsætisráðherranum,
hafi verið á sama málli og hann.
Á sýningunni eru um 2000 mád-
verk.
Það vakti nolkkra athyigli á
fimmbudag í fyrri viku, að skyndi
lega var hætt við að opna mál-
verkasýningu, er halda skyldi
í Yunost (ÆJsku) hótelinu í suð-
urhluta Moskvu. Þar átti að sýna
abstrakt málverk.
Um hádegisbilið þann dag
voru þátttakendur í óða önn að
koma fyrir veitoum sínum. Þá
kom hins vegar í ljós, að láðst
hafði að fá leyfi til sýningar-
innar. Listamiennirnir, sem flest-
ir eru stúdentar, höfðu þá lýst
því yfir, að þeim væri frjálst
að sýna verk sín, án sérstaks
leyfis, þar eð þeir væru einung-
is álhiugamenn. Bkki munu ráða-
menn hafa fallizt á þennan skiln
ing, og var hætt við sýniniguna.
Jafnframt henni átti að halda
jazzkonsert, en honum var einn-
ig aflýst.
Þessi ráðstöifun, og ummæli
Krúséffs, hafa vakið mitola at-
hygli, þar sem í síðustu viku
varð vart við, að menn héldu,
nýja og frjálsari afstöðu til lista.
Drógu menn þá ályktun af birt-
ing>u ýmissa greina og Ijóða, sem
ekki höfðu áður fengizt birt. Var
aimennt talið, að hér væri um
að ræða nýjan þátt í and-Stalin-
isma núverandi ráðamanna.
Það frelsi virðist þó aðeins
gilda, svo fremi, sem listaverkin
þjóni kommúnismanum og fram
gangi hans, ef marka má um-
mæli Krúséffs, og greinar í blöð-
um í gær.
— Fyrsta lántakan
Framh. af bls. 24.
leit við Englandsbanka, að fá að
gefa skuldabréfin út í formi
handhafaskuldabréfa. Segir blað-
ið miklar vonir bundnar við að
það leyfi fáist. Hins vegar er
bent á í því sambandi, að við
sölu handhafabréfa sé krafizt
4% stimpilgjalds, í eitt skipti
fyrir öll. Er það borið af þeim,
er bréfið kaupir. Leggur „The
Times“ til, að gjaldið sé lækkað
í 2%, eins og var fyrir styrjöld-
ina, og verði framvegis borið af
lántakanda, eins og þá hafi ver-
ið. Er slíkt talið myndu verða til
mikils framdráttar fyrir lána-
starfsemi af þessu tagi í Bret-
landi.
Lotos segir „The Times" m. a.,
í leiðara, sem það ritar einnig
um málið:
„fslenzka skuldabréfalánið,
sem boðið verður út 1 næstu
viku, er fyrsta lán sinnar teg-
undar, sem boðið er út í London
frá stríðslokum. Alþjóðabankinn
hefur gengizt fyrir lántökum í
London á undanförnum árum, en
þau hafa öll verið vel tryggð.
Lántaka íslands 1949 og Noregs
1951 var bundin við vörukaup
í Bretlandi — hið fyrrnefnda var
raunverulega tryggt með veð-
setningu í 10 togurum. Hins veg-
ar er íslenzka lántakan nú að-
eins tryggð taeð gjaldeyrjsstöðu
stjórnar landsins. Það kann því
að sýna, hverju hlutverki London
hefur að gegna á sviði erlendra
skuldabréfalána.
Undanfarin ár hafa þeir, sem
viljað hafa verja fé sínu til lána,
vanizt því að fá í hendur góðar
tryggingar: það mun krefjast
nokkurs hugrekkis af þeirra
hálfu að hætta fé sínu á grund-
velli gjaldeyriseignar erlendrar
ríkisstjórnar. Því má bæta við
(hér, að þess er vænzt, að við
brögðin í Gity verði góð. Því hef-
ur mikið verið haldið á lofti, að
London hafi tækifæri til þess að
verða á ný miðstöð fjármálavið-
skipta í Evrópu. Takist íslandi
ekki að afla nægs fjár .... þeirra
tveggja milljóna sterlingspunda,
sem um er að ræða, þá verða
fjármálamenn í City að endur-
skoða afstöðu sína til þeirrar
hugmyndar, að þeir geti tekizt á
hendur slíkt forystuhlutverk".
— Tító
EINS og skýrt hefur verið frá
í fréttum, >á fórst flugvél frá
Bandaríska flugfélaginu „East
ern Air Lines“ á Idlewild
flugvelli í New York sl. föstu
dag. 25 af 45, sem í flugvél-
inni voru, létu lifið í slysinu.
— Myndin sýnir slökkviliðs-
menm berjast við eldinn.
Aðalfundur Stangaveiðifélags Beykjavíkur
Aðalfundur Stanga-
veiðifélags Rvíkur
AÐALFUNDUR Stanigaveiði-
félaigs Reykjavíkur var haldinn
á sunnudag í Þjóðleikhúskjaliar-
anum. Yar þett fjölmennasti
fundur í sögu félagsins; fundar-
menn á þriðja hundrað.
Eftir að formaður félagsins, Óli
J. Ólason, hafði flutt skýrslu
sína, urðu allmiklar umræður.
Var mikið rætt um það, að fé-
lagið þyrfti að bæta aðstöðu
sína að mun, því að fólöigum
fjöigaði stöðugt og mi'kil sam-
keppni um veiðivötn og ár. Verð
á hvens konar veiðiréttindum hef
ur hækkað ótrúlega ört á sein-
ustu árurn. Stangaveiðifélag
Reykjavíkur er öflugasta stanga
veiðifólag landsins, ag fólags-
menn í því eru nú um 860. Fé-
lagið tapaði aðstöðu á árinu í
Miðfjarðará, en bætti það upp í
Stóru Laxá austur í Hreppum.
Veiðidagar á vegum félagisins
hafa aldrei verið fleiri en á þessu
ári. Þeir voru yfir 2.500.
Formaður félagsins var endur-
kjörinn Óli J. Ólason með 126
atkvæðum, en Friðfinnur Ólafs-
son fékk 82 atkvæði. Aðrir voru
einnig endurkosnir, nema Guðni
Þ. Guðmundsson, sem baðst und
an endurkjöri. Stjórnina skipa
því nú auk formanns: Guðmund
mundur J. Kristjánsson, ritari
Axel Aspelund, gjaldlkeri. Jó-
hann Þorsteinsson, varaformaður
og Gunnar Jónsson, fjármála-
ritari.
Framlhald af bls. 1.
og margir háttsettir hershöfðingj
ar og aðrir ráðgjafar. Er talið að
erindi þeirra sé m.a. að ræða
nánara efnahagssamstarf Júgó-
slavíu og kommúnistaríkjanna í
„Comecon", efnahagsbandailagi
þeirra ríkja.
Tító mun aðeins einu sinni áð
ur hafa farið til Sovétríkjanna,
frá því Júgóslavía var rekin úr
samtökum kommúnistaríkjanna
1948. Fylgdi það ferðalag í kjöl-
far tilraunar ráðamanna Sovét-
ríkjanna til að bæta sambúð land
anna, er deilan milli þeirra hafði
staðið í nokkur ár. Ekki bar sú
heimsókn þó meiri árangur en
svo, að deilan harðnaði aftur
nokkru seinna. Hefur það ástand
ríkt þar til í seinni tíð, að sam-
skiptin hafa tekið á sig meiri vin
áttublæ.
Það þykir nokkrum tíðindum
sæta, að grein sú, sem birt va,r í
Peking í dag, skulí koma fyrir
sjónir daginn, sem fréttist um för
Títós til Moskvu. Hafði þó ekki
ert verið til kynnt um förina áð-
ur.
Þar er vikið að afstöðu Júgó-
slavíu til lausnar Kúbudeilunnar,
og segir m.a.: „að augljóst sé
(m. a. af bæklingi, sem gefinn
var út fyrir nokkru í Júgóslavíu),
að Tító sé gegn kúbönsku bylt-
ingunni, og hafi hann á viður-
styggilegan hátt reynt að grafa
undan henni“.
Greinin í „Alþýðudagblaðinu"
er birt á öftustu síðu, og tekur
yfir meira en hálfa síðuna.
- Umferðarkönnun
Framihald af bls. 2.
svo að þau viti það, í hvaða til-
vikum á að rífa hornið af miðan-
um. Það er einnig mikilsvert, að
miðamir séu varðveittir vel með
an á ferðinni stendur og að þeir
séu ekki bögglaðir, brotnir né
rifnir.
Þegar könnunin fór fram í sept
ember urðu lítilsháttar tafir á
ferðum sumra strætisvagnanna
vegna könnunarinnar, þar sera
vagnstjórarnir útbýttu miðunum
sjálfir. Nú verður starfsliði fjölg
að og má búast við að farþegar
verði ekki fyrir neinum óþægind
um af þessum sökum.
Fólk er beðið um að taka um-
ferðarkönnuninni vinsamlega og
veita eins og áður þá samvinnu
sem með þarf, til þess að hún
takist vel. Umferðarkönnunin í
strætisvögnunum veitir mikils-
verðar upplýsingar, sem stuðla að
hagkvæmari rekstri og bættri
þjónustu þessara þörfu fyrir-
tækja.
(Fréttatilkynning frá
umferðarkönnuninni).
— Indland
Framhald af bls. 1.
Miklar umræður hafa staðið i
dag í þinginu í Pakistan. Kam
einn þingmaður fram með þá
fullyrðingu, að Bandaríkjamenn
hefðu komið sér upp eldflauga-
stöðvum á tveimur stöðum í
Pakistan og væru þær ætlaðar
til árása á Sovétríkin. Hélt þing-
maðurinn, Wali Khan, því fram,
að stöðvarnar væru við Oherat
Og Badlbaer. Utanríkisherrann,
Mohammed Ali, svaraði því til,
að þessar fullyrðingar ættu ekki
við rök að styðjast.
Annar þingmaður sagði, er
deilurnar stóðu sem haest, að nú
væri tími kominn til að Pakistan
segði si-g úr Cento og Seato.
Formaður brezku aðstoðar-
sendinefndarinnar, sem drvalizt
hefur í Indlandi, Duncan Sandys,
lýsti því yfir í dag í neðri deild
brezka þingsins, að hann teldi
nú góðar vonir standa til þess,
að takast mætti að ná samkamu-
lagi um framtíð Kasmír. Kvaðst
hann hafa fulla ástæðu tii að
álíta, að sögusagnir þær, sem
gengið hefðu, þess efnis, að
Pakistan ætlaði að undirrita
friðarsáttmála við Kínverja, ættu
ekki við nein rök að styðjast.
BEZT AÐ AUGLÝSA
í MOKGUNBLAÐINU