Morgunblaðið - 05.12.1962, Blaðsíða 1
24 síður
á Mig-þotum
Eiga enn von
ANASTAS Mikoyan, varafor-«
sætisráðherra Sovétríkjanna,*
kom í síðustu viku til Newí
York eftir 24 daga dvöl hjá/
Castro á Kúbu. I Bandaríkj-J
unum ræddi Mikoyan m. a.
við Kennedy forseta í Was-
hington, og í New York við
17 Thant, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, og Adlai
Stevenson, aðalfulltrúa Banda
ríkjanna hjá SÞ. Mynd þessi
var tetún í skrifstofu 17
Thants þegar þeir Mikoyan
og Stevenson voru að heils-
ast, en a bak við þá standa
17 Thant og Ralph Bunche,
I einn af aðstoðarframkvæmda-
stjórum SÞ.
Vill ekki viðræður
Rawalpindi, 4. des. (NTB)
Sardar Bahadur Khan, leið
togi stjórnarandstöðunnar á
Pakistan-þingi og bróðir Ay-
uhs Khan forseta, krafðist
þess í dag að ríkisstjórnin léti
af fyrirætlunum sínum um að
hefja viðræður við Indrverja
uim Kashmir-deiluna.
Leiðtogi indverskra kommúnista í
liðsbón til Evrópu
þingmönnum, og vitnaði Cfhavan
í skýrslu frá sendiherra Indlands
í Moskvu.
Herlið frá landamærum
Pakistan
Allt er nú með kyrrum kjör-
um á vígstöðvunum að því er
virðist, og sagði Nehru að ekki
væri ljóst hver tilgangur Kín-
verja hafi verið er þeir skutu á
indversku hermennina. Hinsveg-
Framh. á bls. 23.
Adenauer ræðir við jafnaðar-
menn um stjórnarmyndun
Viðræðurnar koma frjálsum
demókrötum á óvart
Nýju Delhi, 4. des. (NTB)
NEHRI7 forsætisráðherra ávarp-
aði í dag þingið í Nýju Delhi.
Sagði hann að ekki bæri að ef-
ast um að Sovétríkin stæðu við
skuldbindingar sínar um að af-
henda Indverjum orustuþotur af
gerðinni Mig-21. Nokkrar yrðu
afhentar í þessum mánuði,
nokkrar á næsta ári, og það,
sem eftir væri, á árinu 1964.
Einnig skýrði Nehru frá því
að kínverskir hermenn hafi
skotið á indverska hermenn við
landamærin eftir að vopnahléi
var lýst yfir, en ekkert mann-
fall hafi orðið. Aðspurður sagði
hann að hugsanlegt væri að
Kínverjar vildu torvelda ind-
verskum hermönnum ferðir til
aðalstöðva sinna eða þá hitt, að
þeir hafi óttazt árás frá Ind-
verjum.
Nehru sagði að nokkrir erfið-
leikar hafi komið í ljós varð-
andi afhendingu orustuþotanna,
ekki vegna Kína, heldur ástands
dns í heiminum yfirleitt í sam-
bandi við Kúbudeiluna o. fl. —
Hinri nýi varnarmálaráðherra
Indlands, Y. B. Chavan, sagði á
þingfundinum að stjórn Sovét-
ríkjanna hefði staðfest að hún
muni aðstoða Indverja við að
koma upp eigin verksmiðju til
að smíða Mig-orustuþotur. Var
þetta svar við fyrirspurn frá níu
tGefið dótt-
ur okkar
nýtt hjarta
Bonn, 4. des. (NTB)
LEIÐTOGAR kristilegra
demókrata og jafnaðarmanna
ræddust við í Bonn í dag um
hugsanlega stjórnarmyndun
flokkanna tveggja. Frjálsir
demókratar, sem gengu úr
stjórn Adenauers fyrir kosn-
ingarnar í síðasta mánuði,
hafa gefið í skyn að þeir
muni einnig hefja viðræður
við jafnaðarmenn með það
fyrir augum að mynda sam-
steypustjórn án aðildar Aden-
auers.
fundur Adenauers með jafnað-
armönnum þeim algjörlega á ó-
vart.
Mesti viðburSur siðan 1949
Enginn flokkur hefur meiri-
hluta á þinginu í Bonn, en þing-
mannatala frjálsra demókrata
nægir bæði kristilegum demó-
krötum og jafnaðarmönnum til
stjórnarmyndunar.
Álitið er í Bonn að kröfur
frjálsra demókrata hafi byggzt
á þeirri trú þeirra að ekki kæmi
til samvinnu Adenauers og Oll-
enhauers, leiðtoga jafnaðar-
manna, en þar hafi þeim skjátl-
azt. öllum stjórnmálasérfræðing-
um ber saman um að ef sam-
vinna takizt milli kristilegra
demókrata og jafnaðarmanna, sé
það mesti viðburður í innan-
ríkismálum Vestur-Þýzkalands
frá því Sambandslýðveldið var
stofnað 1949.
Boðaður var fundur í kvöld
með leiðtogum kristilegra og
frjálsra demókrata. Áður en
fundurinn hófst skýrði talsmað-
ur frjáisra demókrata frá því að
flokkurinn mundi gera Adenauer
ljóst að hann sætti sig ekki við,
að kristilegir demókratar ættu í
samningum við bæði jafnaðar-
menn og kristilega demókrata á
sama tíma.
Framh. á bls. 23
Ben Bella biður um aðstoð
IMeyðarástand yfirvofandi ■ Alsír
Moskvu, 4. des. (NTB)
Rússneski skurðlæknirinn
Vladimir Demikov sagði í
Moskvu í dag að hann ætlaði
á næsta ári að reyna að flytja
mannshjarta úr nýlátnum
manni í hjartasjúkling. Demi-
kov hefur áður flutt hjörtu
milli himda og milli katta með
góðum árangri.
Bkiki kvaðst Demikov hafa
móttekið bréf fná Dananum
Hegelund Jensen og konu
hans, en þau hjónin eiga
þriggja ára dóttur, sem heitir
Anita og þjáist af ólæknandi
hj artasjúkdómi. Sneru hjón-
in sér til sendiráðs Sovétríkj-
anna í Kaupmannahöfn með
bréf, þar sem þau biðja Demi-
kov að gefa litlu dóttur þeirra
nýtt hjarta. Læknirinn viU
ekkert um málið segja fyrr
en hann hefur fengið bréfið.
Aðgerð Demikows er í því
fóligin að hjarta verður tekið
úr látnum manni og tengt
við æðakerfi sjúklingsins.
Verður hjartað lokað í sótt-
hreinsuðu plastíláti, en tengt
við sjúklinginn með mjóum
leiðslum. Ef það kemur í ljós
að hjarað verkar eðlilega eft-
ir tveggja mánaða reynzlu-
tíma, verður tekin áikvörðun
um hvort sjúka hjartað verð
ur tekið burt eða ekki.
Eftir fund forustumanna
kristilegra demókrata og jafn-
aðarmanna, sem stóð í þrjár
klukkustundir, sagði talsmaður
jafnaðarmanna að gott andrúms-
loft hafi ríkt á fundinum og all-
ar aðstæður fyrir framhaldsvið-
ræður góðar. Talsmaður Aden-
auers sagði að engir samningar
hafi verið gerðir, en fundar-
menn hafi verið sammála um að
halda bæri viðræðum áfram.
Frjálsir demókratar hafa unn-
ið að því að koma að nýju á
stjórnarsamvinnu við flokk Ad-
enauers, kristilega demókrata,
en hafa krafizt hagkvæmari
samvinnugrundvallar. Kom þessi
JOSEP Tító, forseti Júgóslavíu,
kom í heimsókn til Moskvu í
dag. Nikita Krúsjeff forsætisráð-
herra tók á móti gestinum á járn
brautarstöðinni og ávarpaði
hann. Sagði Krúsjeff að Sovét-
ríkin óskuðu eftir auknum fjár-
hags-, vísinda- og menningar-
tengslum við Júgóslavíu, og að
aukin samvinna væri til bóta
fyrir öll sósíalísku ríkin.
Krúsjeff kvaðst vona að Tító
Algeirsborg, 4. des. (AP-NTB)
AHMED Ben Bella, forsætis-
ráðherra Alsír, tilkynnti í
kvöld að herlið og Iögregla
landsins hafi upprætt fjölda
uppreisnarflokka í ýmsum
helztu borgum landsins og
notaði heimsóknina til að ræða
við leiðtoga Sovétríkjanna um
samvinnu landanna og sameigin-
leg vandamál.
Tító svaraði á rússnesku og
sagði að heimsókmn ætti að
leiða til aukins skilnings og
bættrar samvinnu landanna. —
Rómaði hann mjög frammi-
stöðu rússneskra vísindamanna,
og sagði að Sovétríkin stæðu
framar öðrum löndum á því
sviði.
handtekið leiðtoga þeirra. —
Hafi flokkar þessir verið
ógnun við löglega stjórn
landsins.
Áður hafði Ben Bella lýst
því yfir í þinginu að við
stjórninni blöstu nú gífurleg-
ir erfiðleikar, og skorað á öll
vinaríki að veita aðstoð.
Tilkynningin um uppreisnar-
flokkana er fyrsta skýringin,
sem gefin hefur verið á því að
hermenn með alvæpni hafa und-
anfarið staðið stanzlausan vörð
á götiun Algeirsborgar. Ekki var
nánari skýring gefin á því hverj
ir uppreisnarmennirnir væru.
Ræða Ben Bella í þinginu fjall
aði aðallega um fjárhagserfið-
leika landsins. „Við höfum ekki
hugsað okkur að breiða yfir erf-
iðleikana, né koma með yfir-
borðs bjartsýni,“ sagði forsætis-
ráðherrann. Hann dró upp rnynd
af Alsír á barmi gjaldiþrots og
skoraði á þjóðina að standa sam-
an á þeim alvörutímum, ^em
framundan væru. f Alsír eru nú
5% mililjón fullvaxta karlmanna
en tala atvinnuleysingjanna og
bágstadidra er 4,6 milljónir.
Moskva mótmælir
í ræðu sinni minntist Ben Bel’la
ekkert á bann það, er rikisstjórn
hans setti nýlega á starfsemi
kommiúnista í landinu. í frétt frá
Moskvu segir hins vegar að í
dag hafi verið birt þar yfirlýs-
ing frá miðstjórn kommúnista-
flokksins um bannið. Segir mið-
stjórnin að bannið hafi verið al-
gjörlega að tilefnislausu og ein-
ungis til þess að veikja lýðræð-
isöflin í baráttunni gegn nýlendiu
stefnunni. Minnir miðstjórnin á
að margir serkneskir kommún-
istar hafi látið lífið í þeim á-
tökum.
Tito í Sovétríkfunum
Moskvu, 4. des. (NTB)