Morgunblaðið - 05.12.1962, Blaðsíða 22
22
MORCV N BLAÐIÐ
MiSvik'udágUr' 5. des. 1962
Fram náði jöfnu við
Þrótt á síðustu mínútu
Og bæði efstu liðin töpuðu
stigum óvænt
Dagskrá handknattleiksmóts-
ins í íyrrakvöld Xeit ekki ófrið-
samleffa út. En leikimir fóru á
annan veg en ætlaS var og næsta
óvæntan. Þannig ógnaöi Þrótt-
ur meisturum Fram og máttu
Framarar. þakka fyrir jafntefiið
á síðustu mínútu. ÍR og Valur
háðu einnig harða baráttu sem
einnig lauk með jafntefli. KR
varð hins vegar að þola ósigur
fyrir Víking og mátti vel fyrir
þakka að hann varð ekki stærri
en raun varð á.
Þróttur—Fram 13-13
Þróttarar náðu fljótt 2 marka
forskoti (2-0) og léku mun betur
en Fram. Reyndar var Fram í
upphafi óþekkjanlegt frá fyrri
leikjum. Að vísu vantaði Guðjón
en engan óraði fyrir að hann væri
liðinu slíkur máttarstódpi sem,
þarna kom á daginn. Leikur liðs
iras varð hálf sundiurlaus og ein-
kennilegur. Fram náði þó að
ftalíu
lokaö
Erlendum knattspyrnumönn
um verður sennilega meinað
að undirrita atvinnusamning
við ítöLsk knattspyrnufélög
eftir 30. apríl 1963.
Það er ítalska blaðið Corr-
ieire della Sport sem skýrir
frá þessu og blaðið telur að
bannið muni vara til ársins
1967 að minnsta kosti. Bannið
mun ekki taka til þeirra er-
lendra knattspymumanna
sem þegar eru á samningi við
ítölsk félög.
Nú eru 52 erl. knattspymu
menn i atvinnu hjá ítölskum
liðum.
jafna fyrir hlié og þá var stað-
an 6-6.
Síðari hlálfleikur var ein sam-
felld tauigaspenna. Þróttur korrast
í fyrstu yfir en Fram jafnaði
og náði nú tvívegis forystu, síð-
ast 12-10 en Axel jafnaði fyrir
Þrótt. Og öllum á óvart komst
svo Þróttur yfir 13-12 en Ingólf-
ur krækti í annað stigið fyrir
Fram er fáar sekúndur voru til
leiksloka og voru þá Þróttarar
einum færri á vellinum vegna
brottvikningar eins leikmanns.
Þróttur sýndi þama mikinn
sigurvilja og baráttuhug. Það er
fyrst og fremst dugnaður og vjlji
sem skapar árangur hjá Þrotti,
á tæknina skortir svolítið enn.
Beztir voru Guðmundur í mark-
inu og Axel Axelsison.
Fram liðið var máttlaust mið-
að við ýmsa fyrri leiki. Það
vantaði skipulagið og leikgleð-
ina. Beztir voru Karl Ben. og
Hilmar Ólafsson.
Víkingur—KR 19-15
Þessi leikur var allur heldur
daufur. Vikingar höfðu þegar
frá upþhafi undirtök og héldu
þeim, en það var þó þeirra
Ijóður að láta KR-inga alitaf
halda í og jafnvel ógna á einum
tíma. í háMteik stóð 9-6 fyrir
Viking og undir lokin tryggðu
Víkingar sér eftir nókkrar svift-
ingar og spenrau, öruggan sigur
19 - 15.
Vikingsliðið vantar nú þá
snerpu og það sameiningaraiffl
sem þarf til þess að verða gott
lið. Það er handahófsbragur á
leilk og tilraunum öllum og þá
verða úrslitin lífca handaihófs-
kennd, eins og félagið hefur feng
ið að kenna á.
Hjá KR er reyndar sama sag-
an. Gömlu stjörnurnar, sem enn
leika með, eru svipur hjá sjón
miðað vdð fyrri tíma. Aðeins
Karl heldur sinni getu og hann
var hættulegasti maður Mðsins —
bezti maður vállarins. En sigur
Vikings var verðskuldaður.
ÍR—Valur 16-16
ÍR-ingar hafa kannski ekki
búizt við miklu af Valsmönnum,
2. deildar liði. En þá fengu þeir
líka að kenna á þeirri skoðun
sinni. Valur hafði forystu allan
leikinn og í hálfleik var stað-
an 8-7 fyrir VaL
Og svo fór jafnyel að Vals-
menn komust í 15-12 og sigur
VaLs blasti við. En góður enda-
sprettur færði ÍR jafnteflið og
það var Gunnlaugur sem uradir-
strikaði það á síðustu minútu —
16-16.
Sem fyrr er Gunnlaugur mátt-
arstólpi ÍR-liðsins en leifcur liðs
ins er að batna þrátt fyrir á-
berandi galla. Valur er aldrei
auðvelt lið að sigra. Menn eru
jafnir en enginn sérstakur. Það
er seiglan sem skapar árangur-
inn.
Þórður skorar fyrir ÍR í leiknum gégn Val. (Ljósm.: Sv. Þ.)
IR-ingar áttu fleiri Islands-
meistara en nokkurt annaö féfas
og settu öll ísl.met í frjálsum
iþróttum og sundi
Norðmenn í lands-
leikjaför til Asíu
HINN góði árangur sem norsk-
ir knattspymumenn hafa náð í
landsleikjum við Svía í haust
hefur þegar gert vart sig til góðs
fyrir norska knattspymu. Þann-
ig hafa Norðmönnum nú horizt
tilboð frá Júgóslövum um lands-
leiki heima og heiman 1963.
Hefur framkvjstj. sambandsins
norska skýrt NTB frá þessu og
einnig því að fyrir utan hina
föstu landsteiki næsta ár verði
„dagskrá" landisliðsins spennandi
og nýstárleg. Verður sennilega
af langferð „eftir beztu sænsku
uppskrift" eins og hann orðaði
það. Sendiráð Noregs í Asíu og
Afríku hafa fengið óskir um að
hlutast til um ferð norska lands
liðsins þangað og verður senni-
lega af förinni eftir haustleikina
heima fyrir.
Ragnar Larsen hefur tekið við
þjálfun norska landsliðsins og
segir hann liðsmenn þegar við
ætfingar.
Krossviðu
Simba 4—5 og 10 m/m stærð 122x220 cm
Beyki 3 og 4 m/m — 122x220 cm
nýkomin. (
HJÁLMAR ÞORSTEINSSON & CO. H.F.
Klapparstíg 28 — Sími 11956.
AÐALFUNDUR íþróttafélags
Reykjavíkur var haldinm að
Café Höll mánudaginn 26. nóv.
sl. Form. félagsins Sigurjón Þórð
arson setti fundinn, minntist
stofnanda félagsins Andreas J.
Bertelsen, sem lézt á árinu, og
flutti skýrslu stjórnarinnar.
Rakti hann í stórum dráttum
starfsemi félagsins á árinu, sem
var bæði fjölþætt og blómlcg.
íþróttastarfsemin hjá félaginu
var mjög fjölþætt. Félagið starf-
ar í 7 deildum og var hin síð-
asta þeirra Lyftirogadeild stofnuð
í Iok síðasta starfsárs.
íþróttaafrek ÍR-inga urðu
mörg og sum mjög góð. Hefur
félagið sennitega aldrei verið
sterkara íþróttatega séð en nú.
Studdi fonmaðurinn það með
nokkrum dæmum.
Frjálsar íþróttir
Frjálsíþróttamenn félagsins
hafa sett öll ístenzk met sem
sett hafa verið á árinu í þeirri
grein, 10 talsins. Þrír af fjórum
EM förum íslands voru ÍR-ingar
og félagsmenn unnu fleiri meist-
arastig á öllum meistaramótum
í frjálsum íþróttum en nokkurt
annað félag eða héraðssamiband.
ÍR-ingur vann svo m. a. forseta-
bikarinn 17. júní.
Körfuknattleikur
Körfuknattleiksdeild félagsins
gekk nær óslitna sigurgöngu. Á
íslandsmótinu vann ÍR sigra í
fjórum flokkum af fimm og
sömuleiðis eru ÍR-ingar Reykja-
víkurmeistarar í greindinni. —
Meistaraflokkur félagsins átti 7
af 12 landsliðsmönnum sem til
Norðurlandamótsins fóru.
Sund
Sundfóik félagsins myndaði
einnig topp afreksmanna íslands
í sinni grein. Tveir þátttakendur
íslands á EM voru ÍR-ingar og
sundfólk ÍR er eitt um það að
hafa sett íslandsmet á Mðnu ári.
Guðmundur Gíslason hefur t.d:
sett 8 met það sem af er árinu
en undanfarin 4 ár hefur hann
fengið gullmerki ÍSÍ fyrir 10
met eða fteiri og hefur enginn
ísl. íþróttamaður unnið slík meta-
afrek. Hörður Finnsson ruddi og
íslandsmetum og setti jafnframt
Norðurlandamet sem enn standa.
Sundfólkið vann íslandsmeistara
tign í nafni SRR í öllum ein-
staklingsgreinum.
Skíðaiþróttir
Skíðadeild félagsins beindi sín-
um aðalkröftum að byggiragu
skíðaskála í Hamragili Og var
hann opnaður á afmæli félagsins
í marz. Frá opnunardegi til vetr-
arloka hafa yfir 2000 manns
heimsótt skálann m. a. forseta-
hjónin sem dvöldu þar í þrjá
daga og fóru miklum viðurkenn-
ingarorðum um byigginguna og
starf félagsins. Byggingin er og
mesta framkvæmdaafrek félags-
ins á undanförnum árum. Félags-
menn sjálfir hafa lagt fram sem
næst 600 þús. kr. í sjálffboða-
vinnu en heildarkostnaður við
skálann er nú 1,4 millj. króna.
En auk þessa unnu sbíðamenn
félagsins mikil og góð íþrótta-
afrek. Þeir unnu allar sveitar-
keppnir í svigi hér syðra og áttu
svig- og brunmeistara Rvíkur og
einnig Islandsmeistaratitilinn, er
féM Reykvúkingum í skaut.
Sundmót skólanna
HIÐ fyrra sundmót skólanna fer
fram í Sundhöllinni 6. des nk.
ÍFR sér um mótið. Mótinu verð-
ur eins hagað og fyrr að unglinga
bekkir (1. og 2. bekkur unglinga
mið- eða gagnfræðaskólar) keppa
í unglingaflokki en eldri nemend-
ur (sem lokið hafa unglingaprófi
eða samsvarandi prófi) keppa í
eldra fflokki.
Handknattleikur
Handknattteiksdeild félagsins
gekk erfiðlegast en átti þó góða
flokka í flestum aldursflokkum.
Á Islandsmótinu hafnaði meist-
araflokkar félagsins í 3. sæti.
Fimleikar
Fimleikadeildin beindi starfi
sínu að eflingu drengjaflokks
sem vakið hefur óskipta athygli
og verið fimleikaíiþróttinni góð
auglýsing.
Almennt félagsstarf
Miklu fé hefur verið varið til
íþróttastarfseminnar af hálfu fé-
lagsins, þótt vissulega hefði það
þurft mun meira fjármagn til
starfsemi sinnar. í þessu sam-
bandi þakkaði formaður hinuim
fjötonörgu velunnurum félagsins
sem gefið hafa því stórgjafir og
m.a. gert því kleift að hafa hér
erlenda úrvalsþjálfara í frjálsum
íþróttum.
Formaður minntist á 55 ára
afniælishátíð félagsins en þá
voru haldin afrr.ælismót í öllum
greinum sem sýndu vel afreks-
getu ÍR-inga.
Reynir Sigurðsson gjaldkeri
las og skýrði reikninga félagsiras
er síðan voru samþykktir.
Stjómarkjör
Sigurjón Þórðarson baðst ein-
dregið undan endurkjöri enn-
fremur Atli Steinarsson sem ver-
ið hefur í stjóm félagsins um 18
ára skeið svo og Örn Eiðsson sem
starfað hefur að stjórn félagsins
13 ár. Þessum mönnum var ölluim
þökkuð ágæt störf 1 þágu félags-
ins.
Hina nýkjörnu stjórn skipa
Reynir Sigurðsson kaupmaður
form., Einnbjöm Þorvaldsson
skrifstofustjóri, Haukur Clausen
tannlæknir, Einar Ólafsson í-
þróttakennari og Vignir Guð-
mundsson blaðamaður. Vara-
stjórn: Guðmundur Gíslason
bankaritari og Margrét Lárus-
dóttir bankastarfsmaður.
Fundurinn var mjög vel sóttur
og var rætt af fjöri uim skýrslu
Oig reikninga og framtíðarstarfið,
Rikti eining um eflingu félagsins.