Morgunblaðið - 18.12.1962, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.12.1962, Qupperneq 12
12 MORGVTSBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. des. 1962 lOíppmM&foifo Ctgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavlk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 65*00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 4.00 eintakið. DEILUR UM KJÖRIN Ij’ins og útreikningar þeir, sem Efnanagsmálastofn- tmin hefur gert, bera með sér, hafa kjör batnað verulega að undanförnu og eru nú 10% betri en 1958. Þannig hafa kjarabæturnar orðið örari en menn þorðu að vona, þegar Viðreisnarráðstafanirnar voru gerðar, en þá var búizt við töluverðri m kjaraskerðingu fyrsta árið og ætlað, að eitt til tvö ár kynni að taka að vinna þá kjaraskerðingu upp, þar til verulegar kjarabætur færu að fást. Reynslan varð sú, eins og kunnugt er, að kjörin rým- uðu sama og ekkert á árinu 1960 og tóku þegar að batna, er kom fram á árið 1961. Menn finna það líka bezt sjálfir um allt land, að mikið er um peninga og velta hefur aldrei verið eins mikil í þjóð- félaginu eins og nú. Það get- ur hver maður séð, ef hann gengur til dæmis um verzlun- argötu í Reykjavík nú fyrir jólin. Auðvitað hefur ekki nema hluti af þeim kauphækkun- um, sem urðu í sumar og haust, verkað sem kjarabót. Það vissu allir fyrirfram, að jafnmiklar og kauphækkan- imar voru, þá hlutu þær að leiða til allmikilla verðhækk- ana, sem gleyptu hluta kaups ins. Skynsamlegra hefði verið að stilla kauphækkunum í hóf, því að auðveldara hefði þá verið að hafa hemil á verð- laginu. Ánægjulegt er hinsvegar, að töluverður hluti kaup- hækkananna kemur fram sem kjarabót, þótt nokkuð mismunfndi sé, því að kaup- hækkanirnar í sumar voru mismunandi miklar. Einstaka félög hafa ekki fengið kauphækkanir. Þannig er til dæmis um starfsfólk í veitingahúsum, sem nú hyggst ná sambærilegum kauphækkunum og aðrir hafa fengið, og er það ekki nema eðlilegt. Verkfall það, sem starfs- fólk í veitingahúsum hefur boðað, er ekki byrjun á nýju kapphlaupi um kaupið, held- ur til að afla sömu kjarabóta og aðrir hafa þegar fengið. Þess vegna standa vonir til þess að sú kaupdeila leysist greiðlega. HLUTVERK NATO lláðherrafundi Atlantshafs- bandalagsins er nú lokið. Á fundinum ríkti eining og bjartsýni, og í yfirlýsingu hans er lögð áherzla á þýð- ingu þess, að ráðherrar að- ildarríkjanna hafi náið sam- band sín á miili og ráðherra- fundir verði tíðari í framtíð- inni en hingað tiL Festa Bandaríkjamanna í Kúbudeilunni og stuðningur annarra bandalagsríkja við aðgerðir þeirra hafa- valdið því, að miklu betra ástand er nú í alþjóðamálum en um langt skeið og full ástæða til bjartsýni. Menn hafa áttað sig á því, að gegn ofbeldismönnum þýðir ekki undanlátssemi á svipaðan hátt og var á árun- um fyrir styrjöldina, þegar Bretar og Frakkar hopuðu stöðugt fyrir yfirgangi Hitl- ers og gerðu Munchen-samn- ingana frægu. Afstaða Breta og Frakka þá leiddi til hörmulegrar heims- styrjaldar, og lýðræðisþjóð- irnar ætla ekki að láta slík mistök henda sig á ný. Þess vegna standa þær gegn of- beldinu, svo að það fær engu áorkað. Jóhann Hafstein banka- stjóri flutti nýlega ræðu um starfsemi Atlantshafsbanda- lagsríkjanna. Hann komst þar m.a. svo að orði: „Ég tel víst, að Atlants- hafsþandalagið verði á kom- andi tímum sterkasta aflið í vestrænni samvinnu ^til þess að samhæfa hin pólitísku sjónarmið, til verndar frelsi einstaklinga og þjóða, til þess að lifa í friði án ótta við of- beldi og tortímingu". Það er með hliðsjón af þessu eðli Atlantshafsbanda- lagsins og þessum tilgangi þess, sem íslendingar vilja veita því öflugan stuðning og þeim mönnum fækkar, sem aðhyllast hugsunarháttinn, sem ríkti í Munchen á sínum tíma. SÍLD SUNNAN- LANDS Cíldveiðin sunnan lands og ^ vestan virðist ætla að verða með ágætum, ef gæftir verða sæmilegar. Hvenær sem gefur á sjó koma bátam- ir með ríflegan feng að landi. Eru þessar veiðar orðnar mjög þýðingarmikill þáttur í atvinnurekstri íslendinga og virðast jafnvel ætla að verða árvissari en síldveiðin norðan lands. Af þessu leiðir að síldar- iðnaður sunnan lands og vestan hlýtur stórum að auk- asl. ;, Enda þótt deilur sjómanna Kúbufangarnir látnir lausir gegn greiðslu í lyfjum og barnafæðu New York, 17. des. (NTB) SAMNINGAR hafa náðst um „kaup“ á 1200 föngum, er hef Castros tók við misheppnaða innrásartilraun flóttamanna í apríl 1961. Hefur Kúbustjórn fallizt á að láta fangana lausa gegn skipsfarmi af lyfjum og sérstakri matvöru handa börnum. Samningar um fanga-„kaupin“ hafa staðið yfir allt frá því inn- rásartilraunin fór út um þúfur. Skipuð var nefnd þekktra banda- rískra borgara til að vinna að lausn fanganna frá Kúbu, en í nefnd þessari áttu saeti, meðal annarra, frú Eleanor Rooseveit, ekkja fyrrverandi Bandaríkja- forseta, en hún er nýlega látin, Milton Eisenhower, bróðir fyrr- verandi forseta, og Walther P. Reuther, forseti verkalýðssam- bands starfsmanna í bílasmiðj- um (UAW). Mánuði eftir að innrásin var barin niður, þ.e. hinn 20. maí, tald-i nefndin að Samkomulag væri komið um að fangarnir yrðu framseldir gegn því að sendar yrðu 500 dráttarvélar frá Bandaríkjunum til Kúbu. Ekki reyndist þetta þó rétt, því 25. júní 1961 slitnaði upp úr samn- ingum. Bandaríska stjórnin tók það fram strax í upphafi að samninganefndin væri ekki á hennar vegum, heldur algjört einkaframtak. 62 milljónir dollara Eftir að slitnað hafði upp úr samningum, fékk borgaranefndin lögfræðing einn í New York, James Donovan, til að halda við- ræðum áfram. Lítið hefur frétzt af viðræðunum annað en það, að Castro mun hafa krafizt 62 millj. dollara fyrir að láta fangana lausa. Bandaríski Rauði krossinn til- kynnti í dag að hann hafi tekið á leigu flutningaskipið „African Pilot“ til að flytja lyfin og barnamatinn til Kúbu. Skipið Varð bráð- kvaddur á sjónum AKRANESI, 17. des. — Aðfara- nótt sl. sunnudags varð maður bráðkvaddur um borð í Haraldi I. úti á Jökultungum. Varð það vélstjórinn, Hallvarður Einars- son, 45 ára gamall, til heimilis á Vesturgötu 87 hér í bæ. Búnir voru þeir að kata nótinni, snurpa og draga hana, og hörðu siglt í tvo og hálfan tíma heim á leið. Hallvarður var staddur niðri í káetu kl. 1.40 eftir miðnætti, þegar hann kenndi skyndilega lasleika og andaðist skömmu síð- ar. — Hallvarður heitinn var kvæntur Aðalheiði Arnfinnsdótt- ur. Attu þau sex börn: Ragnar 22 ára, Guðrúnu, sem er tvítug og gift, Jón Sævar 15 ára, Höllu Guðrúnu 10 ára, Arnfinn 7 ára og Einvarð 6 mánaða. — Sjó- mennskan var ævistarf Hall- varðs heitins, frá því hann komst á legg. — Oddur. og útvegsmanna um kjörin hafi hindrað að síldveiðar hæfust á eðlilegum tíma, virð ist þó sem hægt verði að jafna metin, ef sæmilegar gæftir verða, þannig að síld- veiðin verði ekki minni en síðasta ár. Ef aflabrögðin verða sæmileg við aðrar veið- ar, má því gera ráð fyrir að efnahagsástandið verði gott á næsta ári, ekki síður en því sem nú er að enda. fer nú til Baltimore í Maryland- i en ekki hefur verið látið uppi ríki til að lesta „lausnargjaldið", I hvenær það siglir til Havana. SL. SUNNUDAG var kveikt á jólatré því, sem óslóborg gaf Reykjavik, og sett hefur verið upp á Austurvelli. Er þetta í 10. skipti, sem Reykjavík berst slík gjöf. Kveikt var á trénu við hátíðlega athöfn. Sendiherra Norð- manna, Johan Cappeien, og borgarstjórinn í Reykjavík, Geir Hallgrímsson, fiuttu ávörp. 13 ára dóttir sendiherrans, Astrid Cappelen, kveikti á Ijósunum. Lúðrasveit Reykjavíkur lék og Dómkórinn söng. — Fjöimennt var við athöfnina. A myndinni eru sendiherra Norðmanna og dóttir hans, og horfir sendiherrann á jólatréð, er dóttir hans kveikir á því. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. Hér er Hafsteinn Baldvinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, að veita móttöku jólatré því, sem vinabær Hafnarfjarðar, Freder- iksberg, hefur gefið hingað. Ræðismaður Dana hér á landi, Ludvig Storr, afhenti tréð og var kveikt á því kl. 4 sl. sunnu- dag. Tvær lúðrasveitir léku við athöfnina og Karlakórinn Þrestir söng. Allmikill fólksfjöldi — einkum þó börn — var á Thors-planinu í Kafnarfirði í gær þegar kveikt var á trénu. Ljósm. Mbl.: Sv. í».

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.