Morgunblaðið - 08.01.1963, Side 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. Jatiúar 1963
Guðrún
varð nr. 3
A SUNNUDAGINN voru
kunngerð úrslit í feg-
urðarsamkeppni Norðurlanda
sem fram fór á vegum finnska
sjónvarpsins í Helsingfors.
Finnska stúlkan Kaarina Les-
kinen var kjörin „fegurðar-
drottning Norðurlanda". Önn
ur verðlaun hlaut sænska
stúlkan Monica Ragby og í
þriðja sæti varð Guðrún
Bjarnadóttir. I fjórða sæti
varð norska stúlkan en Auð-
ur Aradóttir hlaut 5. sætið.
Á myndinni hér að ofan sést
fegurðardrottning Norður-
landa lengst t.v. Þær eru að
óska henni til hamingju með
sigurinn Guðrún Bjarnadótt-
ir, lengst t.v. og Monica Rag-
by sem varð 2. í keppninni.
Alls tóku 10 stúlkur þátt í
keppninni, tvær frá hverju
Norðurlandanna.
Verður fiskimjölsfram-
leiðsla óraunhæf?
100 þús.
tunnur um
helgina
Lóðað á mjög
mikla sild
ÁGÆT síldveiði var um helgina.
Aðfararnótt sunnudags fengu 65
skip 75.800 tunnur út af Krisu-
víkurbergi.
Aðfararnótt mánudags fengu
23 skip 21.750 tunnur 10—12
mílur suður af Krísuvíkurbergl
og 7 skip 4.300 funnur 8 mílur
norð-vestur af Geirfuglaskeri —
26 þúsund tunnur.
Veiðin þá nótt var því alls tæp
ar 102 þúsund tunnur.
Löndunarstövun er nú á öllum
höfnum á síldveiðisvæðinu, sums
staðar allt að viku.
Síðustu fréttir.
Margir bátar voru á Grinda-
tunnur og Guðmundur Þórðar-
höfðu fengið síld, Hafrún 1000
víkurdýpinu í gærkvöldi. Tveir
son 1000. Nokkrir höfðu fengið
slatta. Fyrst um kvöldið leit út
fyrir góða veiði, en síldin dýpk-
aði á sér. Búizt er við góðri
veiði með morgninum. Lóðað hef
ur verið á mikla síld þarna.
í Jökuldjúpi var einnig lóðað
á mikla sild, en húrt var á miklu
dýpi. Fáir bátar voru á þar.
Ágætt veiðiveður var á báð-
um síldarsvæðunum í gærkvöldú
Uppgötvun bakteria, sem breyta oliu
i eggjahvitu, kann oð valda byltingu
i fóðurframleiðslu
Á BLAÐMANNAFUNDI í ríkis-
útvarpinu í gærkvöldi minntist
Arinbjörn Kolbeinsson,, læknir,
á nýja uppgötvun á svokölluðum
olíubakteríum, sem hafa þann
eiginleika að þær geta breytt
olíu í eggjahvítuefni. Taldi Arin-
björn þessa uppgötvun meðal
þess merkasta, sem gerzt hefði
í GLIJGGA Morgunblaðsins eru
nú sýndar nokkrar vatnslita-
myndir gerðar af fröken Kristj-
önu Markúsdóttur.
Fröken Kristjana var alkunn
kona í Reykjavík fyrir hannyrð-
ir sínar og listsaum, en hún mál-
aði einnig, einkum blómamyndir
og lét talsvert eftir sig í þeim
efnum. Þær vatnslitamyndir sem
nú eru sýndar, mun frk. Kristj-
ana hafa málað er hún var ná-
lægt áttræðu, en hún andaðist
18. apríl 1061 um nírætt.
á sviði bateríurannsókna og líf-
eðlisfræði á sl. ári, og mundi
hún sennilega geta leyst nær-
ingarvandamál mUljóna manna
í hinum vanþróuðu löndum.
Þessi baktería gæti breytt jarð-
olíu, steinolíu, benzíni og jafn-
vel asfalti í eggjahvítuefni með
miklu ir.airi hraða en áður hefði
þekkzt í sambandi við slíkar efna
breytingar, og væri framleiðsl-
an miklu ódýrari en með eldri
aðferðum. Úr 2 kg. af hráolíu
gætu bakteríur þessar framleitt
Bréf frá frú
Lelia Stef ánsson
Minningarathöfn
um Eggert í
Dómkirkjunni
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi þréf frá frú Lelia,
eiginkonu Eggerts Stefánssonar,
sem lézt fyrir skömmu á Ítalíu:
„Schio, 2. janúar.
Lelia þakkar af hrærðum huga
þeim vinum, sem umluktu
Eggert kærieika síðustu daga
hans.
Eggert naut í kyrrlátum fögn-
uði allra jólakveðjanna frá kær-
ustu vinum sínum. Þær urðu til
þess að auka hina miklu þrá hans
eftir að snúa aftur til ættjarðar-
innar, íslands.
Þakkir og fyrirgefið að ég get
ekki skrifað meira.
Lelia Stefánsson."
★
Eggert heitinn mun þegar hafa
yerið jarðsettur á Ítalíu, þótt ætt-
ingjum hans og vinum hér hafi
ekki borizt fregnir af þvi enn.
Minningarathöfn verður haldin
um hann í Dómkirkjunni, en
ekki er aíráðið, hvenær það verð-
ur.
1 kg. af eggjahvítu, sem jafn-
gilti eggjahvítuinnihaldi í 5 kg.
af nautakjöti. Olían til framleiðsl
unar kostaði aðeins 2 cent, eða
86 aura, og taldi Arinbjörn að
þetta mundi hafa mikil á.hrif á
eggjahvítuframleiðsluna í heim-
inum, a.m.k. á ódýrari tegund-
um.
Þar sem þessi nýja uppgötv-
un, ef hún reynist hagnýt, kynni
að hafa mikil áhrif á framleiðslu
íslendinga á egggjahvíturíkum
fóðurefnum úr fiskúrgangi, svo
sem síldar- og fiskimjöli, og radd
ir hafa heyrzt um að hefja bæri
framleiðslu á eggjahvítuefnum
úr fiskúrgangi hér, sneri Mbl.
Framhald á bls. 11.
Bœndur verða að
bera krapavafn
Miklar frosthörkur i Eyjafirði
Kifsá, Kræklingahlíð, 7. janúar.
ÓVENJU rniklar og langvarandi
frosthörkur hafa verið hér í Eyja
firði að undanförnu. Snjólaust er
hér með öllu og gengur frostið
því mjög djúpt í jörð.
Smálækir eru víða notaðir sem-
vatnsból hér í sveitum og eru
þeir nú flestir botnfrosnir og því
víða vatnslaust með öllu bæði
fyrir fólk og fénað.
Vélar allar eru erfiðar í gang-
setningu og því eina úrræðið að
„Kínverji“ í
andlit telpu
Akranesi, 7. janúar.
BRENNA var haldin að Miðgarði
á Innnesi á þrettándadagskvöld.
Meðan á brennunni stóð henti
strákur logandi kínverja í and-
litið á telpu.
Hún heitir Guðríður Birna, 6
ára, Ragnarsdóttir Leóssonar að
Sandabraut 6.
Kínverjinn lenti á vörum henn
ar og blæddi úr, en hvar ,hefði
strákurinn verið ef lögandi kín-
verjinn hefði hitt í augun.
bera vatnið. Er það all erfitt og
tímafrekt, þar sem stór kúabú
eru og oft langt að sækja vatnið.
Sums staðar fæst ekki annað en
krapavatn, sem síast upp um
sprungur í svellin. Eldri menn
muna ekki eftir að slíkt hafi
komið fyrir hér síðan 1918.-
Eru margir bændur uggandi
um, að þessa gæti mjög á gras-
sprettu á komandi sumri. Frostið
hefur verið milli 10 og 20, en
þó nær 20 stigum nær óslitið á
aðra viku. Sem stendur er hér
10 stiga frost, en í dag er skýjað.
— Víkingur.
Jólin rotuð í
Hafnarfirði
ÞAÐ er gamall siður að gera
sér dagamun á þrettándakvöld,
og er það kallað „að rota jólin“.
Unglingar í Hafnarfirði hafa
sennilega viljað fylgja þessum
sið eftir, því að á tíunda tíman-
um á þrettándadagskvöld söfn-
uðust allmargir þeirra saman I
Strandgötu og höfðu ærsl I
frammi. Alls konar drasl var bor-
ið eða dregið fram á strætið,
benzíni hellt yfir og reynt að
kveikja í. Sökum þess að lög-
regluþjónar voru nærstaddir,
tókst unglingunum ekki að gera
neina brennu að ráði, því að
lögreglan slökkti jafnóðum í og
fjarlægði brennið. Þá ýttu ungl-
ingarnir bílum út á akbrautina
o.s.frv., en segja má, að tekizt
hafi að dreifa hópnum upp úr
kl. tíu.
Einar
Benediktsson
Eyjólfur Konráð
Jónssoq
Ráðstefna Heimdallar um
samvinnu Evrópuríkja
í DAGkl. 18 hefst í Sjálf-
stæðishúsinu ráðstefna Heim
dallar um „Pólitíska og efna
hagslega samvinnu Vestur-
Evrópuríkjanna“. Málshefj-
endur eru Eyjólfur Konráð
Jónsson, ritstjóri og Einar
j Benediktsson, hagfræðingur.
Þegar frummælendur hafa
lokið erindum sínum, snæða
þátttakendur saman kvöldverð,
en síðan verða almennar um-
ræður.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að skrá sig hið fyrsta í
skrifstofu Heimdallar í Valhöll
(sími 17100),