Morgunblaðið - 08.01.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.01.1963, Blaðsíða 12
12 MORCVNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 8. Janúar 1963 f§trripKiM&Mt!i Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson, Sigurður Bjarnason frá Vigur, Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakið. GÖNGUM HÆGT UM GLEÐINNAR DYR 't’slendingar eru háðari út- *■ flutningsframleiðslu sinni en flestar aðrar þjóðir. Þess vegna er það ákaflega þýð- ingarmikið, að þau atvinnu- tæki, sem fyrst og fremst framleiða til útflutnings, séu varanlega rekin og á heil- brigðum grundvelli. Um þessi áramót horfir ó- venju vel um rekstur fiski- skipaflota okkar. Undanfarin ár hefur það oft dregizt vik- um saman, að samningar næð ust um kaup og kjör á flot- anum. Að þessu sinni mun samkomulag vera fyrir hendi í flestum verstöðvum um þessi atriði. Stór hluti vél- bátaflotans stundar síldveið- ar hér við Suðvesturland og hafa aflabrögð á þessum veið- um verið ágæt undanfamar vikur. Er hér um að ræða stórkostlegan búhnykk, sem á ríkan þátt í að auka útflutn- ingsframleiðsluna og draga vaxandi björg í þjóðarbúið. Ef vetrarsíldveiðamar verði árviss atvinnugrein, sem horfur eru nú á, í skjóli nýrrar tækni, þá mun það hafa stórfelld áhrif á allan þ j óðarbúskapinn. Þorskvertíð er einnig hafin í allmörgum verstöðvum og má gera ráð fyrir að innan skamms tíma verði allur fiski skipaflotinn kominn á miðin, ýmist til síldveiða eða þorsk- veiða. Þorskveiðar vetrarver- tíðarinnar eru að sjálfsögðu mjög mikilvægar, þar sem fiskiiðnaður landsmanna byggist að verulegu leyti á þeim. Framleiðslutækin em þann ig í fullum gangi, sjómenn- irnir og fólkið í landi hefur mikla og góða atvinnu, þjóð- in hefur eignazt allgildan gjaldeyrisvarasjóð, allar búð- ir era fullar af varningi og kaupgeta almennings er mik- il og vaxandi. Þetta er vissulega gleðileg staðreynd, sem allir hljóta að fagna. Framleiðslan er lífæð efnahagslífsins. Þróttmikil og blómleg framleiðslustarfsemi þýðir velmegun og góðæri í landinu. En við verðum að ganga hægt um gleðinnar dyr og gá að okkur, eins og hið forna máltæki segir. Við verðum að gæta þess, að draugur verð- bólgunnar skjóti ekki á ný upp kollinum og ræni fólkið árangri viðreisnarinnar. — Reynsla undanfarinna ára hlýtur að hafa kennt íslend- ingum að gæta sín fyrir hinu óheillavænlega kapphlaupi milli kaupgjalds og verðlags, sem síðan hefur í för með sér verðþenslu og verðbólgu. Allar stéttir hins íslenzka þjóðfélags geta glaðzt yfir hinni miklu framleiðslu og bættu aðstöðu þjóðarinnar út á við og inn á við. En það er ekki nóg að gleðjast yfir þessu og fagna bættum hag og almennri velmegun í land- inu. Allir ábyrgir Islendingar verða að sameinast um það að standa trúan vörð um ís- lenzku krónuna og koma í veg fyrir að ný skörð verði í hana höggvin og að verð- bólgan flæði á ný um allar gáttir. ÆSKAN OG STARFS- FRÆÐSLAN TVTokkur undanfarin ár hefur ' svokallaður starfsfræðslu dagur verið haldinn hér í Reykjavík og nokkrum öðr- um kaupstöðum öðrum. Til- gangur starfsfræðslunnar er að fræða æskuna um starfs- möguleika hennar og aðstoða hana við að velja sér lífsstarf. Jafnframt stefnir starfsfræðsl an að því að beina æskvmni að hollum og nauðsynlegum verkefnum í þágu þjóðfélags hennar. Starfsfræðsludagarnir hafa verið mikið sóttir af ungu fólki. Eitt gleggsta dæmið um áhuga unglinganna er aðsókn in að starfsfræðsludegi sjáv- arútvegsins, sem haldin var hér í Reykjavík í febrúar í fyrra. Veður var eins óhag- stætt þennan dag og hugsast gat, stórhríð með frosti og kulda. Engu að síður sótti fjöldi unglinga starfsfræðsl- una í Sjómannaskólanum. Starfsfræðslan er nauðsyn- leg og sjálfsögð í nútíma þjóð félagi. Þess vegna ber að hlynna að henni og halda henni áfram í vaxandi mæli. Alþingi samþykkti fyrir tveimur árum tillögu til þingsályktunar, þar sem skor að var á fræðslumálastjórn- ina að taka starfsfræðslu al- mennt upp í skólum landsins. Því miður hefur það ekki ennþá verið gert, en verður væntanlega gert á næstunni. Nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndum og víðar hafa allar tekið starfsfræðslu upp í skólum sínum. Þá leið ber okkur einnig að fara. Við þurfum að hagnýta krafta IITAN UR HEIMI IMargra alda deilur Rússa og Kínverja SPENNAN, sem ríkir milli Peking og Moskvu, á sér djúpar sögulegar rætur. Frá alda öðli hafa- innrásir hvað eftir annað verið gerðar inn á rússnesk landsvæði, og skýrir þetta m. a. áherzlu þá, sem Sovétstjórnin leggur á allt er varðar öryggi lands- ins, og óttann við allt, er hún nefnir njósnir — þ. e. óttinn við að útlendingar og stjórn- málaandstæðingar komist yf- ir vitneskju um varnir Sovét- ríkjanna og hernaðarmátt. Á ýmsum tímum liðinna alda hafa fjandmenn úr vestri, norðri og suðri — Svíar, Pól- verjar, Þjóðverjar, Frakkar, Tyrkir — ráðizt inn í Rúss- land. En sjaldan hefur þeim tekizt að halda lengi unnum landsvæðum — i hæsta lagi í nokkur ár. 240 ÁRA KÚGUN Varðandi nágranna Rússa í austri horfir málið öðru vísi við. Á þrettándu öld geyst- I ust hersveitir Gengis Khan frá Mongolíu vestur yfir slétt ur Mið-Asíu og komu sér fyr- ir í Astrakhan, við ósa Volgu. Frá þessum aðalstöðvum und irokuðu þeir fursta Rúss- lands, brenndu og eyddu höf- uðborgina Kiev, og herjuðu allt vestur að Adríahafi og skildu eftir sig ógn og eyði- leggingu. Ráðamenn rúss- nesku héraðanna voru krafð- ir um skatta; þeir urðu að fara til Astrakhan til að fá leyfi Gengis Khans til að taka að sér yfirstjórn í heima héruðum sínum, og fengu oft smánarlegar móttökur. Þessi erlenda yfirstjórn — sem í rússnesku sögunni er nefnd Tataraokið — stóð yfir í 240 ár. Rússneska þjóðin hefur aldrei gleymt henni. Þegar Mongólastjórninni var loks hrundið árið 1480, 12 árum áður en Kólumbus fann Ameríku, sameinaðist Rússland fljótlega undir stjórn hertoganna í Moskvu, og á næstu öld hófst könnun Síberíu. Á vissan hátt svipaði henni til opnunar Vesturríkj- anna í Bandaríkjunum. Varð stöðvar rússneska hersins teygðu sig lengra og lengra í austur, og var aðaltilgangur- inn að tryggja öflun loðskinna fyrir rússneskan markað. ■— Ekki varð neitt úr landnámi; Gengis Khan rússneskir bændur voru of bundnir við jarðirnar heima, og öðrum þótti Síbería, með sitt kalda loftslag og frum- stæðu lífsskilyrði, ekki hafa upp á mikið að bjóða. Varð þetta til þess að til Síberíu voru sendir glæpamenn og stjórnmálaandstæðingar. A» KYRRAHAFI Um miðja sautjándu öld hötðu Rússar komið sér upp bækistöðvum á bökkum Am- ur-fljótsins. Þetta var á kín- versku landsvæði, og kom á næstu árum hvað eftir annað til átaka milli Kínverja og Rússa. Rússar héldu stöðvum sínum. Árið 1858 notuðu Rúss ar tækifærið þegar Peking- stjórnin átti fullt í fangi með að verjast yfirgangi annarra Evrópuríkja, og fengu Kín- verja til að láta af hendi land svæðið fyrir austan fljótin Amur og Ussuri, en á þessu svæði er flotahöfnin Vladivo- stok. Á næstu árum voru Rússar mjög aðsópsmiklir í Austur- Asíu. Fengu þeir heimild Kín verja til að leggja járnbraut þvert yfir Mansjúríu til Vladivostok, og þaðan aðra braut til Port Arthur (Ryoj- un). Með þessum aðgerðum varð Mansjúría raunverulega 1 rússneskt hérað. Ógnaði það J japönskum hagsmunum og i leiddi beinlínis til niðurlæg- 1 ingar Rússa í styrjöldinni við | Japani (1904). Z Á árunum eftir 1930, eftir að Japanir höfðu lagt Man- 1 sjúríu undir sig, kom oft til J átaka milli Japana og Rússa á landamærum Mongolíu. Á síðustu mánuðum orrustunn- ar á Kyrrahafi í síðari heims- styrjöldinni, héldu herir Sov- étríkjanna enn einu sinni inn í Mansjúríu, rifu niður verk- smiðjur þar og sendu til Sovétríkjanna sem skaðabæt- ur. Eftir sigur kommúnista í byltingunni í Kína 1948, fengu Kínverjar yfirráð í Mansjúríu. ÞEIR GLEYMA EKKI Það er með allt þetta í huga sem stjórnin í Kreml fylgist með vaxandi ágreiningi milli Kínverja og Rússa. Frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari hafa Sovétríkin lagt óhemju fé í að byggja upp orkulindir og vinna úr nátt- úruauðlindum Siberíu; en þar er enn mikið strjálbýli. í suðri eru 700 milljónir Kín- verja ,sem skortir landrými og náttúruauðæfi, en fjölgar mjög ört. Eðlilegt væri að þeir litu vonaraugum hin víð- áttumiklu landsvæði í norðri, sérstaklega þau héruð í Aust- ur-Síberíu, sem áður lutu þeim, og svæðið milli fljót- anna Amur og Ussuri. f fram tíðinni hafa Rússar fulla á- stæðu til að óttast. Rússar hafa ekki gleymt sögunni. Það hafa Kínverjar heldur ekki. Meredith hyggst gern hlé n námi vegna óvildar, sem hann mætir þjóðarinnar eftir fremsta megni, beina áhuga og starfs- orku unga fólksins að þeim verkefnum sem nauðsynleg- ust er á hverjum tíma. HINN STERKI MAÐUR EVRÓPU Um það verður naumast deilt, að de Gaulle, forseti Frakklands, er hinn sterki maður Evrópu árið 1963. — Hann hefur bjargað Frakk- landi frá fjárhagslegu og pólitísku öngþveiti og nýlega unnið stærsta kosningasigur, sem nokkur stjómmálaleið- togi hefur unnið í Frakklandi á þessari öld. Frakkland virðist nú vera áhrifaríkasti aðilinn innan þjóðasamtakanna um sameig- inlega markaðinn. Allar líkur benda til, að afstaða þess ráði mestu um það, með hvaða Oxford, Mississippi 7. jan. (NTB). EINS og kunnugt er kom til óeirða í Oxford, Mississippi í Bandaríkjunum, þegar innrita áitti fyrsta blökkumanninn í háskóiann þar. Blökkumaðurinn, James Meredith, var innritaður í skólann, þrátt fyrir andstöðu margra, þar á meðal fylkisstjór- ans í Mississippi, Ross Bamet. kjörum 'Stóra-Bretland öðlast aðild að þessari víðtæku og merkilegu efnahagsmálasam- vinnu Evrópuþjóðanna. Charles de Gaulle hefur tryggt Frakklandi styrka og samhenta ríkisstjóm. Franska þjóðin hefur sýnt, að hún kann að meta stefnufestu hans í baráttunni gegn flokka glundroðanum og þeirri póli- tísku spillingu, sem fylgt hafði í kjölfar hans. Meredith hefur nú sótt eitt kennslumisseri við skólann, en nú hyggst hann ekki mæta í tím- um næsta misseri, því að hann telur sér ekki fært að standast lengur þá miklu óvild, sem aðrir nemendur skólans sýna honum. Meredith er þó staðráðinn í því að njóta kennslu í skólanum og ljúka prófi. Segist hann aðeina ætla að hætta að sækja tíma næsta misseri í von um, að óvild in í hans garð, innan skólans, verði ekki eins mikil að því loknu. Karachi, Pakistan, 5. jan, (AP) f DAG var undirrltaður í Karachi viðskiptasamningur mill Pakistans og Kína. Sam- kvæmt honum kaupir Pakist- an vélar, stál, kol, sement, korn og ýms hráefni frá Kína, en selur í staðinn baðmull, leðurvörur, vefnaðarvörur, íþróttavörur o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.