Morgunblaðið - 08.01.1963, Side 11
Þriðjudagur 8. janúar 1963
MORGVNBLAÐIÐ
11
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum
EITTN af fremstu og aðsópsmestu
bændum þessa lands, Sveinn Jóns
son á Egilsstöðum, er sjötugur
í dag. Þessi staðreynd hljómar
nokkuð undarlega fyrir þá, sem
nýlega hafa hitt Svein að máli
og verið með honum á mann-
fundum, því enn sýnir hann eng-
in ellimörk, er kvikur í spori,
ihress í máli og baráttuglaður.
Sveinn er fæddur á Egilsstöð-
um og voru foreldrar hans Jón
Bergsson, bóndi þar, og kona
hans, Margrét Pétursdóttir. Voru
Egilsstaðir í tíð Jóns Bergssonar,
sem síðar, eitt meta myndarbú á
Austurlandi og kjörið höfðingja-
setur, sakir landkosta og stað-
hátta.
Kúmlega tvítugur að aldri tók
Sveinn við búi af föður sínum og
hefur í tæpan aldarhelming ver-
ið driffjöður þeirrar reisnar, sem
tengd er Egilsstöðum. Fer þar
saman að hann er mikill búmað-
ur og útsjónarsamur og ókval-
ráður um nýjungar í búskapar-
NÝR íslenzkur tenorsöngvari,
G„oir Guðmundsson, lét til sín
heyra í Gamla bíói sl. sunnudag.
Hann hefir undanfarið verið við
nám í Þýzkalandi og er naumast
nema á miðri námsbraut. Röddin
er glæsileg frá náttúrunnar hendi
og liggur að sumu leyti vel, en
hún er ákaflega ójöfn og lætur
ekki alltaf vel að stjórn. Á efra
hluta tónsviðsins býr hún yfir
mikilli birtu og þrótti, en neðar
er hún hljómlítil og óþroskuð, og
milli „registranna" virðist enn
mjög ógreitt samband. Þá er og
mjög til lýta, þegar söngfólk
„hangir neðan í“ tóninum, eins
og hér vildi brenna við. AUt
þetta stendur til bóta með áfram-
haldandi námi og þjálfun, ef til
vill hjá nýjum kennara og jafn-
vel í öðru landi — Ítalíu. Til
þess bendir meðferð söngvarans
á ítölsku aríunum síðast á efnis-
skránni, sem bar langt af öðru
á þessari söngskemmtun, einkum
aríunnar úr „Ástardrykknum“
FYRSTU tónleikar Tónlistarfé-
li úns fyrir styrktarfélaga þess
á árinu 1963 voru haldnir í Aust-
urbæjarbíói í gærkvöldi. Kom
þar fram enska alt-söngkonan
Ruth Little og söng þýzk og brezk
löng við undirleik Guðrúnar
Kristinsdóttur.
Ruth Little sýndi það þegar I
þremur lögum eftir Hugp Wolf,
sem voru fyrst á efnisskránni, að
hún er afburða tónvís og fáguð
söngkona, og í lögunum eftir
Brahms og Gustav Mahler, sem
á eftir fóru, sýndi hún, að hún
býr einnig yfir miklum skaphita
og skemmtilegri kímnigáfu. Allt
þetta staðfesti hún enn frekar
í fjórum gömlum enskum söngv-
um og í vöggulagaflokknum (A
Charm of Lullabies) eftir Benja-
min Britten, enda eru þau vöggu
lög stórum fjölbreytilegri að
anda og efni en við eigum að
venjast að jafnaði. Enn fór söng-
konan með fjögur brezk þjóð-
lög — hið fyrsta þeirra án undir
leiks, — og sýndi þar enn nýja
hlið á list sinni.
Rödd söngkonunnar er ekki
ýkja mikil, en hún hefir full-
komið vald á henni og kann að
beita henni til hins ýtrasta. Með-
háttum. Mun mörgum í fersku
minni síðustu nýjungar, sem
Sveinn hefr tekið upp við mjólk-
urverkun, sem getið hefur verið
í fréttum. Einnig rak hann lengi
á Egilsstöðum myndarlegt gisti-
hús, sem mikil nauðsyn var á,
eftir Donizetti og „La Boheme"
eftir Puccini. Þýzku og íslenzku
sönglögin, þar sem meira reyndi
á hnökralausa beitingu raddar-
innar og öruggt vald yfir henni,
urðu stórum ver úti. Og ekki er
það heillavænlegt fyrir söngvara,
sem er að þreyta frumraun sína,
að vera jafnháður nótum og Gest-
ur var í lögunum eftir Schubert.
Ef til vill má segja, að Gestur
Guðmundsson hefði sér að skað-
lausu getað beðið enn um stund
með þessa tónleika, og vafalítið
hefðu þeir þá orðið stórum betri.
En þótt þeir væru gallaðir að
ýmsu leyti leyndi sér ekki, að
hér er á ferð söngvaraefni, sem
fyllsta ástæða er til að fylgjast
með og mikils ætti að mega
vænta af, ef hann nýtur kennslu
og þjálfunar við sitt hæfi.
Guðrún Kristinsdóttir aðstoð-
aði á þessum tónleikum og var
söngvaranum hin örugga stoð.
Jón Þórarinsson.
ferð hennar á viðfangsefnunum,
sem bæði voru fjölbreytileg og
kröfuhörð, var alltaf aðlaðandi og
nær alltaf sannfærandi. Fram-
koma hennar á sviðinu var með
glæsibrag. Hún er í stuttu máli
einn af þeim (tiltölulega fáu)
söngvurum, sem varla verður
fundið til foráttu nokkuð sem
máli skiptir. Viðtökur áheyrenda
voru eftir þessu, og munu margir
hlakka til að fá aftur bráðlega
að heyra til þessarar tilvonandi
„tengdadóttur íslands".
Samstarf þeirra Guðrúnar Krist
insdóttur var með miklum ágæt-
um.
Jón Þórarinsson.
Frá happdrætti
Sjálfsbjargar
HINN 24. desember var dregið í
happdrætti Sjálfbjargar. Vinn-
ingurinn kom á nr. 13456.
Eigandi þess númers hefir þar
með unnið Ford-Consul bifreið
og má vitja vinningsins á skrif-
stofu Sjálfsbjargar, Bræðraborg-
arstíg 9.
á þessum krossgötum Austur-
lands.
Sveinn á Egilsstöðum er stór-
brotinn að gerð og höfðingi í
hugsun. Sem arftaki mikilla
bændahöfðingja er honum sér-
lega annt um hag bændastéttar-
innar og vill virðingu hennar og
reisn sem mesta. Þar sem hann
er einnig skeleggur og harður
baráttumaður hafa honum þrá-
sinnis verið falin forystu- og
virðingarstörf á vegum bænda.
Hefur hann uin langt árabil átt
setu á búnaðarþingi og einnig
gegpt fjölmörgum trúnaðarstörf-
um fyrir sveit sína og fleiri störf-
um í þágu samfélagsins, sem hér
yrði of langt mál upp að telja.
Sveinn er kvæntur Sigríði
Fanneyju Jónsdóttur, sem hefur
verið manni sínum samhent við
að skapa Egilsstaðaheimilinu þá
reisn, sem hæfði. Þau hafa eign-
azt þrjú börn, Ásdísi, sem nú er
skólastýra á Hallormsstað og Jón
Egil og Ingimar, sem báðir hafa
reist bú heima á EgilsstÖðum.
Nú er nokkuð öðru vísi um-
horfs í Egilsstaðalandi en þegar
Sveinn Jónsson tók þar við búi
fyrir fimmtíu árum, myndarlegt
kauptún er risið upp í túnfæti
hinna fornu Egilsstaða. Á s.l.
sumri vakti ég máls á því við
Svein, hve ánægjulegt væri að
sjá vöxt og viðgang þessa nýja
kauptúns. Hann kvað kaup-
túnið alls góðs maklegt en bætti
við: „Ég vil samt ekki sjá það
vaxa á kostnað sveitanna í
kring.“
Jón Hnefill
Aðalsteinsson.
— Fiskimjöl
Framhald af bls. 1.
sér í gærkvöldi til Ásgeirs Þor-
steinssonar, verkfræðings, og bað
hann að segja álit sitt á þessari
uppgötvun.
Ásgeir sagði, að það væri
franskt dótturfyrirtæki BP sem
einkum hefði stundað rannsókn-
ir þessar. Væri nú svo komið að
fyrirtaekið hefði hafið fnam-
leiðslu á eggjahvítu úr olíu, þótt
ekki væri að vísu í stórum stíl,
en þannig þó, að málið væri kom
ið af rannsóknarstigi yfir á fram
leiðslustig.
Ásgeir sagði að talsvert væri
um það að eggjahvita væri unn-
in úr ódýrum úrgangi, einkum
sjávardýra. „Við verðum að
reyna að selja sem minnst af fisk
afurðum okkar sem fóður. Við
verðum að herða róðurinn í sam-
bandi við matvælaiðnaðinn og
láta t.d. sem minnst af síld fara
í fóður. Ef við verðum undir í
samkeppni um eggjahvítufóður,
og fóðureggjahvíta jafngóð
þeirri, sem fæst úr síld og fisk-
úrgangi, er framleidd fyrir mjög
lágt verð úr öðrum efnum, þá
getur að því komið að fis'ki-
mjölsframleiðsla svari ekki kostn
aði, og verði ekki raunhæfur iðn
aður“, sagði Ásgeir. Taldi hann
hér á ferðum mjög alvarlegt í-
hugunarefni og yrði að fylgjast
vel með framvindu mála á þessu
sviði.
Rannsóknir á þessum bakterí-
um hófust 1957 við olíuhreins-
unarstöð nálægt Marseille í
Frakklandi. Þeir, sem við ol'íu
'hafa unnið, hafa lengi vitað að
olía, sem fer til spillis við oliu-
brunna, hverfur fljótlega og vega
gerðarmenn hafa lengi vitað að
malbik á vegum eyðist oft og
tærist neðan frá .Ástæðan er
bakteríur, sem nærast á olíuefn-
unum. Enda þótt þetta hafi lengi
verið vitað, hófust sérstakar
rannsóknir á bakteríum þessum
ekki fyrr en 1957, og það var
ekki fyrr en á sl. ári að þeim
var svo komið að skýrt var frá
árangrinum.
BP hefur byggt tilraunaverk-
smiðju við Lavéraolíuhreinsun-
arstöðina skammt frá Marseille
og er ráðgert að þar verði fram-
leidd ein smálest af eggjahvítu-
efnum á dag.
wöngskemmtun Gests
Guömundssonar
Söngskemmtun
Ruth Little
Bindbndísmenn athugið!
NotfæriS yður þau hagkvæmu
kjör, sem ÁBYRGÖ býður yður.
TRYGGIÐ BÍL YÐAR
HJÁ ÁBYRGÐ H. F.
bindindisfólksins eigin
tryggingafélagi.
ATHUGIÐ, að segja þarf upp
eldri tryggingu með þriggja
mánaða fyrirvara, eða fyrir
1. febrúar ár hvert.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ UMBOÐSMENN
OKKAR EÐA SKRIFSTOFU HIÐ FYRSTA.
ÁBYRGÐP
TRYGGINGAFÉLAG BINDINDTSMANNA
Laugavegi 133 — Sími 17455 og 17947.
Samkomu og verzlunarhus
Innan skamms verður til leigu á góðum stað í borg-
inni, verzlunarhús, einnig mjög hentugt, sem sam-
komuhús — gólfflötur um 470 ferm. — Listhaf-
endur leggi nöfn á afgr. Mbl. fyrir 13. þ.m., merkt:
„3190“.
Íbúð óskast
2—3 herbergi og eldhús óskast. Fyrirframgreiðsla
eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 22786 (kl.
9—5 síðdegis).
Atvinna
Maður óskast til aðstoðar á hjólbarðaverkstæði.
Gott kaup. — Upplýsingar í
Gúmmí hf.
við Suðurlandsbraut.
Atvinna
Ríkisfyrirtæki óskar að ráða mann til aðstoðar í
birgðageymslu og við útkeyrslu. Létt og hreinleg
vinna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist blaðinu fyrir 12. þ.m. merkt: —
„Aðstoðarmaður — 3191“.