Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 31. Januar 1963 MORCVNBLAÐIÐ 3 I SÍÐUSTU viku fékk fær- eyskur fiskibátur, Tungufoss- ur frá Sandey, á sig sjó und- an Vestfjörðum. Ólagið reið yfir stýrislhúsið og urðu þar öll tæki óvirk nema áttavit- inn. Skipstjórinn vaknaði á floti, vélarrúmið hálffylltist, svo að drapst á vélinni og Ihásetau- vöknuðu af vaerum blundi við það að sjór fossaði inn í lúkarinn. Tungufo'ssur, sem er nýr 268 tonna stálbátur, sigldi til Patreksfjarðar, en hélt það- an í fynradag og kom til Reykjavíkur í gærmorgun, en hér verður gert að áverka þeim, er Ægir veitti honum. Fréttamaðun og ljósmyndari Mbl. brugðu sér ' um borð skömmu eftir að báturinn hafði lagzt að bryggju og Brúin er illa leikin af brotsjónum. Flestar rúffur brotnar radar, miðunarstengur o. fl. tæki kengbogiff og ónothæft. .Tungufossur* eign 22 ja háseta Hásetarnir atvinnuveitendur skipstjórans hittu skipstjórann að máli í brúnni. — Talar þú ekki íslenzku? — Já, já, ég taiar íslenzku. — Hvað heitir þú? — Trondur Trondesen. — Hvað eruð þið margir á bátnum? — Tuttugu og fimm. Við vorum að ísfiskveiðum fyrir Englandsmarkað og höfðum fengið um 600 kit þegar óhapp ið kom fyrir. Nú seljum við allan fiskinn fii fisksala í Reykjavík, af því að viðgerð- in tekur 6—7 daga. — Hver á Tungufossur? — Tuttugu og tveir háset- ar. Ég á ekkert í bátnum. Skipshöfnin á dekki. 1 miffjum hópnum stendur skipstjórinn í jakka og meff bindi. Messa- strákurinn er fremst á myndinni. — Varst þú í looju þegar þið fenguð á ykkux sjóinn? — Já, 2. stýrimaður var á vakt, en ég svaf. Ég flaut fram úr kojunni, klefinn háli fylltist af sjó, þar sem flest- ar rúður brotnuðu. Ég týndi stígvélunum mínum. Sjáið þið, óg er í ballskóm. Á dekkinu hittum við nokra skipsmenn. Yngstur þeirra er messadhengurinn, Jógvan Sonne, 14 ára. Við spyrjum nokkra, hivað þeir ætli að hafa fyrir stafni meðan bát- urinn tefst hér, vegna viðgerð- arinnar, og fáum það svar, að þeir ætli á ball. Er við viljum vita hvar þeir ætli að fá sér snúning, segjiast þeir ekki vita það, en þeir hafi komið hér áður og séu ó- hræddir um, að ekki sé ein- hvers staðar eitthvað um að vera. Nú kveðjum við-Færey- ingana, en ljósmyndarinn lof- ar að koma í heimsókn síðar og gefa þeim myndir af hópn- STAKSTEINAR íslendingur k j ördænJsblað f siffasta tölublaffi vikublaffs- ins íslendings á Akureyri er frá þvi skýrt, aff blaffiff muni fram- vegis verffa kjördæmisblaff Sjálf stæffisflokksins í Norffurlands- kjördæmi eystra. Verffur blaff- iff gefiff út á ábyrgff kjördæmis- ráffs og blaffnefnd þess skipuff mönnum úr öllum héruffum kjör- dæmisins. í ávarpi, sem Árni Jónsson, formaffur hinnar nýju blaffnefnd- ar íslendings, og Gísli Jónsson, formaffur kjördæmisráffs, rituffu í síffasta íslending, er m.a. kom- izt aff orffi um þessa breytingu á þessa leiff: „Ljóst er, að fslendingur hef- ur um langt skeiff gegnt þýff- ingarmiklu hlutverki sem höfuff- má.lgagn Sjálfstæðisflokksins á Nórðurlandi og hefur sizt dreg- iff úr mikilvægi þess, þó bætt- ar samgöngur færi okkur nú Reykjavíkurblöðin daglega. Á hinn bóginn er sýnt, aff íslend- ingur hlýtur samkvæmt þvi að færast æ meira í þaff horf aff vera vettvangur sérmála kjör- dæmisins frem.ur en almennt fréttablaff. Nú þarf aff leggja á þaff höfuff- kapp aff auka útbreiffslu fslend- ings. Er þaff mark sett þegar í upphafi aff stækka upplagiff hiff bráðasta um helming þess sem nú er. Vegir til allra átta Siglfirffingnr, blaff Sjálfstæffis- manna á Siglufirffi, birtir ný- lega furystugrein undir fyrir- sögninni: „Vegir liggja til allra átta“. Er þar deilt mjög á Fram- sóknarflokkinn, sem hlaupizt hafffi undan höfuðskyldu sinni sem lýffræffisflokkur og beri jafnan kápuna á báffum öxlum „svo enginn getur vitaff fyrir- fram hverja leiff hann muni fara í hinum þýffingarmeiri nrálum. Framsóknarflokkurinn kemur ýmist fram sem róttækur vmstri flokkur, miðflokkur effa bænda- flokkur. Hann er á stundum langt til hægri viff Sjálfstæðis- flokkinn en stundum til vinstri viff kommúnista. Hann er bæffi meff og á móti aðild íslands aff NATO og efnahagssamstarfi vestrænna þjóffa. Hann er bæffi nv;ð og á móti stjóm kommún- ista á ASÍ, bæffi með og á móti affild launþega í verzlunarstétt í ASÍ, hann er bæffi meff og á móti samyrkjubúskap, bæffi meff og á móti eignarétti bænda á jörffum og búi, hann er ýmist málsvari hækkandi skatta sem stjórnarflokkur effa hiff gagn- stæffa sem stjórnarandstöffu- flokkur, ýmist ir.álsvari nýrrar styrkjastefnu effa þveröfugt. Og þaff sem algengast er: Afstaffa hans til kommúnista markast einvörðungu eftir pólitískum viff skiptahorfum hverju sinni.“ Stöðvar vatnsskortur mjðlkurbú Egilsstaða? Egilsstaðir, 30. jan. EINS og áður, hefur verið sagt frá, er vatn að mestu þrotið hér í kauptúninu. í dag átti éig til við mjólkurbússtjórann, Böðvar Stefánsson, og taldi hann að mjólkurbúið mundi stöðvast ef ekki rættist úr. En þangað er flutt mjólk úr mörgum hreppum. í dag var þó nokkur vinnsla í mjólkurbúinu. Einhver dreitill af vatni náði þangað. Það sem bjargar því er, að mjólkurbúið stendur lægra en flest hiús í kauDtúninu, 600 m skurður frosinn í kvöld spurðist ég fyrir um þessi mál hjá mönnum, sem hafa verið að rannsaka þau í dag. Eins átti ég tal við oddvita Eg- ilsstaðahrepps, Svein Jónsson. Taldi hann að vatnsskorturinn stafaði meira af frostum en vatnsleysi og kemur það til af því, að frost hefur stöðvað rennsli úr læk í aðfallsskurð, sem flytur vatnið í brunna þá, sem vatnslögnin liggur í. En þessi skurður er urii 600 m langur. — A.B. Hæðin var í gær komin yfir ísland og hafði enn aukizt. Var loftþrýstingur nú orðinn mestur í Reykjavík, en far- inn að lækka hjá Þingeying- um. Mældust 1049.0 millibar hér kl. 14. Vestan lands var að draga úr frosti og kominn 2 stiga hiti á annesj um. Með bilaðan áttavita Grein Siglfirffings um Fram- sóknarflokkinn lýkur meff þess- um orðum: „Flokkurinn er eins og skip meff bilaðan áttavita, sem sigl- ir í kjölfar hins rauða knarrar, og enginn veit hvar leitar hafn- ar. Þaff er hæpiff aff velja slík- an flokk til forystu, sem leiff- andi afl í málefnum þjóðarinn- ar. Vegir Frarr.ióknarflokksins liggja til allru átta. Ef bann ekur sinn pólitíska veg af jafn- miklu ábyrgffarleysi, hér eftir sem hingað til, má svo fara aff liann aki fram af þeim vegi sem gjörffur er úr þolinmæffi' kjósenda hans og velti sínum pólitíska vagni í þá átt, sem niff- ur veit“. Flestum mun finnast sem Sigl- firffingi hafi her mæit vel og viturlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.