Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 14
u MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. januar 1963 Þökkum hamingjuóskir og auðsýnda vináttu á 60 ára afmæli okkar Oddný Guðmundsdóttir, Jóhannes Guðmundsson. Móðir okkar, ÁSTRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR lézt í Landsspítalanum 30. þessa mánaðar. Einar B. Bessason, Jóhann Bessason, Búi Bessason, Ólafía Bessadóttir, Foged. Sonur okkar og bróðir MAGNÚS EINARSSON búfræðikandidat, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstud. 1. febr. kl. 1,30. Jakobina Þórðardóttir, Einar Ásmundsson og systkini. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför EGGERTS E. NORÐDAHL frá Hólmi. Börn, tengdabörn, bamabörn og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra hinna mörgu, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför mannsins míns og föður okkar ÞORVALDAR GÍSLASONAR Sogabletti 11. Guð blessi ykkúr öll. Theodóra Jónsdóttir og böm. Þökkum af alhug öllum er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengda- föður og afa ÞÓRARINS GÍSLASONAR frá Isafirði. Jóhanna Þórarinsdóttir, Pétur Þórarinsson, Margrét Þórarinsdóttir, Ingolf Abrahamsen, og barnabörn. Þökkum hjartanlega fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför sonar okkar SNÆBJARNAR AÐILS Sérstaklega þökkum við Útgerðarfélaginu Venus h.f. og skipsfélögum hins látna fyrir aðstoð og hluttekningu. Fyrir hönd vandamanna. Nanna og Jón Aðils. Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför móður okkar ÓLAFAR JÓNSDÓTTUR frá Byggðarholti, Vestmannaeyjum F. h. aðstandenda. Selma Antoníusdóttir, Svavar Antoníusson. Hjartanlegar þakkir færum við þeim , sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður ÞÓRÐAR JÓNSSONAR frá Bjóluhjáleigu. Sérstakar þakkir til ykkar vina hans, sem heimsóttuð hann í veidindunum þegar hann var áð verða blindur og myrkrið og vonleysið vom að heltaka hann. — Nöfn ykkar eru skráð á hærri stað, og biðjum við hann sem öllu ræður að blessa ykkur og launa. Guðrún Högnadóttir, Ólafur Þórðarson, Sigríður Ólsen, Haraldur Stefánsson og börnin. Innilega þökkum við alla samúð, sem okkur var sýnd við andlát og útför móður okkar og tengdamóður ÓLAFAR BJÖRNSDÓTTUR Björa Pétursson, Fjóla Ólafsdóttir, Ágústa P. Snæland, Pétur Snæland, Halldór Pétursson, Fjóla Sigmundsdóttir, Kristjana Pétursdóttir, Ludvig Hjálmtýsson. Ásgeir Þorsteinsson verkfræðingur: Rannsóknir og raunfræöi RAUNFRÆÐI er nýyrði, en hef- ur fengið fastan sess í málinu í hugtakinu raunvísindi. Forskeytið „raun“ á að tákna verklegt eða hlutlægt eðli fræð- anna, en hinsvegar eru hugfræði aðallega bóklegs eðlis. Þannig falla undir raunfræð- in dýrafræði, jurtafræði, eðlis- og efnafræði og líffræði, svo það helzta sé nefnt, en undir hug- fræðin bókmenntir, mannkyns- saga, landafræði, félagsfræði, og svo framvegis. Það gefur mér nýtt tilefni til að fjalla um þessi mál (sjá Mbl. 9. jan. og 4. apr. 1962) að nú liggur fyrir alþingi frumvarps- bálkur um rannsóknir í þágu at- vinnuveganna, en þær eru einn þáttur raunvísinda. Þróun raunfræða hefur magn- ast gífurlega á þessari öld í flest um menningarlöndum, en önnur farið varhluta af og í þeirra hópi er íslands. Fyrsti vísir raunvísindastofn- unar sá dagsins ljós hér á landi 1906, með stofnun efnarannsókna stofu ríkisins. Síðan leið aldarfjórðungur, unz næsta verulega sporið var stigið með stofnun almennrar rann- sóknastofu í þágu atvinnuveg- anna. Upp úr henni var síðan stofnuð atvinnudeild háskólans, með þremur sérdeildum, búnað- ar-, iðnaðar- og fiskideild. Sam- eiginlegt húsnæði fengu þessar rannsóknardeildir í september 1937, eða fyrir réttum 25 árum. Þannig leið tvívegis aldarfjórð ungur milli verulegra opinberra afskipta í þessum málum. Þótt svo kunni að líta út á pappírnum, sem verið sé að stíga verulegt framfaraspor með hinu nýja frumvarpi, þá eru veikir hlekkir enn óbættir í raunfræða málunum og þeir halda aftur „f nauðsynlegri og aðkallandi þró- un. Raunvísindarannsóknirnar búa nú í sumum greinum við góð skil yrði, en í öðrum við megnasta húsnæðisleysi, svo sem í land- búnaði og iðnaði. Meðan ekki finnst kompa í atvinnudeildarhús inu til einföldustu tilrauna í þess um greinum, er þróunin stórlega heft. Hér hvílir skuggi á rikis- stjórnum undanfarinna 25 ára, að hafa notað happdrættisfé, sem var ætlað til húsbygginga, sem, eyðslueyri í rekstri atvinnudeild ar. Annar enn veikari hlekkur í keðju raunfræðimálanna er menntunarleysið í landinu. Mönnum hefur orðið tíðrætt um það, hvaða leiðir sé hægt að fara til að lyfta atvinnuvegun- um í virkari sess og stofna til nýrra iðnaðargreina. í landinu hefur myndast stétt háskólagenginna manna, verk- fræðinga, sem hafa lagt fyrir sig nám í tæknilegum fræðum, en að næstum öllu leyti í skólum er- lendis. Þessi stétt er nú fjölmennari en svo, að landið geti veitt öll- um atvinnu eða starfsskilyrði, sem leita aftur heim að námi loknu. Reyndar er það ekki nýtt fyrirbæri, því ekki var betur á- statt fyrir 40 árum. En af slíku tilefni verður ekki komizt hjá hugleiðingum um það, hvernig það má fara saman að landið er í tæknilegum efnum langt á eftir tímanum, en getur þó ekki veitt tiltölulega fámennum hópi verkfræðinga næg starfsskilyrði. Beinasta svarið við þeirri spurn ingu er að verkfræðingar einir leysi ekki vandann, og má það til sanns vegar færa, því fleira kem ur vitaskuld til. Menntunarleysið í raunfræð- um, aðallega tæknifræðum, sem lúta nánar að iðnaðarþróuninni, verður ekki leyst með háskóla- menfttuninni einni sama. Iðnaðarþróuninni er ekki öðru vísi farið en annarri menningu, að hún verður að koma neðán og innan að, engu síður en að ofan og utan, eins og nú á sér stað um verkfræðinga. Það litla sem skeð hefur í iðn- aðarþróun hér á landí, hefur mest orðið fyrir þá sök, að menn hafa brotizt í það af eigin ramm leik, og oft með litla fræðiþekk- ingu að baki, að koma á fót og ryðja braut nýjungum í iðnaðL Á þennan hátt urðu að vísu marg ir glæsilegustu sigrarnir í tækni- þróun heimsins til fyrr á tímum, en nú er öldin önnur. Hér á landi hefur brjóstvitið verið meir í hávegum haft en víða annars staðar, en bókvitið, eða hin bóklega þekking, átti lengi vel ekki upp á pallborðið hér á landi, svo sem segir í mál- tækinu, að „bókvitið verði ekki látið í askana“. Þótt íhaldssemi i þessum efnum hafi orðið til þess að tregða nútíma menningu i landinu, hafa þau umskifti orðið í viðhorfinu á æðri stöðum upp á síðkastið, sem eru sízt æski- legri, en það er að snúast til næstum fjálglegrar dýrkunar á bókvitinu, einkum háskólamennt un erlendis frá. Sú stefna hefur verið ráðandi of lengi á kostnað menntunar í landinu sjálfu. Við höfum ranglega haldið, að raunfræðamenntun yrði að koma mest að utan og yfirsézt um það, að almenna menntunin í raun- fræðum þarf að standa föstum fótum í unglingafræðslunni og í innlendri reynslu, hversu fábrot- in sem hún kann að vera. Þá Framhald á bls. 17, LOKAÐ frá kl. 12 á hádegi í dag vegna jarðarfarar. BJÖRN & HALLDÓR H.F. V éla verkstæði. Lokað eftir hádegi í dag fimmtudaginn 31. janúar vegna jarðarfarar. Bæjarskrifstofan Kópavogi. Faðir okkar og tengdafaðir GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON andaðist að heimili sínu Rauðalæk 4, 30. janúar. Börn og tengdabörn. Móðir og tengdamóðir okkar GUÐJÓNÍA STÍGSDÓTTIR andaðist 30. janúar. Börn og tengdadætur. SOFFÍA BJARNADOTTIR frá Bíldudal, sem lézt 27. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardaginn 2. febrúar, kl. 10,30 fyrir hádegi. Athöfninni verður útvarpað. Eiginmaður og börn. Þakka af alhug öllum er auðsýndu mér samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns GUÐMUNDAR STEINSSONAR verkstjóra. Þóra S. Jónsdóttir. Innilegar þakkir til allra fjær og nær fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför « TÓMASAR JÓNSSONAR x frá Heiðarbæ. Þingvallasveit. Sigríður Magnúsdóttir, Magnús Vilhjálmsson, Elín Steindórsdóttir. Við þökkum innilega öllum fjær og nær, sem hafa sýnt okkur vinarhug og hjartahlýju við andlát og jarð- arför ELÍNAR KRISTJÖNU EMILSDÓTTUR frá Stöðlum í Reyðarfirði, sem andaðist í Landsspítalanum 15. jan. s.l. — Sérstak- lega minnust við og þökkum hina ógleymanlegu um- önnun hjúkrunarkvenna og lækna, sem sjúklingurinn naut á Lyfjadeild Landsspítalans. Faðir og systkini hinnar látnu, Jón Sigurjónsson og eiginmaður, Sigurjón Magnússon, Klöpp í Garði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.