Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 22
22 MORCUN BLAÐIÐ frimmtudagur 31. januar 1963 AÐ gefnu tilefni vill stjórn F.R.Í. geta þess að hún hefur ekki ráðið neinn þjálfara til að annast þjálfun íslenzkra frjáls- íþróttamanna vegna væntanlegr- ar þátttöku í Olympíuleikunum 1964. Stjórn F.R.L 2 stjörnur fjarver- andi og mótið dauft Yfirlýsing ( f>ETTA eru Reykjavíkurmeist arar Armanns í sundknatt- leik ásamt formanni Ámanns Jens Guðbjörnssyni Og þjálf- ara félagsins um áratugi Þor- steini Hjálmarssyni lengst til hægri. Sá sem er með bikar- inn er Sigurjón Guðjónsson fyrirliði sem manna oftast og yfir lengst tímabil hefur hald ið íslandsmeistaratitli í nokk urri íþróttagrein eða 20 sinn- um alls. Sundknattleiksíþróttin hef- ur verið endurvakin með þessu móti þar sem 6 lið kepptu, jafnmörg lið en fleiri félög en nokkru sinni fyrr. Það vantar þó enn nýja krafta því mörg liðin byggja sín lið á gömlum og „brunn- um“ stjörnum. KR-liðið undir stjórn Magnúsar Thorvaldsen er þó undantekning svo og nýliðamir í Hafnarfirði og eiga þau án efa eftir að láta að sér kveða í þessari íþrótt. Skjaldarglíma Ármanns FÖSTUDAGINN 1. febrúar verð ur háð fimmtugasta og fyrsta skjaldarglíma Ármanns, í íþrótta húsinu að Hálogalandi. Skjaldarglíma Ármanns hefur jafnan talizt nokkur viðburður í íþróttalífi borgarinnar, sérstak- lega fyrr á tímum, þegar glíma og fimleikar voru mest iðkaðir hér á landi. Þar bafa að jafnaði komið fram beztu glimumenn borgarinnar og reynt með sér, enda hefur það oft orðið svo, að sami maður hefur unnið Ár- mannsskjöldinn, þar með sæmd- arheitið glímukappi Reykjavík- ur, og seinna á árinu Grettisbelt- ið og orðið glímukóngur' íslands. Hópmyndin er, eins og sjá má, mjög fjölmenn. Þetta eru þátt- takendurnir í skjaldarglímunni árið 1929, en á því tímabili var glíman í einna mestum blóma. Þessa glímu vann Jörgen Þor- bergsson. Hafði hann margt sér til ágætis; var hugljúfur dreng- skaparmaður, prúður í fram- göngu, fimur og léttur svo af bar, enda var hrein unun að glíma við hann; ekkert að óttast, nema byltuna. Margir fleiri af þessum mönn- um voru afar snjallir glímu- menn. Hin myndin er af mjaðmar- hnykk. Er það Trausti Ólafsson, núverandi skjaldarhafi, sem tek- ur bragðið. Trausti er ágætur glímumaður, harður og fylginn sér, fimur, og hinn prúðasti mað ur. 1. febrúar 1962 hafði skjaldar- glíman verið þreytt í hálfa öld. Var þá margs að minnast, enda gaf glímudeild Ármanns þá út myndarlegt rit af því tilefni. í riti þessu er saga skjaldarglím- unnar rakin í aðalatriðum, ásamt ýmsum öðrum fróðleik um glím- una. Rit þetta ættu þeir að fá sér, sem áhuga hafa á þjiðar- íþróttinni. Það verður fáanlegt við skjaldarglímuna að þessu sinni, og hjá glímudeild Ár- manns. Ármann mun nú á næstunni hefja glímiínámskeið, og ættu ungir menn að fjölmenna þang- að, til að læra þjóðaríþróttina, íslenzku glímuna. Kennari glímu deildarinnar er Kjaj-tan' Berg- mann, fyrrverandi glímukóngur. Hefur hann margra ára reynslu, og er mjög góður kennari. Þorsteinn ” ‘ ‘' SUNDMEISTARAMÓT Reykja- víkur var daufara en efni stóðu til. Tvær af aðalstjörnunum, Guðmundur Gíslason og Hörður Finnsson voru f jarri góðu gamni sakir veikinda og dvalar erlend- is. Hefði ekki komið til góður liðstyrkur sundfólks frá Hafnar- firði og Keflavík hefði mótið verið næsta sviplaust. Á það skorti og nokkuð að undirbúningur væri í lagi. Dróst byrjun mótsins m. a. af þeim sökum að enginn ræsir hafði verið boðaður og rás- byssa kom ennþá seinna. Verð Iaunapallur var-ekki til stað- ar en þegar hann kom fór það ekki fram hjá neinum. Góður liðstyrkur Sundfólkið utan af landi á sinn góða þátt í þessu móti. Það setti skemmtilegan blæ á keppn- ina bæði afrekslega og séð frá aukinni þátttöku. Myndin af mót inu er eiginlega alvarleg áminn- ing til Reykvíkinga að herða verður róðurinn í sundi. Þegar tveim stjörnum er kippt burt (Guðmundi og Herði) þá vinnast meistaragreinarnar á tímum sem samsvara 20—30 ára göml- um árangri á sundmótum hér. Ef tveggja stjarna nýtur ekki við I þá er um hreina afturför að ræða í greinum karla. Undantekning Undantekning eru kvenna- sundin ef Hrafnhildur keppir. Hún náði ágætis árangri í skrið- sundi og bringsundi og er líkleg til stórafreka í ár gefizt henni keppni. En bilið milli hennar og næstu er ískyggilegt. Unglingar Unglingasundin sýna nýja krafta og framtíðarfólk, en því miður ekki nægilega margt. Sér- staka athygli vekja tvö Matt- hildur Guðmundsdóttur í telpna sundum og Tráusti Júlíusson í drengjasuhdum (skriðsund). — Hann varð m. a. í fjarveru Guð- mundar Reykjavíkurmeistara I 400 m skriðsundi á sæmilegum tíma og lofar mjög góðu. En það vantar fjöldann. Það vandræða ástand skapast ekki sízt af æf- ingaskilyrðum sundfólkisins. Að- eins takmarkaður fjöldi kemst til æfinga í Sundhöllinni og með an svo er geta félögin vart haft mikla herferð í frammi til að laða fólk að. Utanibæjarfólkið setti mark á mótið ekki sízt Davíð Valgarðs- son frá Keflavík með ágætu drengjameti, ágætu sundi, góðu keppnisskapi. Hann á án efa eft- ir að gera margt. Sundmótið — helztu úrsilt: 100 m skriðsund karla 1. Davíð Valgarðsson ÍBK 1.0il.4. 2. Erling Georgsson SH 1.02.7. 3* og Rvík- urmeist. Guðm. Þ. Harðarson Æ 1.05.4. 200 m bringusund kvenna Rvíkurmeist. Hrafnhildur Guð- mundsd. ÍR 3.00.9. 2. Auður Guð- jónsd. ÍBK 3.18.5. 3. Kolbrún Guðmundsd. ÍR 3.2i5.4. 200 m bringusund karla Rvík- urmeist. Ólafur B. Ólafsson Á 2.51.6. 2. Trausti Sveinbjörnsson SH 3.10.3. 3. Guðm. Grímsson Á 3.10.8. 400 m skriðsund karla 1. Davíð Valgarðsson ÍBK 5.01.4, drengja- met. 2. og Rvíkurmeist. Trausti Júlíusson Á 5.38.7. 100 m flugsund karla Rvíkur- 1.22.6. 100 m skriðsund kvenna Rvík- meist. Gpðm. Þ. Harðarson Æ urmeist. Hrafnh. Guðmundsd. ÍR 1.07.0. 2. Ásta Ágústsd. SH 1.2£.2 100 m baksund karla Rvíkur- meist. Guðm. Guðmundsson KR 1.20.7. 2. Guðm. Þ. Harðarson Æ 1.21.7. 3. Guðberg Kristinsson Æ 1.25.3. 50 m skriðsund drengja 1, Traupti Júlíusson A 29.8. 2. Guðm. Þ. Jónsson SH 31.2. 3. Þorsteinn Ingólfsson Á 31.9. 50 m skriðsund telpna 1. Ásta Ágústsdóttir SH 35.8,, 2. Matthild ur Guðmundsd. Á 37.5. 3. Hrafn- hildur Kristjánsd. Á 39.8. 50 m bringusund telpna 1. Matt hildur Guðmundsd. Á 42.0. 2. Sólveig Þorsteinsd. Á 42.8. 3. Kolbrún Guðmundsd. ÍR 43.9. 50 m bringusund drengja 1. Guðm. Grímsson Á 38.8. 2. Gest- ur Jónsson SH 41.5. 3. Gunnar Kjartansson Á 41.8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.