Morgunblaðið - 31.01.1963, Page 4

Morgunblaðið - 31.01.1963, Page 4
4 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. janúar 1963 Bókhald Tökum að okkur bókhald og uppgjör. Bókhaldsskrif- stofan Þórshamri við Templarasund. Sími 24119. Sængur Endurnýjum gömlu sæng- urnar. Sexjum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. Dún- og fiðurhreinsunin Kirkjuteigi 29. Sími 33301. Keflavík Japönsku stretch síðbux- urnar á böm og fullorðna nýkomnar. F O N S, Keflavík. Keflavík Herrapeysur ný tegund. Drengjapeysur, margar tegundir. F O N S, Keflavík. Keflavík Herraföt nýkomin, ný efni. Herrafrakkar úr ull og dacron. Stakir jakkar og buxur. F O N S, Keflavík. Keflavík Allar stærðir, allar gerðir af vinnufatnaði. V eið iver. Simi 1441. Vil kaupa trésmíðavélar. Hringið í síma 32468. Teiknari óskast Sigvaldi Thordarson, arkitekt. Sími 34607. Keflavík Óska eftir stúlku eða eldri konu til afgreiðslustarfa. s Sölvabúð. Næturskjól Ung hjón sem bæði vinna úti, óska eftir að fá leigt herbergi í fjóra mánuði í norðausturhluta borgar- innar. Uppl. í síma 33013. 2—3 herb. íbúð óskast til leigu. Fyrirframgreiðsla ef óskað er'. UppL í síma 35234. Keflavík — Njarðvík 2—3 herb. íbúð óskast fyr- ir amerísk barnlaus hjón, sem fyrst. Tilboðum sé skil að á afgr. Mbl. í Keflavík merkt „íbúð 752“. Þorrablót Þorrablót Staðhverfinga- félagsins verður í Aðalveri Keflavík, laugard. 2. febr. kl. 20. Staðhverfingafélagið. Óska eftir að komast í nám í prentiðn. Tilb. send- ist afgr. Mbl. fyrir 4. febr. merkt: „6480“. HERB. OG ELDUNARPLASS til leigu. Helzt fyrir kær- ustupar eða einhl. stúlku. Uppl. í síma 33018 milli kl. 2—3 í dag. í dag er fimmtudagur 31. janúar. 31. dagur ársins. Árdegisflæði kl. 9:35. Síðdegisflæði kl. 22:07. Næturvörður vikuna 26. jan- úar til 2. febrúar er í Ingólfs Apóteki. Næturlæknir i Hafnarfirði vikuna 26. janúar til 2. febrúar er Páll Garðar Ólafsson sími 50126. Læknavörzlu í Keflavík hefur í dag Guðjón Kiemenzson. Neyðarlæknir — sími: 11510 — frá kl. 1-5 eJb. alla virka daga nema laugardaga. Kópavogsapótek er opið alla virka daga kL 9,15-8, laugrardaga frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kL 1-4 e.h. Simi 23100. Holtsapótek, Garðsapótek og Apótek Keflavíkur eru opin alla virka daga kl. 9-7 laugardaga frá kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4. Or8 lifsins svarar 1 sima 1000«. St.\ St.\ 59631317 — VHI — 5. I.O.O.F. 5 — 1441318H — Kvíkm. Helgafell 5963217. IV/V. 2. RMR 1-2-20-FH-FR. 70 ára er í dag Eiríkur Snjólfs son, bifreiðarstjóri, Brávallagötu 46. 60 ára er í dag Þórunn Úlfars- dóttir, Þórsgötu 18, Reykjavík. OG hann sýndi mér móðu lífs- vatnsins, skínandi sem kristall, og rann hún frá hásæti Guðs og Lambsins, á miðju stræti borgar- innar (Oph. 22, 1). — Hún dvelst í dag á heimili sonar síns að Arnarhrauni 12, Hafnarfirði. Hinn 22. janúar síðastliðinn opiraberuðu trúlofun síraa Guð- rún Biering Skúlagötu 72 og Hrafn Björnsson, Grund við SpUakvöld Borgfirðingafélagsins verð ur i Iðnó föstudaginn 1. febrúar kl. 21. Góð verðlaun. Félagar og gestir mætið vel og stundvíslega. Kvenstúdentafélag ísiands heldur aðalfund sinn í kvöld, fimmtudaginn 31. janúar 1963, kl. 9 e.h. í Þjóðleik- húskjallaranum. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og fé- lagsmál. Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt hef- ur hlutaveltu 1 Listamannaskálanum næstkomandi sunnudag, 3. febrúar. Vill stjórn félagsins hvetja allar Sjálf- stæðiskonur og aðra velunnara félags- ins tU þess að gera hlutaveltuna sem glæsUegasta með þvi að safna sem beztum mumun. Upplýsingar gefa: Gróa Pétursdótt- ir Öldugötu 24 (sími 14374), María Maack, Þingholtsstræti 24, Kristín Magnúsdóttir Hellusundi 7 (sími 15768) Guðrún Jónsdóttir Skaftahlíð 25 (sími 33449), og Sigurbjörg Runólfs- dóttir Heiðargerði 74 (sími 33436). Má koma munum tU þeirra eða í Listamannaskálann á laugardag. Óháði söfnuðurinn: Kvenfélag safnað arins gengst fyrir þorrafagnaði 1 Skáta heimilinu við Snorrabraut, 9. febrúar n.k. Aðgöngumiðar seldir í Verzlun Andrésar Andréssonar Laugavegi 3 í byrjun næstu viku. ÁRSHÁTÍÐ. Eskfirðinga og Reyð- firðinga verður haldin laugardaginn 2. febrúar að Klégarði. Þátttaka til- kynnist í síma 36200 og 38232. Sjómannastofan Hafnarbúðum er op- in alla daga og öll kvöld. Óskilabréf tU sjómanna má vitja þangað. Útivist barna: Börn yngri en 12 ára, til kl. 20,00; 12—14 ára til kl. 22,00. Börnum og uragl- ingum innan 16 ára aldurs er óheimill aðgangur að veitinga- og sölustöðum eftir kl. 20,00 Vatnsenda. Leiðréttlng í viðtalinu við dr. Franz Mixa sem birtist í blaðinu í gær urðu tvær prentvillur. Á einum stað urðu setningabrengl. Þar átti rétilega að standa: „Frú Hertha fór beint frá New York, til Munchen — hún er ein aðal- söngkona óperunnar þar .. “ Þá stóð, að tónlistarháskólinn í Graz hafi verið stofnaður 1915, en átti að vera 1815. Söfnin Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúia túni 2. opið dag'ega frá kl. 2—4 *U nema mánudaga. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74. er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu daga kl. 1.30 til 4 e.h. Bæjarbókasafn Reykjavikur, slmi ’ 1-23-08 — AðíUsafnið Þingholtsstræti 29A: Útlánsdeild: 2-10 alla virka daga nema laugardaga 2-7 og sunnudaga 5-7. — Lesstofan: 10-10 aila vlrka daga 2-7. — Útibúið Hólmgarði 34: Opið 5-7 alla virka daga nema laug- ardaga og sunnudaga. — Útibúið Hofs vallagötu 16: Opíð 5.30-7.30 alia daga daga nema laugardaga 10-7 og sunnu- nema iaugardaga og sunnudaga. Asgrimssaín, Bergstaðastræti 74 er opið prxðjud., flmmtud. og sunnudaga trá kl. 1.30—4 e.h. Ameriska bókasafnið, Hagatorgi 1, er opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, kl. 10—21, priðjudaga og fimmtudaga kl. 10—18. Strætisvagna- ferðlr: 24,1,16,17. Á Svartarhæð „Efst á Arnarvatnshæðum" er útsýn fögur og víð, allt er þar eins að líta og áður á fyrri tíð. „ískaldur EiríksjökulT* ægir við suðurátt, laugaðan geislagliti gullhjálminn ber hann hátt. Austar, sem ógnaskjöldur og álfheima töfraland, Langjökuls hreðabungu ber yfir Stórasand. Á jökulinn Geitlands glæsta glóir, sem fægðan málm. Tii útsuðurs augað stanzar við Oksins fannhvíta hjáim Um Hallmundar hraunabyggðir heldur Strúturinn vörð. í vestrinu veit ég dyljast inn vorfagra Borgarfjörð. Turninn ber Tröllakirkja við tærbláa himinlind, litlu sunnar má líta inn listfagra Baulutind. Bláir tindar og bungur birtast þar, ævaforn. Lengst I norðvestri ljósn lyftir sér Kaldbakshorn. Vatnsnesfjalls efstu eggjar einstöku bera skafl. Heiðavíðáttan vefur Víðidals lága Gafl. Fjalliff, sem Vatnsdal verndar, vafið i geislapeli, yzt, við endimörkin yppist Jörundarfeil. Frammi við Flóann bjarta, sem fágætur steinn I hring, felst milli fjalla og heiða ið fríða Húnavatnsþing. Fjöllin I blámóðu böðuð byggja við Skagafjörð. Mælifellshnúkurinn heiði um héraðið stendur vörð. Arnarvatns víði flötur vakir í fjallaró. Laugar enn tregatárum tangann, þars Grettir bjó. Einmana útlagans saga orkar á sál og hug, útlegð í heiðahreysum hetjunnar reyndi dug. Grettishöfðinn hái Hallmundar geymir dáð, er Gretti vasklega varói og veitti bjargarráð. Umhverfis alla vega óravíð heiðalönd, Gnípurnar gneipar standa við grænbrydda vatnsins rönd. Austur og yfir Sandinn opið er feikna svið. Réttarvatn munu margar minningar tengdar við. Líttu vestur um landið laugað í sólarglóð. með vingjarnleg vatnaaugu og vængjalétt svanastóð. Svanir með svásum rómi syngja þar dægrin löng. Ásarnir enduróma ásthýran fuglasöng. Leynast við lága bakka lækjanna silfurbönd. Vötnin og urðarása umvefja gróðurlönd. Sumarsins unaðsylur andar um grund og f jöll, hraunið og grænar gróöur, gælir við kalda mjöll. „Efst á Arnarvatnshæðum** yndi er nóg að fá, er vorhýru vorkvöldin speglast í vatnanna töfrasjá. Hugur I hærra veldi hefst yfir mannsins smæð. — Andann og augað gleður útsýn af Svartarhæð. Pétur Ásmundsson. Útibú við Sólheima 27 opið kl. 16-19 alla virka daga nema laugardaga. Þjóðminjasafnið er opiö þriðjudaga, fimmtudaga, iaugardaga og sunnu- daga frá kl. 1.30 til 4 e.h. Tæknibókasafn IMSl. Opið alla virka daag frá 13-19 nema laugardaga frá 13-15. Listasafn Einars Jónssonar er lok- að um óákveðinn tíma. MENN 06 = mL£FNI= Kristjárn Jónsson, lögíræð- ingur, hefur verið skipaður borgardómari í Reykjavík. Kristján er fæddur 22. ágúst árið 1914 á Stað á Reykjanesi. Hann varð stúdent frá Mennta skólanum á Akureyri árið 1937 og cánd. juris frá Háskóla íslands 6 árum síðar. Haustið 1943 varð hann fulltrúi sýslu mannsins og bæjarfógetans á ísafirði og árið 1950 varð hann fulltrúi bæjarfógetans á Akur eyri. Hefur hann gegnt því starfi síðan. Kristján átti um skeið sæti í fræðsluráði fsafjarðar og ennfremur á hann sæti í stjórn Sparisjóðs Akureyrar og er formaður Yfirkjörstjórn ar Norðurlands kjördæmis eystra. Þá er hann einn af stofnendum og eigendum Kvöldvökuútgáfunnar á Akur eyri. Kvæntur er Kristján Þórunni Jónsdóttur. JUMBO og SPORI ^1-16 Teiknari J. MORA — Heyrðu nú. mér hefur dottið nokkuð í hug, sagði Júmbó skyndi- lega. Lestu bara, hvað stendur á skilt- inu þarna á spönsku. — Bannað að kasta rusli. — Er taskan okkar kannski eitthvert rusl? Nei, alls ekki. og megum við þá ekki kasta henni hérna yfir girðinguna? — Jú, vissulega; hrópaði Spori glaður og kastaði töskunni af öllu afli yfir girðinguna. Loksins gátum við þá losnað við hana. Vonandi, að við heyrum aldrei frá henni framar. Þeir heyrðu að vísu hátt hljóð, þegar taskan féll til jarðar, hinum megin við girðinguna. En þar sem girðingin var á milli gátu þeir ekkert vitað, hvar hún hafði komið niður. Júmbó og Spori drógu nú andann léttar og lögðu aftur af stað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.