Morgunblaðið - 16.02.1963, Page 13

Morgunblaðið - 16.02.1963, Page 13
M ORCV 1S BT 4 1)1 Ð 13 Laugardagur 16. febrúar 1963 GSæsileg ÞEGAR komið er til Hólma- víkur af sjó, vekur hvað mesta atliygli kirkjan, sem er í smíðum á staðnum og gnæf- ir yfir hann. Mun leitun á jafn fallegu kirkjustæði, en kirkjan stendur hátt á svo- nefndum Brennuhól, en það er klif, sem er miðsvæðis í þorpinu, b.eint upp af höfn- inni. Séra Andrés Ólafsson er sóknarprestur á Hólmavík og prófastur í Strandaprófasts- dæmi. Við göngum á hans fund og leitum frétta af kirkju og safnaðarlífi á Ströndum. „Mitt prestakall nær frá Broddadalsá að Kaldbaksvík og eru 5 hreppar í því,“ segir Sr. Andrés, „en auk þess þjóna ég í Árnesprestaikalli. >ar hefur ekki verið prestur nema stuttan tíma í einu á undanförnum árum. Embætti hefi ég gegnt hér síðan 1948. „í mínu prestakalli, Hólma víkurprestakalli, eru 3 kirkj- ur, kapella í sambandi við skólahús á Drangsnesi og fjórða kirkjan er í smíðum í Hólmavík. Hólmavíkurhrepp- ur er tiltölulega nýlega orð- inn sérstök kirkjusókn. Skrið- ur komst þá á að reisa kirkju fyrir sóknina, en Hólmavík átti áður sókn að Stað í Steingrímsfirði.“ „Gunnar Ólafsson arkitekt og skipulagsstjóri var feng- inn til að gera uppdrátt að kirkjunni, sem hann gaf söfn- uðinum. (Gunhar var bróðir séra Andrésar, en lézt fyrir aldur fram árið 1959). betta var eina kirkjan sem hann teiknaði." „Framikvæmdir við kirkju- bygginguna hófust sumarið 1957 og það sumar var steypt ur grunnur. Næsta sumar var kirkjan gerð fokheld að mestu leyti. Sumarið 1960 var gengið frá þaki og kirkjan múrhúðuð að utan og mál- uð. Eftir er þó að reisa turn kirkja Landið okkar Fagurt kirkjustæði á Hólmavik. i smíðum á Hdimavík Samtal við séra Andrés Ölaísson prófast í Strandasýslu kirkjunnar, sem verður 9 metra hár.“ Stærð? Kirkjan er rúmir 200 fer- metrar að flatarmáli; stein- steypt krosskirkja með háu Sr. Andrés Ólafsson. risi og í útbrotum kirkjunnar eru skrúðhús annars vegar og geymsla hins vegar. Kór er útbyggður og rúmgóður. Söng loft er stórt og þar verður org eli komið fyrir. Er áætlað að kirkjan taki 154 í sæti.“ Er þetta ekki orðið dýrt mannvirki fyrir lítinn söfnuð? „Það hefur nú orðið nokkurt hlé á bygingarframkvæmdum af fjárhagsörðuleikum, en á- formað er að hefja fram- kvæmdir að nýju nú í vor og reyna þá að ljúka smíði kirkjunnar. Að sjálfsö>gðu er slík kirkjusmíði mjög þung- ur baggi fyrir fámennan söfn- uð, um 400 manns. En al- mennur áhugi er innan safn- aðarins um kirkjusmíðina og margir safnaðarmeðlimir hafa gefið vinnu sína og sjómenn hluta úr róðri. Góðar gjafir hafa borizt að, sem mikill styrkur hefur verið að. Yfir leitt má segja, að í söfnuðin- um ríki mikill áhugi og sam- hugur um það, að smíði þess- arar fögru kirkju verði lokið hið fyrsta. „Byggingarkostnaður nem- ur nú um 500 þús. krónum. Mikið af því fé er lán úr kirkjubyggingarsjóði og Al- mennum kirkjusjóði, en að sjálfsögðu er þar aðeins um lán að ræða og söfnuðurinn þarf sjálfur að bera allan kostnað af kirkjubyggingunni. Þá hefur hreppsfélagið laigt fram nokkra upphæð til kirkj unnar nokkur undanfarin ár. „En margt er ógert og erfitt að segja hvað kostar að ljúka kirkjunni, en það verður að minnsta kosti annað eins og hingað til. Við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti, og það tekur vafalaust tals- verðan tíma enn að ljúka kirkjunni.“ Hvar er messað núna? „Hér í Hólmavík eru guðs- þjónustur nú í barnaskólanum og auk þess hefi ég sunnudaga skóla hér yfir vetrarmánuðina. Hér í prestseturhúsinu er lítil kapella, þar sem ég vinn ýmis prestsverk, sem annars myndu verða gerð í kirkju. Þessi kap- ella er mikið notuð og til mikils hagræðis á meðan kirkja er ekki í þorpinu.“ Prestsseturhúsið stendur rétt fyrir ofan fjöruna innst í þorpinu í vinalegum hvammi. Það er líka teiknað af Gunnari Ólafssyni og byggt árið 1953. Áður sátu prest- ar að Stað í Steingrímsfirði. Þetta er tvílyft steinhús og mjög vandað. „,Auk þess,“ heldur séra Andrés áfram, „messa ég í kirkjunni á Kollafjarðarnesi, Stað í Steingrímsfirði, Kaldr- ananesi og í kapellunni á DrangsnesL „Sú kapella var reist árið 1945. Sóknin er fámenn og þótti ekki fært að ráðast í kirkjubyggingu þar, og var bygging kapellunnar talin heppilegasta lausnin á þessum vanda. Þótti þetta mjög á- kjósanleg lausn og hefir orðið öðrum til fyrirmyndar, t.d. í Hnílfsdal. Ég messa hér á Hólmavík og á annexíunum, en það fer að sjálfsögðu eftir færð. Samgöngur eru oft erfiðar hér í prestakallinu að vetrinum.“ Hvernig gengur að þjóna Árneshreppi, nyrzta hreppi sýslunnar? „Það er mjög erfitt að þjóna því prestakalli innan frá Hólmavík því að samgöngur eru mjög erfiðar og ferðir strjálar mestan hluta ársins." Eins og kemur fram af um mælum séra Andrésar, er mikill áhugi fyrir hinni nýju kirkju á Hólmavík, og safn- aðarfólk samtaka um að styðja þær framkvæmdir eftir megni. Einnig hefur orðið vart áhuga fyrir kirkjubygg- unni hjá gömlum Hólrrwíik- ingum, sem fluttir eru burt af staðnum. Með sama áfram haldi verður þess-varla langt að bíða, að hin fagra kirkja á Brennuhól verði fullgerð, og þegar hár turninn er kom- inn á hana, mun hún setja enn meiri svip á staðinn en nú er. Þetta er falleg og tign- arleg kirkja og þorpsbúum til mesta sóma. H. X. Sinfóníutónieikar ÞAÐ bar til nýlundu á tónleik- um Sinfóniuhljómsveitar íslands fimmtud. 7. þ.m., að á stjórnpall- inum stóð Ragnar Björnsson, einn aí þeim heimamönnum, sem einstöku sinnum konia fram „sem gestir“ á tónleikuim hljóm sveitarinnar. Ragnar er vel lærð ur hljómsveitarstjóri og gáfað- ur tónlistarmaður. En hann skort ir því miður að verulegu leyti þá reynslu, sem aðeins fæst í löngu samstarfi við hljómsveit- ir. Þá reynslu verða hljómsveit- erstjórar að hafa, eins og sjó- menn verða að hafa að baki á- kveðinn siglirigatíma, auk til- skilinna prófa, áður en þeir telj- ast fullgildir skipstjórnarmenn. Hér á landi, þar sem aðeins ein hljómsveit — sem sjálf er í mótun — heldur takmarkaðan fjölda tónleika árlega og óperan er ekki flutt nema með höpp- um og glöppum, eru ekki upp- eldisskilyrði fyrir hljómsveitar- stjóra. fslenzkir menn, sem vilja leggja það starf fyrir sig, verða því enn um sinn að vera undir það búnir að þurfa að dveljast langdvölum utanlands að námi loknu og starfa þar sem að- stoðarmenn og ígripastjórnend- ur, oft við léleg kjör. Það má •egja, að þetta séu allharðir kost ir, en reyndin er sú, að þetta «r sá ferill, sem fleslir góðir hljómsveitairstjórar hafa fetað, nema þeir, sem vaxið hafa upp í hljómsveitunum sjálfum. — Þó sýnist að skaðlitlu mundi mega gefa heimamönnum fleiri tæki- færi til að reyna sig við hljóm- sveitarstjórn en verið hefir nú um sinn. Enda verður að segja — þótt' það kunni að sýnast í mótsögn við staðhæfingarnar hér að ofan — að tónleikar þeirra, þeir fáu sem verið hafa undanfarið, hafa yfirleitt í engu staðið að baki öðrum tónleik- um hljómsveitarinnar, og sumjr raunar verið meðal hinna merk ustu þeirra. Fyrst á efni9skrá tónleikanna 7. febrúar, voru tvö norræn verk: Þjóðlag með tilbrigðum eftir Grieg, op. 51, og Völuspá fyrir karlakór og hljómsveit, op. 71, eftir J.P.E. Hartmann. Grieg hefir af flestum verið talinn merkasta tónskáld Norðurlanda á síðari hluta 19. aldar, og er ekki laust við, að hróður hans hafi stundum verið aukinn á kostnað samtíðarmanna hans. Á þá sveif hallast í þeim orðum, sem höfð eru um Grieg og Hart mann í efnisskrá tónleikanna, sem hér um ræðir. En ef verkin, sem flutt voru, eru borin saman verður annað ofan á. Tilbrigði Griegs um hið fagra þjóðlag „Sjugurd á Trollbrura" eru and lítil og hversdagsleg, stundum staiglsöm úr hófi fram, og munu þó hafa verið talsvert stytt í þessum flutningi. Enginn hljóm sveitarstjóri mundi hafa getað bjargað þessu verki og gert úr því áheyrilega tónlist. En reynd- ur hljómsveitarstjóri mundi hafa bjargað sér, með því að taka verkið alls ekki á efnisski-á. Og Grieg er enginn greiði gerður með því að draga fram I dags- ljósið þessa sjaldheyrðu og furðu viðvaningslegu tónsmíð. Sé þetta verk haft til saman- burður, sýnist Völuspá Hart- manns gerðarleg tónsmíð og karlmannleg, jafnvel „norræn“ að yfirbragði, þótt hinu verði naumast neitað, samkvæmt ís- lenzkum skilningi, að þar „komi hugmóður fornljóðsins lítt í ljós“, eins og segir í efnisskránni. En vitanlega kemur aðeins fram í verkinu danskur 19. aldar skiln ingur á textanum, og er fásinna að búast við öðru. Það er svo sérstakt mál, hvort sá skilningur er þess verður, að honum sé á loft hldið. En hvað sem segja má um samband tónverksins við textann, þá stendur það fyrir sínu „sem slíkt“, það er traust- byggt, blæbrigðaríkt og talsvert rismikið. Áður en tónverkið var flutt las Lárus Pálsson þau erindi Völuspár, sem tónskáldið hefir tekið til meðferðar. Hann fór forkunnarvel m.eð þau, og í ann- an tíma væri gaman að heyra hann fara með kvæðið allt, eða að minnsta kosti heillegri kafla úr því en hér er um að ræða. Tónverk Hartmanns er samið við danska þýðingu á Völuspá eftir Fr. Winkel Horn. Þar sem lögin falla ekki við frumtextann, hafði honum verið vikið við, þar sem nauðsyn krafði, og var söng textinn prentaður í efnisskránni. Upplesturinn missti því marks, bauð heim ónauðsynlegum texta- samanburði og var yfirleitt iítt til þess fallinn að undirbúa hlust endur undir að hlýða verkinu með réttu hugarfari. Karlakórinn Fóstbræður gerði kórhlutverkinu ágæt skil, og yfir leitt má segja, að Völuspá væri það viðfangsefnið, sem að öllu samanlögðu fór bezt úr hendi á tónleikunum. Misráðið var, að láta kórinn stnda til hliðar við hljómsveitina. Með því var sam- tökurn hljómsveitar og kórs stefnt í hættu og kom nokkrum sinnum áberandi að sök. Það, sem hefði átt að vinnast í heppi- legri styrkleikahlutföllum, kom hins vegar ekkj til skila, því að kórinn söng fyrir brgðið þvert á salinn, í átt til stjórnandans. Og er hér enn ein áminning um, að ekki er lokið endurskoðun á hljómiburði í þessu ágæta húsi. Veigamesta verkefnið og það, sem að sjálfsögðu reyndi mest á stjórnandann, var áttunda sin fónía Beethovens. Mangt var þar vel gert og ljúfur blær yfir flutningnum í heild, þótt hinir stærri drættir verksins hefðu þurft að vera skýrar mótaðir. Samband stjórnanda og hljóm- sveitar virtist í góðu lagi, og lofar það góðu um samvinnu þeirra í framtíðinnL Að öllu smanlögðu voru þess- ir tónleikar engu síður athyglis- verðir en margir aðrir tónleik- ar hljómsveitarinnar í vetur, og mun Ragnar Björnsson mega líta á þá sem merkan áfanga á starfsferli sínum. Jón Þórarinsson. Smábátafélag á Patreksfirði Patreksfirði, 12. febrúar. SÍÐASTLIÐINN sunnudag var s t o f n a ð hér smábátafélagið Brynja. Tilgangur félagsins er að vinna að hagsmunamálum trillubátaeigenda, Félagssvæðið er Patreks- og Rauðasands- hreppar. Stofnendur félagsins eru 17 talsins. Fyrstu stjórnina skipa: Aðalsteinn Sveinsson, formaður, Ólafur D. Hansen, ritari, Jón Sveinsson, gjaldkeri, Erlendur Hjartarson og Haraldur Guð- hrandsson meðstjórnendur. — Trausti. Haag, 12. febrúar. — NTB-Reuter — STJÓRN Hollands kunngjörði í dag að stofnaðar hafi verið „friðarsveitir", að bandarískri fyrirmynd og munu þær sendar til starfa í Afríku á þessu ári. Fyrsta sveitin fer væntanlega seint í sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.