Morgunblaðið - 16.02.1963, Síða 24
I
JT/7A/17A/Æ,
frá
JfekJu
14 /
«7 Lm
Austurstræti
Sími 11687
Vandláti’r velja
39. tbl. — Laugardagur 16. febrúar 1963
Oráttarvél hvolfdi
yfir bóndann
Slapp með biingubeinsbrot
Akranesi, 15. febrúar.
I fyrradag varð Steinþór Ingj-
marsson, bóndi að Miðhúsum í
Akraneshreppi, undir dráttarvél,
sem hvolfdi yfir hann. Fyrir ein-
skæra mildj slapp Steinþór lif-
andi frá þessu, en bringubeinið
brotnaði.
Nánari atvik voru þau, að Stein
þór var að aka dráttarvélinni og
var jeppakerra aftan í, full af
rusli, sem hann ætlaði að fleygja
niður fyrir 3 metra háan bakka.
>ar bakkaði Steinþór vélinni, en
fúllmikið, vegna þess að hjólin
runnu til í hálku, svo kerran fór
fram af bakkanum og kippti
dráttarvélinni á eftir niður.
Hvolfdist hún yfir Steinþór, en
svö heppilega vildi til, að undir
var sandur, þótt víða sé þarna
hnullungsgrjót.
Steinþór, sem er knár maður
og röskur, gat komizt undan
dráttarvélinni af sjálfsdáðun.
Sv.o hafði og kona hans komið
skjótt á vettvang.
Steinþóri var ekið í sjúkrahús
til rannsóknar og síðan heim til
sín.
Guðmundur bóndi að Innra-
Hólmi dró vélina upp í gærmorg-
un. — Oddur.
Harður árekstur
á Akureyri
AKUREYRI, 15. febr. — Mjög
harður bifreiðaárekstur varð í
eitt í nótt. Rákust þá saman tveir
eitt í nótt. Rákúst þá saman tveir
sex manna fólksbílar á mótum
Lönguhlíðar og Hörgárbrautar,
en sú síðarnefnda er aðalbraut.
Annar bíllinn sveigði inn á
Hörgárbraut í veg fyrir hinn og
varð árekstri ekki afstýrt. —
Meiðsli urðu ekki á mönnum en
bílarnir skemmdust báðir mjög
mikið. — Fréttaritari.
Skrímslíð
sást ekki
aftur
FRÉTTARITARI Mbl. á
Vopnafirði skýrði blaðinu
svo frá í gær að skepna sú
hin ókennilega, sem þeir
bræður Sigurjón og Ágúst
Jónssynir sáu 13. febrúar, og
Mbl. greindi frá í gær, hefði
ekki birtzt sjónum manna
aftur og væru menn enn að
velta fyrir sér hvaða furðu-
fiskur þar hafi verið á ferð.
Telja þeir bræður að um
brandháf geti ekki hafa ver-
ið að ræða, en sú skýring
datt fiskifræðingum í hug. —
Eftir er þá að vita hvert
skrímsl það er, kömbum prýtt.
sem heimsótti Austfirði á
miðvikudaginn.
Mánafoss, hið nýja skip Eimskipafélags íslands, kemur tii landsins í dag. Er skipið væntanlegt
til Akureyrar, þar sem það hefur fyrst viðkomu, um kl. 11 f. h. Þaðan heldur skipið til Dalvík-
ur, Siglufjarðar, Norðfjarðar, Reyðarf jarðar, Vestmannaeyja, Hafnarf jarðar og kemur til
Reykjavíkur um miðja næstu viku. Skipið verður sem kunnugt er mjög mikið í innanlandssigl-
ingum. — Myndin var tekin af Mánafossi við bryggju í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum dögum
og má gjörla sjá hver vandræði stafa af íshröngli á Norðurlöndum um þessar mundir. \
Datt og lamaðist
á báðum fótum
Akureyri í gærkvöldi.
HULL.TOGARINN St. Alcuen
kom liingað kl. hálf tíu í kvöld
með slasaðan háseta. Hreppti
skipið illt veður og þungan sjó
í grennd við Grímsey. Varð
hásetanum fótaskortur, féll aft-
ur yfir sig, og hlaut meiðsli í
baki þannig að hann er lamaður
á báðum fótum.
Mikil ölvun
MIKIL ölvun var í borginni í
gærkvöldi að því er lögreglan
tjáði Mbl. á ellefta tímanum í
gærk'völdi. Var þá hver klefi
skipaður í fangageymslunni í
Síðumúla.
Fiugmálastjórn USA gegn sam-
þykkt IATA - nema feróum SAS
Beiíir sér gegn fargjaldahækkun á afþjóðaleiðum
Einkaskeyti til Morgun-
blað<sins, — Washington,
15. febrúar — AP
FLUGMÁLASTJÓRN Banda-
ríkjanna tilkynnti í gær, að
hún gæti ekki fallizt á öll at-
riði samkomulags þess, er gert
var á fundi Alþjóðasambands
flugfélaga (IATA) í október
sl.
Flugmálastjórnin hefur gef
ið IATA 15 daga frest til að
endurskoða afstöðu sina til
þessara atriða.
Fyrst og fremst er hér um
að ræða áætlun um að draga
úr afslætti á miðum, sem
keyptir eru í einu, fyrir báðar
leiðir í millilandaflugi.
Þá lætur stjórnin í ljós ó-
ánægju með fyrirkomulag
það, sem fyrirhugað er að
verði á flugi SAS með skrúfu
vélum. Samkvæmt samþykkt
IATA má SAS aðeins taka
farþega frá Norðunöndum og
Banuarikjunum. Hins vegar
mun flugmáiasijoinin eKki
leggja stein i götu sliks flugs
þar eð i samþykkt IATA mun
gert ráð fyrir enuurskoðun
þessa máls áður en langt um
liður.
í skeytinu segir: Flugmóla
stjórn Bandax-ÍKjanna hafnaði
í gær nýjum fargjölctum á al'
þjóðaflugleiðum, þar eð þau
yrðu um 5% hærri á mörgum
flugleiðum. Þetta hefur í för
með sér, að flugfélög þau, er
aðild eiga að IATA, verða að
taka til endurskoðunar þær
fargjaldasamþykktir, er gerð
ar voru í Chandler í Arizona
í október sl.
Samþykkt IATA var á þá
leið, að lækkaður yrði 'afslatt
ur á farmiðum, sem keyptir
eru í einu lagi, til ákvörðun-
arstaðar og til baka. Afslátt-
urinn hefur verið 10%, en
yrði 5% samkvæmt nýju sam
þykktinni. Samþykktin átti
að ganga í gildi 1. april nk. og
gilda í 2 ár. #
í tilkynningu flugmóla
stjórnarinnar segir, að næði
samþykktin fram að ganga,
myndi hún leiða til hækkunar
fargjalda á flestum flugleiðum
í heimi. Slík hækkun fargjalda
á flestum flugleiðum í heimi.
Slik hækkun er hins vegar tal
m ótímabær á leiðum yfir
Kyrrahaf, þar eð flugfélög
þau, er það flug annist, avaxti
fé sitt með 14 af hundraði.
Fkigmálastjórnin féllst að
visu á það, að ágóði af flugi
yfir Atlantshaf sé of litill, en
telur orsökina fyrst og fremst
vera þá, að hærri fargjöld
myndu ekki verða til þess að
auka sætanýtingu, heldur yrði
hér um aukið ólag á farþega
að ræða, þ.e. aukagreiðslu
vegna auðu sætanna.
Segir ennfremur, að á báð
um þessum flugleiðum muni
ekki verða leyfð fargjalda-
hækkun, og er m.a. á það
bent ,að þau félög, sem fljúgi
einungis innan Bandaríkjanna
ávaxti fé sitt með 10 af hundr
aði. Er IATA gefinn 15 daga
frestur til að endurskoða af-
stöðu sína í þessu máli.
Hins vegar er fallizt á þá
grein samþykktar október-
fundarins, er víkur að far-
gjöldum fyrir ferðamanna-
hópa.
Bent er á það, að fargjöld
frá New York til London
hafi hækkað úr 300 dölum í
310, en sú hækkun er ekki
taiin veruleg, og verði far-
gjaldið að teijast lógt.
Samþykkt IATA gerir ráð
fyrir, að SAS bjóði lág far-
gjöld með sKrúfuvélum milli
New York og Norðurlanda.
Verði anniað hvort um að
ræða beint flug frá Stokk-
Framhald á bls. 23
Skipstjórinn hafði þegar sam-
band við lækni í landi- sem ráð-
lagði honum að sigla til Akur-
eyrar og koma manninum í
sjúkrahús.
Hásetinn, sem heitir N.C. Grath
frá N-írlandi, liggur nú í sjúkra-
húsinu hér en meiðsli hans voru
ekki fullkönnuð í kvöld að öðru
leyti en því að hann er lamað-
ur á báðum fótum. Togarinn
hélt þegar aftur út til veiða.
—Fréttaritari.
Kópavogur
STJÓRNMÁLANÁMSKEIÐ Týs
heldur áfram sunnudaginn 17.
febrúar kl. 15.00.
Fundarefni:
Sjálfstæðisstefnan og stjórn-
málaflokkarnir (Árni Grétar
Finnsson lögfræðingur).
Bæjarmál Kópavogs
(Kristinn Wium, bæjarfulltr.).
Umræður.
Týr.
11. ÞING
hefst á
Þing IMorð-
urlanda-
ráðs hefst
í dag
Oslo, 15. febr. NTB.
Norðurlandaráðs
morgun. Kl. 11 f.h.,
eftir norskum tíma (9 f.h. ísl.
tíma), setur núverandi for-
seti, K.A. Fagerholm, frá
Finnlandi, þingið.
>á verður kosinn nýr for-
seti og varaforseti, en auk
þess verður kjörið í fasta-
nefndir, fjórar talsins.
Er fundur hefst aftur kl.
15, eftir n. tíma. er gert ráð
fyrir, að forsætisráðherrar
allra Norðurlandanna taki til
máls.
í>á mun Vainö Linna, er
nýlega hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs, veita
þeim viðtöku.
Þetta er í þriðja sinn, sem
Norðurlandaráð kemur sam-
an í Osló.
Listi lýðræðíssinna í Tre-
smiðafélagi Reykjavikur
LÝÐRÆÐISSINNAR í Trésmiðafélagi Reykjavíkur lögðu fram
Iista sinn til stjórnarkjörs sl. fimmtudag, en þá var útrunniun
framboðsfrestur í fclaginu.
Listi lýðræðissinna er þannig
skipaður: Aðalstjórn: Þorleifur
Sigurðsson, form., Ólafur Ólafs-
son, varaform., Magnús Þor-
valdsson, vararitari, og Haraldur
Sumarliðason, gjaldkerL Vara-
stjórn: Kári Ingvarsson, Jóhann
Walderhaug og Jónas G. Sig-
urðsson. Endurskoðendur: Ás-
mundur Þorkelsson og Böðvar
Drengur fyrir bíl
KL. 15:10 í gær varð sex ára
drengur, Hreinbjörn Halldórs-
son. Skálagerði 7, fyrir bíl fyrir
framan Lækjagötu 6. Var hann
fluttur í slysavarðstofuna en
meiðslin munu ekki hafa verið
alvarleg.
Böðvarsson. Varaendurskoðend
ur: Þórir Thorlacius og Þorkell
Ásmundsson. Trúnaðarmannaráð:
Guðmundur Sigfússon, Jón H.
Gunnarsson, Jón Þorsteinsson,
Þorvaldur Ó. Karlsson, Eggert
Ólafsson, Erlingur Guðmunds.
son, Haraldur Agústsson, Magn»
ús Karlsson, Ragnar Bjarnason.
Viktor Heiðdal Aðalbergsson,
Tómas Ó. Tómasson og Úlfar
Gunnar Jónsson. Varamenn í
trúnaðarráði: Kjartan Tómasson,
Erlingur Vigfússon, Sævar Örn
Kristbjörnsson, Karl Þorvalds-
son, Magnús Stephensen og Knut
Helland.
Ekki er enn ákveðið hvenær
kosningar fara fram í félaginu,
en það verður á næstunni.
;1
Sjálfstœðisfólk!
munið Varðarkaffið í ValhöU
í dag kl. 3—5 e. h.