Morgunblaðið - 23.04.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.04.1963, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 23. apríl 1963 MORGUNBLAÐIÐ 23 j BLAÐIJíU barst þessi myndt frá Associated Press í gær. 1 Sýnir hún gerla hve starf l mannanna, er vinna að rann- J sókn flugslyssins við Osló á páskadagf, er vandasamt og 1 seinlegt og krefst mikillar i nákvæmni. Maðurinn, sem ! hér sést að störfum, er L.ars I Stenberg, 'einn af verkfræð- 1 ingum norsku flugmálastjóm- arinnar. — Stefna Framhald af bls. 1. forystunnar sjálfrar séu markleysa. Annað hvort verð ur þingið að standa við stóru orðin um það að kjósa um landhelgismálið eða lýsa öll orð og gerðir flokksforyst- unnar dauð og ómerk. Þegar landhelgismálið var til umræðu á Alþingi gaf Fram- sóknarflokkurinn svohljóðandi yfirlýsingu: „Framsóknarflokkurinn lýsir yfir, að hann mun líta á vænt- anlegan samning við Breta um fiksveiðilögsöguna sem nauð- ungarsamning og nota fyrsta tækifæri, sem gefast kann, til þess að leysa þjóðina undan oki hans“. Þessi yfirlýsing var endurtek- ln í Tímanum fyrir nokkrum vikum og undirstrikað, að hún væri enn í fyllsta gildi. Eins og kunnugt er, eru nauðungarsamn- ingar ýmist ógildir frá upphafi eða þeir eru ógildanlegir ein- hliða. Áður en samkomulagið við Breta var gert sagði Her- mann Jónasson um það: „Án samþykkis kjósenda verð ur hann (samningurinn) því markleysa ein“. Þessi lögfraeðingur Framsókn- arflokksins skýrði það svo, að samningurinm við Breta væri ó- gildur frá upphafi, án sam- þykkis þjóðarinnar. Tíminn bætti því við, að þjóðin yrði að taka í taumana og margsinnis var um það rætt, að kosið yrði um landhelgissamninginn. ÞÁ YRÐU NÝ ÁTÖK Um það verður þess vegna ekki deilt, að yfirlýsingar Fram- sóknarflokksins I þessu efni eru ótvíræðar. Hann segist, ef hann fær mátí til á Alþingi, þá auð- vitað með kommúnistum, ætla að ógilda samkomulagið við Breta eða lýsa yfir, að það hafi frá upphafi ógilt verið. í sama 6tað kemur niður hvor leiðin yrði farin; algjör óvissa mundi ríkja í landhelgismálinu. Bretar væru þá óbundnir af samþykkt 6inni á mikilvægum grunnlínu- breytingum, sem hafa marg- falda þýðingu fyrir ísland á móti hinum takmarkaða rétti Breta tii veiða í fiskveiðiland- helginni. Alvarlegir stjórnmála- árekstrar hlytu þá óhjákvæmi- lega að verða við Breta. Það er ekki furða þótt komm- únistar tali um það, að Fram- sóknarmenn standi sig vel. Yfir- lýsingar þeirra í utanríkismál- um hafa yfirleitt allar verið mjög geðþekkar kommúnistum og tíðum hafa Framsóknarmenn gengið feti lengra en kommún- istar sjálfir. En þing Framsóknarflokksins kemst ekki fram hjá því að lýsa annað hvort yfir, að stefna flokksins í landhelgismálinu sé rétt, þ.e.a_s. að samkomulagið við Breta sé markleysa, eða þá að lýsa því yfir — eins og áður segir — að orð forsprakkanna séu marklaus. Eftir því verður tekið, hvora leiðina flokksþingið velur. Ef það þegir, undirstrik- ar það, að kjósa eigi um land- helgismálið og Framsóknar- flokkurinn hyggist að afloknum þeim kosningum rifta samkomu- laginu, ef hann hefur mátt til þess með kommúnistum. — Laos Framhald af bls. 1. herrar Breta ©g Rússa í Laos, en þær þjóðir voru í forsæti á ráðstefnunni, sem haldin var í Genf um Laos. Forsætisráðherr- ann og sendiherrarnir ræddu við foringja Pathet Lao, Souphanou- vong, aðstoðarforsætisráðherra. Sá síðastnefndi lofaði, að her- sveitir kommúnista skyldu ekki gera fleiri árásir á stöðvar hlut- lausra, en neitaði að verða við ósk forsætisráðherrans um, að alþjóðlega eftirlitsnefndin fengi að koma til Krukkusléttu til þess að sjá um að þar væri hald- inn friður. í dag skýrði Sou- vanna Phouma frá því, að hann færi bráðlega aftur til Krukku- sléttu til þess að halda áfram viðræðum við kommúnista. Forsætisráðherrann er nú staddur í Vientiane. í ræðu, sem hann hélt í dag, sagði hann, að hæfust bardagar á ný á Krukku- sléttu myndi hann taka þátt í þeim. Hann sagðist ekki geta horft á það aðgerðarlaus, að herj um hlutlausra væri útrýmt. Foringi hægri sinna í Laos sagði í dag, að tsekju kommún- istar alla Krukkusléttu á sitt vald, myndu hægri sinnar sker- ast í leikinn. Foringi hers hlut- lausra, Kong Lae, kom til Vienti ane í dag frá bækistöð sinni við þorpið Muong Panh á Krukku- sléttu. Ræddi hann m.a. við for- sætisráðherrann um viðræður hans við Pathet Lao. • Varúðarráðstöfun í kvöld komust fregnir á kreik um það, að skip úr sjö- unda flota Bandaríkjamanna væru á leið til Thailandsflóa, vegna hins alvarlega ástands í Laos. Talsmaður bandaríska ut- anríkisráðuneytisins skýrði frá því síðar, að þetta væri rétt. Væru þetta varúðarráðstafanir. • Viðræður um Laos Averell Harriman, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ræddi í dag við Couve de Murville, utanríkisráðherra Frakka, í París. Ræddu þeir m.a. Laosmálið og að fundinum lokn- um var skýrt frá því, að Banda- ríkin og Frakkar styddu ein- dregið stjórn Souvanna Phouma í Laos. Harriman sagði, að hann teldi ekki ástæðu til þess að kalla Genfarráðstefnuna saman á ný, Pekingstjórnin hefði lagt það til undir því yfirskini, að Bandaríkjamenn væru í Laos og æstu til óeirða þar. Harriman sagði, að þessar fullyrðingar væru algerlega úr lausu lofti gripnar. í London ræddi Home lávarð- ur, utanríkisráðherra Breta, á- standið í Laos við sendiherra Indlands og Póllands í borginni, en Indverjar og Pólverjar eiga ásamt Kanadamönnum sæti í al- þjóðlegu eftirlitsnefndinni í Laos. Á morgun ræðast þeir við í London, Averell Harriman og Home lávarður. Kennedy Bandaríkjaforseti ræddi Laosmálið við öryggisráð Bandaríkjanna í dag. — Landib ókkar Framhald af bls. 13. inum fyrir framan eru útstilling- argluggar fyrir náttúrufræðigripi, sem að vísu eru ekki til ennþá, og heimavistin er alveg sér í álmu. Kostnaðurinn í heimavist- inni verður kr. 21,50 á dag, eða nálægt 1400 kr. yfir veturinn. — Börnin hafa yfirleitt unað sér vel, segir Ólafur. Það er viðburð- ur ef leiðindi eru í barni, enda látum við þau vera srtutt í eirau fyrst meðan þau eru að vemjast. Að lokum spyrjum við Ólaf hvort árangur verði ekki lakur í slíkum skóla, þar sem bömin koma svo seint og séu stuttam tíma á vetri. Hann kvað mei við. Árangur hefði orðið mjög góður miðað við aðra skóla. — Við höfum skýrslur frá landsprófsgreinunum, og við höfum oft heldur haft vinning- inn yfir kaupstaðaskólana í meðaleinkunn. Annað höfum við ekki til að miða við. Það hlýtur að teljast mjög góð- ur árangur. En þegar ég sá hve hljóð börnin sátu yfir heima- vinnunni sinni, datt mér í hug að þar væri e.t.v. skýringu m. a. að finna. Þarna í heiimavistar- skólanum hafa bömin það eftirlit og þá hjálp sem hvert bam ætti að hafa heima hjá sér við heixna- vinnuna. — E. Pá — Me&vitundarlaus Framhald af bls 24. legu æði, ræðst eldsnöggt á hús- bóndann, slær til hans og hrind- ir honum fram af stigapallinum og niður í kjallarann, þar sem höfuð hans skall í gólfið eða á dyrakarm. Fékk Kristdór mik- inn áverka á hnakkann, missti meðvitund og blóð fossaði úr sárinu. Kfistín húsfreyja hljóp til, þegar hún sá tilræðið og ætlaði að veita maniai sínum lið. En ár- ásarmaðurinn sló hana þá mikið högg fyrir brjóstið og hratt henni einnig niður stigann. Marð ist Kristín mikið á báðum hand- leggjum, tognaði illa og brákað- ist við fallið, auk þess sem hún fékk taugaáfall. Allt gerðist þetta í einni svip- an. Dóttir þeirra hjóna, 23 ára gömul, er gengin var til náða, kom þjótandi ?ram er hún heyrði harkið og hugðist hjálpa foreldrum sínum í viðureigninni við ofstopamanninn. H a n n reyndi að slá til hennar, en hún gat vikið sér undan högginu. Þá skauzt ódæðismaðurinn út um dyrnar og skellti hurðinni á eftir sér. Var nú hrinigt í lögreglu og lækni í ofboði og hjónin flutt á sjúkrahús. Kristdór sem er 59 ára að aldri er ekki enn kominn til meðvitundar og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu. Frú Kristín, sem er 45 ára að aldri, hefur nú verið flutt heim til sín, en er þó illa haldin enn. Árásarmaðurinn náðist um nóttina og situr hann í gæzlu- varðhaldi. Mál hans er ekki full- rannsakað. Það skal skýrt tekið fram að Kristdór neytir aldrei áfengis og vín er ekki um hönd haft á heimili hans. Háseti slasaðist við uppskipun Húsavík, 22. apríl: — Háseti á dönsku skipi lenti í spili sl. laugardag og slasaðist mikið á fæti. Danska skipið Iren Frijs losaði sement sl. laugardag. Um kvöldið þegar uppskipun var lokið og verið var að ganga frá bómum vildi það slys til að einn háseti, Gunnar Albert Pét- ursson, lenti í vírlykkju sem dró hann að trommlu, sem verið var að hífa bómuna með. Gunnar brotnaði mjög illa á öðrum fæti og vöðvinn rifnáði neðan við hné. Hann var strax fluttur í sjúkrahús á Húsavík og gerði Daníel Daníelsson, héraðslæknir að sárum hans og tók aðgerðin marga klukkutíma. Gunnar er búsettur I Dan- mörku, en mun vera íslenzkur í aðra ættina. Líðan hans í dag er eftir atvikum sæmileg. Lester Pearson Pearson forsætis- . ráðherra Kanada ÍOttawa 22. apríl (NTB). í DAG afhenti John Diefen— baker landsstjóra Kanada lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt. Skömmu síðar vann Lester Pearson em- bættiseið ásamt ráðherrum í hinni nýmynduðu stjórn sinni. Eins og kunnugt er vann flokkur Lester Pearson, Frjálslyndiflokkurinn, mikið fylgi af íhaldsflokknum í ný- afstöðnum kosningum. Hann hefur þó ekki meirihluta á þingi, en á vísah stuðning hins hægri sinnaða Sósíal- creditflokks og Nýrra Demó- krata. Eins og áður segir, er Lester Pearson forsætisráð- herra er Paul Martin, dóms- málaráðherra Lionel Chevrier og varnarmálaráðherra Poul Hellyer. Fyrsta verkefni stjórnarinn ar verður að taka afstöðu til þess hvort búa eigi her Kan- ada kjarnorkuvopnum, en það var vegna deilna um það mál, sem stjórn Diefenbakers féll. í ræðu, sem Pearson hélt eftir að hann tók við forsætls ráðherraembættinu, s a g ð i ’hann, að Kanadamenn myndu innan skamms kaupa kjarn- orkuvopn af Bandaríkjamönn um. Frjálslyndi flokkurinn hef- ur nú 130 þingmenn, sósíal- creditflokkurinn 24 og Nýir Demókratar 17. íhaldsflokkur inn hefur 94 þingmenn. Hafnarfirði. — Sídegis á laug- ardaginn strandaði togarinn Röðull hér skammt fyrir ut- an hafnargarðana, á svonefndu Torfaskeri. Hafði hann legið hér fyrir utan og rekið á fyrr- nefnt sker. Röðull losnaði ekki af sker inu fyrr en á flóði utu nótt- ina. Var veður hið bezta og því engin hætta á ferðum. Kom hann þá hér inn að bryggju og voru froskmenn látnir athuga botn hans. Reyndust skemmdir ekki það miklar að hann þyrfti að fara í slipp, eitthvað mun botninn þó hafa dældast. Hann fór á veiðar á sunnudaginn. — GiE.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.