Morgunblaðið - 24.04.1963, Síða 5
Miðvikudagur 24. april 1963
M0RGUNBL.4ÐIÐ
5
Adenauer (lengst til vinstri) og Erhard (lengst til hægri). Myndin er tekin á 86 ára af-
mæli Adenauers fyrir rúmu ári.
Ludwig
Eftir langar deilur sam-
j þykktu kristilegir demókrat-
i ar í V-Þýzkalandi í gær, að
, dr. Ludwig Erhard skuli taka
við af Konrad Adenauer
kanzlara, þegar sá síðar-
i nefndi lætur af embætti í
j haust. Erhard hefur verið
fjármálaráðherra frá því
fyrsta stjórn V-Þýzkalands
1 var mynduð árið 1&49 undir
i forsæti Adenauers, og er eini
I i meðráðherra kanzlarans, sem
setið hefur óslitið í stjórninni
j síðan.
I 1 Erhard er fæddur í Fúrth
í Suður-Þýzkalandi árið 1897,
j og var faðir hans vefnaðar-
i vörukaupmaður. Eftir fyrri
| heimsstyrjöldina hóf hann
í nám í hagfræði og þjóðfélags-
j fræði. Tók hann doktorspróf
i í hagfræði árið 1923. Vann
j hann eftir það lengi að mark-
I aðsrannsóknum við efnahags-
I og iðnaðarstofnanir í Þýzka-
Afesfur á morgun
L.augarneskirkja. Skátamessa á
morgun kl. 10:30 f.h. Séra Garðar
Svavarsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Messa á
morgun kl. 2. Ferming. Séra Kristinn
Stefánsson.
Hafnarfjarðarkirkja. Skátaguðsþjón-
usta á morgun kl. 11. Séra Garðar
J>orsteinsson.
Kópavogskirkja. Altarisganga í kvöld
kl. 8:30. Séra Gunnar Árnason.
Elliheimilið. Missirisskiptaguðsþjón-
ustur. Síðasta vetrardag kl. 6.30 síð-
degis. Séra Sigurbjörn Á. Gíslason.
Sumardaginn fyrsta kl. 10 árdegis
Felix Ólafsson, cand. theol. Heimilis-
presturinn.
Erhard
landi þar til nazistar hröktu
hann úr embætti 1942.
Eftir síðari heimsstyrjöld-
ina var Þýzkalandi skipt í her
námssvæði, og höfðu herstjórn
ir Bandamanna yfirstjórn
mála í vesturhluta Þýzka-
lands. Gerðist Erhard þá efna
hagsráðunautur herstjórnar
innar þar til fyrsta vestur-
þýzka ríkisstjórnin var mynd
uð. Stjórnmálaferill hans
hótfst í september 1945, þegar
hann varð viðskiptamála'ráð-
herra héraðsstjórnarinnar í
Bajern. Sem ráðunautur hern
aðaryfirvaldanna hafði Er-
hard afgerandi áhrif á gjald-
miðilsskiptin 1948, þegar
gamla Ríkismarkið var numið
úr gildi og núverandi gjaid-
miðill, þýzka markið, tekinn
upp. En breyting þessi var
upphaf að efnahagsviðreisn
V-Þýzkalands.
Daginn, sem gjaldmiðils-
skiptin fóru fram, flutti Er-
hard útvarpsávarp til þjóðar
sinnar. Kom það jafnt her-
stjórninni og öðrum á óvart,
að hann tilkynnti afnám
skömmtunar og verðlagseftir
lits í V-Þýzkalandi, og töldu
margir að hér hefði Erhard
stigið feti of langt. Svo reynd-
ist þó ekki, og hófst nú við-
reisnartími, sem nefndur hef-
ur verið með réttu „fjárhags-
undrið“.
í fyrstu hafði Erhard engin
afskipti af baráttu stjórn-
málaflokka og var álitinn
frjálslyndur í skoðunum. En
við fyrstu þingkosningar í V-
Þýzkalandi 1949, var hann
einn af frambjóðendum Kristi
legra demókrata. Hann hlaut
kosningu og, eins og að fram-
an greinir, var skipaður fjár-
málaráðherra þá um haustið.
Frá upphafi var litið svo á,
að Erhard væri sjálfkjörinn
eftirmaður Adenauers. En
sjálfur hefur Adenauer verið
því mjög mótfallinn. Nokkrir
aðrir leiðtogar Kristilegra
demókrata hafa því verið
nefndir í þessu sambandi, svo
sem Gerhard Schröder, utan-
ríkisráðherra, og virtist sem
Adenauer væri að bíða með
að tiln-efna eftirmann sinn þar
til vænlegar horfði fyrir ein-
hverjum keppinauta Erhards.
Vegna ósigra Kristilegra
demókrata í nýafstöðnum
aukakosningum þótti þó ekki
gjörlegt að bíða lengur, og
varð Adenauer að láta undan.
í febrúar sl. fór fram skoð-
anakönnun í V-Þýzkalandi
meðal kjósenda um vinsældir
væntanlegra kanzlaraefna, og
hlaut þá Erhard aðeins 25%
atkvæða. Ný skoðanakönnun
fór fram á tímabilinu 1. marz
til 5. apríl sl., og hlaut þá
Erhard 40% atkvæða. Næstur
honum var Willy Brandt, borg
arstjóri V-Berlínar, með 15%
(hafði 12%), og þriðji Schrö-d-
er, utanríkisráðherra, með
13% (áður 8%). Þessar stór-
vaxandi vinsældir Erhards
meðal kjósenda urðu m.a. til
þess að Adenauer varð að
láta í minni pokann.
MENN 06
, = MALEFN!
Gríma frumsýnir einþáttunga
LEIKKLÚBBURINN Gríma
frumsýnir þrjá einþáttunga eftir
Odd Björnsson í kvöld kl. 9 í
Tjarnarbæ. Tveir þeirra, „Við
lestu-r framhaldssögunnar" og
„Köngulóin“, er settir á svið af
Helga Skúlasyni en sá þriðji,
„Partí“, af Gísla Alfreðssyni.
Á fundi með fréttamönnum í
fyrradag skýrðu nokkrir félagar
Grímu frá því, að einþáttungar
Odds væru annað verkefni
klúbbsins í vetur, en fimmta
verkefnið síðan hann hóf starf-
semi sína.
í fyrsta einþáttungi Odds
Æjörnssonar, „Við lestur fram-
haldssögunnar“, koma fram tveir
leikendur, Valdimar Lárusson og
Sveinbjörn Matthíasson. í þeim
næsta, „Partí“, eru 11 leikend-
ur og að auki glymskratti og
risaeðla, sem talin eru m-eð á
leikendaskrá. Partíið er hald-
ið á 17. hæð í reykvísku fjöl-
býlishúsi (sem er víst ekki enn
risið af grunni).
I þ r i ð j a einþáttuhgnum,
„Köngulóin", sem sýndur verður
eftir hlé, koma fram fjórar fræg-
ar persónur frá löngu liðnum
Oddur Björnsson
tíma: Alejander páfi VI (Harald-
ur Björnsson) og börn hans,
Sesar Borgía (Erlingur Gísla-
son), Lúkrezía (Helga Bach-
mann) og Don Sjúan (Pétur Ein-
arsson).
Leiktjöld hefur Steinþóor Sig-
urðsson gert, en hljómkerfið er
frá fyrirtækinu Hverfitónar, eig-
andi Sveinn Guðmundsson,
verkfr.
Oddur Björnsson er fæddur
árið 1932, varð stúdent frá M. A.
1953, stundaði nám í ieikhús-
fræðum við háskóla í Vínarborg
í tvo vetur, hefur verið bóka-
vörður að undanförnu. Leikrit
eftir h-ann hafa ekki áður verið
flutt á sviði, en í vetur flutti
Ríkisútvarpið verk eftir hann,
og fyrir tveim árum var hann
einn fjögurra höfunda sem verð-
laun hlutu í lejkritasamkeppni
Menningarsjóðs. Hann hefur ort
ljóð og skrifað sögur, -n það hef- B
pr mest farið í bréfakörfuna, að 9
því er hann tjáði fréttamönnum. y
Mæðgur, sem báðar vinna utan Reykjavíkur óska eftir 2ja herb. íbúð eða einni stórri stofu og eldhúsi. Uppl. í síma 22886. » íbúð óskast Tveggja eða þriggja herb. íbúð óskast frá 1. maí nk. Tvær konur í heimili. Uppl. í síma 12838 frá kl. 2—6 e. h.
Barnlaus hjón óska eftir 2ja herb. íbúð 14. maí eða fyrr. Góð um- gengni. Skilvis greiðsla. Upplýsingar í síma 22727. Vil kaupa hyggingarlóð eba grunn undir einbýlishús í Kópa- vogi. Upplýsingar í síma 13621.
Til leigu Einbýlishús til leigu. Tilb. merkt: „Leiga — 6859“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir laugardagskvöld. Regna-búðarkassi til sölu. Uppl. i síma 18380.
Rósastilkar Gróðrastöðin Birkihlíð v/Nýbýlaveg. Jóhann Schröder. Sími 36881. Sölustjóri Dama óskar eftir starfi sem slík. Góð viðskipta- og vöruþekking. Tilboð merkt: „Vefnaðarvara — 6845“ sendist Mbl.
Keflavík — Suðurnes Tek að mér raflagnir og viðgerðir á raflögnum. Hörður Jóhannsson löggiltur rafvirkjameistari Mávabraut 12 B, Keflavík. Sími 1978. Rennihurðir Til sölu 2 stk. maghony rennihurðir (heilar án glera). Öll járn og karmar fylgja. Selst ódýrt. Uppl. í síma 16272. Vélritun — Bókhald Tek allskonar vélritun og bókhald í heimavinnu. — Einnig prófarkalestur. Tilb sendist sem fyrst, merkt: „Vélritun — 6848“.
Til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð við Snorrabraut. Allar upplýsingar í síma 22528.
Philips grammófónn
Lítið íbúðarhús til sölu til brottflutnings. Uppl. gefur Gunnar Jóns- son, lögmaður, Þingholts- (með bátabylgju) til sölu. Uppl. á Bárugötu 5, 1. hæð eftir hádegi í dag og næstu daga.
stræti 8. — Sími 18259. Brúnir, reimaðir telpuskór nr. 36 töpuðust fyrir utan Voigaskóla. — Finnandi hringi vinsamleg ast í sím-a 36219.
/ Kona óskast til eldhússtarfa. Gott kaup og fæði. Austurbar, sími 1901:1, Snorrabraut 37.
ROKOCCO-SETT til sölu. Húsgagnavinnustofan Skólavörðustíg 28. Gott sérherbergi óskast til leigu og bíl- skúr fyrir einkabíl á sama stað. Uppl. í síma 19195.
2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu sem fyrst. Fyrirframgreiðsla, ef ósk- að er. Uppl. í síma 37210. ATHUGIÐ ! að boriö saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðrum blöðum.
Notaðar síldartunnur
óskast til kaups.
Upplýsingar hjá Jóni Gíslasyni
í síma 50865.
Starfsstúlkur oskast
í eldhúsið. — Upplýsingar gefur ráðs-
konan í síma 14292.
Elli og hjúkrunarheimilið Grund.
NJARÐVÍKUR!
TÍI sölu
Einbýlishús 5 herb. ásamt íbúðarskúr. Laust strax.
VILHJÁLMUR ÞÓRHALLSSON, HDL.
Vatnsnesvegi 20, Keflavík
Símar 1263 og 2092.