Morgunblaðið - 26.02.1963, Blaðsíða 8
8
MORCVNBLÁÐI»
Þriðjudagur 26. febrúar 1963
Sölumaður
Duglegur maður, sem hefir áhuga á að
selja nýjar bifreiðar getur fengið atvinnu
nú þegar. Enskukunnátta nauösynleg.
Tilboð er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist afgr. Mbl. fyrir 1. marz
merkt: „Bílar — 6414“.
77/ sölu
er mjög góð bújörð á Vestfjörðum. Stórt tún vél-
tækt, miklir ræktunarmöguleikar. — Einkarafstöð,
góður húsakostur.— Góðir möguleikar til fiski-
ræktar. Áhöfn og vélar geta fylgt. Eignaskipti
möguleg.
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9. — Sími 14400 og 20480.
Aug'.ýsingas’jóri
Vikublað í Reykjavík óskar að ráða auglýsinga-
stjóra. Þeir sem áhuga hafa á starfinu leggi nöfn
sín, ásamt upplýsingum um fyrri störf inn á afgr.
Mbi. fyrir 5. marz n.k. merkt: „6317“.
IMV LÖGGJÖF UM
BÆIMDASKÖLA
Alls hafa um 3270 búfræðingar útskrifast
Á FUNDI efri deildar í gær var
tekið til 1. umræðu frumvarp til
nýrra laga um bændaskóla og var
visað til 2. umræðu.
í neðri deild var frumvörpum
um ríkisborgararétt og dýralækna
visað til 2. umr. og nefndar;
frumvarp um siglingalög var sam
þykkt við 2. umræðu með nokkr-
um breytingartillögum sjávarút-
vegsnefndar.
Aukin vélfræðikennsla
Bjartmar Guðmundsson (S)
kvað frumvarpið um búaðarskóla
flutt að beiðni landbúnaðarráð-
ráðherra og hefðu einstakir
nefndarmenn óbundnar hendur
um frumvarpið. Það er samið
af milliþinganefnd, er landbún-
arráðherra skipaði 1960, en for-
maður hennar var Guðmundur
Jónsson skólastjóri á Hvann-
eyri..
Talsverðar breytingar eru í
frumvarpinu frá núgildandi lög-
um. Er þar fyrst
að nefna, að
gert er ráð fyrir
að bændaskólar
séu tveir, endaj
hefur ákvæðið
um bændaskóla®
a ð Skálholti Ji
ekki verið ann-
að en dauður
bókstafur, enda
gert ráð fyrir, að Skálholtsstað-
ur skuli afhentur þjóðkirkjunni.
Reynslan hin síðari ár hefur og
stutt þá skoðun, að hagkvæm-
ara sé að búa betur í haginn fyr
ir þá bændaskóla, sem fyrir eru,
VOLVO
BOLINDER
MUNKTEL
VOLVO-PENTA dieselvélar fást í eftirtöldum stærðum:
MU 47 B 71— 92 ha. 730 kg. TMD 47 B 90—115 ha. 750 kg.
MD 67 C 95—125 ha. 925 kg. MD 96 B 133—162 lia. 1275 kg.
TMD 96 B 1 170—200 ha. 1300 kg.
VOLVO — PENTA ER VOLVO FRAMLETÐSLA.
BOLINDER-MUT'íkTELL dieselvélar fást í eftirtöldum stærðum:
23 ha — 2 cyl ★ 46 ha — 4 cyl ★ 51,5 ha — 3 cyl ★ 68,5 ha — 4 cyl
BOLINDER — MUNKTELL ER VOLVO — FRAMLEIÐSLA.
VOLVO PENTA OG BOLINDER — MUNKTELL dieselvélar eru fyrir löngu
orðnar þekktar hér á landi fýrir sparneytn’ og öryggi. Allar nánari upplýsingar
hjá umboðinu, sem veitir yður aðstoð við val á skrúfustærð og aðra tæknilega
þjónustu.
heldur en að bæta þeim þriðja
við.
Gert er ráð fyrir, að fastir
kennarar við skólana verði fimm
auk skólastjóra og mun ekki af
veita, m.a. vegna breyttrar til-
högunar á námi, sem ekki er gert
ráð fyrir að þurfi að vera með
sama sniði í báðum skólunum
og að jafnvel geti þar éinhver
verkaskipting átt sér stað. Ald-
urslágmark nemenda er fært nið
ur um eitt ár í 17 ár. Verk'legt
nám verði stytt í samræmi við
þá framkvaemd, sem orðið hefur,
en þó gert ráð fyrir aukinni
kennslu í vélfræði.
Allítarleg greinargerð fylgir
frumvarpinu og þar vikið að
ýmsu, sem snertir skólana. Vak-
in er athygli á þörf aukinnar
fjölbreytni í búgreinum og vik-
ið að því, að bændaskólarnir
geti þar mikið hjálpað til, m.a.
með sérstökum námskeiðum,
sem bændur eða bændasynir
gætu sótt, þótt þeir treystu sér
ekki til að setjast á skólabekk.
Þá er og sögulegt yfirlit um
búnaðarfræðslu að finna í grein
argerðinni, allt frá þeim tkna
er Torfi í Ólafs’dal stofnsetti
hinn fyrsta bændaskóla 1880 og
hinir bændaskólarnir tóku til
starfa hver af öðrum á árunum
1882—1889. Skólinn í Ólafsdal
starfaði til ársins 1907 og útskrif
aði um 160 búfræðinga. Skólinn
á Eiðum starfaði til ársihs 1917
og útskrifaði um 260 búfræð-
inga. Nemendur Hvanneyrar-
skólans til og með haustinu
1962 hafa verið um 1500 en um
1350 á Hólum.
Tryggir aukinn rétt
sjómanna
Birgir Finnsson (A) gerði fyr-
ir hönd sjávarútvegsnefndar
grein fyrir frum
varpi um sjó-
mannalög við 2.
umr., en frum-
varpið er flútt
af nefndinni að
beiðni sam-
göngumála-
ráðuneytisins.
Það var sent til
umsagnar ýms-
um aðilum og gerðu Alþýðusam
band íslands, Sjómannasam-
band fslands og Farmanna- og
fiskimannasamband íslands eng
ar athugasemdir við það og held
ur ekki skólastjóri Stýrimanna-
skólans. Hins vegar benti Lands
samband ísl. útvegsmanna á
nokkur atriði, sem nefndin að
athuguðu máli sá ekki ástæðu
til að taka til greina. Verkalýðs
félagið Þróttur á Siglúfirði sendi
áskorun um ' að fella frumvarp-
ið, þar sem það drægi úr rétt-
indum sjómanna. Kvað alþing-
ismaðurinn það á misskilningi
byggt og lagði áherzlu á, að
frumvarpið tryggði sjómönnum
aukinn rétt, m.a. ef slys og veik-
indi bæri að höndum.
Vér viljum ráða
T æknif ræðing
sem framleiðslustjóra á stóru trésmíðaverkstæði
utan Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Þorsteinsson,
forstöðumaður Teiknistofu SÍS, Hringbraut 119.
Starfsmannahald SÍS.
Stulkur
Stúlkur
Stúlka vön saumaskap óskast frá kl. 1 til kl. 6.
Nafn og símanúmer leggist inn á afgr. Mbl. merkt:
„6410“.
Piltur e%a stúlka
óskast til afgreiðslustarfa.
, tuiixunidí
Háteigsvegi 2.
Sttslka óskast
til skrifstofustaría í Kópavogi. Hálfsdagsvlnna
kemur til greina Umsóknir ásamt upplýsingum um
fyrri störf leggict inn á afgreiðslu blaðsins fyrir
mánudagskvöld merkt: „Skrifstofustarf — 6320“.
IUatreiðslukona
óskast til afleysinga í Mjólkurbarinn
Laugavegi 162.
IXIjólkursamsalan