Morgunblaðið - 26.02.1963, Síða 15
Þriðjudagur 26. febrúar 1963
M ORCVNBL 4Ð1Ð
15
— Þjóðminjasafnið
Framhald af bls. 10
þjóðminjaverði Finnlands. —
Hann sagði að það væri gam-
all draumur sinn að koma til
íslands, en það væri bara svo
langt að fara, að aldrei hefði
orðið úr því fyrr.
— Eru fornminjar ykkar
líkar því sem þér hafið séð
hér?
■— Nei, ekki mjög líkar. Við
höfum t.d. ekkert likt tré-
skurðinum ykkar hér. Tré-
skurðarlistin stendur á svo
háu stigi, kirkjugripirnir eru
líka ákaflega fínir og vefn-
aðurinn, svo maður tali nú
ekki um látunsþynnurnar. Ég
held að ekki finnist neitt líkt
því á Norðurlöndum.
Lengi vorum við búin að
leita að prófessor Hilmari
Stigum, þegar við komumst
að raun um að hann hafði
verið að grúska í Þjóðminja-
safninu allan morguninn.
Hann kvaðst hafa séð nokkra
íslenzka hluti, sem hann
þekkti frá Noregi. Og oft væri
eins og þessir gömlu munir
fyndust aðeins í nyrztu lönd-
unum, en væru allt öðru vísi
þar fyrir sunnan. Eins og t.d.
bullustrokkurinn. — Hann
mjókkar niður á íslandi og í
Noregi, en í Danmörku er
lagið á honum alveg öfugt.
Próf. Stigum kvaðst hafa
veitt því athygli þá um morg-
uninn, að tágamunir væru
gerðir á alveg sama hátt á ís-
landi og gert hefði verið í
Noregi um það leyti sem ís-
land byggðist. — Það eru oft
smáatriðin, sem segja svo
mikið, þessi smáatriði, sem
almennt er lítil athygli veitt,
sagði hann.
Við spurðum próf. Stigum
sérstaklega um byggðasafnið
á Bygdö, sem hann veitir
forstöðu. Hann sagði að þetta
væri stórt safn, þar sem það
næði yfir bæði sveitabyggð-
ina og bæjabyggð. Alls eru
þar um 150 hús, en ekki eru
þau þó öll uppsett. Elzta hús-
ið er frá því um 1250. — Við
erum mjög stolt af þessu
safni, sagði prófessorinn. Því
miður er rýmið orðið lítið hjá
okkur. Þó kemur fyrir að við
flytjum enn þangað hús, ef
verið er að rífa hús, sem okk-
ur finnst að ekki megi vanta.
Auk húsanna sjálfra eigum
við um 100 þús. einstaka
hluti, svo enginn hefur séð
allt safnið. En því er þannig
komið fyrir, að fræðimenn
geti komið og fundið það sem
þeir leita að.
— Eru gamlir munir ekki
að hverfa?
— Það finnast ennþá gaml-
ir munir, en þeir eru. óðum
að hverfa. Ég er dálítið óró-
legur vegna næstu kynslóðar,
hvað hún kunni að gerá. Við
erfðir skiptast búin, og marg-
ir hafa engan áhuga á þessu.
En það sem komið er í söfnin
glatast þó ekki. Annars eru
það fleiri en við, sem geyma
gamla muni, mörgum finnst
að ættirnar eigi að varðveita
þá. En margt fer til forn-
gripasalanna.
—. Er mikið um byggða-
söfn úti á landi í Noregi?
— Já, en ekki þó eins mörg
©g í Svíþjóð, þar sem þau
eru um þúsund. Úti á landi
eru víða stór og góð söfn, og
annars staðar lítil.
— Eru islenzku torfbæirnir
ekki gerólíkir húsunum, sem
þið hafið í byggðasöfnunum
ykkar?
— Jú, við höfum haft nægt
timbur í byggingar alveg aft-
ur að víkingatímanum. En
þegar ísland var byggt, þá
hafa verið í Noregi hús með
hlöðnum veggjum, þó ekki sé
hægt að sjá nákvæmlega
hvernig þau hafa verið.
Það hefði verið hægt að
spjalla um þetta efni við
prófessorinn allan daginn og
bera saman, en til þess var
hvorki tími né rúm í blaðinu,
»vo við létum talið niður falla.
Fyrir ferm'nguna
Hvítar slæður — Hvítir hanzkar — Töskur.
Tösku og hanzkabúðiri
v/ Skólavörðustíg.
Nýtt verzlunarpláss
á mjög góðum stað í bænum til leigu.
Tilboð merkt: „Verzlunarpláss — 6316“
sendist Morgunbiaðinu.
Hafnarfjörður
Reglusamur piltur getur komist að sem nemi í hús-
gagnasmiði. "Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir föstu
dagskvöld merkt: „Húsgagnasmíði — 6313“.
Höfum til lesgu
dráttarvél með skurðgröfu og ámoksturs-
tækjum. — Tíma- og ákvæðisvinna.
Uppl. í síma 20763 eftir kl. 8 á kvöldin.
TIZKUSKOLI
ANDREU
Ny namsikeið byrja
þ. 4. marz. Kvöld-
tímar.
Síðdegistímar fyrir
frúr.
Snyrting innfal. í
gjaldinu.
Innritun í síma
2-05-65.
Skólavörðustíg 23.
LaxveiBi
Laxaveiði, netaveiði í Hvítá i Borgarfirði fyrir
Þingneslandi er til leigu næsta sumar.
Nánari uppl. gefur
B.TÖRN SVEINBJÖRNSSON
Erluhrauni 8, Hafnarfirði sími 50120.
Innflytjendur! InnfEytjendur!
Nýtt fjölbreytt sýnishorn af
bömullarmetravörum
hefir borizt oss frá fa. .Cetebe, Lódz.
Hagstæð verð, skjót afgreiðsla.
Fulltrúi frá Cetebe (bómullarvörudeild)
er núkomin til landsins og verður til við-
tals á skrifstofum vorum næstu daga.
Islenzk- erlenda Verzlunarfélagið, hf.
Tjarnargötu 18.
Símar 20400 og 15333.
saumavélin
er einmitf fyrir ungu frúna
-fr JANOME er falleg
ií JANOME er vönduð
•fr JANOME er ódýrust
•jr JANOME er seld með afborgun
★ og það sem meira er. — JANOME
er sjálfvirk zig-zag saumavél, framleidd
í Japan af dverghögum mönnum.
JANOME saumavélin er nú seld til 62
landa og allsstaðar orðið vinsælust. —
JANOME er saumavélin. sem unga frúin
óskar sér helzt.
Æskan er hagsvn og veit
hvað hún vill — hún velur JANOME.
Jfekla
Austurstræti 14
sími 11687-