Morgunblaðið - 27.04.1963, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.04.1963, Blaðsíða 5
Laugardagur 27. apríl 1963 4»fÐ 5 'SVIFFLUGFÉLAG Akureyr- ar efndi til svifflugæfingar a Akureyrarflugvelli fyrir SKðmmu. Nokkrir ungir félags menn skiptust á um að fljúga nokkra hringi yfir vellinum og umhverfi hans, en kennari •þeirra, Arngrímur Jóhannsson loftskeytamaður, sem jafn- framt er formaður félagsins, flaug með í hverri ferð og stjórnaði æfingunni. Notuð var tveggja saeta fluga af Rhonlerche-gerð. — Fyrir suðurenda flugbrautar- innar var komið fyrir öflugri vindu, en frá henni lá stál- vírsstrengur eftir endilangri ‘brautinni að flugtaksstaðnum á norðurenda hennar. „Jæja, Húnn, þú ert næst- Flugan og flugmennirnir ff Dýrlegt að svífa í þögn- inni og blámanum" Svifflugfélag Akureyrar á elzta islenzka flugtækið ur, upp í með þig,“ segir Arn- grímur í því mig ber að, —• „og Óli og Dengsi, haldið þið við vængina.“ Fyrirmælum kennarans er hlýtt samstundis. Vírendanum er krækt í þar til gert hak framarlega á flugunni og lítil fcillhlíf tengd við vírinn. Plasthjálmur leggst yfir stjórn klefann, þar sem flugmenn- irnir sitja með spenntar ör- yggisólar og eru tilbúnir til flugtaks. Ljós eru kveikt á bílnum hans Sonnenfelds tannlæknis til þess að gefa Friðjóni merki, en hann Stjórnar vindunni suður við brautarendann. Komið hafði í ljós, að rauða flaggveifan sást of illa vegna tíbrárinnar yfir heitri mölinni á flug- ‘brautinni. Það er líkt og hákarlsuggi þjóti eftir endilangri brau-t- inni, þegar sandurinn þyrlast upp við það að vírinn streng- ist, flugan kippist til, rýkur af stað, lyftist, hækkar óð- fluga, svífur, sleppir vírnum í 1000—1200 feta hæð. Flugan sveigir til hægri, en vírinn Flugtak undirbúið. — Kennarlnn, Arngrímur Jóhannsson, aftursætinu. fellur til jarðar hægt og virðu lega, því að nú vinnur fallhlíf in sitt verk. Sonnenfeld og Sigurður Eggert eru þotnix af stað í bílnum til að sækja vír- endann og draga hann norður eftir, svo að allt sé tilbúið sem fyrst undir næsta flug- tak. Við sjáum fluguna svífa til norðurs yfir brekkubrúnun- nm, fljúga tvo hrin-gi yfir Leirunni og lenda síðan með mýkt og þokka á sama stað Og hún hófst upp af. Næst fer Sigurður Eg-gert í loftið. Þeir hafa séð fugla á sveimi yfir brekkubrúninni og sigla nú í kjölfarið. Þarna er uppstreymi, flugan heldur vel hæð. Annars er vindur heldur hægur til að brekku- uppstreymið verði nægilegt. Eftir 12 mínútur lenda þeir aftur á sama stað. Nú er klukkan orðin 1014 og áætlunarvélin frá Reykja- vík væntanleg á hverri stundu, svo að flugan er dreg- in vel út fyrir brautina og flugmennirnir taka sér hvíld. Arngrímur býður mér upp á molasopa í flugturninum á meðan, og ég nota tækifærið að spjalla við hann um svif- flug og starfsemi Svifflugfé- 'lags Akureyrar. „Já, það er oft dýrlegt að svifa þarna uppi í þögninni og blámanum, og þaðan á ég margar ógleymanlegar minn- ingar,“ segir Arn-grímur, næst um angurvær, um leið og hann hellir 1 bollann minn. „Er mikill áhugi á svifflugi hér í bæ?“ spyr ég. „Svifflugfélag Akureyrar var stofnað árið 1937 og hef- ur starfað lengst af síðan. Inn an þess hafa margir af fær- ustu flugmönnum íslendinga þreytt sín fyrstu vængjatök. Akureyrskir atvinnuflugmenn skipta tugum, og ég gaeti tal- ið eina 20 starfandi flugstjóra hjá íslenzku flugfélögunum, sem eru Akureyringar. Ef- laust má þakka Svifflugfélag- inu þetta ríflega framlag til islenzkra flugmála að ein- hverju leyti. — Nú um skeið hefur verið heldur dauft yfir starfi félagsins, enda gömlu félagarnir flestir hættir. En nú er að koma nýtt blóð með Ungum mönnum og endur- vakinn áhugi. Við erum ákveðnir í að efla félagið sem mest í sumar, blása í það nýjum lífsanda og fá enn fleiri til starfa. Nú eru félags menn 20—30.“ „Eigið þið margar flugur? „Auk þeirrar, sem við erum með hérna núna, eigum við 4, eða alls 5. Ein þeirra er af Olympia-gerð, fluga á heims- mælikvarða Svo eigum við elzta flughæfa flugtækið á Islandi, opna svifflugu, sem var smíðuð hér á Akureyri árið 1932. Bækistöðvar okkar eru annars frammi á Mel- gerðismelum, og þar eigum við gott flugskýli og allgott hús annað.“ „Eru skilyrði til svifflugs góð hér í Eyjafirði?" „Þau mega teljast sæmileg allvíða, en hinu er ekki að leyna, að Paradís norðlenzkra svifflugmanna er s v æ ð i ð kringum Sellandafjall í Mý- vatnssveit. Fjallið má heita reglulegur keilustúfur og rennsléttir sandar allt í kring, sem hitna gífurlaga 1 sólarhita á sumrin. Þar er því oft stórkostlegt hitaupp- streymi, brekkuuppstreymi og meira að segja bylgjuupp- streymi, og þar bjóðast þess vegna einhver ákjósanlegustu svifflugskilyrði á íslandi. Þar er merkt flugbraut og þar á félagið okkar góðan skála, sem byggður var á ár- unum 1953—’54 og heitir Hreggbúðir. Þangað ætlum við í sumar og liggja þar við um tíma.“ Nú er Flugfélagsvélin kom- in og farin — flugstjórinn var reyndar Akureyringur — og Arngrímur býst til að halda aftur út á flugbrautina til félaga sinna, sem brenna í skinninu eftir að röðin komi að þeim og þeir fái að þreyta kapp við mávana og hrafn- ana, sem leika sér frjálsir og fagnandi yfir vesturbrek-kun- um. 1 Sv. P. . sii Svifið inn til lendingar Vinnuvélasýning í dag og á morgun fer fram sýning á JCB skurðgröfum og mokstursskóflu á Reykjavíkurflugvelli: innkeyrsla frá Mikla- torgi. Sérfræðingur frá verksmiðjunni sýnir vélarnar í notkun. Hér er einstakt tækifæri fyrir verktaka, að sjá hina mörgu möguleika, sem vélarnar bjóða upp á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.