Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 7
Laugardagur 27. apríl 1963
MOPCrvar 4D jB
7
Jónas Pétursson
alþing ismaður:
'Á ALÞINGI, því er nú er að
Ijaka, lagði Björn Pálsson fram
trt. við framl.ráðslögin, þar sem
gert er ráð fyrir að í hlut bænda
L mi 25% af verðmæti fram-
leiðsluaukningar, sem verður í
landbúnaði til viðbótar kaupi
bóndans. Á sama hátt skal minni
tframleiðsla verka þ. e. 25% af
framleiðslurýrnununni verka til
frádráttar kaupi bóndans. Þessi
brt. var send til umsagnar nokkr
um aðilum af landbún.nefnd n.d.
Framleiðsluráð svaraði á þá
lund, að þar sem lögin í heild
væru í endurskoðun hjá nefnd
frá Stéttarsambandinu og Bún-
sðarfél. ísl. tæki það ekki af-
stöðu til þessara till. sérstaklega,
meðan lögin í heild væru í at-
ihugun. í þess-u fólst í raun og
veru það, að framleiðsluráð ósk-
aði eftir að ALþingi fjallaði ekki
um máiið á þessu stigi. Búnaðar-
þing tók málið til meðferðar, þar
sem málið var sent Búnaðarfél.
íslands. í umsögn þess segir m.a.
,,Búnaðarþ. telur að frumv. þetta
fjalli um mjög þýðingarmikinn
þátt verðlagsmálanna og stefni í
rétta átt, þó ýms önnur atriði
þurfi jafnframt breytinga við.“
En jafnframt gerði Búnaðanþ. þó
verulegar orðalags- og efnis-
breytingar á frv. Björns. Nefnd-
arhluti neytenda í verðlagsnefnd,
sendi einnig umsögn. Þar segir
m. a. „Sexmannanefnd hefur
fylgt þeirri reglu að ákveða af-
wrðamagn viðmiðunarbúsins (vísi
■tölubúsins) í sem nánustu sam-
ræmi við heildarframleiðslu land
'búnaðarins á hverjum tíma og
fjölda bænda í landinu. Með því
þar næst að ákveða „laun bónd-
ans“ með hliðsjón af árstekjum
annarra „vinnandi stétta“ fyrir
liðið ár og hækka þau að auki
fyrir óorðnum launabreytingum,
fá þeir sinn hluta af heildar-
framleiðsluaukningu alls þjóð-
félagsins.“
Ennfremur segir:
„Verði frumvarpið að lögum,
er samstarfsgrundvöllur neyt-
enda og bænda um verðlagn-
ingima fallinn og lögin þar með
óvirk, því óhugsandi er að full-
trúar neytenda, þ. e. annarra
vinnandi stétta taki þátt í störf-
um í sex manna nefnd, eftir að
lögboðið hefir verið að gagnaðili
skuli njóta meiri réttar en um-
bjóðendur þeirra....
Samstarfið í sex manna nefnd
hefir dregið mjög úr andúð og
kriti milli bænda og annarra
stétta. Það hefir tryggt landbún-
aðinum fast og hækkandi verð-
lag og útrýmt undirboðum og
spákaupmennsku með búvöru.
Virðist því á öðru frekar þörf
en að rjúfa það samstarf í fullri
óvissu um hvað við kann að
taka.“ Þessi umsögn mun síðar
í þessari grein verða tekin til
athugnar.
A öndverðu þingi I vetur átti
sæti um skeið Björn Þórarinsson,
bóndL Við ræddum þá allnáið
um framleiðsluráðslögin og vor-
um einhuga um breytingu, sem
gera þyrfti á þeim um það að
aukin framleiðni í landbúnaði
kæmi bæði framleiðendum og
neytendum til góða. Það varð að
ráði að við sendum hugmynd
okkar til nefndar þeirrar, er þá
var að hefja endurskoðun lag-
anna og flytja málið ekki á því
Stigi á Alþingi. Björn Þórarins-
son kom aftur inn í AJþingi í
marz. Þá var frumv. Björns Páls
sonar komið fram. En þar sem
það var mjög á aðra lund en
við höfðum hugsað málið, flutt-
Um við hreytingartillögu á þing-
skjali 475 við frumvarp Björns
Pálss, svohljóðandi:
Meginmál 1. gr. orðist svo:
„Söluverð landbúnaðarvara á
innlendum markaði skal miðast
við það að heildartekjur þeirra
er landbúnað stunda (kaup bónd
ans) verði í sem nánustu sam-
ræmi við tekjur annarra vinn-
andi stétta. Nú breytist fram-
leiðni (meira eða minni hag-
kvæmni í rekstri) landbúnaðar-
ins (vísitölubúsins) frá því sem
v^r í síðasta verðgrundvelli,
þegar nýr verðgrundvöllur er
ákveðinn, og skal þá sú breyt-
ing verka að hálfu á verðlagið."
Sá munur er á þessari breyt-
ingartillögu og frumvarpi Björns
Pálssonar, að hann talar um
framleiðsluaukningu eða rýrnun,
án tillits til þess hvort henni
fylgir meiri eða minni hag-
kvæmni. Rétt er það að yfirleitt
fylgir aukinni framleiðslu ódýr-
ari framleiðsla eða minnkaðri
Jónas Pétursson
framleiðslu dýrari vara, en það
þarf ekki endilega að vera. Þess
vegna er ekki eðlilegt að sá
möguleiki sé fyrir hendi að
bændur geti bætt hag sinn með
aukinni framleiðslu án betri
rekstrar, né heldur hitt að bænd-
ur eigi að missa í af kaupi, ef
framleiðsla minnkar, ef hún er
ekki þess vegna óhagkvæmari.
Þessir annmarkar eru ekki fyrir
hendi samkvæmt breytingartil-
lögu okkar Björns Þórarinsson-
ar. Hitt er svo rétt, að það er
ekki einfalt mál að ákveða fram-
leiðnina frá ári til árs og má
vera að sá grundvöllur er þar
verður byggt á hljóti að byggjast
á samkomulagi að einhverju
leyti.
Rökin fyrir því að setja þetta
ákvæði um framleiðnina í fram-
leiðsluráðslögin eru þessi:
Eins Og ákvæði framleiðslu-
ráðslaganna eru nú, kemur vinn-
ingur af aukinni framleiðni í bú-
skap — auknum afköstum vegna
hagnýtari vinnubragða — fram
sem lækkun á verði landbúnaðar
vörunnar, þ. e. fellur allur í hlut
þjóðarheildarinnar, neytendanna.
Með þessu er slæfð sú hvöt, er
bændastéttin sem heild hefir til
bættra framleiðsluhátta. Þessi
þáttur framleiðsluráðslaganna er
vottur ofskipulagningar og bygg-
ir ekki á trúnni á einstakling-
inn. Öll okkar löggjöf þgrf að
mótast af því að örva sjálfs-
'bjargarhvötina. Hver bóndi á að
njóta árangurs af hagsýni sinni
og atorku, án þess að verða sér
þess meðvitandi um leið að hann
sé aðeins að ná hlut frá stéttar-
bróður sem lakar gengur.
I umsögn fulltrúa neytenda í
verðlagsnefnd kemur fxam að
þeir telja að með þeim reglum,
er fylgt hefir verið við ákvörð-
un á kaupi bóndans, fái bændur
sinn hluta af heildarframleiðslu-
aukningu þjóðarinnar. Um þetta
má mjög deila. Launatekjur við-
miðunarstéttanna fara að vísu
nokkuð eftir því hvernig þjóðar-
búskapurinn gengur, en þar er
þó ekki órofa samband á milli.
Kaupgjaldsbarátta er háð og ber
stundum árangur án þess að
aukning þjóðartekna sé höfuð-
orsök. Aukning þjóðartekna get-
ur lika orðið meiri en hækkun
kaupgjaldsins. Enn er svo þess
að geta að vitað er að um þessar
mundir á sér stað mikil yfirborg-
un á vinnumarkaði, sem erfitt
mun að fá nokkrar skýrslur um.
Vegna þess skipulags, sem er
á verðlagningu landbúnaðarvara,
hlýtur kaup bóndans að miðast
við launatekjur annarra stétta.
Algengast er að laun séu ekki
miðuð við hvort betur eða verr
er imnið. Á því þarf að verða
breyting, enda mjög uppi raddir
um það um þessár mundir.
Og að sú breyting verði á þjóð-
hagslega hagkvæman hátt hvað
bændur sem heild snertir, miðar
breytingartillaga okkar Björns
Þórarinssonar. Það er mjög mik-
ill misskilningur, að með þeirri
brevtingu sé hlutur neytendans
gerður verri. Mjög sterkar líkur
og raunar vissa er fyrir því, að
bændur auki framleiðni land-
búnaðarins örar þegar til ein-
ihvers er að vinna með því. Sízt
ætti það að vera verra fyrir
kaupanda, þótt hann fengi mjólk
ina 20 aurum ódýrari lítrann,
að bóndin hefði jafnframt bætt
hag sinn um 20 aura, ef þessir
20 aurar í hlut bóndans eru að-
eins árangur þess að hann lagði
sig meira fram við hagkvæman
búrekstur, af því að sú fyrir-
höfn og það álag tryggði honum
•þennan arð. Þetta er það, sem
mjög líklegt er að gerist, ef
sú breyting verður gerð á fram-
leiðsluráðslögunum, sem við
Björn í Kílakoti leggjum til. Það
er örari framleiðniaukning í
landbúnaði, til hagsbóta fyrir
þjóðarheildina, bændur og neyt-
endur.
Fulltrúar neytenda í sex
manna nefnd segja, að með lög-
festingu á frumvarpi Björns
Pálssonar sé samstarfsgrundvöll-
ur rofinn og með því sé gagn-
aðila (þ. e. bændum) tryggður
meiri réttur en umbjóðendum
þeirra. Ég hefi áður bent á hvað
athugavert sé við tillögu Björns.
Og þess verður að vænta að af-
staða fulltr. neytenda í sex m.
nefnd sé önnur við brtt. á þskj.
475. En þó kemur fram í þessum
ummælum þeirra misskilningur
ó eðii málsins. Benda má t. d.
á að það er ólíkt meiri áhætta
að taka kaup sitt út úr eigin
atvinnurekstri, heldur en að
taka það hjá atvinnurekenda,
þar sem kaupþegi ber ekki á-
byrgð. Kaupið kemur yfirleitt
síðar til skila hjá bændum. En
aðalskilyrðið er jafnvægisákvæð
ið, þar sem arðsvoninni fylgir
einnig á sama hátt minni arður,
ef hagkvæmni minnkar.
Þessi hótunartónn, sem er í um
sögn neytendafulltrúanna, er því
jafn órökrænn, sem hann er ó-
viðfeldinn og óheppilegur.
Þá segja sömu fulltrúar einn-
ig, að samstarfið í sex manna
nefnd hafi bætt sambúð bænda
og neytenda og tryggt landbún-
aðium fast og hækkandi verðlag.
Meðal bænda eru deildar mein-
ingar. um gagnsemi verðlags-
■ákvæða laganna. Meirihluti
þeirra mun þó telja að þau hafi
reynzt landbúnaðinum hagfelld
og vill styðjast áfram í höfuð-
dráttum við það kerfi er gilt
hefir. En rétt er að benda á að
fulltrúar neytenda eru allir bú-
settir Reykvíkingar og má því
ætla að þær ,,lífrænu“ hugmynd-
ir, sem þeir gera sér um afkomu
landbúnaðarins séu fyrst og
fremst mótaðar af þeim svip er
þeir sjá á helztu mjólkurfram-
leiðsluhéruðunum. Hitt er raun-
ar jafn nauðsynlegt og skylt að
kynnast búskapnum um allt
land af eigin sjón. Tölvisin er
góð, en betri ef hún styðst við
yfirsýn um lífið sjálft. Víst er
að sú hugsun og tilfinning er að
baki liggur þessari tilvitnun hér
að framan frá neytendafulltrú-
unum, er nokkuð önnur en
margra bænda. En sízt má gleym
ast að starf neytendafulltrúanna
í sex manna nefnd er til þess að
tryggja. rekstrargrundvöll land-
búnaðarins, ásamt með fulltrú-
um framleiðenda.
Framh. á bls. 12
RENAULT UMU ÚT
RENAULT R-8
sem er bíll framtíðarinnar.
★ Diskahemlar á öllum 4 hjólum (sá fyrsti í heimi
í þessum verðflokki), en diskahemlar eru tvisvar
sinnum öruggari og f jórum sinnum léttari í notk-
un og endast muu betur og auk þess einfaldari
og ódýrari í endurnýjun.
★ 4ra cyl. 48 ha. toppventlavél með 5 höfuðlegum,
sem gerir gang vélarinnar þýðan og hljóðlausan
og endinguna meiri.
★ Innsiglað vatnskerfi, sem er öruggt í allt að 40°
frosti. Tveggja ára ábyrgð á kerfinu.
★ Kraftmikil vatnsmiðstöð, sem gefur þægilegan
stofuhita um allan bílinn þegar í stað, og heitt
loft á framrúðu og hliðarrúður.
★ Innbyggt loftræstingarkerfi, sem heldur ávallt
hreinu og fersku lofti í bílnum.
★ Stór farangursgcymsla.
★ Þægileg og handliæg hilla fyrir yfirhafnir.
★ Sér geymsla fyrir varahjól.
★ Kraftmikið 12 volta rafkerfi.
★ Sérstök stöðuljós á brettum auk stefnuljósa.
★ RENAULT R-8 er 4ra dyra með sérstökum
barnaöryggislæsingum á afturhurðum,
★ Renault bifreiðarnar hafa reynzt afburðavel hér
á landi. Allir þekkja endingu Rcnault 1946.
Fyrsta sendingin af Renault R-8 seldist upp á
svipstundu. — 1
★ Önnur sending kom m/s Vatnajökli 22. þ. m.
VERÐ ÞEIRRA BIFREIÐA,
AÐEINS KR. 144 ÞÚSUND
Eigum örfáa bíla úr þessari sendingu, sem enn er
óráðstafað.
Viðgerðarverkstæði er í rúmgóðum húsa-
kynnum að Grensásvegi 18. — Varahluta-
birgðir fyrirliggjandi.
Lítið inn í RENAULT bílabúðina Lækjargötu 4. —
Sýningarbílar á staðuum.
Colúmbus hf.
Símar 22118 og 22116.
miT ER RÍTTI Bíllim