Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 8

Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 8
8 MORCVNBL AÐIÐ Laugardagur 27. apríl 1963 Skipulögð forheimskun UM fátt hefur meira verið Tætt á opinberum vettvangi að undanfömu en rannsóknar starfsemi í þágu íslenzkra at- vinnuvega. í biöðum hafa hirzt margar greinar um mál þessi og útvarpið hefur helg- að því allmikinn tíma, m. a. verið um það fjallað í erinda- flokknum um tækni og verk- menningu. Flestir eru á einu máli um það, að á þessari miklu öld tækni og sérhæfingar sé rann sóknarstarfsemi á hinum ýmsu sviðum sá grundvöllur, sem reisa beri á i atvinnulífi landsmanna. Flestir virðast sammála um, að hér sé um að ræða mál, sem vanrækt hafi verið hér á landi. Brjóstvitið er ekki lengur talinn sá öruggi vegvísir, sem það hingað til hefur verið í þessum efnum. En á sama tíma og það þykir óráð að ætla sér að reisa ný fyrirtæki eða byggja upp nýjar atvinnu greinar án undangenginna rannsókna, sem stefnan sé síð an byggð á, — þá er ein teg- und rannsókna, sem enn virð- ist ekki eiga upp á pallborðið hjá stórum hópi manna. Það eru rannsóknir á þjóðfélaginu sjálfu, ekki sízt á sviði efna- hagsmála. Hér er stór hópur manna, sem telur sér það vænlegast til fylgisöflunar að telja brjóstvitið öruggasta vegvísi til lausnar þjó$féla£svanda- málum. Málgögn þeirra tala í miklum fyrirlitningartón um „hagspekinga", „útreikn- inga“ og fleira í þeim dúr. Ýmsir stjórnmálamenn, sem vilja láta taka mark á sér, hafa haft uppi svipuð um- mæli. Einar Olgeirsson sagði t. d. í þingræðu eitt sinn, er efnahagsmái voru til um- ræðu: „Það er venjulega vá fyrir dyrum hjá almenningi, þegar ríkisstjórn fer að boða rannsókn sérfræðinga til þess að finna traustan efnahags- grundvöll“. Karl Guðjónsson talaði og í útvarpsumræðun- um á dögunum í fyrirlitning- artón um „ummæli ráðu- nauta, doktora og hátitla- manna“, sem hann taldi greini lega hina verstu menn. Vafalaust er þetta gert í þeim tilgangi að telja fólki trú um, að vandamál þjóð- félagsins séu hin auðveldustu úrlausnar, sem hver meðai- greindur maður geti leyst. Það eru einkum tvö dag- blöð, sem hafa gert sig sek íim það ábyrgðarleysi, sem hér hefur verið gert að um- talsefni, þ. e. Þjóðviljinn og Tíminn. Afstaða þessara tveggja blaða er þeim mun undarlegri, þegar þess er gætt, að þau telja sig mikla og örugga málsvara fyrir aukinni rannsóknarstarfsemi á öðrum sviðum þjóðlifsins. Sennilega hefur engin ríkis- stjórn á íslandi notfært sér eins mikið rannsóknir og álit sérfræðinga eins og núver- andi ríkisstjórn. Hún hefur haft færustu menn í þjónustu sinni, bæði innlenda og út- lenda. Ríkisstjórninni hefur verið það ljóst, að þjóðfélag- ið er orðið svo flókið og margþætt, að sérfræðikunn- áttu er þörf til að rannsaka og benda á leiðir til úrlausn- ar flóknustu vandamálunum. Þessar staðreyndir hafa farið í taugarnar á brjóstvits- dýrkendunum í Tímanum og Þjóðviljanum. Þeir, sem stýrt hafa pennanum þar, hafa ann aðhvort ekki gert sér grein fyrir þróun þjóðfélagsins eða þeir eru vísvitandi að halda úppi hættulega ábyrgðarlaus- um áróðri. Þeir virðast á skipu legan hátt reyna að draga úr virðingu manna og trausti á hagfræðivísindum, enda þótt vitað sé, að efnahagslífið gengur eftir vissum lögmál- um, sem nauðsynlegt er að kunna skil á. Þessi iðja dregur úr trausti manna á hlutlægum rann- sóknum á þjóðfélagsvanda- málunum, sem síðan sé unnt að byggja ákvarðanir á. Þessa iðju mætti kalla skipulagða forheimskun. — BÍG. Séð yfir fundarsalinn í Beethovenhalle Ungir menn í NATO-ríkj- unum bindast samtökum Frá ráðstefnu ungra stjórnmála- manna i Bonn DAGANA 17. — 23. marz s.l. var haldin í Bonn ráðstefna ungra stjórnmálamanna frá Atlantshafsríkjunum. Ráð- stefna þessi var hin þriðja í röðinni slíkra ráðstefna og er fyrirhugað að halda þær framvegis á tveggja ára fresti. Á þessari ráðstefnu var samþykkt að stofna form leg samtök ungra stjórnmála manna frá ríkjum Atlants- hafsbandalagsins. Frá íslandi sóttu ráðstefn- una fimm fulltrúar, þeir Guð mundur H. Garðarsson, við- skiptafræðingur, Heimir Hannesson, lögfræðingur, Jó hannes Sölvason, stjórnar- ráðsfulltrúi, Stefnir Helga- son, stórkaupmaður og Birg- ir ísl. Gunnarsson, hdl. Fyrsta ráðstefna þessarar teg- undar var haldin í París árið 1958. Önnur ráðstefnan var hald- in í Washington 1960 Og sú þriðja nú í Bonn. A ráðstefn- unni 1960 var samþykkt að beina því til ungra stjórnmálamanna í hinum einstöku Nato-ríkjum, að þeir stofnuðu með sér samtök, hver í sínu heimalandi. Svo hef- ur nú verið gert í flestum lönd- unum og m. a. hér á íslandi, þar Dr. Lubke, forseti Vestur-Þýzkalands, ávarpar þátttakendur ráðstefnunnar. sem er Varðberg, félag áhuga- manna um vestræna samvinnu. Þessi félög verða síðan aðilar að þeim samtökum, sem ákveðið var að stofna nú í Bonn. !Næsta ráðstefna í London Ráðgert er, að samtökin haldi síðan aðalþing á tveggja ára fresti og er hið næsta fyrirhug- að í London. Á ráðstefnum þess- um verður rætt um starfsemi ungra stjórnmálamanna í Atlants 'hafsbandalagslöndunum og skipzt á skoðunum um leiðir til að vinna fylgi hugsjónum Atlants- hafsbandalagsins. Þá munu og rædd þar ýmis vandamál, sem 'bandalagið á við að stríða, og hin ýmsu vandamál, sem uppi eru á hverjum tíma á sviði al- þjóða stjórnmála. Þá munu enn- fremur rædd skipulagsmál þess- ara samtaka og þeim kosin stjórn, er fari með málefni sam- takanna á milli þinga. Ráðstefnuna í Bonn sóttu rúm- lega 100 fulltrúar fná öllum ríkj- um Atlantshafsbandalagsins. — Fóru fundarhöldin fram í glæsi- legum salarkynnum Bethoven- 'halle á Rínarbökkum. Forseti ráðstefnunnar var fulltnii frá 'Ítalíu, Angelo Bernasola að nafni. Eftir að setningarfundur hafði verið haldinn, var ráð- 'stefnunni skipt upp í 5 nefndir, er hver fjölluðu um sinn mála- 'flokk Og störfuðu nefndirnar í tvo daga. Að meginefni fjölluðu nefndirnar um eftirtalin verk- efni: Stjórnmálalega stöðu Atl- antshafsbandalagsins í framtíð- inni. Aðstoð Atlantshafsbanda- lagsins við vanþróuð ríki. Við- horfið til Sovétríkjanna og Kína. Skipulag og starfsemi samtaka ungra stjórnmálamanna í ríkjum Atlantshafsbandalagsins. I Margar ályktanir samþykktar Þessi efni voru tekin til ítar- legrar meðferðar í nefndunum og þar undirbúnar ályktanir, er ráðstefnan lét frá sér fara, en þær voru samþykktar á alls- nerjarfundi, sem haldinn var síð- asta dag. ráðstefnunnar. Ekki • gefst hér tóm til að rekja efni 'ályktananna, en allmiklar um- ræður urðu um þær og skiptar skoðanir, enda þarna fulltrúar frá ólíkum löndum og frá hinum ýmsu stjórnmálaflokkum. Var eftirtektarvert, að skoðanir manna skiptust ekki síður eftir stjórnmálaflokkum en löndum. ’Sósíaldemokratar héldu t. d. mjög saman og mótuðu sameigin lega skoðanir sínar á hinum ýmsu málaflokkum. Urðu um- ræðurnar oft fjörugar o.g skemmtilegar. Fulltrúar á ráðstefnunni fengu tækifæri til að heimsækja eða hlýða á ýmsa merka, þýzka stjórnmálamenn. Fulltrúar hinna þriggja stjórnmálaflokka, sem stærstir eru í Vestur-Þýzkalandi ávörpuðu ráðstefnuna. Það voru þeir Ernst Chemmer, ráðherra frá kristilega demókrataflokkn- um, Ollenhauar, form. sósíal- demokr ataflokksins og Erioh. 'Mende, formaður frjálsra demo- krata. Þá heimsótti ráðstefnán dr. Lútoke, forseta Vestur-Þýzka- lands, í emtoættisbústað hans og þar hélt forsetinn erindi um samstarf Atlantshafsþjóðanna, Kynnisferð til Köln Ambassador íslands í Bonn, Magnús Magnússon og frú hans höfðu kvöldverðarboð inni fyrir íslenzku fulltrúana meðan dval- izt var í Bonn. Þá var farið í kynnisferðalag til Köln, sem er skammt frá Bonn og dvalizt þar í einn dag. Þar fengu þátttak- endur tækifæri til að skoða hina sögufrægu borg, m. a. hina frægu dómkirkju og heimsækja ýmsar menningarmiðstöðvar þar eins og óperuna. Eins og fyrr segir voru al- mennar umræður um hinar ein- stöku ályktanir síðasta dag ráð- ■stefnunnar. Að þeim loknum fór fram stjórnarkjör, en þá hafði verið samþykkt að stofna ofan- greind samtök og settar reglur til bráðabirgða um fyrsta stjórn- arkjörið. Kosin var 9 manna 'stjórn (Bureau) og 15 manna framkvæmdanefnd (Exeoutiva Committee). ísland fékk einn fulltrúa í framkvæmdanefndina og samkvæmt samhljóða tilnefn- ingu allra íslenzku fulltrúanna Var Heimir Hannesson, formað- Ur Varðbergs, kjörinn í fram- kvæmdanefndina. Boðið til Berlínar Er ráðstefnunni hafði verið formlega slitið, var þátttakend- Um boðið í tveggja daga ferð til Berlínar. Þar tók m. a. á móti 'hópnum Willy Brandt, borgar- 'stjóri Vestur-Berlínar, og héLt hann stutta ræðu í móttöku í 'ráðhúsi V-Berlínar. Borgarstjór- inn kom manni fyrir sjónir sera mjög kröftugur og geislandi per- Framhald á bls. 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.