Morgunblaðið - 30.04.1963, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 30.04.1963, Qupperneq 13
Þriðjudagur 30. apríl 1963 MORGVNBLAÐ1Ð 13 Framh. af fyrri síðu. tiim og aflinn verið orðinn 300 kassar, þegar Óðinn birtist, en þá etrax verið höggvið á trollið og eiglt burtu. Georg Stephen, háseti, er 26 ára gamall, kvæntur og á tvö börn. Hann kvaðst nú koma í fyrsta skiptið til Reykjavíkur og yona að það yrði hið síðiasta. Hann sagði að Milwood hefði ekki verið að veiðum innan land- helginnar, en skipstjórinn hefði eiglt í burtu vegna hótana Þórax- ins Björnssonar “við hann árið 1961, er hann var á Þór. Stephen sagði, að hann hefði verið í brúnni þegar skipin rák- ■ust saman. Það hefði verið Óðinn eem sigldi á Milwood, sem hefði hallazt mjög við áreksturinn. Hann kvaðst ekki hafa óttazt, að itogaranum mundi hvolfa, en þó hefði honum samt dottið björg- unarbáturinn í hug, konan og börnin. „Ég var í brúnni, þegar Pall- isermenn komu yiir til okkar Robert Duff, háseti — flóttatilraun vonlaus — með commander Hunt í farar- broddi. Hann reyndi mikið til þess að telja Smith skipstjóra á að fara til hafnar með varð- skipinu og sat einsamall með honum í káetu hans í 4 klukku- stundir, en al'lt án árangurs“, sagði Stephens. Stephen hélt því fast fram, að varðskipið hefði reynt að sigla togarann í kaf, en kvaðst ekki vita skýringu á því, hvers vegna ekki var skotið á hann, nema þá helzt, að Óðinsmenn hafi ekki viljað skjóta á varnarlausa menn. „Skipstjórinn skipaði öllum frá borði, en vegna þess að léttbát- urinn var fullhlaðinn urðum við tveir eftir. Þeir ætluðu að sækja okkur í næstu ferð, en þá vildum við ekki fara. Við vorum einir togaramanna í skipinu einn eólarhring,“ sagði Stephen. Þá átti Morgunblaðið viðtal við enn einn af áhöfn skipsins, sem ekki vildi láta nafn sitt uppi, og sagði hann, að togara- menn hefðu haft grun um að Smith, skipstjóri, hyggði á flótta þegar hann fór yfir í Juniper," Bnginn okkar var viðstaddur, þegar hann bað um flutning um borð í Juniper, við vissum hvað hann ætlaði sér, en við erum ekki vissir um að skipherrann á Palliser hafi grunað hver til- gangurinn var og við þögðum.“ Georg Stephen, háseti — reyndu aö sigla okkur í kaf — ■■ MHWW Hin nýkjörna miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hélt fyrsta fund sinn í gær í Sjálf- stæðishúsinu. Var myndin hér að ofan tekin við það tæki- færi. Sitjandi talið frá vinstri: Magnús Jónsson alþingismað- ur, Ingólfur Jónsson landbún- aðarráðherra, Ólafur Thors forsætisráðherra, Bjarni Bene- diktsson dómsmálaráðherra, formaður fiokksins, Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra, varaformaður, Pétur Ottesen og Kristín Sigurðardtótir for- maður Landssambands Sjálf- stæðiskvenna. Standandi, tal- ið frá vinstri: Gunnar Helga- son formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Hafstein alþingismaður, Sig- urður Bjarnason ritstjóri, Þór Viihjálmsson formaður Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna og Birgir Kjaran alþingismað- ur . Ljósm. Mbl. Ól. K. M. BíU veltur með átta manns í Mirútafírði Stað í Hrútafirði, 29. april. ÞAÐ SLYS varð hér rétt fyrir utan Stað í dag, að Volkswagen- „rúgbrauð“ kastaðist út af veg- inum, þegar bíllinn lenti í lausa- möl í slæmri beygju. Bíllinn fór heila veltu og kom niður á hjól- unum. í bílnum voru átta manns, og mun það flest hafa slasazt m.eira eða minna. Læknir var sóttur á Hvammstnga, og flutti hann þrennt með sér í sjúkra- hús. Bíllinn er með Rey'kj avíkurnúm eri ,en var að kom,a frá Akureyri. Hann skemmdist töluvert. Fólík- ið, seim ekki þurfti að fara í sjúkralhús, komst leiðar sinnar suður með fóiiki í hópferðalagi. — M. G. 4 ára drertg- ur fyrir bíl UMFER.ÐARSLYS var uim kl. 12,30 í gærdag á Miklubraut, skamimit austan við benzínstöð Slhell. Þar varð 4 ára drengur, Óskar Thorberg Traustason, Hvassaleiti 30, fyrir bifreið og slasaðist allmikið . Böifreiðin var á iieið austur Miklubraut, þegar Óskar Itli tók sig út úr barnahópi við götuna og hljóp út á hana, en varð þá fyrir bifreiðinni. Óskar var þegar fluttur á Slysavarðistofuna. Hann er lær- brotinn og hlaut höfuðáverka. Milwood í þorskostríði við Færeyjar DANSKA blaðið Politiken skýrir frá því í gær og á sunnudag að togarinn Mil- wood sé þekktur úr „þorska- stríði" við Færeyjar. Þegar danska herskipið Niels Etobe- sen kom að brezka togaran- um Red Crusader að veiðum innan landlhelgi Færeyja fyrix nokkru, var Milwood næsta skip. Red Crusader komst undan eftir að hafa orðið fyrir skoti danska herskipsins og naut aðstoðar brezka flotans til að sigla til Skotlands. í réttarihjöldum út af málinu var skipstjórinn á Milwood aðal'vitni félaga sins á Red Crusader. ÞÓRARINN Björnsson, skip- pétur SigurSsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar og Þórarinn herra á Óðni, samsinnti því að Björnsson, skipherra, í brúnni á Óðni, rétt eftir að skipin þetta hefði verið langt stríð, lögðu að bryggju í gærkvöldi. (Ljósm. Sv. Þorm.) Hunt skipherra kom skipstjóranum undan þegar fréttamenn flykktust að honum í brúnni um leið og Óðinn lagðist að bryggju í Reykjavík. En hann hafði þá ekki hallað sér í 60 tíma að sögn eins af skipsmönnum hans og reyndar enginn af yf- irmönnum á Óðni. Fyrsta spurningin, sem fyrir hann var lögð var: — Skaut Hunt skipherra á Palliser skipstjór anum á Milwood undan vilj- andi? Þórarinn kvað engann vafa á því. Skipherrarnir Þórarinn og Hunt voru búnir að koma sér saman um hvaða aðferðir yrðu við hafðar, er varðskips menn tækju togarann. Skyldi Hunt skipherra fara yfir í togarann, og láta togaramenn fara frá borði, nema skip- stjórann, sem yrði í brúnni, áður en bátur varðskips- manna legði að. Helgi Hall- varðsson, fyrsti stýrimaður, fór á báti varðskipsins yfir í togarann, eftir að togaramenn yfirgáfu skipið. En þegar varð skipsmenn komu um borð, urðu þeir þess áskynja að skipstjórinn var horfinn. Höfðu þeir séð að bátur Hunts skipherra fór yfir í togarann Juniper, sem var þarna skammt frá, en vissu ekki að skipstjóranum á togaranum var þannig komið undan. — Skipherrann á Pallisex gaf þá skýringu að hann hefði ekkert ráðið við skipstjórann. Hann hefði verið alveg óður, jafnvel hótað að kasta sér í sjóinn, sagði Þórarinn. Hunt skipherra gerði margar tilraun ir til að korna fyrir hann viit- inu, það vissuim við og sáum hann fara margar ferðir yfir í togarann til þeas. Hann átti í erfiðum aðstæðum. Hann vildi a'lit fyrir okkur gera. En hann er þarna til að hjálpa sánum mönnum. — En eftir að hann var búinn að fá skipstjórann yfir á sitt skip, afhenti hann ykk- ur hann ekki? — Nei, hann kvaðst eklki i geta framselt hann án skip- unar sinna yfirmanna. — Virtust skipsmenn togar- ans fylgja sínum skipstjóra í þessu? — Það fóru ekki nema 3 yfir í togarann, og tveir voru þar fyrir. Hinir fylgdu hon- um. — Hann reyndi að sigla viljandi á ykkur, togaraskip- stjórinn? — Já, við sigldum samhliða þegar hann beygði sikyndi- lega á sttjórnborða. Við stoppuðum og bökkuðum og afturhlutinn á honum lenti á stefninu hjá okkur. Það var nokkuð harður árekstur, eyði- lagðist bátadekkið hjá bon- um og kom gat hjá okkur, þar kom sjór inn, því við sigldum á móti öldunni. En það sakaði ekki, því við böfð / um vatnsþétt skilrúm. j — Þeir eru n-okkuð erfiðir 1 þessir Aberdeenkarlar, sagði l Þórarinn að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.