Morgunblaðið - 30.04.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.04.1963, Blaðsíða 24
96. tbl. — Þriðjudagur 30. apríl 1963 Smith enn um borð 1 GÆRKVÖLDI um kl. 10.30 kom varðskipið Óðinn til Reykjavíkur með brezka tog- arann Milwood, sem varð- skipið hafði átt í miklum erfiðleikum með síðan það kom að honum við veiðar inn an fiskveiðitakmarkanna snemma á laugardagsmorgun. Höfðu íslendingar fylgzt af miklum ábuga með eltinga- leik þeim, sem orðið hafði við töku togarans og var mikill mannfjöldi á bryggjunni er skipin lögðust upp að. Smith skipstjóri á Milwood var þó ekki um borð í togara sínum. Hann var enn um borð í herskipinu Palliser sem hafði skotið yfir hann skjóls húsi og hélt sig utan 12 mílna markanna og beið fyrirmæla að heiman. Taka togarans var hin sögu legasta og fer hér á eftir frá- sögn Helga Hallvarðssonar, 1. stýrimanns á Óðni, af því sem gerðist þennan 2% sólar hring, frá því Óðinn kom að Óttazt um mann ÓTTAZT er um miann, sem fór með ms. Herjólfi áleiðis til Reykjavíkur, þar sem búizt var við honum. Síðast var vitað til hans í klefa sínum á skipinu á fimmtudagskv. Maður þessi er Þorgeir Frimannss., fyrrum kaup maður í Vestmannaeyjum, sem var að flytja búferlum til Reykja víkur. togaranum og þangað til hann sigldi með hann inn í Reykjavíkurhöfn. LAUGARDAGSMORGUN - INN um kl. 6 komum við að togaranum Milwood IV2 mílu fyrir innan 6 mílna mörkin við Skarðsfjöru í Meðallands bugt. — Það var rigningar- súld á staðnum og mikið af togurum og hátum og erfitt að greina hvað voru togarar og hvað hátar á ratsjánni. Héldum við í átt að einum grunsamlegum togara, þegar við grilltum í Milwood í rign ingarsuddanum, vorum rétt komnir að honum og var hann nær landi. Við héldum þegar að honum og var hann þá að innbyrða vörpu sína. Við settum dufl út, nokkra metra frá honum (og er það þar enn) og kölluðum til skipstjórans að við mundum senda bát til hans og óskuð- um eftir að hann kæmi yfir í varðskipið. Við vorum rétt húnir að gera bátinn klárann, þegar við sáum að hann skar frá sér pokann, sem var með þó nokkuð af fiski í og flaut dauður fiskur um allan sjó. Púðurskot í kjölfar árekstursins Sigldi togarinn þegar á fullri ferð til hafs. Við settum þegar á fulla ferð á eftir honum og skut- um einu púðurskoti á hann um leið. Hann svaraði ekki og hélt áfram til hafs. Um leið og hann nálgaðist duflið, gerði hann til- raun til að sigla það í kaf, en tókst það ekki. Við náðum hon- um fljótlega og sigldum á stjórn borða við hann, þó nokkuð nærri stj órnborðshliðinni. Islendingar krefj- ast framsals Brezka stjórnin segir málið i athugun) MORGUNBLAÐIÐ átti í gærkvöldi samtal við Agnar 1 Kl. Jónsson, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. \ Tjáði hann hlaðinu að utanríkisráðuneytið hefði gert \ mjög ákveðnar kröfur til brezka sendiráðsins um að í togaraskipstjórinn, sem er um borð í Palliser, verði [ framseldur íslenzkum yfirvöldum til að standa fyrir máli sínu. Ráðuneytisstjórinn sagði, að hrezki sendiherrann hefði tekið þessu vel og tjáð sér, að hann væri búinn að hera fram þessa tillögu við utanríkisráðuneytið \ hrezka. Óskaði ráðuneytisstjórinn eftir því að hann símaði á ný og skýrði hrezko utanríkisráðuneytinu frá hinni eindregnu kröfu íslenzka utanríkisráðu- neytisins. Hann sagði ennfremur, að enn væri ekki komin svör við því, hvort brezk yfirvöld mundu beita tog- araskipstjórann valdi til þess að koma honum fyrir íslenzka dómstóla, en það væri að sjálfsögðu okkar krafa, ef hann þverskallaðist við. Þess má geta að AP fréttastofan spurðist í gær fyrir um það hjá brezka forsætisráðuneytinu hvaða aðgerðir væru í vændum. Svaraði talsmaður ráðu- neytisins því einu til að málið í heild og lögfræðileg atriði þess væru í athugun. Allt í einu sveigði hann fyrst á bakborða og síðan skyndilega á stjórnborða í veg fyrir varð- skipið. Þar sem svo lítil vega- lengd var á milli skipanna, var um ekkert fyrir varðskipið ann- að að gera en stöðva vélar sín- ar og setja á fulla ferð aftur á bak. Virtist í fyrstu sem togar- inn mundi koma framarlega á bakborðskinnung varðskipsins, en vegna vélakraftar varðskips- ins var hægt að keyra þannig aftur á bak að togaraskipstjóran- um mistókst það sem hann ætl- aði sér. Hann kom undir stefni varðskipsins og virtist sem á- rekstri yrði forðað. En þegar afturgálgi togarans var við stefni varðskipsins, sveigði togarinn skyndilega á bakborða með þeim afleiðingum að gálgi og lunning rakst í framstefni varðskipsins og reif tvö göt á stefni þess. Rétt um leið og hann kom fram und- an skipinu, sendi ég, sem var með byssuna, honum púðurskot. Skipstjórinn var þá sjálfur í brúarglugganum. Þetta stöðvaði hann þó ekkert. Skemmdirnar á varðskipinu voru þegar kannaðar til að vita hvort ekki væri möguleiki á að halda áfram eftirförinni. Var hægt að athuga efra gatið, sem var inn í geýmslurými og mögu- leiki á að gera við það til bráða- birgða. Síðan var vatnsþéttri hurð milli geymslu og íbúða lok- að, en þar sem neðra gatið var inn í „forpikkinn*1, var hægt að dæla úr honum jafnóðum. Síðan var haldið með fullri ferð á eftir togaranum. Taka togarans Togarinn var kallaður upp í talstöð skipsins og gefin merki með eimpípu og flöggum um að nema staðar, en hann anzaði því engu. Þannig siigldum við með stefnu á Skotland þar til Palliser gat fengið hann til að snúa við kl. 7 um kvöldið og við þá búnir að elta hann í 12 tíma. Skip- stjórinn anzaði okkur aldrei, en Palliser loks eftir marg ítrekaðar tilraunir til að ná sambandi við hann. Vildi skipstjórinn í fyrstu ekki íallast á tillögur herskips- Framlh. á bls. 23. Ráðstefna Frjálsrar menningar RÁÐSTEFNA Frjálsrar menn- ingar um efnið „Er stúdents- menntun úrelt?“ var haldin í Hagaskóla um helgina. Frum- mælendur voru Jóhann Hann- esson, skólameistari, og dr. Gunnar Böðvarsson. — Nán- ar verður skýrt frá ráðstefn- unni hér í blaðinu á morgun. Brezkur sjónvarpsmaður tekur mynd af skemmdunum á stefni Óðins, en þar komu tvö göt, er Milwood rakst á hann. (Ljósm. Sv. Þorm.) 1. maí hátíðahöi Fulltrúardðs verkalýðsfél. í Reykjavík HINN 1. mai n.k. eru liðin 40 ár frá því Fulltrúaráð verkalýðs félaganna í Reykjavík efndi fj'rsta sinni til hátíðahalda á hinum alþjóðlega baráttu- og há tíðisdegi verkamanna. En það var árið 1923 sem 1. maí var fyrst hátíðlegur haldinn hér á landi og þá hér í Reykja- vík. Fulltrúaráð verkalýðsfélag- anna mun nú sem fyrr gangast fyrir hátíðahöldum 1. maí og hefur stjórn Fulltrúaráðsins und ir búið þau, samkvæmt einróma saimþykkt aðaiifundar fulltrúa- ráðsins. Tilhögun hátíðahaldanna verð- ur sem hér segir: Um kl. 14:00 verður safnazt saman á Lækjartorgi undir fán- um verkalýðstfélaganna og kröfu spjöldum þeim, sem ákveðið hef- ur verið að bera þann dag. Lúðra sveit Reykjavíkur, undir stjóm Páls Pampiohler Pálssonar, leik- ur ættjarðar og baráttulög, með- an fólk safnast saman. Kl. 14.15 hefst útifundur: Ræðumenn verða þeir Eggert G. Þorsteinsson og Pétur Sigurðs son. Fundarstjóri verður Óskar Hallgrímsson, formaður Fulltrúa ráðs verkalýðsfélaganna. Auk ræðumanna munu listamenn- irnir Guðmundur Jónsson, óperu söngvari og Gunnar Eyjólfsson, leikari, koma fram. Lúðrasveitin leikur milli at- riða. Að kvöldi 1. maí verða dans- leikir í 4 veitingahúsum borg- arinnar á vegum Fulltrúaráðs- ins. í tilefni 40 afmælis dagsins gefur Fulltrúaráðið út 1. mai merki, sem verður selt á götum borgarinnar og kostar kr. 25:00. Er með þessu endurvakinn venja sem tíðkast fyrir fáum árum, að Fulltrúaráðið gæfi sjálft út merki 1. maí. En alla tíð hefur merkjasalan þennan dag verið á vegum Fulltrúaráðs- Framhald á bls. 2. Braut bílskúr á fleygiferð RÉTT fyrir kl. 21 á laugardag var G-bifreið að aka austur Bessastaðaveg. Virtist hún hafa verið á gífurlegri ferð. Þegar bíllinn var kominn inn á mó'ts við Selskarð, á mótum Bessa- staðahrepps og Garðahrepps, náði hann ekki beygju, sem þar er á veginum til vinstri, hentist sitt á hvað um veginn 100 metra vegalengd og lenti að lokum á gífurlegu afli á bílskúr sunnan vegarins. Bíllinn braut upp vængjahurðir og allan dyraum- búnað og stöðvaðist ekki, fyrr en hann var allur kominn inn. í stíu inni í skúrnum var hryssa ásamt nýköstuðu folaldi. Mölv- aði bíllinn stíuna og meiddl hryssuna, þó ekki svo, að talin sé þörf á að lóga henni. Folaldið er ómeitt. — Bílstjórinn virtist ekki vera undir áhrifum áfengis, en var þó fluttur til blóðrann- sóknar. Niðurstöðar hennar voru ekki kunnar þegar þetta er skrif að.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.