Morgunblaðið - 12.05.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.05.1963, Blaðsíða 6
& MORCl'NBLAÐIÐ Sunnudagur 12. maí 1963 í leit aö sögupersónu á islandi Rilhöfundurinn Anya Seton í Reykjavík í GLUGGANUM á bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar í Hafnar- stræti voru fyrir helgina skáld- sögur á ensku og á saurblaði einn ar bókarinn, sem lá opin sást að höfundur þessarra bóka, Anya Seton, hafði skrifað í þær nafnið sitt með eigin hendi. Nú er þa^ ekki daglegur viðburður að heimskunnir erlendir höfundar séu á ferðinni í íslenzkum bóka- búðum, og vakti þetta því at- hygli. Við fundum frú Chase, sem ber rithöfundarnafnið Anya Seton, á Hótel Sögu. Þó margir íslending- ar kannist við sögu hennar og kvikmyndir, sem eftir þeim hafa verið gerðar, a.m.k. Dragonwyck, er rétf að kynna hana nánar. Anya Seton skrifar nokkurs kon- ar sögulegar skáldsögur, 'sem jafnan komast í efstu sæti á sölu- listum bókaklúbbanna. Hún hef- ur þegar skrifað 8 bækur, sem koma jafnt út í Englandi og Bandaríkjunum, og eru síðan þýddar á önnur mál, svo sem Norðurlandamálin. Fjórar af þess um bókum hafa verið kvikmynd- aðar og eru myndirnar enn sýnd- ar í sjónvarpi. Síðasta bók Anyu Seton, Devil Water, var efst á bókavinsældalistanum í Eng- landi, er hún kom út í fyrra og í 3.—4. sæti í Bandaríkjunum. Nú er hún að undirbúa nýja bók. Hún segir að hver bók sé mörg ár í smíðum, því hún skrifi ævisögur með skáldsagnablæ og geri sitt bezta til að hafa atburð- ina sem sannsögulegasta. — Ég get ekki skrifað segir hún nema hafa ákveðinn stað í huga. 3 kaflar á fslandi og Grænlandi Þessvegna er Anya Seton kom- in til íslands, því sennilega ger- ast 3 kaflarnir í þessari bók á íslandi og Grænlandi. Þetta er 9. og 10. aldar saga, gerist fyrir komu Normanna til Bretlands, segir hún. Ein af söguhetjunum er stúlka frá Cornwall, sem tekin er til fanga af víkingum og flutt til íslands árið 981. Á íslandi elsk ar hún mann að nafni Sigurður eða Sigmundur, höfundurinn get- ur ekki almennilega fundið hann. Annars er Anya Seton aðallega að leita að annarri sögupersónu, sem heitir Ketill. Skv. gömlum sögnum í Cornwall á hann að hafa verið uppi á íslandi á þess- um tíma og farið með Eiríkí rauða til Grænlands, og Ketils- fjörður á Grænlandi að vera við hann kenndur. — En Ketill finnst ekki, segir frúin. Einar Ól. Sveinsson og dr. Kristján Eldjárn hafa verið^svo elskulegir að hjálpa mér að leita að þessari sögupersónu, en án ár- angurs. — Og ef þér finnið hann ekki? — Ef þessir lærðu menn geta ekki komizt á sporið, ja þá verð ég bara að halda áfram og setja hann á einhvern stað á íslandi. Til þéss er ég að fara upp í Borg- arfjörð og ef til vill eitthvað norð ur eða út á Snæfellsnes. Ég er búin að leigja bíl og bílstjóra og Guðrún Jónsdóttir á Forsetaskrif stofunni ætlar með mér, en hún er frá Borgarnesi og mjög kunnug á þessum slóðum. Svo við höldum áfram með sög una, þá fer stúlkan frá Cornwall til Grænlands með leiðangri Ei- ríks rauða, eignast þar 2 börn og missir manninn. Hún verður m.a. vitni að brottför Leifs heppna til Ameríku. En hún hefur heim- þrá til Englands. — Mér þykir leiðinlegt að þurfa að játa þetta við íslending, segir Anya Seton. Og hún fer heim. Þetta eru ann- ars bara 3 kaflar í sögunni, sem verður geysilöng. — Eruð þér að vinna hér? — Nei, ég held alltaf að ég geti unnið á ferðalögum en það verður aldrei af því. Ég ferðast fyrst um og leita upplýsinga, því ég get ekki skrifað um stað og „haft hann á tilfinningunni" nema hafa verið þar. Staðir hafa áhrif á mig og gefa mér innsæi í hlutina. Ég nýt reglulega þeirra ára sem fara jafnt í leit og undir- búning. Svo verð ég að vera heima til að skrifa. Þá fer ég á fætur kl. 8 og þegar ég er raun- verulega komin af stað, get ég Anyta Seton við skriftir I Síningarglugga bókaverzlunar Snæbjarnar Jónssonar liggja nokkr ar af skáldsögum Anyu Seton. Og hvað á sagan að heita? Ennþá er aðeins bráðabirgða- titill á henni. Höfundurinn kall- ar hana Avalon, sem táknar m.a. nafnið á hinni jarðnesku para- dísareyju í Vesturhöfum, eða hinn fjarlæga draumastað. Og hún segist aðeins vera búin að vinna lauslegar útlínur bókarinn- ar. unnið í 8—9 klukkustundir á dag. Venjulega skrifa ég fjögur upp- köst áður en handritið er tilbúið handa útgefandanum. — Og hvar finnið þér persón- urnar? — Þær finna mig. Ég bíð, skrifa greinar í blöð og þesshátt- ar og að lokum fer eitthvert við- fangsefni að leita á mig. Snemm kynni af skrifum og ferðalögum Frú Chase kom hér með manni sínum, sem aðeins stanzaði í tvo daga og hélt svo áfram til meg- inlandsins, þar sem þau ætla að hittast aftur 15. maí. Hann er fjár festingarráðunautur að atvinnu. — Við höfum þetta jafnan svona, hann sinnir sínum verkefnum og ég mínum, segir frúin. Þau hjónin búa í Bandaríkjun- um, í fallegu húsi í Le Corbusier stíl í Nýja Englandi. Á þessum sama stað ólst Anya Seton upp. Hún er af enskum og Skozkum ættum í föðurætt og móðurætt- in amerísk, frönsk og svissnesk. Foreldrar hennar fengust bæði við skriftir og ferðuðust mikið, svo hún hafði farið yfir Atlants- hafið 8 sinnum áður en hún var 13 ára gömul, og lærði frönsku þegar í æsku. Hún dvaldist mik- ið í Englandi og telur rætur sínar bæði þar og í Bandaríkjunum. Um persónur frá þessum löndum fjalla líka bækur hennar, ,,því þær þekki ég bezt“ segir hún. í hótelherbergi skáldkonunn- ar á Hótel Sögu liggja landakort og bækur um íslenzkar fornsögur um allt. Anya Seton hefur viðað að rér miklu efni. — Ég vona bara að birti tiþ Ég si Þingvelli í snjó og allt er svo grátt í þessu veðri, segir hún. — E. Pá. Barnaskóli Sauðárkróks Saúðárkróki 2. maí Barnaskóla Sauðárkrókis var slitið 2. mai. í skólanum voru í vetur 165 börn. Af þeim luku 161 ársprófi, þar af 27 barnaprófi. Hæstu meðaleinkunn hlaut Ól- afur Ingimarsson 9.59, seam mun vera hæsta meðaleinkunn, sem hefur verið tekin við skólann. Nokkur verðlaun voru veitt fyrir námsárangur og góða hegð- un. Verðlaun gáfu kaupfélag Skagfirðinga og Rótaryklúbbur- Sauðárkróks. Einnig voru veitt verðlaun úr Verðlaunasjóði Barnaskólans og Verðlaunasjóði Jóns Þ. Björnasonar. Jafnframt voru sýndir nokkr- ir fagrir verðlaunagripir, sem skólinn er að eignast, og verða notaðir sem sundverðlaun — farandgripir. Barnaprófsnemendur færðu skólanum að gjöf borðfána á fallegri stöng. Sýning á teikningu og handa- vinnu nemenda hafði verið 2. páskadag. Skólastjóri er Björn Daníels- son. — Jón • Austurvöllur G.Þ. sendir Velvakanda þetta bréf: „Austurvölliur ber mjög á góma manna á milli um þess- ar mundir að vonum, því að þetta er einn helgasti staður landsins, Jhluti af hinu forna túni Ingólfs. Nú skal þessi túnskiki kaf- færður undir hálfis metra lagi vegna breyttra aðstæðna. Að vonum sárnar ýmsum, en öðr- um sárnar, hve illa er farið með þau birkitré, sem náð höfðu „unglingsþroiksa“ í hjarta höfuðoorgannnar, þeim kippt upp á hranalegasta hátt og handieikin þannig, að von- laust er að þau festi rætur á nýjum stað. En úr því farið er að raska við þessu helga túni, þá er rétt að skrefið sé stigið til fulls og þarf, bæði út frá fagurfræði- legu og nytsemdar sjónarmiði. Hinir hugmyndaisnauðu en reglustikuþrúguðu skipulags- vitringar Reykjavíkur, sem ein- blína aðeins á uppdráttinn, án tillits til annarra aðstæðna, gera sér sýnilega enga grein fyrir því, hve það misbýður allri fegurðarskynjun að láta ekki gangstiginn frá styttu Jóns Sigurðssonar sveigja þannig, að hann liggi nokkuð til vest- urs og komi á móts við miðjar dyr Alþmgisihússins, í stað þess að hafa hann eins og nu er ráðgert. Þetta sér hver heil- vita maður og finnur, að þetta er eina eð’lilega lausnin. Þá er hitt að taka sneið af Austurvelli að norðan og vest- an þannig, að unnt verði að leggija btilum þar þvert við völlinn, en ekki langsum, eins og nu er. Gangstéttarfromin fyrirhug- uðu. við völlinn eru með dillu óþörf. • Lokun Austurstrætis En úr því drepið er á skipu- lagsmál Miðbæjarins, er rétt að skjóta því fram, hvort ekki sé orðið tímabært að loka Aúst- urstræti fyrir allri bifreiðaum- ferð, og ákjósanlegt að reyna það nú vegna þrengsla og hættu, sem byggingarfram- kvæmdir við götuna valda næstu mánuði. — Að sjálfsögðu þyrflti strætið að vera opið vegna nauðsynja fyrirtækja sem við það eru, einhvern til- tekinn tíma t.d. á morgnana kl. 7-9. — Með þessu mundi hinn hvimleiði ,,bifreiðarúntur“ leggjast niður. G.Þ.“ • Austurvöllur en ekki Austurlundur Velvakandi þakkar G.Þ. bréf ið. Þótt honum sé Ijós nauð- syn á rýmri bílaistæðum vest- an og norðan Austurvallar, þá er honum mjög sárt um gras- flötinn. Austurvöllur er eitt elzta ömefni á íslandi, eins og áður hefur verið minnzt á í þessum dálkum. Völlurinn hef- ur verið í austur frá bæ Ing- ólfs Arnarssonar. — Velvakandi vill taka undir það, að hin fyrirfiuguðu stéttarlögðu gang- stéttahorn á kostnað graslend- isins eru óþörf. Það er alger- lega ástæðulaust að hafia þau . svo rúm, sem uppdrátturmn gerir ráð fyrir. Sé nauðsynlegt að halda múgfundi við völhnn, ætti að vera nægilegt rúm á got unum all’t um kring. — Og þetta með skógrækt á Austur- velli, ja, Austurvöllur á að vera grasvöllur en ekki skóg- arlundur, enda býst Velvakandi við, að jarðvegurinn sé ekki hentugur til skógræktar (lík- lega of saltur). Y'rí-1' c,OQc,cc AJlPtriri'j í, ©PIB 6VKMMIII r >* ÍM BOSCH Mikið úrvai af BOSCH heimilis- tækjum. Húsprýði hf. Laugavegi 176. gQSCH Simi 20440.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.