Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 2
2 MORCVNBL AÐ19 Sunnudagur 26. maí 1963 Fundir frambjóðenda S já Ifstæðisf lokksi ns í Reykjaneskjördæmi verða á eftirtöldum stöðum: Höfnum og Gerðahreppi mánudaginn 27. maí. Vogum og Garðahreppi þriðjudaginn 28. maí. Seltjarnarnesi og Kjós miðvikudaginn 29. maí. Kópavoigi fimmtudaginn 30. maí. Keflavik föstudaginn 31. mai. Hafnarfirði finuntudaginn 6. júnL — x — Fundirnir i Höfnum og Gerðahreppi hefjast kl. 20,30. Ræðumenn í HÖFNUM verða: Ólafur Thors, Axel Jónsson, Eirík- ur Alexandersson, Alfreð Gislason, Sverrir Júlíusson og Matthías A. Mathiesen. Ræðumenn í GERÐAHREPPI verða: Matthias Á. Mathiesen, Sverrir Júlíusson, Einar Halldórsson, Karvel Ögmundsson, Axel Jónsson og Ólafur Thors. Eiríkur Alfreð Ólafur Matthías Snæbjörn Sverrir Karvel Einar Axel Samkomulag um skipan trúar- bragða í Ung- verjalandi Róm, 25. maí NTB-Reuter. ÍTALSKA fréttastofan „ANSA“, skýrir svo frá í dag, að náðst hafi í meginatriðum samkomu- lag um trúarbragðavandamálin í Ungverjalandi milli ríkisstjórn arinnar þar og Páfagarðs. Enn sé þó ósamið um nokkur smáatriði en vænta megi lausnar þeirra fljótlega. Fréttastofan hefur eftir áreið- anlegum heimildum að ung- verska stjórnin hafi lagt til, að skipaður verði sérstakur erind- reki kaþólsku kirkjunnar og hafi Páfastóll fallizt á það. Talið er að Endre Hamvas, biskup verði skip aður í emibættið. — Skömmfun eða viðreisn Framhald af bls. 1 það er, og sýnir slík rangfærsla enn eitt hryggilegt dæmi um mál flutning Tímans um þessar mund ir. Nú er því valið milli hafta- og sikömmtunarstefnu Framsóknar- flokksins og „skömmtunar" Við- reisnarstjórnarinnar, eins og Tíminn hefur nefnt stefnu nú- verandi stjórnarflokka. Það er skoðun Mbl., að blaða- greinar, eins og sú, sem birtist í Tímanum í gær muni hér ekki ráða úrslitum. Það er mat fólks- ins í landinu, sem hlýtur að verða þyngst á metunum. Almenningur mun nú skera úr um þetta atriði. Vill þjóðin höft og skömmtun Framsóknarflokksins á ný í bandalagi við kommúnista eða vill þjóðin Viðreisnina, sem Tím- inn nefnir „skömmtun" stjórnar- flokkanna. Tíminn segir í gær ástandið nú vera verra en 1949. Það er því kosið milli viðreisnarinnar 1963 og hafta og skömmtunarástands- ins 1949, sem Framsóknarmenn vilja að komi í staðinn. Ekki mun standa á kommúnistum að styðja dyggilega þessa viðleitni bandamanna sinna til „fram- fara“. Skommtunarskrifstofa ríkisins. ReyJcjavlJf, / UMSÓKN N9 Í9C »*«»#• ••••••••••••••••••#• ••«•••••••#••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••*•••••••••#*•••••••••••*•••••«•••••• •!•••••• ••#•••• (Nofn þess, sera skráður er móttakand! & Carmskirteiui) ttm heimild til pess að fá toUafgreið&lu á skummlunuruörum• •••••••<II mit-T-T-iT -fi --mniTt •••••••••••••••••••••••••«•«•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• ••••*••••«••••• Oirliú magnt (YðruhciU i lullskrú) IKafli og i *•••••••••••*•••••••••••••••< < Unrii rskrift umsn-kjancla I OlfylIUt af Rkrifstofu verðlsgsstjóra: Ctfyllist af skrifstofu tollstj (HelU vGrunnar) !••••••••••••••••••••••••••« (Ncttó magn vðrunnar til skötnmtunur, fsrrlst I kilóunij króniun, tíoiogum, pðrum 0« s. frv. eftir |>yí» sem við Aí (Tollafgrciðsluuúmer og unclirs) Þetta eintak afhendist skrifstofu verðlagsstjóra með verðúttreikningl. Sýnishom af einni af „Umsóknum.“ þeim, sem svo mjög settu svi sinn á hafta- og skömmtun- artímabilið. Þetta er umsókn um tollaafgreiðslu á skömmtunarvörum. Þennan litla snepil þurfti að færa á hvorki meira né minna en þrjá stjómarkontora. Skömmtunarstj&ra, verðlagsstjóra og tollstjóra. Nú vilja Framsóknarmenn og kommúnistar innleiða þetta kerfi á ný. Þeir segja ástandið nú vera verra, en þegar slíkir miðar voru œr og kýr stjómarvaldanna. Kostaboð til kjósenda! — boðið að kjósa fjórar stefnuskrár í einu j ÞJÓÐVILJINN birtir í gær plagg eitt mikið, sem nefnt er „kosningastefnuskrá,, Al- þýðubandalagsins 1963. Er þar sagt, að hér sé um að ræða samkomulagsstefnu Alþýðu- bandalagsins og Þjóðvarnar- flokksins. Kjósendum G-list- ans í kosningunum í næsta mánuði gefst því kostur á því að kjósa fjórar stefnuskrár á einu bretti, sem allar eru þó innbyrðis ósammála. Er hér um ræða mesta „kostaboð“, sem kjósendum hefur boðizt í kosningum! Er engu líkara, en nú sé hafin útsala á kosninga- málefnum hjá kommúnistum. Hinar fjórar stefnuskrár G-Iistans eru: Stefnuskrá Sósíalistaflokksins: Leið ís- lands til sósíalismans, stefnu- skrá Alþýðubandalagsins, svo- nefnda, stefnuskrá Þjóðvam- arflokksins og að lokum kosn- ingastefnuskrá, „sem Alþýðu- bandalagið og Þjóðvamar- flokkurinn hafa orðið sam- mála um“, eins og Þjóðviljinn kemst að orði í gær. Tilraunir kommúnista til þess að læða kostningabaráttu málum sínum að kjósendum undir dulnefnum og í dular- gervi er landsmönnum löngu kunn. Fyrst hétu samtök þeirra Kommúnistaflokkur ís- lands, síðan Sameiningarflokk ur alþýðu, næst Alþýðubanda- lag og nú er boðið upp á „sam komulagsstefnuskrá“. ,Hlébarðinn‘ fékk gullpálmann — Sagan júlíbók AB FRANSKA leikkonan Marina Vlady og brezki leikarinn Ric- hard Harris fengu gullpálma- verðlaunin á 16. kvikmyndahá- tíðinni í Cannes, sem lauk sl. firr.mtudag. ttalska kvikmyndin ,,Hlébarðinn“ var kosin hezta kvikmyndin á hátíðinni og hlaut einnig gullpálma. Aðalleikarar þeirrar myndar eru Claudia Car- dinale og Burt Lancaster. Kvik- myndir frá 29 þjóðum tóku þátt í keppninni. Marina Vlady fékk verðlatunán fyrir lei'k sinn í ítölaku kvik- myndinni „The Queen Bee“. Þar leikur bún unga, óttaslegna Sumarsýning opnuð í Ásgrímssal f DAG verður opnuð sumarsýn- ing í Ásgrímssafni. í vinnustofu Ásgríms Jónssonar eru sýndar olíumyndir, en í heimili hans vatnslitamydir. Þessi sýning er með líku sniði Og aðrar sýningar safnsins að sumri til, en þá hefur verið leitast við að gefa sem gleggst yfirlit yfis listþróun Ásgríms í rúmlega hálf öld, og sýnd sem margþættust viðfangsefni. Eru þá m.a. hafðir í huga erlendir ■gestir sem safnið skoða. í Ásgrímssafni verða til sölu kort af nokkrum listaverkum safnsins, m.a. litkort af Heklu- og Þingvallamynd. Einnig kort af þjóðsagnateikningum. Gefið hef ur verið út lítið upplýsingarit um listamanninn og safn hans. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga frá kl. 1,30 — 4. Aðgangur ókeypis. í júlí og ágúst verður safnið opið alla daga, nema laugardaga á sama tíma. brúði, seim elskar eiginmann sinn aMt til dauðans. Richard Harris fékk verðlaunin fyrir leilk sinn í „This sporting Life“. Kvikmyndin „Hlébarðinn** er byggð á metsölubók Guiseppe Tomasi de Lampendusa, sem kom út árið 1959. Bókin er fyrsta og eina bók höfundar og kom út skömmu eftir andllát hans. Bókin kemur út í íslenzkri þýðingu innan skaimms, verður júlíbók Almenna bókafélagsina og þýðandi hennar er Tómas Guðnmundsson, skáld. Önnur verðlaun kvikmyndalhá tíðarinnar í Cannes eru þessi: Bandaríska kviikimiyndin „To Kill a Moekingbird" hdaut Gary Gooper-verðlauinin. Rússneska kvlkimyndin „The Optimistic Tragedy" blaut sér- stök verðlaun, sem aldrei áður hafa verið veitot, fyrir „bezita byltingaróðinn“. Verðlaunuim, sem dómnefnddn veitir, var skipt milli japönsku kvikmyndarinnar „Harakiri" og tékknesku myndarinnar „Ona Day, One Cat“. Ættlr Síðupresta Orðsending til þelrra sem eiga bókina. NOKKKRAR leiðréttingar og við bætur við ritið „Ættir Síðu- presta“ hafa nú verið prentað ar. Hafa þær verið sendar út til áskrifenda bókarinnar. Aðrir þeir, sem eignazt hafa bókina, eru beðnir að vitja þeirra til af- greiðslu Norðra í Sambandshús- inu í Reykjavík, neðstu hæð, Blaðið má líma aftan við bók- ina, og eru menn góðfúslega beðn ir að merkja við þá staði í bók- inni, sem leiðréttir eru eða við er bætt, jafnframt því sem beð- izt er velvirðingar á því, sem brenglazt hefur. Björn Magnússon, Glæsilegir vinningar - 5 bílar Kaupið miða strax í dag — Happdrætti Sjálfstæðisflokksins #

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.