Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 15
f( Sunnudagur 26. maí 1963 M0RGVNBLAÐ1Ð 15 Fegrunarsérfræbingurinn frú Kay Gregson leiðbeinir yður um val og notkun á IIMNOXA snyrtivörum yður að kostnaðar- lausu mánudag kl. 9—12 og kl. 1—6 e.h. þriðjudag kl. 9—12 f.h. NOTIÐ ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI. eanooqinn Bankastræti 6 — Sími 22135. \ « - Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu - íslenzk Ameríska félagið Aðalfundur félagsins verður haldinn í Glaumbæ, uppi miðviku- daginn 29. maí nk. vxbzgk daginn 29. maí nk. kl. 8,30 e.h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Kvikmyndasýning. STJÓRNIN. Hörpusilki er utan og innanhússmálning. Hörpusilki þekur vel. Hörpusilki á híbvlin. Hörpusilki er framleitt úr plastþeytu, sem gefur því óviðjafnanlega eiginleika. í Hörpusilki er að finna sameinaða alla kosti gúmmímálningarinnar, olíumálningarinnar og oliu plastmálningarinnar. Hörpusilki er framleitt í 20 standard litum. ÞETTA GERDIST í APRlL f AtÞINGI. Lagt fraro stjórnarfrumvarp um tneðferð ölvaðra manna og drykkju Cjúkra (6). Allmörg frumvörp samþykkt sem Jög frá Alþingi, m.a. um stofnlána- deild landbúnaðarins og byggingar- sjóðs aldraðs fólks (10). Frumvarp um almenningsbókasöfn og fleiri frumvörp samþykkt sem lög frá Alþingi (11). Þjóðhags- og framkvæmdaáætlun rikisstjómarinnar fyrir árin 1963—1866 lögð fram á Alþingi (11). Útvarpsumræður frá Alþingi (18 og 19). Alþingi samþykkir lög um almanna tryggingar, lög um vátryggingarfé- lög fyrir fiskiskip, lög um heimild til að afhenda þjóðkirkjunni Skál- holtstað, lög um þátttöku Sildarverk- smiðja rikisins 1 útgerðarfélagi og Jög um Kennaraskóla íslands (19). Fjölmörg mál afgreidd á Alþingi (20). Ný tollaskrá samþykkt sem lög frá Alþingi (20). Alþingi, 83. löggjafarþingi íslend- Inga, slitið. Þingið afgreiddi fjölda mikilvægra mála, alls 70 lög (21). VEÐUR OG FÆRÐ. Jarðskjálftakippir finnast enn (2). Meðaihiti í Reykjavík í marz var fnarz var 4,7 stig. Er það hlýjasti marzmánuður hér siðan 1929 (3). Tún tekin að grænka 1 Holtum (7). Veður snöggbreytist úr blíðviðrl i efsarok með snjókomu víða um iand og hörkufrosti (10, 11. 17). Þjórsá væð við brúna vegna stíflu efar í ánni (18). 57 kippir komu fyrsta dag jarð- hræringanna (20). Fært norður í Skagafjörð, vestur i Saurbæ og austur í Vik (20). Enn vart jarðskjálftakippa norðan lands (23). Harðir jarðskjálftakippir fyrir norð (ui (28). ll ÚTGERÐIN. ; Góður afli hjá Ólafsvíkurbátum (2). M.b. Sólrún fær 2200 tunnur síldar 1 einni veiðiferð (3). Viku-aflahrota í Vestmannaeyjum (3). Homafjarðarbátur fær 21 lax í þor- •kanet (4). Eandburður af fiski 1 Eyrarbakka (5). Meðalafli Keflavikurbáta 7,31 lest i róðri (5). Mikil síldveiði (6). 729 lestir af fiski bárust á land á Flateyri í marz (7). Sjö Grundarfjarðarbátar fá sam- tals 211 lestir á einum sólarhring (7). Afli Akranesbáta það sem af er vertíðinni 6666 lestir (9). 1400 lestir berast til Eyja sama daginn (9). Togaramir farnir að sækja á fjar- læg mið (18). Heildarafli i verstöðvunum frá Hornarfirði til Stykkishóims 25 þús. tonnum meiri nú en í fyrra (19). Sjávarútveginn skortir vinnuafl (20). Afli Vestfjarðabáta i marz (20). Togarar komast ekki á veiðar vegna manneklu (23). Sigurður aflahæsti togarinn. Afla- verðmæti 13. millj. kr. á 7 mánuðum (24). 29 Grindavíkurbátar með 329 lest- ir eftir einn róður (25). Helgi Helgason með nær 1100 lestir á vertiðinni (25). Ólafur Magnússon með 1660 tunn- ur síldar i einni veiðiferð (25). Góð rauðmagaveiði á Húsavik (30). FRAMKVÆMDIR Nýjum bát, Pálma EA 21, hleypt af stokkunum I Slippstöðinni h.f. á Akureyri (2). Miklar framkvæmdir hjá slídar- verksmiðjunni Rauðku á Siglufirði til að nýta úrgangsefni verksmiðjunnar (2). Unnið er að verulegri stækkun á sjúkrahúsinu á Akranesi (3). Hlutafélag stofnað til að reisa sild- ar- og fiskimjölsverksmiðju á Breið- dalsvik (3). Reistar verða nýjar kartöflugeymsl- ur í Síðumúla (5). Ný dráttarbraut á ísafirði, sem tekur 400 tonna skip (6). Kaupfélag Hafnfirðinga tekur í notk un bil, sem er innréttaður sem verzl- un (7). Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra kaupir Reykjadal (7). Tiu stálgrindahús keypt eða pönt- uð frá Bretlandi (9). Sigurpáll, 204 rúmlesta fiskiskip, eign Guðmundar Jónssonar á Rafn- kelsstöðum, komið til landsins (17). Björn Pálsson, flugmaður kaupir nýja flugvél, sem áður var einka- vél íranskeisara (17). íslenzk málning seld til Noregs (20). Oddgeir, nýr 190 lesta bátur, kem- ur til Grenivíkur (20). Mikið verður unnið við Reykja- nesbraut, Ennisveg og Strákaveg i sumar (21). Hafin smíði nýrrar brúar á Hólmsá í Skaftártungu (27). MENN OG MÁLEFNI. Guðmundur Helgason, islendingur- inn, sem bjargaðsit, er norskt flutn- ingaskip sökk, kominn til landsins (5). Baldvin Einarsson, forstjóri, skip- aður japanskur ræðismaður í Rvik (6). Kjartan J. Jóhannsson skipaður hér aðslæknir í Kópavogi (10). Rússneski píanóleikarinn Vladimir Askenazy og kona hans, Þórunn Jó- hannsdóttir, fá dvalarleyfi í Bret- landi (17). Sveit Þóris Sigurðssonar varð ís- landsmeistari i bridge (17). Biskupshjónin lentu 1 hrakningum í kirkjuvigsluferð til Vestfjarða (18). Gunnar Eyjólfsson hlýtur verðlaun úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins (23). Háseti á Austur-Þýzkum togara strýkur af skipi sínu i Reykjavik (24) Gunnar Randers, forstjóri kjamorku stofnunar Noregs, flytur hér fyrir lestur (24). Þórður Eyjólfsson, hæstaréttardóm- ari, heiðursdoktor við háskólann í Helsinki (25). Bjarni Guðnason, cand mag., sem- ur doktorsritgerð um Skjöldungasögu (28). Sr. Sváfnir Sveinbjarnarson kjör- inn prestur að Breiðabólsstað í Fljóts- hlíð (28). BÓKMENNTIR OG LISTIR. Karlakór Keflavkuri og Kvenna- kór SVFÍ halda sameiginlega hljóm- leika (2). Sinfóniuhljómsveitin og söngsveitin Filharmonía flytja „Messias" eftir Hándel undir stjóm dr. Róberts A. Ottóssonar (3). Leikfélag Kópavogs sýnir „Mann og konu" eftir Jón Thoroddsen. Leik- stjóri Haraldur Björnsson (4). Tvær sögur Einars H. Kvaran færð- ar í leikritsbúning (5). „Stormur og stríð", bók eftir Bene- dikt Gröndal, alþm., komin út (6). Boðuð útgáfa á timariti um ís- lenzka grasafræði (6). Gefin verður út viðauki við orðabók Sigfúsar Blöndals (7). „Strengleikar" nefnis nýtt lagasafn eftir Jónas Tómasson (7). Leikfélag Selfoss sýnir Grænu lyft- una, eftir Avery Hopwood (10). Sýning haldin á málverkum eftir Einar Jónsson málara á aldarafmæli hans (19). Halldór K. Laxness með nýja bók í smíðum (24). Roger Drinkall celloleikari og Derry Deane frá Bandaríkjunum leika á tónleikum Musica Nova (27). Gríma sýnir þrjá einþáttunga eftir Odd Björnsson (27). Bandarískur þingmaður gerir is- lenzku kvikmyndina „79 af stöðinni" að umtalsefni (27). Leikfélagið Stakkur sýnir Sjónvarps tækið eftir Arnold Ridley (27), SLYSFARIR OG SKAÐAR. 14 ára piltur, Freyr Sverrisson, Tún götu 13, Keflavík, ferst af voðaskoti (2). 14 ára stúlka, Kolbrún Ámadóttir, Keflavík slasast mikið i bílslysi (2). 13 ára piltur, Ingvar Jóhann Sig- urðsson, Hólabraut 12, Hafnarfirði, bíður bana af slysförum (3). Bíl ekið á tvær telpur, sem slas- ast illa (5). Tveggja ára telpa berst 200 m. nið- ur Hólsá í Bolungarvík, en var bjargað á síðustu stundu (6, 7 og 9). Sjúkraflugvél frá Akureyri sækir fársjúkan mann til Þórshafnar (7). Skemmdir á sjúkrahúsinu á Sauð- árkróki í jarðskjálftanum metnar á 80—100 þús. kr. (9). Tryppi finnst með molaðan haus í vegskurði í grennd við Akureyri (9). Sextán sjómenn farast í mannskaða veðri, er gekk yfir landið, 5 með vélbátnum Hafþóri frá Dalvik, 2 með trillu frá Dalvik, tveir með trillu frá Þórshöfn, tvo tók út af vélbátnum Hring frá Siglufirði og 5 fórust, er vélskipið Súlan frá Akureyri sökk (10, 11 og 17). Fleiri bátar voru hætt komnir (10 og 11). Bíll lendir úti í Rauðavatni eftir árekstur (10). Vélbáturinn Víðir II missti nótina, er hnútur reið yfir skipið (11). Bærinn að Svarfhóli i Miklaholts- hreppi brennur (11). Sex farþegar og 5 manna áhöfn ferst með millilandaflugvélinni Hrím- faxa skamrot frá Oslo, þ.á.m. Anna Borg leikkona (17). Enskt olíuskip tók niðri i Skerja- firði, en náðist aftur á flot óskemmt (17) . Tveir þýzkir sjómenn drukkha vlð Eldey (17). íbúðarhús og fjós brunnu að bæn- um Önnuparti 1 Þykkvabæ (17). Húsþök fjúka af bæjum í Breiðu- vík og Hænuvík (17). Miklar skemmdir urðu á sunnan- verðu Snæfellsnesi í óveðrinu um páskana (18). Fé hraktist til bana í óveðrinu (18). Harður árekstur á Hafnarfjaðavegi (18) . Olíubíll veltur í Hrútafirði (19). Miklir fjárskaðar við ísafjarðar- djúp (19). Bærinn að Stóra-Vatnsskarði brenn ur (20). Kristdór Vigfússon, verkamaður á Akureyri, illa haldinn eftir líkams- árás (23). Skúli Norðdalh Magnússon, flug- maður, slasast illa í bílslysi (23). Roskinn maður handleggs- og lær- brotnar I bílslysi (23). Sæluhúsið í Hafursey á Mýrdals- sandi fýkur (25). Grjóthrun rifur vélarhús af bil undir Ólafsvlkurenni (27). 10 ára drengur hrapar i Akrafjalli og slasast alknikið (27). Minkur ræðst að aliöndum á Akur- eyri (30). Átta slasast meira eða minna er bíll veltur í Hrútafirði (30). FÉLAGSMÁL. Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins 1 Austurlandskjördæmi birtur (2). Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins I Reykjavik birtur (4). Arinbjöm Kolbeinsson endurkjör- inn formaður Læknafélags Reykja- víkur (4). Bergur Arnbjörnsson kjörinn for- maður Slysavarnardeildarinnar Hjálp á Akranesi (4). Varaformaður Sócíalistafflokksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.