Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 22
22 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 26. maí 1963 — Búðardalur Framhald af bls. 10. Væntanlega í sumar eða haust. Þegar hefur verið ráðinn mjólkurbússtjóri — er það ungur og efnilegur iðnfræðingur, Laur- itz Jörgensen, sem að undan- föru hefur starfað á Húsavík. — Hvað eru íbúar Dalasýslu margir? — 1. desember sl. voru hér bú- settir 1160 manns í 9 hreppum og hafa aldrei verið fleiri frá því ég tók við þessu starfi, árið 1955. Enn má vænta töluverðrar fjölg- unar á næstu árum, m. a. vegna tilkomu mjólkurstöðvarinnar. — Mér er sagt, að byggingar- framkvæmdir hafi verið allmikl- ar í héraðinu sl. ár. Hvað hefur helzt verið byggt? . — Ég hef hér við hendina heildartölur yfir byggingafram- kvæmdir á árinu 1962. Það ár voru 17 íbúðir í smíðum, samtals 6390 rúmmetrar. Þar af voru 8 íbúðir fullgerðar á árinu, flestar hinna fokheldar eða langt komn- ar. Þá voru byggðir votheysturn" ar á tólf býlum, þurrheyshlöður og ýmsar stækkanir á átta býl- um. Fjós voru byggð yfir þrjátíu nautgripi og fjáirhús yfir 1010 kindur. Auk þess voru gerðar safnþrær, haughús, áburðar- geymslur og fleira þess háttar. Auk þessara framkvæmda var unnið að smíði félagsheimila á þrem stöðum. Byggt var við fé- lagsheimilin að Staðarfelli á Fells strönd og Kirkjuhvoli í Saurbæ og unnið að byggingu nýs félags- heimilis í Búðardal. Standa vonir til þess að fyrsta áfanga þess verði lokið í sumar. Hér í Búðar- dal hefur ennfremur verið unnið að byggingu slökkvistöðvar, verk stæðis og vörugeymslu Kaupfé- lagsins og dýralæknisbústaðar. — Eru hvergi stundaðar fisk- veiðar í sýslunni. — Nei, útgerð er engin, því að fjörðurinn er grunnur og þar lítið um fisk. Hinsvegar eru hér á næstu grösum þrjár prýðilegar laxár, Fáskrúð, Hauka dalsá og Laxá í' Laxárdal. Og selveiði hefur verið stunduð hér út með firðinum. — Er þá atvinna næg? — Já, hér er nóg vinna og meira en það — okkur vantar fólk. — Hvernig er samgöngum hátt að og vegagerð? — Bættar samgöngur eru ásamt aukinni rafvæðingu helztu áhugamál okkar hér í Dalasýslu. Síðustu árin hefur verið gert tölu vert til vegabóta í sýslunni, en meira þarf til, ekki sízt með til- liti til mjólkurstöðvarinnar. Þeg- ar hún tekur til starfa verða dag- legir mjólkurflutningar allan ársins hring og þá er þörf góðra vega. Þótt margt sé eftir að gera í þessum efnum, þá er það mikill munur, að verkefnin eru yfir- leitt mjög viðráðanleg. — í sumar stendur til að brúa tvær ár, Laxá í Laxárdal og Tunguá í Miðdöl- um. En takmark okkar er að fá veg yfir Heydal og norður yfir Laxárdalsheiði. Fengist það, vær- um við komin í gott vegasam- band við Norður-, Vestur- og Suðurland og þess má jafnframt vænta að þessir vegir yrðu opnir sumar sem vetur. Varðandi rafvæðingu sýslunn- ar heldur sýslumaður áfram, þá er markmiðið, að rafmagn dreif* ist um héraðið allt. Viðhorfið er nú þannig orðið, að ekki er leng- ur viðunandi nema rafmagn kom izt á hvert heimili. Aðstöðumun- urinn er svo gífurlegur, að fólk sættir sig ekki við annað. Þetta er nú smátt og smátt að koma hér, m. a. er fyrirhugað að vinna í Miðdölum í sumar. Og þegar eru komnar línur yfir í Saurbæ og Hörðudal sem tengdar verða dísil rafstöðinni hér í Búðardal. Þetta tekur að sjálfsögðu sinn tíma, en verður að gerast — og það held- ur fyrr en seinna. , M. Bj. Faðir okkar ANTON V. PROPPÉ Skipasundi 55, andaðist í Landakotsspítala 24. þessa mánaðar. Börnin. STÓRCLÆSILEGUR BAZAR OC KÁFFISALA í K.R.-HEIMILINU við Kaplaskjólsveg í dag og hefst kl. 2 e.h. Mikið úrval eigulegra muna: Barnapeysur, Kvenpeysur, Herrapeysur, Sokkar, Treflar, Húfur, Slæður, Bindi, Bækur, Búsáhöld, Húsgögn o. magt. fl. — Á kaffisölunni eru t. d. allskonar rjómatertur, súkku- laðitertur, smurt brauð og ótal margar aðara kræsingar. VERIÐ VELKOMIN. HANDKNATTLEIKSDEILDIN. x LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANN\ * í rjóður, þar sem varð- eldur brann. Umhverfis eldinn lágu margir menn sofandi undir teppum sínum. Þar voru lika nokkrir kofar. Hávaxinn maður tók á móti okkur og bauð okkur velkomna. Ég þekkti að það var faðir Harrys, Haraldur Dublon. Ég vaknaði seint morg. uninn eftir, við það, að Dick. sem búinn var að klæða sig, laut ofan að mér. „Komdu þér á fætur, svefnpurrka! Það er heil eilífð síðan ég klæddi mig.“ í fyrstunni mundi ég ekki hvar ég var. Ég deplaði augunum móti sólinni, sem skein inn um dyrnar á kofanum. Allt í einu stóðu at- burðir gærdagsins ljós- lifandi fyrir mér. Við höfðum flúið frá svart- kuflungum og vorum nú í hópi uppreisnarmanna á Hampsted-heiðinni. Dick settist hjá mér. „Hér er gott að vera, Pétur! Bara að ástandið í Ondin væri betra. Hérna gæti ég orðið hamingju- samur.“ „Nokkuð fleira í frétt- um?“ spurði ég. „Hraðboði var að koma rétt í þessu. Allt við sama. Verra, ef nokkuð er. Ég er hræddur um, að öll von sé úti. Upp- reisnin hefur verið bæld niður. Svartkuflungar voru betur skipulagðir en nokkur gat búizt við. Þeir hafa völdin í sínum höndum á nýjan leik.“ „Hvernig fer nú, Dick?“ Hann yppti öxlum. „Vonandi lumar Valtýr á einhverju. Ég vona að hernaðaráætlun hans sé nógu snjöll. Ef við get- um ekki tekið upp skæru hernað úti í sveitinni, verðum við brátt hraktir úr þessum herbúðum. Það er talað um að hörfa til norðurs — en það er vitanlega neyðarúrræðL Þá hefðum við beðið al- geran ósigur og yrðum útlagar það sem eftir ér ævinnar. „Það lítur ekki út fyrir að við komumst nokkurn tíma heim aftur.“ „Við skulum ekki hugsa um það núna, Pétur. Útlitið er ekki gott, en til hvers er að vera með áhyggjur út af því? Við getum gert gagn hér. Þú veizt að bæklaði drengurinn er hérna — og systir hans líka, Wanda það er nú stúlka, sem vert er um að tala“. Ég gaf Dick hornauga. Þetta var meira en lítið hrós frá honum. „Hvað hefur þú verið að gera?*‘ „Steikja kaninur*. „Kanínur?" Hann brosti. „Hún skaut þær með boga og örvum. Þú þarft ekki að hlæja að því. Þetta voru engin leikföng í höndum hennar. Hún hitti þær nákvæmlega af þrjátíu skrefa færi. Hún minnti mig á Hróa Hött.“ And- lit Dicks ljómaði af að- dáun. Ég klæddi mig í flýti og hraðaði mér út. Það var fagur sumarmorgunn í kyrrlátri sveit. Kjöt af veiðidýrum var steikt á teinum yfir opnum eldL því verið var að undir- búa morgunverð upp- reisnarmannanna. Harry kallaði til okkar frá kofa hinum megin í rjóðrinu. Hann sat þar við hlið- ina á litlum karli í leður- úlpu, sem var niðursokk- inn í að brýna langt spjót. „Þetta er Sammi, bezti veiðimaður föður míns. Viljið þið koma á veiðar? TELDU, hvað oft þú get- hreyft handleggina upp og niður á einni mánútu. Ef þú kemst upp í 50 ertu áreiðanlega orðinn töluvert þreyttur, og samt nefur þú ekki einu sinni komizt til jafns við pelikanan, sem hefur fæst vængjaslög allra þeirra fugla, sem geta flogið. Hann kemst að- eins upp í 78 á mínútu. Mávurinn, sem sýnist fara sér hægt kemst samt upp í 150 vængjaslög. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að kólibrifuglinn hreyfir vængina 3000 sinn um á mínútu eða um 50 slög á sekúndu. Milli hans og pelikanans er meðal annarra fasaninn með 540 vængjaslög, star- inn 450 og Sólskrikjan með 340 slög á mínútu. Við þurfum á nýju kjöti að halda“. Ég leit á Dick. Augu hans ljómuðu. „Fáið ykkur eitthvað að borða“, sagði Harry. „En gætið þess að brenna ykkur ekki á fingrunum. Á eftir fer ég með ykkur til birgðastöðvarinnar og útvega ykkur einhver vopn.“ Skömmu seinna bætt- ist Wanda í hópinn. Hún var klædd eins og strák- ur, bar boga, sem var á hæð við hana sjálfa og örvamæli, fuilan af örv- um. „Skilurðu mig nú?“ sagði Dick og snerti boga strenginn. „Hún leyfði mér að reyna, en ég kann ekki að skjóta af boga. Mig skortir æfingu.“ „Hvað ætlið þið að veiða?“ spurði ég. „Hirti og vilLisvín“. „En hvað nú, ef við mætum tígrisdýri?" „Wanda mun skjóta það fyrir okkur, er það ekki, Wanda?“ Stúlkan virtist ekki skilja okkur. „Hann á við hlébarða," sagði *Harry. Sammi hætti að brýna og leit af einum á annan. „Hér eru engir hlábarð- ar lengur, þeir eru allir dauðir,“ sagði Wanda. „Ef til vill eru þeir enn- þá til á óbyggðum svæð- um norður frá.“ „Valtýr hefur sagt mér að á hans öld hafi verið til stórir dýragarðar,** sagði Harry. „Þá fengu villt dýr ekki að fara frjáls ferða sinna, hvert sem þau vildu, eins og nú.“ „Það er rétt,“ sagði Dick. „En dýrin voru þá yfirleitt hálftamin og ekki hættuleg." „Þau hafa sloppið út meðan á stríðinu stóð og síðan hefur þeim fjölgað. Veiztu það, Harry, að heimili mitt hefur verið innan mílu vegar frá þeim stað, sem við erum á. Ég var vanur að leika mér hérna, þegar ég var lítill." Framihald næst. LESBÓK barnanna þakk- ar öllum, sem tóku þátt í verðlaunakeppninni, sem hóíst í blaðinu á s.L hausti. Ekki hefur verið hægt að birta nærri allt efni, sem Lesbókinni hefur borizt og verður því margt að bíða næsta hausts, þegar útkoma blaðsins hefst að nýju. Þar er m.a. efni, sem sent hafa Sigríður Hj.; Auður Ilugrún og Sigríður; Unnsteinn B.; Elínborg J.; Kristín E.; Framhald á næstu síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.