Morgunblaðið - 05.06.1963, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.06.1963, Qupperneq 11
Miðvikuðagur 5. júní 1963 MORCIJTSBLÁÐIÐ 11 ' jlljlB fp.y< . HMí piH >'\r *j3 hans, og þegar Píus XII. út- nefndi Roncalli kardínála 1953, afhenti Auriol honum kardínálahattinn. Það er siður, að við slík tækifæ-ri krjúpi hinn verðandi kardínáli fyrir stjórnanda landsins á meðan hann réttir honum kardínála- hattinn. Við athöfnin í París heyrðist Auriol segja: „Þér krjúpið fyrir mér, yðar há- göfgi, en það erum vér, sem eigum að krjúpa fyrir yður“. Þremur dögum eftir að Ron calli var útnefndur kardínáli, var hann skipaður patríarki af Feneyjum. Þegar hann tók við embættinu sagði hann brosandi:“ Hér fæ ég nýtt tæki færi til þess að helga mig ein- vörðungu starfi prestsins, en ég er sannfærður um, að það er dásamlegast og fegursta starf, sem manni getur boðizt í lífinu. Ég mun reyna að rækja það með dýpstu auð- mýkt“. Þegar Píus páfi XII. lézt 1958, hélt Roncalli til Rómar til þess að taka þátt í kjöri nýs páfa og varð sjálfur fyrir valinu. Áður en páfakjör tókst, höfðu kardínálarnir, sem sam- ankomnir voru í Sixtusarkap- ellunni, gengið ellefu sinnum til atkvæða. Mikill mannfjöldi safnaðist saman á Péturstorg- inu í Róm, þegar hvítur reyk- ur frá kapellunni gaf til kynna, að nýr páfi hefði verið valinn. Skömmu síðar gekk Angelo Giuseppi Roncalli, sem kosið hafði páfanafnið Jóhann es XXIII. fram á svalir Péturs sælasti páf i síðari tíma ingu önduðum við að okkur andrúmslofti gæzku, lítillætis og ráðvendni“. Ætt Jóhannesar páfa hafði átt heima í Sotto il Monte í 590 ár, þegar hann fæddist og enn búa þar fjögur öldruð systkin hans og fjöldi fjar- skyldari ættingja. Angelo Giuseppi Roncalli, en það er nafn Jóhannesar páfa, var þriðji af þrettán syst kinum. Þegar hann var sex ára hóf hann skólagöngu, en hann hafði ekki mikla löngun til náms í fyrstu og skaraði ekki framúr í skólanum. Hann fór snemma að vinna, einkum á bóndabæjum, eins og syst- kin hans og lærði á unga aldri að vera sjálfstæður. Sveita- • vinnan og andrúansloftið í Sottoil Monte hafði varanleg áhrif á hann. Meðan Kirkju- þingið í Róm stóð yfir s.l. haust, spurði einn af biskup- unum páfann, hvað hann lang- aði til þess að gera, er því lyki. Jóhannes páfi svaraði: „Dveljast hjá bræðrum mín- um einn dag og plægja með þeim akurinn“. Á unglingsárum sínum fékk Angelo Roncalli námsáhuga og settist í prestskóla. Árið 1904 tók hann guðfræðipróf í Róm, tuttugu og tveggja ára, ungur og hraustur, tilbúinn að hefja ævistarf sitt. Hann vígðist sama árið og flutti sína fyrstu messu í Péturskirkjunni. Flestir páfar höfðu, áður en þeir settust í páfastól, verið lengi í Róm undir áhrifum frá höfuðstöðvum kaþólsku kirkj- unnar. Öðru máli gegndi um Angelo Roncalli. Á árunum 1905 til 1914 var hann biskups ritari í Bergamo-biskupsdæmi og kenndi auk þess kirkjusögu við skóla þar. Á þessum tíma dvaldist hann löngum stund- um í Ambrosiska bókasafninu og rannsakaði fornar bækur. Hann varð góðkunningi bóka- varðarins, Achillo Ratti, sem aðar. Hann gerði sér hvar- vetna far um að kynnast sem bezt mönnum af öðrum kirkju deildum kristninnar. Einnig vildi hann kynnast, eins og hann sjálfur sagði, „Hverjum þeim, sem telur sig ekki krist- inn, en er það af því að hann er góður maður“. Roncalli var tíu ár í Búl- garíu og þaðan sendi páfi hann til Tyrklands. Þar að- stoðaði hann m. a. Gyðinga, sem flýðu frá Þýzkalandi í síðari heimsstyrjöldinni. Auk þess að vera sendifulltrúi páfa í Tyrklandi hafði Roncalli á þessum tíma eftirlit með mál- efnum kaþólskra manna í Grikklandi. Að síðari heimsstyrjöldinni lokinni var Roncalli sendur til Parísar sem fulltrúi Píusar páfa XII. Þar beið hans erfitt embætti, sem krafðist mikillar diplómatískrar kunn- áttu og hygginda. Roncalli tókst að gera suma af æðstu mönnum Frakklands, sem sem voru andvígir kirkjunni, að kunningjum sínum og vin- um. Leituðu þeir jafnvel ráða hjá honum. Auriol fyrrv. Frakklandsforseti, trúlaus sósíalisti, var mikill vinur kirkjunnar og blessaði mann- fjöldann. Fyrstu ræðu sína eftir kjör- ið hélt Jóhannes XXIII. frá hásætinu í Sixfusarkapellunni og bað fyrir friði, réttlæti og samlyndi. Síðar á starfsferli sínum hefur hann unnið marg- vísleg störf í þágu friðarins og oft höfðað til friðarvilja mannanna með bænum sínum og hvatt þjóðirnar til þess að hlusta á raddir ungra og ald- inna um allan heim, sem sem hrópa til himins: „Frið! Frið“! Skemmst er að minnast þess, að um páskana sendi Jó hannes páfi út heimsbréf, sem stílað var til „allra góðviljaðra manna“ og bar yfirskriftina „Pacem in terris" (Friður á jörðu). Úrdráttur úr því birt- ist fyrir skömmu hér í blað- inu. í vetur voru páfa veitt friðarverðlaun Balzansjóðsins svissneska. Jafnvel Krúsjeff, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, er meðal þeirra, sem hrærzt hafa af einlægum friðarvilja Jó- hannesar páfa og störfum hans í þágu friðarins. Þegar páfinn varð áttærður sendi forsætis- ráðherrann honum kveðju. Framh. á bls. 13. Bdndasonurinn sem varð ást- Á jóladag í vetur heimsótti Jóhannes páfi barnasjúkrahús í Róm Á mymtitim sézt hann ræða við sjúklingana. Mynd þessi var tekin daginn, sem Jóhannes páfi XXIII tók formlega við embætti i nóvember 1958. Með honum á myndinni eru systkin hans fjögur, sem enn stunda búskap í Sotto il Monte. Frá vinstri Giuseppe 69 ára, Alfredo 74 ára, Jóhannes páfi, Zaverio 80 ára og As- sunta 77 ara. síðar varð þekktur undir nafn inu Píus páfi XI. Þarna í bókasafninu upp- götvaði Roncalli 40 stór ryk- fallin handrit, sem sögðu frá postullegri heimsókn Carlo Borromeos til Bergamo-bisk- upsdæmisins á 16. öld. Frá- sögnin hreif hann svo mjög, að hann hóf sögulegar rann- sókrtir á þessu efni. Árangur- inn af þeim eru fimm stór bindi, sem talin eru sagnfræði legt afrek og mjög til fyrir- myndar. Er fyrri heimsstyrjöldin brauzt út, gekk Roncalli í hjúkrunarsveit ítalska hersins, en síðar á styrjaldarárunum starfaði hann sem herprestur. Árið 1921 veitti Benedikt práfi XV. Roncalli embætti í Róm og því gegndi hann til 1925, en þá var hann skipaður sendifulltrúi Píusar XI. páfa í Búlgaríu. Það var upphaf þess lífs, sem Roncalli sjálfur kallaði líf ferðamanns Guðs. Áður hafði hann hlotið erki- biskupsnafnbót og var titlaður erkibiskup af Arepoles. í Búl garíu og eins þeim löndum, sem Roncalli gisti síðar sem sendimaður páfa, vann hann hjörtu jafnt kaþólskra manna og annarra. Einlægni hans og lítillæti opnuðu honum marg- ar dyr, sem öðrum voru lok- MEÐAL kaþólskra manna um allan heim ríkir sorg vegna hins ástsæla páfa, Jóhannesar XXIII. Menn af öðrum kirkjudeildum og jafnvel öðrum trúar- brögðum syrgja einnig þennan góða páfa, sem vígði starf sitt baráttunni fyrir friði í heiminum og einingu meðal mannanna. Meðal kaþólskra manna um allan heim ríkir sorg vegna láts hins ástsæla páfa, Jó- hannesar XXIII. Menn af öðr- um kirkjudeildum og jafnvel öðrum trúarbrögðum syrgja einnig þennan góða páfa, sem vígði starf sitt baráttunni fyrir friði í heiminum og einingu meðal mannanna. Jóhannes páfi XXIII. var af fátæku bændafólki kominn. Hann fæddist árið 1881 í smá- bænum Sotto il Monte á Norð- ur-ítalíu við rætur Alpafjalla. Hús fóreldra hans var kalt og ónotalegt, en fjölskyldan átti innri hlýju, og Jóhannes páfi hefur sagt um bernskuheimili sitt: „Við vorum fátæk, en hamingjusöm. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því, að okkur skorti neitt. Fjölskylda mín var umfram allt auðug að himneskum gjöfum. Frá fæð- Jóhannes páfi XXIII á gangi á þaki íbúðar sinnar í Vatikaninu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.