Morgunblaðið - 05.06.1963, Síða 16
13
'MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. júní 1963
Pétur Hoffmann
Magnússon minning
HANN VARÐ bráðkvaddur 28.
maí sl., en hafði ekki kennt las
leika undanfarið, og kom and-
lát hans því mjög á óvart.
Pétur Hoffmann var sonur
Magnúsar Ólafssonar ljósmynd-
ara og konu hans Guðrúnar Jóns
dóttur bókbindara Thorsteinsson.
Magnús og Guðrún áttu 7 börn,
en eitt þeirra dó á unga aldri.
Þau voru: Ásta ríkisféhirðir, Ól-
afur konunglegur hirðljósmynd-
ari, Karl héraðslæknir í Hólma-
vík, síðar í Keflavík, Tryggvi
verzlunarmaður í Reykjavík,
Pétur bankaritari og Karolina
skrifstofustúlka í Reykjavík.
Magnús var verzlunarstjóri við
•verzlun Th. Thomsen á Akranesi,
en fluttist þaðan til Reykjavíkur
árið 1901. í Reykjavík lagði
Magnús stund á ljósmyndagerð
og var einn af brautryðjendum í
þeirri grein hér á landi.
Pétur var fæddur 14. nóvem-
ber 1894 á Akranesi og var því
68 ára þegar hann lézt.
Hann fluttist með foreldrum
Kominn heim
Henry Ottosson hjólameistari
Langholtsvegi 139 — Sími
34250.
Somkomor
Almenn samkoma
Boðun fagnaðarerindis
Hörgshlíð 12, Reykjavík kl.
8 í kvöld — miðvikudag.
Fíladelfía
Systrafundur í kvöld kfl.
8.30. (handavinna).
Eining no. 14.
Fundur í kvöld kl. 8,30 frétt
ir frá umdæmiss£úkuþingi. Á-
kveðin Jaðarsferð — haignefnd
aratriðL Æt.
Kristniboðssambandið
Samkoman fellur niður í
kvöld en verður í Laugarnes-
kirkju fimmtudagskv. Nánar
auglýst á morgun.
2 þessa mánaðar tapaðist —
— með dagatali, í miðbænum
eða við höfnina. Skilvís finn
andi hringi í síma 86820 gegn
fundarlaunum.
Bill til sölu
Humber árg. 1950. (pallbíll)
Mjög heppilegur fyirir iðnað-
armenn eða húsþygigendur.
Selst mjög ódýrt. Uppl. á dag
inn í síma 14226 og eftir kl.
7 34087.
sínum til Reykjavíkur árið 1901.
Alla sína tíð stundaði hann verzl
unar- og skrifstofustörf. Vann á
yngri árum hjá verzlun Jes
Zimsen í Reykjavík, en lengst af
var hann bankaritari í Lands-
banka íslands, eða um 30 ára
skeið, og kynntist hann mörgum
í sambandi við starf sitt.
Hann kvæntist Ásdísi Magnús-
dóttur Guðmundssonar frá Bergs
stöðum í Reykjavík og konu hans
Bjarndísar Bjamadóttur árið
1928. Ásdís lézt árið 1955. Þeim
varð tveggja barna auðið, Magn
úsar Karls læknis og Guðrúnar,
sem er gift kona, búsett hér í bæ.
Pétur var mjög áhugasamur
um íþróttir. Hann var einn af
stofnendum Knattspyrnufélags-
ins Fram og fyrsti formaður
þess. Hann lék með þeim í mörg
ár. í stjórn Skíðafélags Reykja-
víkur var hann í nokkur ár og
var einn af fyrstu skátunum hér.
í fáum orðum sagt, Pétur var
alla tíð mjög mikill áhugamaður
um íþróttir og útiveru. Einnig
má geta þess, að hann söng með
Fóstbræðrum um langt árabil og
fór með þeim í söngför til Norð-
urlanda, enda hafði hann yndi af
góðum söng.
Eg kynntist Pétri á árunum
1945—46. Eg þekkti Ólaf bróður
hans vel, og þar kynntist ég hon
um. Við höfðum báðir áhuga á
ljósmyndun og öllu sem hana
snerti. Pétur var framúrskarandi
ljósmyndari og gaf hann út á
póstkort margar landslagsmynd-
ir.
Nokkrum sinnum fórum við í
ferðalög saman og er mér minnis
stæð ferð, sem við fórum í fyrra-
haust. Þá ætlaði Pétur að ná fal-
legum litmyndum af fjárrekstri
þegar hann kemur út úr Þjórsár-
dal. Ekki eru allar ferðir til fjár
og svo fór um þessa. Til þess að
taka fallegar og góðar myndir,
þarf venjulega að vera góð birta.
í þetta skipti var dimmt í lofti
og rigningarsuddi og myndirnar
urðu eftir því.
Síðustu 3 árin bjó Pétur með
ungfrú Tove Jantsen hjúkrunar
konu frá Danmörku og var hún
honum stoð og stytta síðustu ævi
ár hans.
Eg kom oft á heimili Péturs og
Tove að Melhaga 10 og var mjög
ánægjulegt að dveljast hjá þeim
eina kvöldstund. Það kom fyrir
að barnabörn hans voru í heim-
sókn þegar ég kom þangað, en
þau voru mesta uppáhald hans
síðustu árin, og var hann þeim
einstaklega góður og kær afi.
Pétur var alla tíð léttur í lund
og hvers manns hugljúfi. Hann
var ungur í anda og svo unglegur,
að fæstir hefðu trúað því að
hann væri orðinn nær sjötugur.
Hann er kært kvaddur af öllu
frændfólki sínu og vinafólki.
Stefán Nikulásson.
75 ára i dag
Páll Oddgeirsson
fyrrv. kaupm. og útgerðarmaður
ÞEIR, SEM sjá Pál Oddgeirsson
á ferli hér í borginni munu eiga
bágt með að trúa því að hann
sé orðinn 75 ára, svo vel ber hann
þennan háa aldur, grannvaxinn
og beinvaxinn og léttur í spori
eins og unglingur og allra manna
snyrtilegastur og glaðastur í við-
móti.
Páll er sonur hjónanna, séra
Oddgeirs Guðmundssonar og
Önnu Guðmundsdóttur, prófasts
Einarssonar Johnsen í Arnar-
bæli. Standa þannig merkar ættir
að Páli til beggja handa, enda ber
hann það með sér. Séra Oddgeir
var lengst af prestur í Vestmanna
eyjum og þar ólst Páll upp hjá
sínum ágætu foreldrum og í glað
værum systkinahópi. Dvaldist
Páll um áratugi í Vestmannaeyj
um og gerðist þar brátt atkvæða
mikill athafnamaður og var vissu
lega ekki við eina fjölina felldur
í því efni. Hann stofnaði þar ár-
ið 1914 vefnaðar- og klæðaverzl-
un, sem hann rak um tugi ára
með miklum dugnaði. Um það
leyti og síðar sneri hann sér að
útgerð bæði á þorsk og síld og
lét brátt mjög til sín taþa á því
sviði. Varð hann fyrstur útgerð
armanna til að flytja út pækil-
söltuð þorskflök til Hollands og
alla tíð hefur hann verið vak-
andi um hag íslenzks sjávarút-
vegs og hreyft mörgum nýjung-
um í fiskverkun og hagnýtingu
sjávaraflans og gert í því efni
margar merkilegar tilraunir, sem
kostað hafa hann mikið fé og fyr
irhöfn. Páll sat á Fiskiþingi tvö
kjörtímabil á árunum 1945—46
og 1946—47, sem fulltrúi Vest-
mannaeyja. Þótti hann þar á
þingi góður fulltrúi byggðarlags
síns og bar þar fram ýmsar merk
ar tillögur, sem báru vitni stór
hug hans og skilningi á þörfum
sjávarútvegsins. Páll hefur og
skrifað margt um sjávarútvegs-
mál í blöð landsins, meðal annars
athyglisverðar greinar um end-
urbætur á verkun og meðferð
fisks, sem hann hefur æ talið
hvað mesta þjóðarnauðsyn. En sá
þáttur í athafnalífi Páls Odd-
geirssonar, sem telja má hvað
mest áberandi, var hinn mikli
jarðræktaráhugi hans meðan
hann dvaldist í Eyjum. Á hann
þar mörg handtök, sem lofa meist
arann enn þann dag í dag. Hann
ræktaði í Eyjum þrjár landspild
ur með eigin hendi, þeirra á með
al Breiðablik við Klauf, þar sem
náttúrufegurð, svo af ber, gleður
augað. Gaf þetta land af sér
150 hesta af heyi. Var Páll byrj
aður á 4. landspildunni 1 Stór-
höfða, þegar hann flutti frá Vest
mannaeyjum. Hann var lengi í
stjórn Búnaðarfélags Vestmanna
eyja. Páll hefur alla tíð verið
mikill hugsjónamaður og unnað
öllu því, sem fagurt er. Hann
vann að því um tvo tugi ára, að
reistur yrði í Vestmannaeyjum
Globke sóttur til saka
í Austur-Þýzkalandi—
bornar Gyðingaofsóknir á brýn
Berlín og Bonn, 30. maí.
AUSTUR-ÞÝZKA stjórnin
hefur hafið réttarhöld yfir
Hans Globke, ráðgjafa Aden-
auers, kanzlara. Frá þessu var
skýrt í fréttum í Austur-
Þýzkalandi í dag.
Talsmaður vestur-þýzku
stjórnarinnar lýsti því yfir í
dag, að hér væri aðeins um
að ræða framhald þeirra
ofsókna, sem Globke hefur
orðið fyrir, af hálfu austur-
þýzkra kommúnista.
Sagði talsmaðurinn, að víð-
tækar athuganir á ferli Globkes
hefðu ekki leitt neitt það í Ijós,
er benti til þess, að Globke hefði
framið stríðsglæpi.
Kommúnistar hafa lengi hald-
ið því fram, að Globke hafi tek-
ið þátt í Gyðingaofsóknum þeim,
er áttu sér stað í Þýzkalandi, á
tímum Hitlers.
Það eitt hefur komið fram, að
1933 var Globke starfsmaður inn-
anríkisráðuneytisins, sem gaf út
lög þau, er afnámu réttindi
þýzkra Gyðinga.
veglegur minnisvarði þeim sjó-
mönnum, sem drukknað hafa við
Vestmannaeyjar og afhenti hann
Eyjabúum minnismerkið við há-
tíðlega athöfn, sem mun vera
minnisstæfi' 'óllum sem þar voru
viðstaddir. Minnismerkið gerði
Guðmundur heitinn Einarsson frá
Miðdal og var því valinn staður
á afgirtu sveeði, upp hæfckuðu,
gegnt dyrum Landakirkju og er
svæðið prýtt trjágróðri.
Páll var kvæntur Matthildi ís-
leifsdóttur frá Kirkjubæ, hinni
ágætustu konu, sem látin er fyr-
ir mörgum ámm. Þau hjónin eign
uðust fimm börn, sem öll eru á
lífi.
Hér hefur í stuttu máli verið
rakinn starfsferill Páls Oddgeirs
sonar og hefði mörgu mátt við
bæta, en til þess er ekki rúm
hér. Eg vil enda þessi fáu orð
með því að þakka Páli starf hans
í þágu lands og þjóðar og óska
honum heilla og blessunar á kom
andi árum.
Vinnr.
SHÍltvarpiö
Miðvikudagur 5. júni
8.30 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp.
18.30 Lög úr söngleikjum. — 18.50
Tilkynningar. — 19.20 Veður-
fregnir.
1930. Fréttir.
20.00 Stjórnmálaumræður vegna
Alþingiskosninganna 9. júní;
síðara kvöld. Þrjár umferðir,
20, 20 og 10 mínútur til handa
hverjum stjómmálaflokkL
Röð flokkanna:
Alþýðubandalag,
Framsóknarflokkur,
Alþýðuflokkur,
Sj álfstæðisflokkur.
Dagskrárlok laust fyrir mið*
nætti.
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinnur að meðalialil
Hæsiu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 10Q0 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
CORYSEl ~ ÞJÓMUSTA
SAlOHFl fRöN’SK ÞJÓNUSfA
andlitsböé
bandsnurtinq
hárqrewsla
hargreii
CeiHeint me<f i/aí
Snyrtivöru.
valhöllf^
\H-h sími 22138
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins
Símar 22136 og 18441