Morgunblaðið - 05.06.1963, Page 10
30
IUORGVISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. júní 1963
er Gaukur bjó á Stöng
„í>AÐ VORU engir aufúsugestir,
sem sóttu Þjórsárdal heim um
hvítasunnuna“, sagði fréttaritari
Mbl. í Gnúpverjahreppi. Síðaw
hluta laugardags tók að drífa að
unglinga og hófst þegar gífurleg
ur drykkjuskapur með hverskon-
ar skrílmennsku og ólátum. —
Reykjavíkurlögreglan kom á vett
vang á sunnudagsmorgun og var
þá ófagurt um að litast í dalnum.
Lágu mörg ungmennin, sem að
sögn lögreglunnar voru flest 15
til 17 ára, eins og hráviði
tun skóg og lautir ósjálf-
bjarga af ölvun, en þeir sem enn
höfðu meðvitund ráfuðu um eða
böðuðu sig í Sandá, ýmist í fötun
um eða nakin. Svæðið er alþakið
rusli og tómum flöskum eftir dval
argestina, sem flestir fóru heim á
mánudag.
Skýrt var svo frá í Morgun-
blaðinu á laugardag, að 60 flösk
ur af áfengi hefðu verið teknar
af 30 unglingum á aldrinum 15
Einn unglinganna sést hér veltast um hjálparvana.
þeirra á þurrt land og reyndu að
stumra yfir þeim, sem verst voru
á sig komnir, unz lögregluliðið
kom. Drukknir unglingar lágu
Fyrir framan tjöldin og reyndar um allt var stráð rusli og
flöskum.
til .19 ára, sem verið hefðu á leið
inn í Þórsmörk, en það var á
misskilningi byggt, því þeir voru
á leið í Þjórsárdal.
Á laugardagskvöildið fóru
nokkrir bændur úr Gnúpverja-
hreppi inn í Þjórsárdal og mætti
þeim þá svo óhugnanleg sjón, að
þeir hringdu til lögreglunnar í
Reykjavík, sem sendi þegar flokk
xnanna austur. Lágu unglingarnir
út um allt, jafnvel ofan í ánni,
og drógu bændurnir nokkra
hjálparlausir á akbrautinni við
ána, ogmá það teljast mikil mildi
að ekki skyldu hljótast slys af
því, er bifreiðir óku upp úr ánni
um veginn með blauta hemla.
Fólki á nærliggjandi bæjum
varð ekki svefnsam,t um nóttina.
Mikil háreyst var einkum á Ás-
ólfsstöðum, en ekkert var
skemmt né framinn neinn stuldur
þar. Hins vegar var stolið vöru
bifreið frá Haraldi Georgssyni
Haga og honum ekið unz vélin
bræddi úr sér og ekki varð lengra
komizt. Einnig var tekin dráttar
vél frá Sveini Ágústssyni á Mó-
um, en hún komst heldur ekki
langt, þar sem hún varð raf-
magnslaus. Pijtar nokkrir stálu
einnig verkfærum frá Kolbeini
Einn piltur hafði týnt sínum eigin buxum og var kominn í
nokkuð litlar síðbuxur af stúlku.
Jóhannssyni, meðan hann gerði
við hjólbarða af bíl þeirra.
Fyrstu lögreglumennirnir
komu austur i langferðabifreið
um kl. 6 á hvítasunnumorgun og
var þá heldur farið að draga úr
skrílslátunum, enda margir falln
ir í valinn, en þó ráfuðu margir
um skóginn veifandi brennivíns
flöskum, eða sátu í hópum. Marg
ir voru klæðlitlir, einkum þeir,
sem fengust við að baða sjálfa sig
og aðra í Sandá. Fundu lögreglu-
menn allskonar fatnað liggjandi
í svaðinu, bæði frakka, nærfatn
að og sokka. Einn pilt sáu þeir
ganga allsnakinn frá ánni að bíl
sínum. Engan sáu þeir ölvaðan
við akstur, en var sagt að tals-
verð brögð hefðu verið að slíku
fyrr um nóttina.
Lögreglumenn gengu nú um og
reyndu að vekja þann fjölda ungl
inga, sem lágu sofandi um allar
jarðir. Tókst það misjafnlega vel
Framhald á bls 32.
Sumir voru fallnir í valinn, er lögreglan kom á staðinn, en
aðrir létu ófriðlega.
Merki me» hvatningu um góða umgengni á þessu friðaða svæði voru umsvifalaust brotin niður.