Morgunblaðið - 05.06.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.06.1963, Blaðsíða 12
32 MORCVTSBLÁÐ1Ð Miðvikudagur 5. júní 1963 Liklegt að næsti Agagianian. Montini er 65 ára að aldri. Hann var skjólstæðing- ur Píusar XH og var áður starfandi í utanrikisþjón- ustu páfastólsins. Montini er einn af helztu framámönnum hins frjálslyndari arm« kirkj- unnar. Carlo Confalonieri, kardín- áli. Hann er 69 ára að aldri <>g var ráðgjafi Jóhannesar XXIII varðandi skipun biskupa og hafði eftirlit með biskupsdæm um. Hann hefur starfað í ára- tugi í Vatikaninu og varð að kardinála 1958. Hann er vinsæll mjög og þykir fremur frjálslyndur. Amleto Giovanni Cicognani, kardináli -Ilann er áttræður að aldri og er utanríkisráð- herra Vatikansins. Hann var lengi postullegur sendifulltrúi í Washington. Embætti hans hafði ekki verið skipað í 14 ár, þar sem Píus XII kaus að hafa utanrikiamálin í cigin höndum. Alfonso Castaldo, kardínáli og erkibiskup af Napólí, er oft nefndur sem líklegur páfi. Hann er 72 ára að aldri. ítölsku kardinálamir Ilde- brando Antoniutti, 64 ára, Fernando Cento, 79 ára, Paolo Marella, 68 ára, og Luigi Xra- glla, 68 ára, eru einnig mjög umræddir sem möguleg páfa- efni. Þeir kardínálar, sem ekki eru af ítölsku bergi brotnir og þykja líklegir sem eftir- n.'nn Jóhannesar XXIII, eru þessir: Eugene Tisserant, sem (er 79 ára gamall Frakki. Hann hef- ur lengi starfað í páfagarði, m.a. haft umsjón með hinu mikla bóka- og skjalasafni og hefur að undanförnu verið sérfræðingur páfa í kirkju- siðum. Hann þykir fremur frjálslyndur. Augustin Bea, kardináli, er af Þýzku bergi brotinn. Hann er 82 ára gamall og er einn af helztu leiðtogum hinna frjáls- lyndari kirkjumanna. Bea hef ur haft á hendi stjórn Vati- kanráðsins sem vinnur að ein- ingu allra kristinna manna. Hann var skriftafaðir Píusar XII. Paul Emil Léger, kardín- áli og erkibiskup af Montreal í Kanada, þykir mjög frjáls- Iyndur í skoðunum og hefur m.a. barizt fyrir því, að kirkj- an geri hlut leiknxinna meiri í starfi sínu. Gregory Peter Agagianian, kardináli, er Armeníumaður og síðast munaði litlu aö hann yrði kjörinn páfi. Hann hefur stjómað kristniboði kaþólsku Cicognani. kirkjunnar. Agagianian þykir frjálslyndur. Loks er Belgíumaðurinn Leo-Joseph Suenens, kardin- áli og erkibiskup af Briissel, oft nefndur sem mögulegur páfi. Confalonieri. páfi ALLT þykir benda til þess að eftirmaður Jókannesar páfa XXUI, verði ítali. Ein- göngu ítalskir menn hafa set- ið á páfastóii í meira en 4 ald- ir, eða allt frá því að Hadri- Montini. anus páfi VI. lézt 14. septem- ber árið 1523 eftir 20 mánaða páfadóm, en hann var af holl- enzkum ættum. Páfinn er kjörinn af kardiín- álum rómversku kirkjunnar. Þeir em nú 82 talsins, þar af Tisserant. eru 29 þeirra ítalir. Kardinál- ar hafa aldrei verið jafn fjöl- mennir og nú, en Jóhannes XXIU fjölgaði þeim veru- lega . Katólska kirkjan lítur á páf- ann sem einvald varðandi kirkjuleg málefni og viður- kennir ekki neinn aðila sem staðgengil hans. Þess vegna verða kardinálarnir að koma saman til fundar til að kjósa nýjan páfa fljótlega eftir dauða þess sem áður sat. Kardínálasamkundan má ekki koma sair.an fyrr en 15 dagar eru liðnir frá dauða páfa og ekki síðar en 18 dagar eru liðnir til að kjósa nýjan. Næst þegar kardinálasam- kundan kemur saman mun hún starfa eftir nýjum regl- um, sem Jóhannes XXIII setti í októbermánuði s.l., aðeins mánuði fyrr en hann varð al- varlega veikur. Áður fyrr þurfti tvo þriðju hluta kardínálanna, serr kvæði greiddu, og einum bet- ur, til að páfi væri réttilega kjörinn. Jóhannes XXIII breytti reglunni þannig, að tveir þriðju hlutar kardínál- anna geta kosið páfa ef hægt er að skipta þeim í þrjá jafna hópa. Sé það ekki hægt gildir fyrri reglan. Þegar nýr páfi er kosinn er kardinálasamkundan haldin í Sixtinsku kapellunni í páfa- garði og fer hún fram fyrir luktum dyrum. Eru kardínál- arnir klæddir dumbrauðum sorgarklæðum þar til kjör páfa hefur farið fram. Eftir hverja atkvæðagreiðslu er at- kvæðaseðlunum brennt og stígur svartur reykur ef páfa- kjör hefur ekki tekizt, en ljós reykur sé nýr i»áfi kjörinn. Á þennan hátt fær heimurinn fyrstu fréttimar um að hann hafi eignazt nýjan páfa. Eins og að framan getur þykir líklegast að næsti páfi verði ítali í samræmi við alda gamla hefð katþólsku kirkj- unnar. Þó getur svo farið að páfi verði af öðra þjóðemi, ef ítalir sem. um verður kosið ná ekki tilskyldum meirihluta. Hér á eftir verður sagt frá nokkrum þeim kardinálum, sem líklegastir þykja til að Léger. skipa sæti Jóhannesar páfa XXIII. Giovanni Batti_ta Montini, kardínáli og erkibiskup af Mílanó, er sá sem flestum ber saman um að hafi mesta möguleika á páfadómi. Bea. verði ítali Lögregluliðið, sem fyrst kom á vettvang: (Frá vinstri). — Stefán Tryggvason, Helgi í Gröf, bílstjórinn, Sveinbjörn Bjarnason, Magnús Guðmundsson, Hjörtur Elíasson og Sævar Jóhann esson. Ekið yfir drukkinn mann í Þjórsárdai — Þjórsárdalur Framhald aí bls. 30. og tóku piltar því einnig misjafn lega. Varð að handjárna nokkra. Eitt fyrsta verkið var að loka söluvagni, sem dreginn hafði ver ið inn í Þjórsárdal, en í honum voru seldir gosdrykkir og sæl- gæti. Hafði mikill fjöldi safnazt saman við vagninn og salan góð, er lögreglan kom, en á daginn kom að eigandi vagnsins hafði ekki tilskilið leyfi og lét sýslu- maður stöðva viðskiptin. Margir piltar voru illa til reika eftir áflog. Einn var barinn í höf uðið með flösku og varð að fara með hann til Selfoss og sauma saman augabrún hans. Ekki fékk þetta þó meira á hann en svo, að hann hélt rakleitt upp í Þjórs árdal aftur eftir aðgerðina og tók til við fyrri iðju eins og ekkert hefði í skorizt. Brotnar flöskur voru víða um grundir og í ánni, þar sem ungl ingarnir lauguðu sig, svo að merkilegt má teljast, að ekki skyldu hljótast af stórslys. Einn ig höfðu einhverjir hugulsamir piltar komið fyrir glerbrotum bæði fyrir framan og aftan lang ferðabifreið lögreglumanna. Þegar iíða tók á hvítasunnudag jókst umferð mjög inn í Þjórsár dal, en þá hafði útvarpið flutt fregnir um, hvað þar væri á seiði. Nokkuð bar á því, að foreldrar væru þar á ferð í leit að börnum sínum. Margir voru þó farnir að hugsa til hreyfings, en drykkju- skapur hélzt hjá þeim, sem eftir voru, þar til hinir síðustu yfir- gáfu Þjórsárdal, sennilega glaðir og ánægðir eftir vel heppnaða helgi úti í guðsgrænni náttúrunni, Alltaf er verið að benda á nauð syn þess, að borgarbörnin fari út úr bænum um helgar og andi að sér fersku fjallaloftinu, en ef það er gert á þennan hátt, orkar holl ustan nokkurs tvímælis. 11 laxar úr Miðfjarðará STAÐARBAKKA, 3. júní — Hér er sólsikin og blíðviðri hiti 18—20 stig Og eru það mikil viðbrigði því vorið hefur allt verið fremur kalt. Sauðburður hefur gengið fremiur vel, þó lítiill hafi verið gróðurinn. Veiði byrjaði í Miðfjarðará 1. þ.m. og veiddust 11 laxar tvo fyrsiu dagana. — B.G. UM MIÐNÆTTIÐ sl. laugardag varð það slys í Þjórsárdal að bíll ók yfir drukkinn mann, sem ekki vildi víkja af veginum. Ligg ur maðurinn nú í sjúkrahúsi í Reykjavík með tvo brákaða hryggjarliði og auk þess gekk hann úr augnakarlinum. Nánari atvik voru þau, að sögn ökumanns bílsins,- að er hann hafði ekið yfir ársprænu, sem rennur skammt frá tjaldbúða- stæðinu í Þjórsárdal, var drukk inn maður á veginum og vildi ekki víkja fyrir bílnum. Stoppaði vegna barsmíðar Spölkorn frá manninum nam ökumaðurinn staðar sökum þess að barið var I bílinn með flösku, að því er hann telur, en svo sem sjá má á öðrum stað í blaðinu gekk á ýmsu í Þjórsárdal um hvítasunnuhelgina. Ökumaðurinn tók síðan hægt af stað aftur, og hugði að mað- urinn fyrir framan bílinn mundi þá víkja. Segir ökumaðurinn að gangtruflun hafi verið í bílnum vegna bleytu úr ánni. Hafi bíll- inn rykkst skyndilega áfram og ■*á manninn. Er ökumaður reyndi að hemla voru hemlarnir blautir og náði hann ekki að stöðva bíl- inn fyrr en maðurinn var kominn undir hann miðjan. Lögreglan á Selfossi kom á vettvang og flutti hinn slasaða til læknis á Selfossi, og síðan.í Landsspítalann í Reykjavík. — Rannsókn máls þessa er enn á frumstigi. Háskólafyrir- lestur RITARI Mannrébtindanefndar hony B. McNuility flytur fyrirlest- Evrápunáðsins í Strassibourg Ant- ur í boði lagadeildar Háskóla íslandls n.k. fiimimtudag 6. júni kl. 5.30 e.h. í Háskólanuim. Fyrir lesturimn, sem fluttur verður 4 emskiu, nefnist: „The European Convention of Huiman Rigfhts, tíhe Oomimission of Human Rigihitis at Worik“. Fyrinlesarinn er brezikur lögfræðingur, og hefir hann starf- að hjá mannrétti mdanefnd Evrópuráðls síðan 1054. Ölfluim er heimiU. aðgangur. •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.