Morgunblaðið - 05.06.1963, Side 17
Miðvikudagur 5. júni 1963
MORCUNBLAÐIÐ
Í7
Nokkrir ffestanna. Talið frá vinstri (í fremstu röð): Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamáiaráðherra,
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, forseti
Jslands, herra Ásgeir Asgeirsson, Geir Hallgrí msson, borgarstjóri og Logi Einarsson, yfir-
sakadómari. — Aðrir, sem sjást á myndinni, eru Gunnlaugur Briem, ráðuneytisstjóri, Agnar
Koefod-Hansen, flugmálastjóri, hæstaréttardóm ararnir Jónatan Halivarðsson og Árni Tryggva-
son og Valdimar Stefánsson saksóknari ríkisins. Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
— Hornsfelnn
reglustöðvarinnar hraðað eftir
föngum, samkvæmt fyrirmæl-
um ráðherra. Var svo komið
haustið 1961, að grunngröftur
gat hafizt í októbermánuði það
ár.
í byrjuu júnímánaðar 1962
samþykkti ríkisstjórnin fram.
kvæmdaáaetlun vegna bygg-
ingarinnar, svo og fjárhags-
áætlun, sem gerir ráð fyrir
að lögreglustöðin verði full-
byggð á 5—6 árum. Fyrsti
þáttur verksins var síðan boð.
inn út og að loknum athug-
unum á tilboðum samið við
Verklegar framkvæmdir h.f.
um að gera bygginguna fok-
helda.
Hin nýja aðallögreglustöð
verður byggð í þremur álm-
um. Er ein þeirra meðfram
Snorrabraut 467 ferm. að flat-
armáli, en hinar tvær með-
fram Hverfisgötu, 566 og 623
ferm. hvor. Snorrabrautar-
álman og önnur álman með-
fram Hverfisgötu verða tvær
hæðir, auk kjallara, en þriðja
élman, sem við erum stödd
í. veiður fjórar hæðir, auk
kjallara. Rúmmál byggingar-
innar er um 19000 rúmmetrar.
Samkvæmt uppdráttum er
gert ráð fyrir þeim mögu-
leika, að tvær og hálf hæð
verði byggð síðar ofan á aðal
álmu hússins og verður þá
öll byggingin samtals 25388
rúmmetrar. í þessari nýbygg-
ingu mun 'starfsaðstaða lög-
reglunnar gjörbreytast frá því
sem nú er. Hægt verður að
skipuleggja starfið • á hag-
kvæmari hátt en núverandi
húsnæði leyfir. Samræmingar
á störfum hinna ýmsu deilda
og vinnuhagræðingar mun
gæta í vaxandi mæli. Unnt
verður að endurbæta til muna
rannsóknarstofur, fjarskipta-
þjónustu og *ðrar tæknilegar
aðstæður, sem mjög eru nauð-
synlegar til góðrar löggæzlu.
í húsi þessu verður og rúm
fyrir lögregluskólann, sem
veitir lögreglumönnurh sér-
menntun á sviði löggæzlu-
mála.
Á þessari hátíðlegu stundu
vil ég leyfa mér að flytja
ríkisstjórn íslands og Alþingi
þakkir fyrir fjárframlög og
góðan sltilning á nauðsyn full-
kominnar lögreglustöðvar í
Reykjavík. Ég vil ennfremur
leyfa mér að þakka dóms-
málaráðherra, Bjarna Bene-
diktssyni, sérstaklega fyrir
forgöngu þá innan ríkisstjórn.
RÆÐA FORSETA.
Forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson, komst m.a.
að orði á þá leið í ræðu sinni,
að það væri hátíðarefni þegar
hafizt væri handa um bygg-
ingu lögreglustöðvar, sem
sniðin er við vöxt, og rúma
á undir einu þaki allar grein-
ar lögreglustjórnar höfuðstað
arins. Síðar í ræðu sinni
komst forsetinn svo að orði:
„Ég ætla mér ekki þá dul
að lýsa hinum góða dómara
eða löggæzlumanni í almenn-
um orðum og vísast næðum
við fæstir, ef þá nokkur,
þeirri hugsjón, — og líkt mun
vera um hinn góða þegn. En
það vil ég þó fullyrða, að
lögreglulið hér í höfuðstaðn-
um muni nú fullnægja þeim
kröfum, sem sánngjarnt er að
gera, og standi sízt að baki
Séð yfir nýju lögreglustöðina.
því, sem nágrannaþjóðir eiga
við að búa. Fyrir því hef ég
góðar heimildir. Það er drengi
legt lið og fríð fylking. En
lengi má um hvern hlut bæta.
í mínu ungdæmi hétu lög-
reglumenn „pófití“ og ekki
laust við nokkurn kaldan, út-
lendan keim í o-ðinu. Nú
segja börnin „löggan“ og mér
hefur virzt þýður blær á þessu
gælunafni. Tilfinning barn-
anna og skilningur almenn-
ings á því, að löggæzlumað-
urinn sé vinur fólksins og
hjálparhönd er hinn bezti
styrkur hvers þjóðfélags."
★
RÆÐA BORGARSTJÓRA.
Borgarstjórinn i Reykjavík,
Geir Hallgrímsson, sagði í
sinni ræðu að merkum áfanga
hefði verið náð, bæði í rétt-
arsögu íslands og sögu Reykja
víkur, þegar lagður hefði
verið hornsteinn að þessari
glæsilegu byggingu, sem á að
verða bækistöð löggæzlunnar í
Reykjavík, í senn aðallög-
reglustoð borgarinnár og lands
ins alls. Flutti hann forgöngu-
mönnum þakkir fyrir hönd
Reykvíkinga og Reykjavíkur-
borgar og þeim og lögreglu-
liði heillaóskir.
Síðan drap borgarstjóri á
noklkra þætti 1 sögu lögragl-
unnar og komat súðan svo að
orið:
„Sagt hefur verið: „Góð lög
í heiðri höfð éru lands og lýða
heiill."
Um þessi sannindi á ekki að
vera ágreiningur, en seint
skildist mönnuim, að eitt frum
skilyrði þess, að lögin séu í
heiðri höfð er, að á bak við
þau sé vald, — er geti tekið
í taumana, ef út af er brugðið.
En vald lögreglunnar til
verndar stjórnarsikrá, lýðræði
og lögimætri stjórnvörzlu er
vandmeðfarið og einmitt í því
fólgið að forða okkur frá iög-
regiuríki.“
Og í lok ræðu sinnar sagði
borgarstjórinn:
„Þegar hornsteinn hefur
verið lagður að þes^ari fyrsibu
byggingu á 160 ára starfsferli
lögreglunnar, sem sniðin er og
ætluð þegar í upphafi lög-
igæzliustarrilsemi hér í borg,
þá er það von mín og ósk, að
gæfa og gengi megi fylgja
öilum, sem hér starfa og sú
reigla, sem Jónsbóik kvað
Skyldi leggja til grundvallar
öll'Uim dómum, megi hér ávall/t
ríkja í mikilvægu starfi lög-
reglumanna: miskunn og sann-
indi .réttvíisi og friðsemi.“
Þrír hiutu heiðursmerki
og einra Fjalarsbikarinn
VIÐ HÁTÍÐAHÖLD Sjó-
mannadagsins á Austurvelli
afhenti formaður Sjómanna-
dagsráðs, Pétur Sigurðsson,
verðlaun og heiðursmerki
Sjómannada,gsins.
Þeir Sigurður Benediktsson,
háseti, Jón Aiexander Ólafs-
son, háseti og Eiríkur Kristó-
fersson, fyrrverandi skip-
herra, hlutu heiðursmerki
Sjómannadagsins í viðurkenn
ingarskyni fyrir langan og
giftumikinn sjómennskuferil.
Eiríkur Kristófersson var
hinn eini þremenninganna,
sem gat sjálfur veitt viðtoku
heiðursmerkinu, Þeir Sigurð-
ur Benediktsson og Jón Alex-
ander Ólafsson voru feáðir
bundnir við störf sín á hafi
úti. Konur þeirra veittu heið-
ursmerkjunum viðtöku fyrir
þeirra hönd.
Þá var hinn svonefndi Fjal-
arsbikar veittur fyrir hæstu
einkun í Vélfræði við Véi-
skólann. Bikarinn hlaut þessu
sinni örn Aanes frá Vest-
mannaeyjum. Hann gat ekki
sjálfur veitt verðlaununum
viðtöku, þar sem hann var
bundinn við störf sín á Seyð-
isfirði. Við þeim tók fyrir
hönd Arnar Sigurður Ólafs-
son, forstjóri, Vestmannaeyj-
um.
arinnar, sem hann hefir haft
í öllum þeim byggingarfram-
kvæmdum, sem hér hefir ver-
ið getið. '
Eitt hið mesta vandamál í
sambandi við býggingu nýrr-
ar aðallögreglustöðvar er stað
setning hennar. Borgarstjórn
Reykjavíkur leysti það máU
farsællega með því að M lög-
reglunni til umráða verðmæta1
og glæsilega lóð á svæðinu
milii Hverfisgötu, og Snorra-
brautar, Skúlagötu og Rauð-
arárstígs. Er sú lóð mjög hag-
kvæm f#rrir aðallögreglustöð
borgarinnar um langa fram-
tíð. Stærð lóðarinnar er um
hektari að flatarmáli, en verð-
ur um 7500 fermetrar, þegar
Hverfisgata hefir verið
breikkuð þannig að bygging-
unum hæfi.
Ég þakka fyrrverandi horg-
arstjóra, Gunnari Thorodd-
sen, núverandi borgarstjóra,
Geir Hallgrímssyni, og borg-
arstjórn Reykjavíkur fyrir
þessa mikilvægu lóðarúthlut-
un, svo og annan stuðning í
byggingarmálum lögreglunn-
ar. Arkitektar hússins, Hörður
Bjarnason, húsameistari ríkis-
ins, og Gísli Halldórsson,
hafa lagt á það mikla áherzlu,
að lögreglustöðin verði virðu-
leg bygging, en þó látlaus og
fullnægi í hvívetna því hlut-
verki, sem henni er ætlað að
gegna. Leyfi ég mér að færa
þeim þakkir fyrir gott starf.
Að lokum vil ég mega þakka
öllum þeim mörgu sérfræðing
um, iðnaðarmönnum og verka
mönnum, sem gert hafa sitt
til, að þessi bygging megi rísa
á traustum grundvelli.
Það er ósk mín og allra lög-
reglumanna, að hin nýja lög-
reglustöð verði landi og þjóð
til farsældar. Að hún megi
verða til þess, að lögreglan
geti æ betur gegnt því þjón-
ustuihlutverki, sem henni er
ætlað.
Pétur Sigurðsson, form, Sjomannadagsraðs, afhendir Eiriki Kristoferssyni heiðursmerkið.
— Ljósm. Sv. Þ.