Morgunblaðið - 05.06.1963, Síða 22
42
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. júní 1963
KR ógnaði þýzkum oft
en þeir unnu verðskuldað
Næsti leikur Þjóðverjarina er i kvöld
Fyrsti leikur hinna þýzku
knattspyrnugesta Fram, sem allir
eru sagðir atvinnumenn, bauð
upp á allmörg skemmtileg augna
blik — einkum þó er KR-ingar
einléku gegnum vörn Þjóðverj-
anna og ógnuðu marki þeirra.
Það kom nokkrum sinnum fyrir,
en hinn bráðsnjalli markvörður
Þjóðverja bjargaði alltaf, og með
þeim framúrskarandi staðsetn-
ingum, að markið var hreinlega
lokað þeim er að sótti, og mark-
vörðurinn, Wittmark, virtist ekk-
ert hafa fyrir að verja. Slíkir
yfirburðir skapast aðeins fyrir
framúrskarandi staðsetningar.
Norðmenn
unnu
Skota
- og Haukur fékk
góða dóma
NORÐMENN unnu Skota (at-
vinnumannalið) í landsleik
sem fram fór í Bergen í gær-
kvöldi með 4 gegn 3. Norska
liðið kom mjög á óvart, vann
verðskuldaðan sigur með sam
stilltu átaki, og er nú dáð sem
hetjulið í Noregi. í hálfleik
stóð 2—1 fyrir Skota. Fáir
trúðu því að Norðmönnum er
léku móti sól og vindi í síðari
hálfleik, tækist að sigra, en
þeim tókst hið ótrúlega.
| Haukur Óskarsson dæmdi
. leikinn og í fréttaskeyti NTB k
segir að hann hafi komizt vel
frá leiknum, sem var tiltölu-
lega auðdæmdur og vel leik-
inn af báðum liðum.
Yfirburðir en.......
Hinu er ekki að leyna, að flest-
ir munu hafa búizt við betri leik
atvinnuliðs en raun varð á. Að
vísu reyndust þeir í knatttækni
einum til tveimur klössum ofar
KR-ingum yfirleitt, og í hlaupum
og kollspyrnum höfðu þeir einn-
ig yfirburði. En skottækni þeirra
var ekki mikil og stundum virt-
ist liðið allt að því kærulaust í
leik sínum, aðeins sparka eitt-
hvað. Annað varð ekki af sum-
um jnarkspyrnum þeirra ráðið,
spyrnum, sem flugu himinhátt
yfir eða óravegu framhjá.
Léleg skot
Það kom aldrei verulega
hættulegt skot frá Þjóðverjum að
marki KR. Mörg höfnuðu að
vísu í þéttum varnarvegg KR og
kynnu að hafa reynzt hættuleg.
En Gísli markvörður fékk held-
ur rólegan dag og þurfti sjaldan
að taka á svo um munaði. Jafn-
vel mark útherjans Koll, á 23.
mín. síðari hálfleiks, kom úr
hálfslöppu en hnitmiðuðu skoti
en má þó frekar skrifast á staða
vörn Klt en góða skothæfileika.
Síðara mark skotanna kom úr
vítaspyrnu nokrrum mínútum
fyrir leikslok og skoraði Greiff
útherji örugglega. Vítaspyrnan
var réttmæt en er þó strangur
dómur eftir aðstæðum.
Tækifaeri
KR gekk til leiksins með
hreina varnartaktik. Framverð-
irnir voru dregnir aftur á víta-
teig og innherjarnir í framvarð-
arstöður. Afleiðing var mikið
mannakraðak við mark KR, og
fengu Þjóðverjarnir ekki úr
greitt.
Hins vegar leið sókn KR við
þetta. Þar var einn eða tveir
menn að berjast við ofurefli. En
þessi „leiftur-sjensa-sókn“ skap-
aði hvað eftir annað hættu fyrir
Þjóðverja og aðeins fyrir gijðar
staðsetningar Wittmarks mark-
varðar, fékkst bjargað.
Liðin /
Gunnar Felixson kom skemmti
lega á óvart með góðum gegnum.
brotaleik sínum hvað eftir annað
í leiknum. Hann lék oft mjög
laglega á Wehner miðvörð, og
stóð oft í góðu færi við mark, en
fékk ekki ráðið við Wittmark
markvörð.
Gunnar Guðmannsson átti og
góðan leik og var ásamt Gunn-
ari Fel., aðalhættan fyrir Þjóð-
verja. KR-liði er sýnilega að
styrkjast mjög. Ungur nýliði,
Theodor, lék á v kanti og sýndi
góð tilþrif. Mikið munaði um
Ormar í vöminni, en hann kom
sem styrktarmaður frá Val, en
vörnin í heild átti samstiíltari
leik en að undanförnu.
Sigur Þjóðverja var verðskuld
aður í leiknum. Sókn þeirra var
oft mikil þó tækist með „tá-
' ■>«*<• - ví "3
Þarna er fast sótt að KR marki sem oftast. Bjami Fel. hefur
varið en utar standa nýliðinn Theodor og Gunnar Guðmanns-
son# — Myndir Sv. Þorm.
sparksaðferðinni“ að trufla hana
oftast. En við viljum helzt sjá
annað en spyrnur langt yfir eða
framhjá, og vonumst eftir betrl
leik í kvöld af hálfu atvinnu-
mannanna. — ast.
Akureyringar unnu sín
fyrstu stig í Keflavík
Unnu Keflvikinga 4-2
ÞAÐ var suðaustan bvassviðri
og rigningansuddi, þegar ÍBA og
ÍBK mættust á grasvellinum í
Ytri-Nj'arðválk á Sjómannaidag-
inn.
ÍBK lék undan vindinum í
fyrri hálfleik, en þrátt fyrir það,
ha/fnaði knöbturinn fynst í neti
Keflvíkinga. Steingrímur gaf alll-
fast fyrir markið og lenti skotið
í fæti Grétars bakvarðar ÍBK,
með þeim afleiðingum að knött-
urinn þaut í netið, óverjandi
fyrir Kjartan markvörð.
Keflavíkingar létu ekki þetta
ólhapp á sig fá og hóÆu þegar
stórsókn, sem endaði með föisbu
Skoti Hólimberts Friðjónssonar og
nú lá knötturinn í marki Akur-
eyrar. Suimir áhorfendur töldu að
hér hefði einnig verið um sjáifis-
mark að ræða, þar eð knöttur-
inn hefði snert varnarmann Ak-
ureyrar áður en hann hafnaði í
netinu.
Akureyringar áttu nokfcur góð
tækifæri á móti veðrinu, eins
og t.d. er Páil Jónsson skaut
yfir mannlaust markið á 22. miin-
úbu og nokkrum mínútum síðar
bjargaði Kjartan með þvi að
Gísli steypir sér yfir knöttinn — o& hélt honum.
hirða knöttinn af tánum á Stein-
grimi.
Á 39 min. fyrri hálfleiks tokst
Keflvíkingum að ná yfirhönd-
inni í leiiknum, þegar Sigurður
Alberbsson skoraði með þrumu-
skoti eftir veltekna hornspyrnu
hjá Högna. Hálfleiknum lauk án
þess að fleiri mörk væru skoruð.
Akureyringar tóku það ráð í
síðari hálfleik, er þeir léku und-
an vindinum, að að láta skotin
dynja á marki Keflavikur. Þetta
bar þann árangur að á 14. mín.
Skoraði Sævar Jónatansson fram-
vörður ÍBA, með skoti af um
30 metra færi. Kjartan mark-
vörður var illla staEJsettur og
missti knöttinn yfir sig inn í
markið. Örskömmu siðar skoraði
Steingrímur með föstu skoti af
vítateigslánu.
Keflvíkingar tóku nú að leika
meira af kröftum og einsfaklings
framtaki, en samleikur þeirra var
í molum. Þrátt .fyrir það koanst
mark Akureyrar oft í hæibbu,
en Einar varði af miklu öruggi.
Jón Stefánsson var eins og fclebt-
ur í vörninni, sem flestar sókn-
arlotur ÍBK brotnuðu á. Haukiur
Jakobsson bakvörður var sterk-
ur, en hæittir við að yerða nokk-
uð grófur í návígi og var hann
að minnsta kosti heppinn eitt
sinn, en dómarinn kaus heldur
að loika augunum, en dæma viita-
spymu.
Á 30. minútu háilfleiksins var
dæmd vítaspyrna á Keflvíkinga
vegna þess að Högni Gunnlaugs-
son hindraði Akureyring. Skúii
tók vítaspymuna og skoraði ör-
ugglega. Áhorfendum fannst
þebta strangur dómur, enda fékk
dómarinn óþvegnar sendingar og
háðsglósur. Slílkt orðbragð á
ekki að eiga sér stað, þóbt mönn-
um mislíki við dómarann.
Leiknum lauk með sigri Akur-
eyrar 4:2. í þessum leite var
Akureyri betra liðið og átti skilið
að sigra, þótt eins marks munur
hefði verið réttlátari únslit.
Leikur þessi bauð ekki upp
á mikla knattspyrnu, enda veðrið
ekki heppilegt til slíkra hluta.
Framlina Akureyrar, með Kára,
Skúla og Pál Jónsson, sem beztu
menn var ólíkt virkari í sóknar-
ieik siínum, heldur en framiherj ar
Ksflavíkur. Keflviikingar náðu
ekki saman, nema sbutta stund
í einu og einleikur var alltof á-
berandi, einikum í síðari hálf-
leik. Markvörður ÍBK var fuli
glannalegur í úbhlaupum sínum
og annað markið verður að
skrifa á hans reikning.
Dómari var Valur Benedikts-
son og átiti hann ekki góðan dag.
B. Þ.
Valur vonn Akranes
ag er efstur á blaði
Valur og Akurnesingar léku
í 1. deild á Akranesi s.l. laugar-
dag. Valur vann eftir jafna og
harða baráttu með 2 gegn 1.
Þó bæði liðin ættu góð færi til
marka fengu liðin ekki skorað
nema úr 3 vítaspyrnum sem
dæmdar voru og réðu úrslitum
leiksins.
Vítaspyrnurnar allar voru
„hreinar“ og á þeim lék ekki
vafi. Bergsteinn skoraði tvíveg-
is fyrir Val en Þórður Jónsson
skoraði fyrir ’Akranes.
Mikil keppni var í leiknum og
barátta. Framan af voru Skaga-
menn ákveðnari og ógnuðu meir
en er á leið voru Valsmenn styrk
ari.
Með þessum leik hafa Vals-
menn tekið forystu í 1. deild á-
samt Fram. Bæði liðin hafa tvo
leiki án taps. Með sama stiga-
fjölda er Akranes eftir 3 leiki.
Markahlutfall Vais er hagstæð-
ast svo þeir verða í bili efstir
á blaði.