Morgunblaðið - 05.06.1963, Síða 23

Morgunblaðið - 05.06.1963, Síða 23
Miðvikudagur 5. júní 1963 MORCUNBLAÐIÐ 43 Éy verí þó ekki Í skdmmatkrókhurh a Sunntidagính eins 03 þúj Eysteinn minní — Flugið Framhald aí bls. 44 sé sagt upp eftir starfealdurs- lista. í fyrra var sagt upp manni, án þess að sök vaeri á hann bor- in. Okkur fannst gengið á okkar rétt, því við teljum okkur eiga þetta starfsöryiggi. Þessvegna viljum við fá fram skýrara orða- lag um þetta í samninga, svo ekki geti verið um að ræða hár- togun á orðalagi. En ekkert hef- ur gengið saman í umræðum um þetta við vinnuveitendur_ í umræðum höfum við boðizt til að aflétta verkfalli strax og semst um þetta atriði, burt séð frá kaupi og kjörum. Mbl. hafði tal af Björgvin Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins. — Sagði hann að atvinnurekendur fallist ekki á að um óskýrt orða- lag sé að ræða í samningum og að umræddum manni hafi verið sagt upp með löglegum fyrir- vara og skv. þeim. Innanlandsflug stöðvast Af flugvélum Flugfélagsins eru irvær staðsettar í Grænlandi, Sólfaxi í Narssassuak og Snæ- faxi í Syðri Straumfirði. Gul’l- faxi kom heim í gærkvöldi frá Kaupmannahöfn og stöðvaðist. Cloudmasterflugvélin S k ý f a x i fór í fyrrakvöld aukaferð til Glasgow og Kaupmannahafnar og verður erlendis um óákveðinn tíma, Straumfaxi fór beint frá Egilsstöðuim til Glasgow og verð ur þar einnig kyrr. Allt innan- landsflug liggur nú niðri. Flugvélar Björns Pálssonar fljúga áætlunarflug til Vest- fjarða, nema ísafjarðar, og fara leiguflug og sjúkraflug. Flug menn Björns hafa ekki sagt upp samningum Flaug Björn í gær til Egilsstaða, Húsavíkur, Bolung arvikur, Þingeyrar, Flateyrar og kom við á Akureyri. Flugvélar Loftleiða ekki heima Engin flugvéd Loftleiða er i heimahöfn. Ein flugvél þeirra, ®®na átti að hafa viðkomu í Keykjavík í gærmorgun fór beint til Glasgow frá New York án viðkomu í Reykjavík. Ekki feng- ust í gaer upplýsingar hjá fram kvaemdastjóra Loftleiða un hvað gert yrðL — Tekjur Dagshrúnarmanna Framh. af bls. 44 sem er 28% hækkun frá árinu áður. Vinnutími sömu manna nam að meðaltali 2545 klst. á árinu 1961, en 2748 klst. árið 1962, eða 8% fleiri. Stafar vinnustunda- fjölgunin fyrst og fremst af því, að á árinu 1962 ríkti vinnufrið- ur í landinu, en árið 1961 var heils mánaðar vinnustöðvun hjá þessum verkamönnum. Sé gert ráð fyrir 49 vinnuvik- um á sl. ári, en 46 vinnuvikum árið 1961 vegna verkfallanna á því ári, kemur í ljós, að vikuleg- ur vinnustundafjöldi hefur á ár- inu 1961 verið 55 klst., en 56 klst. á árinu 1962. Á árinu 1962 hafa laun fyrir hverja unna vinnustund hækkað um 18.6% frá árinu áður, en árið 1961 eru meðallaun þeirra manna, sem um ræðir, 27.85 fyr- ir hverja vinnustund, en hækk- uðu á árinu 1962 upp í 33.04 kr. * KAUPMÁTTURINN HEFUR AUKIZT UM 9.4% Sé reynt að meta breytinguna á sl. ári á kaupmætti árstekna Dagsbrúnarverkamanna og mið- að við vísitölu neyzluvöru og þjónustu í framfærsluvísitölunni sést, að meðalvísitalan fyrir árið 1961 var 121.4 stig, og meðal- vísitalan fyrir árið 1962 var 136.1 stig, og hefur samkvæmt því orð- ið 12.1% hækkun á neyzluvörum og þjónustu. Á sama tíma hafa heildartekj ur verkamanna samkvæmt fram ansögðu hækkað um 22.8%, og hefur þá kaupmáttur árstekn- anna eftir því aukizt um 9.4%. Ástæður þessarar aukningar á kaupmættinum eru einkum fjór- ar. í fyrsta lagi hefur árlegur vinnutími lengst, þar sem vinnu friður ríkti allt árið 1962, en hins vegar hefur vikulegur vinnutími aðeins lengst um 1 klst. í öðru lagi er svo hlutfall yfirvinnu greiðslna stærra en árið 1961. : þriðja lagi hefur orðið breyting i kauptöxtum, þannig að hlutdeild lægsta taxta hefur minnkað til muna. Og í fjórða lagi má nefna, að um allmiklar yfirborganir er að ræða. * MEÐALÁRSTEKJUR VERKAMANNA HJÁ EIMSKIP 92 ÞÚS. KR. Samkvæmt sérstakri rann sókn, sem framkvæmd var í launatekjum 170 verkamanna hjá Eimskipafélagi fslands, hækkuðu árstekjur þeirra um 28.5% á ár inu 1962 miðað við árið á undan. Árið 1961 námu meðalárstekjur þeirra þannig 71.4 þús. kr., en 91.8 þús. kr. árið 1962. Árið 1961 unnu þessir verka- menn að meðaltali 2585 klst. yfir árið, en 2802 klst. árið 1962. Er hér um að ræða 8.4% fjölgun vinnustunda, sem eins og að framan stafar af því, að vinnu- friður hefur ríkt á árinu 1962. Meðaltalsgreiðsla til þessara verkamanna fyrir hverja vinnu- stund hefur á sl. ári hækkað úr 27.62 kr. í 32.76 kr., eða um 18.6%. — Miðað við 46 vinnu- vikur á árinu 1961 og 49 vinnu- vikur á árinu 1962, er vikulegur vinnustundafjöldi 56.2 klst. fyrra árið og 57.2 klst. síðar- nefnda árið. * VINNUTÍMI STYTTIST — EN TEKJUR HÆKKA Athugun, sem gerð var hjá stóru fiskiðnaðarfyrirtæki í Reykjavík, ísbirninum hf., leiddi í ljós, að þar hefur vinnutíminn stytzt á sl. ári, en launatekjur starfsmanna þrátt fyrir það hækkað verulega. Árið 1961 námu tekjur 23 verkamanna hjá fyrirtækinu 69.2 þús. kr., en á sl. ári voru tekjur þeirra tæplega 10% hærri, eða 76 þús. kr. Enda þótt tekjur þeirra hækkuðu þannig vernlega, fækkaði vinnustundum. Árið 1961 voru vinnustundir hvers verkamannas um sig 2385 klst., en á sl. ári 2186 klst., eða 8.4% færri. Laun þessara verkamanna fyr- ir hverja vinnustund hækkuðu úr 29.01 kr. árið 1961 í 34.76 kr. árið 1962, eða um 20%. Enn meiri er þó hækkunin hjá verkakonum í þessu fyrirtæki, og má að nokkru leyti þakka það hækkun þeirri, sem varð um sl. áramót samkvæmt lögum þeim, sem sett voru á árinu 1961 um launajafnrétti karla og kvenna. Þannig voru árstekjur 14 verka- kvenna árið 1961 47.3 þús. kr., en 56.2 þús. kr. á sl. ári, og er hér um að ræða 18.8% hækkun ársteknanna. Þrátt fyrir þessa hækkun stytt ist vinnutími verkakvennanna úr 2052 klst. árið 1961 í 1766 klst. árið 1962, eða um 13.9%. Og laun þeirra fyrir hverja vinnustund hækkuðu úr 23.28 kr 1961 í 31.82 kr. 1962, eða um 37%. Af því, sem aff framan er rakiff, má ljóst vera, aff full- yrffingar stjórnarandstöðu flokkanna um „kjaraskerff ingu“ af völdum viffreisnar innar og „vinnuþrælkun" eiga sér ekki stoff í veruleikanum Þvert á móti hafa kjör manna batnaff verulega á viffreisnar tímabilinu. Atvinna er mjög mikil og hver vinnandi hönd hefur því nóg aff starfa. Islend ingar hafa ætíð þurft að vinna mikið, svo aff tiltölulega lang ur vinnutími á viðreisnartíma bilinu er engin nýlunda. En hin mikla atvinna í landinu og auknar kjarabætur sýna, aff viffreisnarráffstafanirnar hafa Ieitt til góðs, enda munu launþegar sýna á kjördegi, aff þeir vilja áframhaldandi viff reisn. Lagleg byrjun í Borgarfirffi. Sigurffur Guðbrandsson meff 15 punda hænginn, sem hann fékk á hvítasunnudag. — Á mynd inni eru tvö bræffrabörn Sigurffar, Hjalti Þór Sigurffsson og Steindór Skúiason, báffir fimm ára. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). Þeir fyrstu komnir á land VeiÖin hefst nú í laxánum hverri af annari ÞÁ ER hin langþráða vertíð lax- veiðimanna hafin, en fyrstu árn ar voru opnaðar sl. laugardag, þar á meðal Norðurá, Laxá í Kjós og Miðfjarðará. Munu árnar nú verða opnaðar hver af annarri og 15. júní verður veiði hafin í þeim öllum. Ekkj hefur enn frétzt um afla fyrstu dagana í Norðurá, en að vanda opnaði stjórn Stangaveiði félags Reykjavíkur ána. Voru veiðimennirnir væntanlegir til Reykjavíkur í gærkvöldi — og vonandi með þunga veiðipoka. Aðrar Borgarfjarðarár, t.d. Grímsá, verða opnaðar nú seint í vikunni. í Laxá í Þingeyjarsýslu mun veiði hefjast 10. júní. Þór Guðjónsson, veiðimála- stjóri, tjáði Mbl. í gær að neta veiði í Hvítá í Borgarfirði hefði hafizt 21. maí sl. Hefði netaveið in verð treg í fyrstu, enda lítið vatn í ánni og kalt í veðri. Sigurður Guðbrandsson, mjólk urbússtjóri í Borgarnesi, mun hafa dregið einn fyrsta laxinn á þessari „vertíð“. Skrapp hann að Norðurá, þar sem Gljúfurá renn ur í hana, kastaði þar flugu nokkurn tíma, en fékk ekkert. Þá var maðkurinn settur á, og innan skamms lá 15 punda spegilfagur hængur á árbakkanum. Sigurður tjáði Mbl. í gær að óvenjulegt væri að fá svo stóran lax í upp hafi veiðitíma á þessum slóðum, því yfirleitt gengi minni laxinn fyrst, og fengjust ekki stærri lax ar öðru jöfnu en 9—10 pund. Vilja lendingar- bann að nætur- 1 EFTIRFARANDI tillaga var sam þykkt samhljóða á fundi bæjar- stjórnar Kópavogskaupstaðar, 24 mai sl.: „Bæjarstjórn Kópavogs vekur athygli ríkisstjórnar og Alþing- is á því, að fluigtök og lendingar stórra flugvéla á suðurbraut Reykjavíkurflugvallar s k a p a r verulega hættu fyrir byggðina á utanverðu Kársnesi og jafn- framt mikil óþægindi fyrir íbú- ana þar. Skorar bæjawtjórn á áður- nefnd stjórnarvöld að láta nú þegar hefja undirbúning að því að breyta svo legu flugvallarins, að umræddri hættu oig óþægind- um verði bægt frá. Meðan lega flugvallarins er óbreytt, telur bæjarstjórnin óhjá kvæniilegt að verða við tilmæl- um íbúanna á utanverðu Kárs- nesi, og gerir því kröfu til, að suðurbraut Reykjavíkurflugvall- ar verði eftirleiðis lokuð fyrir millilandaflugvélum eigi skemur en frá miðnætti og til kl. 7 ár- degis daig hvern.“ Laugarlækja- skólanum slitið LAUGARLÆKJASKÓLANUM var slitið 31. maí s.l. 625 nem- endur gengu undir próif, þar af 95 undir bamapróf. Skóttastjórinn, Guðmundur Magnússon, gat þess í skólaslita- ræðu, að þetta væri í fyrsta Skipti, sem skólinn útskrifaði 12 ára börn með barnapróifi. Hæstu einkunn á því prófi og uan leið í skólanuim að þessu sinni hlaut Sigríður Guðmundisdóttir, 9,54. Önnur varð Edda Erlendisdóttir með 9,46 og þriðji Pótur Þ. Maaok með 9,38. Gömlu myndirnar komn- ar á Þjóðminjasafnið JÓN KALDAL, ljósmyndari, er nýkominn heim frá Kaupmanna- höfn, en þangað fór hann með ljósmyndavél sína til að vita hvort tækist að gera við hana eftir brunann að Laugavegi 11. Hefur sérfræðingur nú skipt um belg í henni, fágað linsurnar og gert við hana og sagði Jón í sam- tali við Mbl. í gærkvöldi að hann vonaði að vélin væri nú jafn góð. Mikið af gamla myndaplötu- safninu hans er nú komið í Þjóð- minjasafnið. Sagði Jón að það hefði sloppið mikið til óskemmt. Aftur á móti hafi nýrri filmur eyðilagzt mikið af vatni og reyk og myndir alveg. Þó hægt sé að bjarga einhverju með því að hreinsa filmurnar upp, þá sé það gífurlegt verk. Nú kvaðst Jón standa í að flokka myndaplötur og myndir. — Og það er ekki skemmtilegt verk, sagði hann. Annars kvaðst Jón vera búinn að fá húsnæði fyrir ljósmynda- stofu að Laugavegi 22 og ætla að byrja að mynda eins fljótt og hægt værL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.