Morgunblaðið - 05.06.1963, Blaðsíða 24
123. tbl. — Miðvikudagur 5. júní 1963
SGÖGNJ,
STERKog
STÍLHRE*rsí
NJARBVÍKINGAR
Skrifstofa Sjáifstæðisflokks-
ins I Njarðvíkum er í Gamla
Friðjónskjöri, opin öll kvöld frá
kl. 20, sími 1210.
SELTJARNARNES
Kosningaskrifstofa Sjálfstæð-
isflokksins á Seltjarnarnesi er á
Skólabraut 17, sími 15783.
Skrifstofan er ópin frá kl. 20-
22.
Stnðningsmenn D-listans hafið
samband við skrifstofuna.
k
Vowo)
Tekjur Dagsbrúnarmanna hækkuðu
KÓPAVOGUR
Sjálfboðaliðar óskast til starfa
á kjördag. Þeir sem vilja lána
bíla á kjördag hafið samband
við kosningaskrifstofuna í Sjálf-
stæðishúsinu, Kópavogi. símar
19708 — 15577.
Gulifoss er nú kominn úr þurrkvínni í Höfn og fer r eynslusiglin^u í dag. Sjá frett a bls. 41.
um 22,8% á sl. ári
A sumum vinnustöðum hefur vinnu-
tíminn stytzt
♦ Samkvæmt samanburði, sem gerður hefur verið á
skattaframtölum Dagsbrúnarverkamanna árin 1961 og 1962
hafa ■heildartekjur þeirra aukizt um 22.8% á sl. ári miðað við
árið áður. Hins vegar hefur orðið 12.1% hækkun á neyzlu-
vörum og þjónustu, svo að kaupmáttur árstekna verka-
manna hefur á árinu aukizt um 9.4%.
t Á sama tíma hefur vikulegum vinnustundum f jölgað
um aðeins eina — samkvæmt athugun á nokkrum vinnustöð-
um — eða úr 55 klst. á viku árið 1961 í 56 klst. á viku árið
1962. Sýnir þetta vel, hve litla stoð tal stjórnarandstöðu-
flokkanna, framsóknarmanna og kommúnista, um „vinnu-
þrælkun“ á í raunveruleikanum.
% Athugun á skattaframtölum 107 Dagsbrúnarverka-
manna fyrir sl. ár leiðir í ljós, að heildartekjur þeirra nema
að meðaltali yfir 100 þús. kr., eða 103.700.00 kr.
Svo sem að framan segir er hér
um að ræða samanburð á tekjum
Dagsbrúnarverkamanna sam-
kvæmt skattaframtölum þeirra
árin 1961 og 1962. Var tekið úr-
tak 107 vörkamanna — sömu
manna bæði áíin — og er óhætt
að fullyrða, að niðurstaða þess-
arar athugunar gefi rétta mynd
af tekjum Dagsbrúnarverka-
manna ýffrleitt. Athugun þessi
var framkvæmd á vegum hinnar
svonefndu. vinnutímanefndar,
sem í eiga sæti fulltrúar allra
stjórnmálaflokkanna, og skýrði
formaður nefndarinnar, Pétur
Sigurðsson, blaðinu frá nokkrum
niðurstöðum þessara athugana í
gær.
if LAtJNATEKJUR 28%
HÆRRI 1962 EN 1961
Árið 1961 námu heildartekj-
ur verkamanna 84.4 þús. kr., og
eru þá t.d. einnig meðtaldar bæt-
ur almannatrygginga, svo sem
fjölskyldubætur. Árið 1962 námu
heildartekjurnar hins vegar 103.7
þús. kr. — og höfðu þannig hækk
að um 22.8% á einu ári.
Sé aðeins reiknað með beinum
lavmatekjum verkamanna, þ.e. að
frátöldum t.d. fjölskyldubótum
o. fl., námu árstekjur þeirra 75
þús. kr. árið 1961, en 96 þús. kr.
árið 1962. Voru beinar launatekj-
ur verkamanna þannig 28%
hærri á árinu 1962 en árið þar á
undan.’
■k VINNU STUNDIR
8% FUEIRI
Einnig lá fyrir launauppgjör
244 verkamanna hjá sex fyrir-
tækjum samkvæmt vinnuseðlum
þeirra fyrir árin 1961 og 1962.
Þar kom fram, að árstekjur þess-
ara 244 verkamanna námu á ár-
inu 1961 70.9 þús. kr., og eru þá
ekki taldar með fjölskyldubætur
og aðrar hliðstæðar bætur, tekj-
ur maka o. s. frv. Launatekjur
sömu manna voru á árinu 1962
allmiklu hærri, eða 90.8 þús. kr.,
Framh. á bls. 43
Sjálf-
boðaliöar
óskast
í DAG og í kvöld vantar
Sjálfstæðisflokkinn sjálf-
boðaliða, eldri sem yngri,
til vinnu. Þeir sem vilja
veita aðstoð, eru beðnir að
koma í Vonarstræti 4 (VR)
III. hæð eða hringja í síma
22316.
Skógræktarferð
í Heiðmörk
Á FIMMTUDAGSKVÖLD efnir
Ferðafélag íslandis til fyrstu skóg
ræktarferðarinnar í Heiðmörk á
þessu vori. Er ætlunin að koma
niður 6000 plöntuim, einis og gert
er á hverju ári. Ef margir leggja
hönd á plóginn og mæta til gróð-
ursetningar er það fljótgert og
áætlað að fara 3—4 ferðir.
Flug innanlands og
til útlanda stöðvaö
Verkfallið snýst um einn mann
Á MIÐNÆTTI í fyrrinón hófst
verkfall flugmanna og liggur
reglulegt innanlandsflug nú niðri
nema áætlunarferðir Björns Páls
sonar til Vestfjarða uj einnig
hafa ferðir milli íslands og er-
lendra flughafna stöðvast. I gær
sátu fulltrúar flugmanna og full-
trúar atvinnurekenda fund með
sáttasemjara frá kl_ 5 síðdegis til
miðnættis. Ekki var rætt um
kaup- og kjaramál, heldur snúast
deilur um uppsögn eins flug-
manns, og hafa flugmenn boðizt
til að aflétta verkfalii strax og
semst um þetta atriði. Ekki náð-
ist samkomulag'
Eftir að samningafundi lauk
um miðnætti í gær, óskaði for*
maður samninganefndar fluig-
manna, Guðlaugur Helgason, eft-
ir að koma á framfæri eftirfar-
andi skýringu á afstöðu flug-
manna.
Samningsuimræður hafa fyrst
og fremst staðið um starfsör-
yggi flugmanna, en ekki verið
rætt um kaup og kjaramál. —
Við höfum haft starfsöryiggis-
reglur, segir hann, sem kveða á
um hvernig uppsögn skuli fara
fram, og þær fela í sér, að man-i
sé ekki sagt upp nema hann sé
sannur að sök eða ef um sam-
drátt í fyrirtæki er að ræða, þá
Framhald á bls. 43
Kjósendafundur
I Hafnarfirði
K.TÓSENDAFUNDUR D-listans í Hafnarfirði verður í Hafnar-
fjarðarbíó n.k. fimmtudagskvöld kl. 8,30. Ávörp og ræður flytja:
Ólafu- Thors, f orsælisi áðherra, Matthías Á. Mathiesen, alþm.,
Sverrir Júiíusson, útg.m., Axel Jónsson, fl.tr. og Oddur Andrés-
son bóndi Fundarstjóri verður Hafsteinn Baldvinsson, bæjar-
st.jóri.
í fundarbyrjun leikur Eyþór Þorláksson og félagar, en eftir
fundinn syngja Savanna-tríóið, svo og Kristinn Hallsson og
Þórunn Ólafsdóttjr.