Morgunblaðið - 09.06.1963, Page 3
Sunnudagur 9. jún! 1963
M O R G Z) 1S n l A Ð I Ð
3
Kjördagsmorgunn út um
iandsbyggðina
KJÖRFUNDIR hófust á flestum
stöðum úti á landi kl. 10 í morgg
un. Var alls staðar ágætt veður,
hlýtt og meinlaust en ekki mikið
sólfar. Kjörsókn fór yfirleitt hægt
af stað. Mbl. hafði samband við
fréttaritara sína víðsvegar um
landið kl. 11—12 og fara hér á
eftir þær fréttir af kosningu,
sem þeir höfðu að segja:
Akranes
AKRANESI. — I kjörstjórn
Akraneskaupstaðar eru Þórhall-
ur Sæmundsson, bæjarfógeti, Jón
Sigmundsson, sparisjóðsgjaldkeri
og Sigurður G. Sigurðsson, skrif-
stofustjóri í Sementsverksmiðj-
unni. Hér er kosið í Iðnskólahús-
inu við Skólabraut í 2 deildum.
í fyrstu kjördeild eru íbúar húsa
við Akurgerði til Presthúsabraut
ar .í annarri kjördeild íbúar
húsa við Sandabraut til Voga-
brautar. Kosning hófst kl. 10 f.h.
Undirkjörstjórnarmenn og vara
menn mættu á kjörstað kl. 9.
Ekki sér til sólar. Veður er kyrrt
og þykkt loft.
Kl. 10.40 voru um 100 manns
búnir að kjósa og kl. 11.40 voru
um 250 búnir að kjósa. Á kjör-
skrá eru nú 2100 manns.
— Oddur.
Borgarnes
BORGARNESI, 9. júnL — Hér
er veður stillt, dumbungur, en
úrkomulaust. í Borgarnesi eru
523 á kjörskrá og ein kjördeild.
Kl. 11.05 fyrir hádegi höfðu 26
kosið á kjörstað, en komin voru
þá 29 utankjörstaðaratkvæði.
— Hörður.
ísafjörður
Hér er mjög gott veður, sól-
skin og norðan gola Kjörfundur
hófst kl. 10 á ísafirði. Kjörsókn
hefur verið heldur dræm fyrir
Shádegi. Um 11 leytið voru um
70 manns búnir að kjósa. Þrjár
kjördeildir eru á ísafirði, en þar
eru á kjörskrá 1423.
Á kjörskrá í Vestfjarðakjör-
dæmi eru nú 5555 en var 5710
haustkosningunum 1959. 52 kjör-
deildir eru núna í kjördæminu.
Yfirkjörstjórn Vestfjarðakjör-
dæmis kemur saman kl. 13 I
Alþýðuhúsinu á ísafirði, en
varla er hægt að búast við að taln
ing atkvæða hefjist fyrr en seinni
hluta dags.
Ólafsfjörbur
Hér er blíðskaparveður,
og bjartviðri. Kjörfundur
hér upp úr kl. 10. Á
eru 549. Kl. 11.15 voru
að kjósa.
venju.
hlýtt
hófst
kjörskrá
32 búnir
Akureyri
AKUREYRI. — Hér var þoka í
hlíðum í morgun, en glaðnar nú
óðum fyrir sólu, þegar fram á
daginn kemur og horfur eru á
hinu fegursta veðri í dag. Kosið
er í Gagnfræðaskólahúsinu og
er mikil bílaumferð um nærliggj
andi götur. En nýlega er búið að
bera rykbindiefni á götur kring-
um kjörstaðinn. Nú er logn og
12 stiga hiti.
Á Akureyri eru 4996 á
skrá og af þeim höfðu 641
atkvæoi kl. 12.
Húsavik
Kjörfundur hófst hér kl. 10
Á kjörskrá eru 866, en við síð-
ustu kosningar 828. Kjörsókn var
góð fyrsta klukkutímann og
kusu um 88 manns. Veðrið er
eins gott og frekast er hægt að
kjósa, logn, sólskin og 10 stiga
hiti. «
Kjörfundur hófst kl. 9 i sól og
blíðu og bezta veðri. Atkvæðin
þaðan faiá til lands með skipi
í kvöld.
Norbfjörður
NORÐFJORÐUR. — Um 800
eru hér á kjörskrá. Kl. 11 voru
46 búnir að kjósa. Kjörfundur
hófst kl. 10 á bæjarskrifstofunni.
Hér er ágætis veður, hlýtt og
bjart, en sólarlaust, prýðilegt
kosningaveður.
Blönduós
BLÖNDUÓS. — Kosning hófst
ó Blönduósi kl. 10 og kosning því
lítið byrjuð enn. Á kjörskrá eru
347. Veður er ágætt, logn og
hlýtt.
Sauðárkrókur
Kosning hófst á mínútunni kl.
10. Á kjörskrá eru 757. Kl. 11
höfðu 60 kosið. Veður er stillt,
hlýtt, en þokuloft og má búast
við að glaðni til upp úr hádeg-
inu.
Siglufjörður
SIGLUFIRÐI, 9. júní. — Hér er
heiður himinn, sólskin og hlý-
indi. Kjörfundur hófst kl. 9. Kjör
etaður er 1 húsi Gagnfræðaskól-
ans og er kjördeild ein, en 1400
hafa hér kosningarétt. Klukkan
11.15 höfðu um 150 manns kosið
á kjörstað, en komin 130 utan-
kj örstaðaratkvæði.
— Stefán.
Bjarni og frú
Miðbæjarbarnaskólaporlinu
Baldvin Tryggvason, forstjóri Almenna bókafélagsins, frú
sonur á kjörstað.
Seyðisfjörbur
SEYÐISFJÖÐUR. — 420 eru hér
á kjörskrá. Kosning er nýlega
hafin, hófst kl. 10. Um 11 leytið
voru örfáir búnir að kjósa, um
40 manns.
Stillt veður er, en skýjað og
sólarlaust.
V estmannaeyjar
VESTMANNAEYJUM, 9. júní —
Kosningaveður er hér ágætt,
austan kaldi, skýjað, sólarlaust
en frekar hlýtt. Kjörfundur hófst
hér kl. 9 og er það klukkutíma
fyrr en venjulega, og strax og
kjördeildir voru opnaðar voru
komnir menn á staðinn og var
þegar byrjað að kjósa.
Kosið er á tveimur stöðum, í
KFUM-húsinu og Akoges-húsinu.
Kl. 11 í morgun höfðu 212 kos-
ið og er það nokkru meiri kjör-
sókn en vanalega á sama tima.
Mikil hreyfing er í bænum og
menn virðast ætla að taka dag-
inn snemma. Af merkum borgur-
um, sem þegar hafa kosið má
nefna Ársæl Sveinsson, fyrrum
forseta bæjarstjórnar, Guðlaug
Gíslason, alþm., Sigfús A. John-
sen, 5 mann á lista Sjálfstæðis-
manna, Björn Guðmundsson, út-
gerðarmann og fréttaritara Mbl.
í Eyjum, Þorstein Víglundsson,
sparisjóðsstjóra, Guðlaug Stefáns
son, forstjóra, Ingiberg Hannes-
son, mikinn og landsþekktan
kommúnista og Pál Þorbjörns-
son, þekktan Alþýðuflokksmann.
Á kjörskrá í Vestmannaeyjum
eru 2568 man»s. — B.
Selfoss
Veður er hér gott. Kl. 11.30
höfðu kosið hér 130 manns af
956, sem eru á kjörskrá. Kosið er'
í 2 kjördeildum í Iðnaðarmanna
húsinu. Fyrstirkusu, er kjörfund
ur hófst kl. 10, Jón Pálsson dýra-
læknir og Júlíus Ólafsson.
Sjálfstæðismenn á Selfossi eru
sigurvissir enda er kjörsókn hér
góð. — Ó.J.
Keflavik
KJÖRFUNDUR hófst hér f mildu
og góðu veðri kl. 10. Á kjörskrá
eru 2355. Utankjörstaða höfðu
116 greitt atkvæði og nú kl.
11,30 höfðu 216 greitt atkvæði á
kjörstað. Sömu sögu er að segja
úr nágrannabyggðum Keflavikur
Þar hófst kjörfundur á sama
tíma og er kjörsókn mjög sæmi-
leg. í Höfnum höfðu 22% kosið
utan kjörstaðar. H.S.J.
Góð kjör-
sókn í Kópa-
vogi
í KÓPAVOGI hófst kjörsókn
klukkan níu og voru þá mættir
á kjörstað ýmsir ráðandi menn
í kaupstaðnum. Kjörsókn var
heldur dræm framan af en strax
upp úr hádegi jókst hún að mun,
og virtist vera mikill áhugi í
fólki. Með þeim fyrstu, sem
mættir voru þegar opnað var,
var frú Hulda Jakobsdóttir og
dóttir hennar. Tjáðu ráðandi
menn í Kópavogsskóla frétta-
manni blaðsins að kjörsókn væri
svipuð og áður hefði verið, og
glöddust að sjálfsögðu yfir því
að veðrið gæti ekki verið ákjós-
anlegra.
Kosið er í tveimur skólum í
Kópavogi, Kársness- og Kópa-
vogsskóla. Mikil bílaumferð var
að báðum þessum skólum fyrir
hádegi, og fjöldi fólks, a.m.k. fyr-
ir utan þá.
Á hádegi höfðu um 600 manns
kosið í Kópavogi. Á kjörskrá
eru 2357.
Kjorstjornm í hmni nyju kjördeild i Hrafnistu í morgun. Frá
vinstri: Grimur Gíslason, Karl Karlsson og Sigurður Mariasson.
Lengst til vinstri sézt einn vistmanna á leiS að atkvæðakass-
anum með atkvæði sitt í hendi. (Ljósm. Mbl. Markús).
Kjördeild í Hrafn
istu í fyrsta sinn
Nær 140 manns á kjörskrá
Þ A D var ekki beinlínis elli-
mörk að sjá á þeim kjósendum,
sem í morgun stóðu í anddyri
Hrafnistu, Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna, er blaðamenn
Mbl. bar þar að garði. Menn
stóðu í hópum og skeggræddu
pólitíkina. væntanleg kosninga-
úrslit og veðrið og voru hinir
hressustu. Margir létu i ljósi
ánægju sína yfir því að nú var
í fyrsta sinn opnuð sérstök kjör-
deild í Hrafnistu, þar sem kjör-
fundur hófst laust fyrir kl. 10
í morgun. Ekki tókst að hefja
kjörfund kl. 9 svo sem ráðgert
hafði verið sökum þess að kjör-
gögn komu í síðara lagi og síð-
asta undirbúningi lauk ekki fyrr
en 10 mín. fyrir tíu.
Fréttamenn Mbl. litu inn i
kjördeildina þar sem fyrir var
Karlsson, hinir tveir síðastnefndu
vistmenn í Hrafnistu. Þar voru
einnig hinir venjulegu fulltrúar
flokkanna fjögurra til að fylgj-
ast með kjörfundi.
Þeir Sigurður og Karl tjáðu
fréttamönnum að 138 manns
væru á kjörskrá í Hrafnistu. —
Mjög hefði verið aðkallandi að
fá setta þar upp sérstaka kjör-
deild og hefði verið farið fram á
það í undanförnum kosningum
en ekki hefði af orðið fyrr en
nú. Margir hefði ekki getað kos-
ið áður vegna lasleika, en nú
mætti reikna með að langflestir
gætu greitt atkvæði.
Er fréttamenn Mbl. héldu af
staðnum, gekk kosning greið-
lega, og hópur aldraðra sjó-
manna stóð fyrir framan kjör-
deildina og beið þess að kom-
ast að.