Morgunblaðið - 09.06.1963, Síða 8
Kjósið
fyrir bíó
ÞAR sem kjördagur er að-
eins einn og lýkur kl. 11
í kvöld eru kjósendur, sem
hyggjast fara í bíó, minntir
á að kjósa áður. Eftir bíótíma
er kosningu um það bil að
ljúka.
Fyrsta síldin 60-70 sjd-
mílur út af Bjarnarey
Vélbáturínn Gunnar . fékk þnr
1700 tunnur
ESKIFIRÐI, 9. júní. — Vélbátur-
inn Gunnar frá Reyðarfirði fór
út á veiðar á laugardagsnótt sl.
og leitaði síldar djúpt á leiðinni
norður með Austfjörðum. 60—70
sjómílur út af Bjarnarey varð
hann var síldar og kastaði þegar.
Um kl. 8 á laugardagskvöld var
hann búinn að háfa 1000 mál og
var að búa sig til að kasta aftur.
Varúö til vinstri
KOMMÚNISTAR hafa nú til-
einkað sér nýtt slagorð: Víkið
til vinstri. Eru orð þessi dæmi
gerð fyrir undanhald kommún
ismans hér á landi og verðugt
letur á hinn flekkaða skjöld
kommúnista.
Það hefur ávallt verið stolt
og prýði góðra manna að taka
sér i munn vígorð frelsishetj-
unnar, Jóns Sigurðssonar: —
Eigi að víkja. Trúin og sann
færingin um hinn góða mál-
stað blæs þjóðhollum mönnum
stefnufestu í brjóst. Þeir víkja
ekki, en fylgja sannfæringu
sinni.
En kommúnistar vilja víkja,
og það til vinstri. Sannfæring
in og sigurvissa er ekki nægj
anleg til hvatningar um mark
vissa sókn til sigurs, enda er
hann löngu úr augsýn.
• Mbl. vonar, að vígorð komm
únista skapi engin vandræði
í umferðinni í dag og vill á-
rétta það að gæta ber Varúð
ar til vinstri.
Að sögn skipstjórans Jónasar
Jónssonar er sildin bæði feit og
falleg.
Gunnar var væntanlegur um
hádegið til Eskifjarðar með um
1700 tunnur Verða teknar þar
úr skipinu 150 tunnur til fryst-
ingar, en afganginn fer skipið
með til Reyðarfjarðar og leggur
þar upp í bræðslu.
Jónas Jónsson var skipstjóri á
Seley í fyrrasumar og fékk þá
einnig fyrstu sumarsíldina.
Jónas kastaði eftir lóðningu og
telur hann að þarna sé um tals-
vert síldarmagn að ræða.
— Við á Gunnari vorum 90
sjómílur NA af Dalatanga er
við fengum síldina, sagði Jón
as skipstjóri við fréttaritara
blaðsins er hann ræddi við
hann um hádegið á Eskifirði.
Stígandi frá Ólafsfirði á sömu
slóðum fékk 6—700 mál. Ho-
fell frá Fáskrúðsfirði með 700
aðeins sunnar.
Allt bendir til að talsvert só
þarna af síld, en allir bátarn
ir köstuðu strax og þeir komu
á svæðið svo lítið var leitað.
Framh. á bls. 7.
Stuðningsmenn
D-listans athugið
TVÆR villur voru á baksíðu
Morgunblaðsins í morgun, þar
sem gefnar voru upplýsingar
um hverfisskrifstofur fulltrúa
ráðs Sjálfstæðisfélaganna og
bifreiðaafgreiðslur. Þar átti
aó standa:
Langholtsskólahverf i:
Hverfísskriftofa fulltrúaráðs
Sjálfstæðisélaganna fyrir
Langholtsskólahverfi er að
Sunnuvegi 27, sími 35307.
Laugarneshverfi:
Aðalstöð bifreiðaafgreiðslu
fyrir Laugarneshverfi er:
Sindri við Borgartún, símar
24064 (2 línur) og 19122 (3
línur).